Þjóðviljinn - 25.10.1945, Side 7
Fimmtudagur 25. okt. 1945
%**>9!V|LJINN
fíTíTT]
Ur borgínn!
Hið nýja alþjóðasamband verkalýðsins
Næturlæknir er í læknavarð-
siofunni Austurbæjarskólanum,
sími 9030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni.
Ljósatími ökutækja er frá kl.
5.15 að kvöldi til kl. 7.10 að
morgni.
Næturakstur: Hreyfill, simi
1633.
Útvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla,. 2. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
19.40 Desin dagskrá næstu viku.
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar).
a) Forleikur eftir Geo Linat.
b) Mimosa, vals eftir Sidney
Jones. c) Meditation eftir C.
Taylor. d) Marz eftir Urbaoh.
20.50 Frá útlöndum (Jón Magn-
ússon). I
21.10 Hljómplötur: íslenzkir söng
menn.
21.25 Upplestur: Kvæði (Karl ís-
feld ritstjóri).
21.40 Hljómplötur: Tristan og
Isolde, forleikur eftir Wagner.
Líkn, Templarasundi 3. Börn
verða framvegis bólusett gegn
barnaveiki á föstudögum kl.
5,30—6. Þeir, sem vilja fá börn
sín bólusett, hringi fyrsf í síma
5967 kl. 11—12 árdegis sama dag.
Skipafréttir. „Brúarfoss“ er í
Leith. „Fjallfoss" er í New York.
Kom þangað 8. þ. m. „Lagar-
foss“ kemur sennilega kl. 1—2
í nótt frá Gautaborg. „Selfoss“
er í Beykjavík. „Reykjafoss" er
í Reykjavík. „Buntline Hitch“ er
í New York. „Span Splice“ fór
frá Reykjavík 15. þ. m. til New
York. „Lesto“ er í Leith. Tefst
þar vegna verkfalls hafnarverka-
manna. „Bjarnarey“ fór frá
Reykjavík á hádegi í fyrradag
til Bíldudals.
Sjómannablaðið Víkingur, 10.
tölublað þ. á„ er komið út. Efni
m. a.: Ásgeir Sigurðsson: Minnis-
blað. Sigurður Einarsson: Kveðið
til gamallar sjómannsekkju
(kvæði). Haraldur Böðvarsson:
Viðhorf dagsins frá sjónarmiði
útgerðarmanns. Hallgrímur Jóns-
son: Magnettengsli fyrir mótor-
skip. Landssamband íslenzkra út-
vegsmanna (með myndum). Grím
ur Þorkelsson: Lítið til fuglanna
í loftinu (þýtt). Sigurður Þor-
steinsson: Jón frá Hlíðarenda.
Jón Dúason: Réttur íslands til
Grænlabds. Konráð Gislason:
Vistarverur sjómanna. Heimilis-
bölið, smáisaga eftir O. Henry,
Sigríður Arnlaugsdóttir þýddi.
Gjöf til Slysavamafélags ís-
lands. Skúli Thorarensen útgerð
armaður hefur f. h. útgerðarfé-
lagsins Helgafell Reykjavík af-
hent Slysavarnafélagi íslands kr.
13.333.34 að giöf. En fjárupphæð
þessi er hluti útgerðarfélagsins
af biörgunarlaunum er b. v.
Helgafell fékk fyrir að bjarga m.
b. Leifi Eiríkssyni frá Dalvík,
er báturinn var að því kominn
að sökkva út af Breiðuvík norð-
an við Látraröst 12. janúar s. 1.
Samið var um að bjargendur
fengju kr. 20.Ö00.00 netto fyrir
björgunina og nam hluti útgerð-
arinnar % af þeirri upphæð, eða
kr. 13.333.34, sem útgeirðarfélagið
hefur nú afhent Slysavarngfélagi
íslands að gjöf. — Stjórn Slvsa-
varnafélags íslands flytur gefend
um hugheílar þakkir fyrir þessa
stórrausnarlegu gjöf og þá vel-
vild til slysavarnastarfseminnar,
sem svo ljóslega kemur fram í
g 'öfinni.
Frh. af 1. síðu.
bandsins voru m. a. verklýðs-
samtök Sovétríkjanna með
29 millj. meðl. og CIO í
Bandaríkjunum, með 6 millj.
meðlima.
Störf 45 manna
nefndarinnar
Verklýðsráðstefnan í Lond-
on kaus 45 manna nefnd er
vinna skyldi að undirbúningi
stofnunar nýs alþjóðasam-
bands. Kaus hún úr sínum
hópi 13 manna nefnd í fast
undirbúningsstarf, er fór m.
a. fram í París, Washington
og San Francisco. Sendi hún
væntanlegum þátttakendum
uppkast að lögum í maí s. 1.
45 manna nefndin kom sam
an til fundar í París 24. sept.
tll að ræða breytingartillögur
við lögin o. fl. og lauk því
starfi 23. sept.
Framhald London-
ráðstefnunnar
Daginn eftir, eða 24. hófst
svo ráðstexnan í París, sem
var á því stigi framhald af
London-ráðstefnunni. Jou-
haux, forseti franska verk-
lýðssambands'ns, setti ráð-
stefnuna, sem haldin var í
stóru leikhúsi.
í tillögum 13 manna nefnd
arinnar var ráðgert að for-
setar ráðstefnunnar yrðu 6
Tillaga kom fram um að bæta
7. forsetanum við og yrði
hann skoðaður fulltrúi smá-
ríkjanna, sérstaklega Norð-
urlanda og var Lindberg, for-
seti sænska sarnb. einróma
kosinn fulltrúi þeirra. Hinir
6 forsetar ráðstefnunnar voru
kosnir; Jouhaux, forseti
franska verkl.samb.: Citrine,
forseti brezku verklýðsfélag-
anna; Kuznetsov, forseti
rússneska verklýðssamb.; Hill
man, form. pól. nefndar CIO
(Bandaríkjunum); Toledano,
forseti verklýðssamb. Suður-
Ámeríkuríkjanna og Liu, full
trúi kínversku verklýðshreyf-
ingarinnar. Aðalritari var kos
inn Saillant, form. nefndar
mótspy rnuhreyf inga rinnar
frönsku.
Ráðstefnan hófst á skýrslu
Saillants og viðbótarskýrslu
Hllmans.
4 greinmg urin n
margnmtalaði
Snemma vTið umræðurnar
um sto’fnun nýs sambands lét
Citrine bað álit í. ljós, f. h.
brezku verklýðsfélaganna (T.
U. C.), að mólið væri of lítið
undirbúið t’l þess að hægt
væri að ganga frá stofnun
nýs sambands. Ekkert lægí
fvrir um Amsterdamsamband
ið og óútkljáð mál væri með
fagsambönd þess. Ekkert vald
: gæti lagt sambönd þessi n:ð-
ur nema Amsterdamsam-
| band ð sjálft.
' Fnllkomin oininer
Þessi afstaða Cdrine vakti
sérstaka athygli á þinginu,
einkum vegna þess að 1 til-
lögum 13 manna nefndarinn-
ar var gert ráð fyrir stofnun
nýs alþjóðasambands, en
Citrine átti sæti í þeirri
nefnd og tillögur hennar
voru undirritaðar af öllum
nefndarmönnum, þ. á. m.
Citrine.
Umræður um þetta stóðu
í 3 daga og kom í ljós að
meginþorri fulltrúanna vildi
ganga frá stofnun sambands-
ins þá þegar og taldi það ekki
hyggileg vinnubrögð að boða
til annars stofnþings síðar.
Tókst vonum betur að
sætta þessi sjónarm.ð og 1.. ríkjanna, með 29 millj. meðl.,
okt. náðist algert samkomu-
lag, var ráðstefnunni þá slitið
og stofnþing hins nýja al-
þjóðasambands sett.
Forsetar og starfsmenn
voru kjörnir þeir sömu og
verið höfðu á ráðstefnunni.
Kosin var nefnd til að ræða
frumv. að lögum sambands-
ins; skilaði hún einróma áliti
og ríkti fullkomin eining á
stofnþinginu.
Réttur o g áhrif
einstakra landa
Verkiýðshreyfing hvers
lands nýtur sjálfstæðis, en er
þó skyldug til að framkvæma
ákvarðanir framkvæmdaráðs
eða bings, nema hún telji sér
það ekki fært, eða óheppilegt
fyrir verklýðssamtök síns
lands" og skal slíkum málum
skotið til úrskurðar sam-
bandsþings.
Tryggt er að stóru sam-
böndin ráða ekki alþjóðasam-
bandinu, þannig á t. d. ís-
land með 22 þús. meðlima,
1 fulltrúa í miðstjórn sarnb.,
en verklýðshreyfing Sovét-
Skipulag: Alþjóða-
sambandsins
Skipulag alþjóðasambands
ins var ákveðið í höfuðdrátt-
um eins og gert var ráð
fyrir í till. undirbúningsnefnd
arinnar.
Æðsta vald sambandsins
hefur þing þess sem halda
skal annaðhvort ár.
í miðstjórn sambandsins
eiga nú sæti 70—80 menn.
Smærri landssamböndin, þar
með talin þau smæstu, eiga
1 fulltrúa hvert, en stærstu
samböndin ekki nema 3 full-
trúa. Sovétríkin, Bretland og
Bandaríkin eiga 3 fulltrúa
hvert, Frakkland, Ítalía og
Suður-Ameríka 2 fulltr.
hvert, önnur lönd 1 fulltrúa
hvert.
Framkvæmdanefnd sam-
bandsins er skipuð 22 mönn-
um. Eiga Norðurlöndin 1 full-
trúa sameiginlega, verði hann
frá sínu landinu hvert ár og
er ætlazt til að samið verði
um skiptinguna á væntan-
legri verklýðsráðstefnu Norð
urland'anna. í framkvæmda-
nefndinni eiga Bandaríkin og
Kanada 3 fulltr.; Sovétríkin
3; Brétland 2; Suður-Ameríka
2, en aðrir heimshlutar 1
hver, t. d. Kína 1; Afríka 1;
Indland og Ceylon 1; Suður-
Evrópa 1; Mlð-Evrópa 1;
Ástralía og Nýja-Sjáland 1;
Egyptaland og Palestína 1 o.
s. frv. Þá verða 3 fulltrúar
fyrir fagsamböndin, er mynd-
uð verða innan alþjóðasam-
bandsins.
Framkvæmdaráð er skipað
1 aðalforseta, 6 varaforsetum
og aðalritara.
Aðalforseti var Citrine kos-
'nn og aðalritari Saillant. —
Aðalritari er jafnframt fram-
kvæmdas.tjóri sambandsins.
ekki nema 3.
Þeir sem utan við
standa
Utan hins nýja alþjóða-
sambands stendur A. F. L.-
sambandið 1 Bandaríkjunum
(American Fedaration of La-
bpur), gríska verklýðshreyf-
ingin — gríska ríkisstjórnin
hindraði að hún gæti sent
fulltrúa — Þýzkaland — það
átti áheyrnarfulltrúa — en
gert er ráð fyrir að hin end-
urskipulagða verklýðshreyf-
ing Þýzkalands verði fljót-
lega tekin í sambandið. Enn-
fremur eru utan sambands-
ins Asíulönd þau, er voru
undir yfirráðum Japana, og
Franco-Spánn, en hin land-
flótta verklýðshreyfing Spán-
ar átti fulltrúa á stofnþing-
inu.
Það mó því telja að öll
skipulögð verklýðshreyfing
heimsl.ns sé sameinuð í hinu
nýja alþjóðasambandi.
Starfsmenn Amster-
damsambandsins
Samkomulag náðist um það
að starfsmönnum Amsterdam
sambandsins yrði ekki kastað
út á klakann. Þannig mun
mikill hluti starfsmanna þess
sambands verða áfram starfs-
menn þessa nýja alþjóðasam-
bands.
Áhrif alþjóða-
sambandsins
Fyrsta verkefni hins nýja
alþjóðasambands var að
senda fulltrúa til Þýzkalands
og Japan til að athuga ástand
verklýðshreyfingarinnar þar
og hjálpa til við endurskipu-
lagningu hennar.
Þá gerir hið nýja alþjóða-
samband kröfu til að vera
aðili að öllum friðarráðstefn-
um og aðili að hinni alþjóð-
legu stofnun Sameinuðu þjóð
anna.
Nýja skólakerfið
Frh. af 3. síðu.
en það væri setning fræðslulag-
áfram á sömu braut og mörkuð
anna frá 1907 og lög um kenn-
araskóla sama ár o? setning
laga um héraðskóla 1929 og gagn
fræðaskóla í kaupstöðum 1930.
í báðum þessum tilfellum hefðu
lögin staðfest þá þróun er orðið
hafði og skapað möguleika nýrr-
ar þróunar.
Þróunin í skólamálunum hefði
þó leitt af sér margskonar mis-
rétti og misjafna aðstöðu fyrir
æskumenn landsins að ganga
menntaveginn. Reynt væri að
bæta úr því misrétti með þeirri
samræmingu skólakerfisins, sem
hér væri farið fram á, og jafn-
framt að gefa svigrúm framhald-
andi þróun.
Framkvæmd þessara nýju
fræðslulaga mun kosta mikið fé,
sagði flutningsmaður að lokum,
en en-gu fé er betur varið fyrir
þjóðarheildina en því sem varið
er til að ala upp gagnmenntaðá
borgara.
Páll Þorsteinsson, fulltrúi Fram
sóknarflokksins í menntamála-
nefnd neðri deildar, kvaðst ekki
hafa verið með í að flytia frum-
vörpin vegna þess að hann hafi
ekki haft tíma til að kynna sér
þau.
Frumvörpunum var útbýtt til
þingmanna í lok síðasta þings,
svo ótrúlegt er, að bessi mennta-
málafrömuður Framsóknar hefði
ekki getað kynnt sér aðalefni
þeirra, ef áhuginn hefði verið
mikill. Auk þess hefði hann eins
og aðrir nefndarmenn að sjálf-
sögðu getað flutt þau með fyrir-
vara um afstöðu til einstakra at-
riða á síðari stigum í meðferð
málsins. Er varla hægt að skilja
framkomu Páls öðru visi en sem
andúð á þessari merku lagasetn-
ingu, og væri furðulegt ef þessi
Jnngmaður væri ekki á flokks-
línunni sem endranær.
Hálf önnur milljón
Júgóslava
Ungbarnavernd Líknar Templ-
arasundi 3, verður framvegis op-
in þriðjudaga, fimmtudaga og
föstudaga kl. 3.15—4. — Fyrir
barnshafandi konur mánudaga
og miðvikudaga kl. 1—2.
Framhaid af 1. síðu.
hefðu látið lífið á stvrjald
arárunum og 70% af þeim
hefðu verið drepnir af stríðs
glæpamönnum.
í fangabuðunum, sem
Italir ' stjórnuðu dóu 37%
fanganna. Fjöldi júgóslav-
neskra landráðamanna og
quislinga flýöu úr landi áö-
ur en Þjóöverjar voru sigr-
aðir og er álitið aö þeir
séu í felum í Austurríki og
ítalíu. MeÖal þeirra stríðs-
glæpamanna, sem enn leika
iausum hala, nefndi Zivko-
vitsj fyrrverandi sendiherra
ítalíu í London og síöar
landstjóra í Dalmatíu og
Bosníu, Bastianini, sem nú
dvelur í Sviss. Júgóslav
neska sjórnin hefur krafizt
þess að hann veröi fram-
seldur og stríösglæpanefnd-
in hefur lagt fram nauðsyn
leg sönnunargögn, en hann.
hefur þó ekki fengizt fram-
séldur.