Þjóðviljinn - 28.12.1945, Síða 7
7
Föstudagur 28. des. 1945
ÞJÓBVILJINN
TILKYNNING
til félagsmanna KRON
Félagsmenn KRON eru áminntir um, að
ihalda til haga öllum kassakvittunum (arð-
miðum) sínum. Þeim á sdðan að skila í
lokuðu umslagi á skrifstofu félagsins, Skóla-
vörðustíg 12, strax eftir áramótin.
Munið, að félagsréttindi yðar framvegis,
eru bundin því skilyrði, að þér skilið kassa-
kvittunum.
1
Dönsku straujárnin eru komin í
Raftækjaverzlun
Lúðvíks Guðmundssonar
Laugaveg 46. Sími 5858.
Sendum gegn póstkröfu um land allt
Framhaldsstofnfundur
byggingarsamvinnufélags starfsmanna rík-
isstofnana verður haldinn í Baðstofu Iðnað-
armanna í kvöld kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Samþykktir félagsins, síðari umræða.
2. Stjórnarkjör.
3. Önnur mál.
Undirbúningsnefndiji
Að vör un.
Héraðslæknirinn í Reykjavík vill vara
fólk við því að fara með börn á jólatrés-
skemmtanir, ef þau ekki hafa fengið kíg-
hósta, nema þau hafi nýlega verið sprautuð
gegn honum og þá í samráði við heimilis-
lækni.
Reykjavík, 27. des. 1945
Magnús Pétursson '
■------------------------------—1
Prentnám
Ungur maður, 16—18 ára, sem vill læra
prentiðn, óskast í prentsmiðju hér í bæ.
Umsókn með upplýsingum um menntun
sé skilað á afgreiðslu Þjóðviljans fyrir 7.
janúar n. k.
Eldhætta
Að marggefnum tilefnum um elds-
voða út frá jólatrjám, áminnist fólk
um að fara varlega með kertaljós
og eld.
Ef óhöpp vilja til þá hringið tafar-
laust í Slökkvistöðina, sími 1100, eða
hrjótið næsta brunaboða.
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík
Jarðarför slökkviliðsmannaoina
Sigurbjörns Mariussonar,
Sólvallagötu 60, og
Ámunda Hjörleifssonar,
Vesturgötu 16B,
sem létust af slysförum þ. 20. desember sl., fer fram
næstkomandi laugardag 29. desemlber frá Dómkirkj-
■unni og hefst með húskveðju á heimilum hinna
látnu kl. 1 e. h.
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavik,
Jón Sigurðsson.
Sonur minn og bróðir okkar
Vignir Guðbjöm Steindórsson
andaðist hér heima annan dag jóla. Jarðarförin til-
kynnt síðar.
Steindór Björnsson og börn,
Sölfhólsgötu 10.
Maðurinn minn
Knútur Amgrímsson, skólastjóri,
andaðist að heimili okkar, Ránargötu 9; að morgni
26. þ. m.
Ingibjörg Stefánsdóttir
Ný óvenju glæsileg
bók: Á hreindýra-
slóðum
Á hreindýraslóðum — bók-
in um íslenzku hreindýrin, er
nú komin út.
Höfundur bókarinnar er
Helgi Valtýsson, en myndirn-
ar hefur Edvard Sigurgeirs-
son tekið. Fyrsti hluti bókar-
innar er ágrip aí fjórum
ferðasögum þeirra félaga,
sumurin 1939, 1943 og 1944.
Annar kafli hennar er saga
hreindýranna á íslandi og
þriðji og síðasti kaflinn er um
eyðingu hreindýranna.
Bókin er nokkuð á þriðja
hundrað blaðsíður og rúml.
70 myndir, þ. á. m. margar
mjög fagrar litmyndir.
Bókin er að ytra frágangi
ein hin glæsilegasta Sem hér
hefur verið gefin út. Verður
hennar nánar getið síðar.
Útgefandi er Norðri.
Barnakennarar stofna
byggingarsamvinnu-
félag
Stéttarfélag barnakenn-
ara 1 Reykjavík ákvaö á
fundi sínum 22. þ. m. að
gangast fyrir stofnun bygg-
ingarsamvinnufélags meðal
kennara. Að fundinum lokn
um var settur stofnfundur
byggingarfélagsins. 30
manns gerðust félagar.
Bráðabirgðastjórn , var
kosin til þess að semja
frumvarp til samþykkta fyr
ir félagið. Hana skipa: Arn-
grímur Kristjánsson, Stein-
þór Guðmxmdsson, Hannes
M. Þórðarson, Jón Guð-
mannsson og Ingimar Jó-
hannesson.
Bráðabirgðastjórn var
ur ákvéðið framhaldsstofn-
fund í Miðbæjarskólanum
laugardaginn 29. þ. m. kl.
10 árdegis. Þeir kennarar
sem þá ganga í félagiö,
verða talcj.ir méð stofnend-
um.
MOSKVARÁÐ-
STEFNAN
Frh. af 1. síðu.
Frakkar og ítalir
óánægðir
Frakkar munu krefjast
þess, að fá að taka þátt í öll-
um ráðstefnium er varða
Balkanlöndin og mun Bidault
utanríkisráðherra leggja sam-
þykkt þar að lútandi fyrir
fund frönsku stjórnarinnar í
dag. ítalska útvarpið er óá-
nægt með það, að ítölum
skuli ekki vera boðið að eiga
fulltrúa við samningu friðar-
skilmála fyrir Ítalíu. Gasp-
ari forsætisráðherra ræddi
við sendiherra þríveldanna
allra í gær.
Kínverska stjórnin hefur
opinberlega tilkynnt, að hún
Minningarsjóður
Kjartans Sigurjóns-
sonar, söngvara
Frú Bára Sigurjónsdóttir
hefur stofnaö sjóð til minn-
ingar um mann sinn, Kjart-
an Sigurjónsson írá Vík, og
hefur skipulagsskrá sjóðsins
verið staðfest af forseta ís-
lands.
Tilgangur sjóðsins er að
styrkja til framhaldsnáms
efnilega, íslenzka söngvara.
sem eigi eru þess megnugú’
að kosta nám sitt af eigin
rammleik.
Úthlutun úr sjóönum ann
sé samþykk fyrirkomulagi
því við samningu friðarskil-
mála, er fundurinn sam-
þykkti.
ast þriggja manna néfnd,
sem skipuö er söngmála-
stjóra þjóðkirkjunnar, tón-
listarráöunaut Ríkisútvarps
ins og organleikara Dóm-
kirkjunnar í Reykjavík. Þó
hefur frú Bára með hönd-
um alla stjórn sjóösins með
an hennar nýtur við.
Sjóðnum hafa þegar bor-
izt márgar minningargjafir
og má vænta þess að ýmsir
verði fúsir til að styrkja
hann með fégjöfum, stórum
eða smáum, svo að hann
geti sem fyrst tekiö til
starfa.
Minningarspjöld sjóösins
fást hjá Sigurði Þórðarsyni
skrifstofustjóra Ríkisút-
varpsins, Reykjavík, Valde-
mar Long, Hafnarfiröi,
Bjarna Kjartanssyni, Siglu-
firöi og Sigurjóni Kjartans-
syni, kaupfélagsstjóra, Vík.