Þjóðviljinn - 29.12.1945, Side 3
Laugardagur 29. des. 1945
ÞJÓÐVILJINN
3
MÁLGAGN ÆSKULÝÐS-
FYLKINGARINNAR
Sambands ungra sósíalista
Greinar og annað efni send-
ist á skrifstofu félagsins,
Skólavörðustíg 19, merkt:
„Æskulýðssíðan".
r
Aramót
Ársins, sem nú er að líða
mun verða minnst í sögunni(
og á það litið sem tímamót
í baráttu þjóðanna fyrir frelsi
og mannréttindum. Sigur
sameinuðu þjóðanna yfir naz-
ismanum og yfirdrottnunar-
stefnu Þýzkalands og Japan,
hefur glætt vonirnar um að
þjóðunum megi takast að
auka samstarf sín á milli og
halda í skefjum öllum til-
raunum til yfirdrottnunar yf-
ir ‘öðrum. Æskulýður styrj-
aldarþjóðanna, og ekki hvað
sízt æska • sú sem að eigin
raun hefur .kynnzt eðli og
starfsaðferðum nazismans,
krefst þess að tryggt sé að
slíkt hið sama fái ekki endur
tekið sig. Hin unga kynslóð
vill sýna hæfni sína til ann-
ars en að slátra jafnöldrum
sínum. Á komandi árum
mun hún krefjast aukinna
álhrifa í þjóðfélaginu og hún
mun vinna að því að í heimi
þeim sem nú rís upp úr val-
kesti styrjaldarinnar, verði
æsbulýðnum veittir mögu-
leikar til þroska og mennt-
unar, og tækifæri til að vinna
að hagnýtum störfum og auk-
inn skilningur og samvinna
ríki þjóða í milli.
Hér innanlands hefur á
liðnu ári ríkt stórhugur og
framfaravilji undir forustu
ríkisstjórnarinnar. Framkv.
á stefnuskrá hennar er hafin,
og vonirnar um framkvæmd-
ir eru að verða að veruleika.
Hvað viðvíkur æskulýðnum
má t’. d. benda á þær fram-
farir, að aldrei hefur tala
þeirra sem neitað hefur verið
um skólavist í framihaldsskól-
um verið jafn lág, og það
mest að þakka starfi núver-
andi menntamálaráðherra.
Möguleikar alþýðuæskunnar
til framihaldsmenntunar hafa
aukizt mjög, og vonandi
munu tækifærin sem hún
fær til að hagnýta sér hina
auknu menntun aukast' að
sama skapi. Atvinnuleysið,
þetta gamla ok fyrirstríðsár-
anna, sem þyngst lagðist á
ungu kynslóðina, má ekki end
urtaba sig, og gefa þeir árangr
ar sem þegar hafa náðst á
sviði nýsköpunar atvinnu-
lífsins góða von um að auðn-
ast megi að tryggja næga
atvi-nnu handa öllum.
Ályktanir 5. þings Æskulýðs-
fylkingarinnar um bindindismál
1. 5. þing Æskulýðsfylkingarinnar — samhands
ungra sósíalista — beinir þeim eindregnu til-
mælum til allra félagsdeilda sinna, að vinna með
festu og einbeitni móti neyzlu alls áfengis í landinu
og reyna að skapa sterkt almenningsálit gegn þeirri
eymd og niðurlægingu, er áfengisneyzla veldur.
Æskulýðsfylkingin leggur ríka áherzlu á reglu-
semi allra meðlima sinna og kýs ekki drykkfelda
menn í trúnaðarstöður og óskar samvinrau við Stór-
stúku íslands og önnur bindindisfélög um bindind-
ismál.
2. Þingið telur ástand það, er ríkt hefur og ríkir
í áfengismálunum óviðunándi og gerir það að lág-
markskröfu sinni til ríkisvaldsins meðan leyfð er
sala áfengis í landinu, að það sjái öllum þeim er
íbíða andlegt eða líkamlegt heilsiutjón af völdum
ofdrykkju fyrir vist á dxykkjurraannahælum er það
láti reisa og þeirri annarri aðbúð er við á og leiðir
til þess að þeir verði aftur nýtir þjóðfélagsþegnar.
3. þingið skorar mjög eindregið á öll æskulýðs-
og bindindissamtök í landinu, að vinna að almennri
fræðslu um skaðsémi áfengis t. d. með sýningum
fræðslukvikmynda og erindaflutningi sérfróðra
manna á þessu sviði. Sörrauleiðis að vinna að því
hvert á sínum stað, að útiloka drykkjuskap á öllum
samkomum er þau standa að.
♦ ♦
Jón Óskzu-:
Ályktanir 5. þings Æskulýðs-
fylkingarinnar um iðnnemamál
Á komandi ári mun haldið
áfram á braut framfaranna.
Alþýðan þarf sjálf að takast
á hendur forustuna í málum
sínum, hún þarf sjálf með
samtökum sínum að fylgja
því eftir að hinir miklu
möguleikar sem nú bíða okk-
ar á sviði atviranumála verði
hagnýttir, og framleiðslu-
tækira starfrækt. Hún þarf
sjálf að annast rekstur þeirra.
Nú í jaraúar verður kosið
til bæjarstjórnar í kaupstöð-
um landsins, og verður þá
fyrst og fremst kosið um það
hver þáttur fólksins á að
jvera í rekstri atvinnutækj-
anna. Hvort rekstur þeirra
á að vera háður duttlungum
stóreignamanna, eða miðað-
ur við ihagsmuni fjöldans. I
þeirri baráttu mun Sósíalista-
flokkurinn eins og ætíð fyrr
vinna að bættum hag alþýð-
uranar, og er ekki að efast um
hvoru megin alþýðuæskan
stendur í þeim átökum. Hún
mun vinna að því að gera
hinn fyrirsjáanlega sigur
Sósíalistaflokksins í komandi
kosningum' sem glæsilegast-
an.
5. þing Æ. F. ályktar að
stefna beri að því:
1. Að allir iðnskólar verði
ríkisskólar, eins og sjó- ♦
mannaskólarnir.
2. Að eigi verði krafizt minni
almeranrar menntunar til
inngöngu í iðnskóla, en
sem ‘svarar til hins fyrir-
hugaða miðskólaprófs.
3. Að öll kennsla í iðnskólum
fari fram að deginum til á
venjiulegum vinrautíma.
4. Að verkleg kennsla iðn-
nema fari að mestu fram
innan skólanna á fullkomn
um skólaverkstæðum.
5. Þingið krefst þess að mis-
notkun sú sem víða á sér
stað á vi-nnu iðnnema verði
afnumin og komið verði í
veg fyrir að meistarar geti
auðgast á vinnu iðnnema.
Æskulýðssíðan
óskar öllum les-
endum sínum
gleðilegs nýárs.
Vetrarvísa
Sof litla blóm,
því að yfir engu er að vaka.
Fólk ráfar í kvöld. um Austurstrœti,
eins og í gærkvöld.
Ungar stúlkur
og ungir menn.
Hann og hún. Hann og hún.
Og nœsta kvöld
hefst sama röltið
í rauðu tunglskini,
fet fyrir fet,
unz allir eru þreyttir,
og enginn veit þó
hvem um er að saka.
Sof litla blóm,
því að yfir engu er að vaka.
Intermesso
Mér fellur þú, ég veit þú verður mín
þótt veröld hláleg skilji mig frá þér.
Eg yrki bezt um bláu augun þín,
þótt burt í myrkrið týnist vísa hver.
Ver hljóð og dúl, og seg þú áldrei orð
við ungan pármann, hver veit nema þá
við nœturinnar gúllna nægtáborð
í niðamyrkur hverfi augun blá.
Æskulýðsfylking stofnuð á
Akranesi
26. desember var stofnuð Æskulýðsfylking á
Akranesi. Á stofnfundi var kosin stjórn. fyrir deild-
ina, og skipa hana þessir menn:
Formaður: Ársœll Váldimarsson.
Varaformaður: Einar Árnason.
Ritari: Ársæll Pálmi Bjamason.
Gjaldkeri: Jón Ingólfsson.
Meðstjórnandi: Magnús Þorsteinsson.
Þetta er þriðja deildin nú á skömmum tíma, sem
bætist í 'hóp hinnar róttæku alþýðuæsku á íslandi,
og fleiri munu fylkja sér undir merki Æskulýðsfylk-
ingarinnar áður en langt um líður.
Æskulýðssíðan býður félagana á Akranesi vel-
komna til samstarfsins og væntir þess að deildin
megi verða til þess að hrinda í framkvæmd áhuga-
málum alþýðuæskunnar á Akranesi, og auka þekk-
ingu hennar á hagkerfi sósíalismans.