Þjóðviljinn - 18.05.1946, Qupperneq 3
Laugardagur 18. maí 1946.
ÞJÓÐVILJINN
íl
„011 hin vinnandi danska þjóð vill algert
sjálístæði Islands“
Meðal farþega með „Drottn
ingunni“ síðast var ungur
Dani, Poul V. Nielsen að
nafni. Hann ætlar að dveljast
hér nokkurn tíma og hefur
áhuga á að kynnast mönnum
og málefnum hér, eftir því
sem hann á kost á og ferðast
um landið. Síðan hyggst hann
að senda dönskum blöðum
greinar um kynni sín af
landi og þjóð. Fyrir nokkru
síðan birtist hér 1 blaðinu eft
ir hann grein, sem nefndist
„Frelsisbaráttunni er ekki
lokið“ og fleiri munu vænt-
anlegar síðar.
Nýlega hitti ég hann að
máli og bað hann um að
segja „Röddum æskunnar“
nánar frá ferðalagi sínu
hingað og eitthvað frá Dan-
mörku, hvað hann af fúsum
vilja gerði.
— Hvað geturðu sagt okk-
ur um ferðalag þitt hingað
til íslands?
— Það er nú eðli unga
fólksins að vilja ferðast, er
það ekki? Þegar ég var 18
ára gamall, hafði lokið skóla
námi og var tilbúinn til að
fara út í heiminn, brauzt
styrjöldin út og útilokaði
alla möguleika til þess að
ferðast. Það varð meira að
segja erfitt að komast milli
hinna einstöku hluta Dan-
merkur. I 5 ár sat maður ein
angraður og varð næstum því
að innibyrgja ferðaþrána.
Og eftir því sem sálkönnun-
in kennir myndast þessi
svokölluðu komplex, sem
helzt verður að veita útrás.
Það er einmitt það, sem ég
er nú að gera. ísland hefur
lengi laðað mig að sér af ýms
um ástæðum, sérstaklega vil
ég þó leggja áherzlu á eina:
Styrkleiki íslenzka Sósíalista
flokksins, sem er hlutfalls-
lega meiri en samsvarandi
flokka á hinum Norður-
löndunum. Mig langaði til
að kynnast orsökum hans.....
— Hvað heldurðu að þú
verðir lengi hér hjá okkur?
— Hvað lengi ég verð! Ja
— nú þarf ég fyrst að vinna
hérna svo sem hálfsmánaðar-
tíma til þess að hafa nóga
ferðapeninga. Svo fer ég til
Akureyrar og kannski það-
an til Austurlands. Síðan
vonast ég til þess að hafa
efni á að fara aftur með flug
vél til Reykjavíkur. — Það
hlýtur að vera ævintýri næst
að fljúga yfir Vatnajökul. —
Annars býst ég við að verða
svona 2 mánuði á íslandi.
segir Pou! V. Nielsen
— Hvað geturðu annars
sagt okkur um þátttöku æsku
lýðsins í frelsisbaráttu Dana?
— Þeirri spurningu er of-
urauðvelt að svara: Án æsku
lýðsins, engin frelsisbarátta,
ósköp einfalt. Það var unga
fólkið, sem fyrst vaknaði til
athafna og hélt jafnan for-
ystunni í baráttunni. Vitan-
lega tók einnig fólk á öðrum
aldri þátt í henni. En þó get-
ur maður sagt, að unga fólk-
ið hæði hörðustu baráttuna
Poul V. Nielsen.
á sínum eigin heimilum. —
Gegn hinum uppgjafarsinn-
uðu foreldrum, sem fyrst
seint skildu neyð mótspyrn-
unnar.
— Hér uppi á íslandi hefur
mikið verið rætt um dvöl
Rússa á Borgundarhólmi. —
Hvað vildirðu helzt segja
okkur um hana?
— Orðalag spurningarinn-
ar segir útaf fyrir sig nokk-
uð: „— — hefur verið rætt
-----“. Þú segir þetta í for-
tíð, og það er rétt. í dag fyr-
irfinnst ekki einn einasti
Rússi á Borgundarhólmi.
Hins vegar — þegar við í
Danmörku tölum um Banda-
ríkjamennina á íslandi, töl-
um við í nútíð. Afturhalds-
pressan í hvaða landi sem er
hefur haft óskaplegar áhyggj
ur út af dvöl Rússa á Borg-
undarhólmi, alveg eins og
þeir hefðu gleymt því, að
þetta var gert samkvæmt
löngu fyrirfram gerðri áætl-
un milli hinna þriggja
stóru.
Eg býst við því, að and-
kommúnistablöðin séu úkaf-
lega eyðilögð yfir, að Rússar
fóru á réttum tíma frá Borg-
undarhólmi, því að það fer
satt að segja að verða vöntun
á tylliástæðum til þess að
rægja Sovétríkin og gera
þau tortryggileg. Rússunum
á Borgundarhólmi hefur ver
ið lýst sem hreinum mann-
ætum og sadískum kven-
ræningjum. En íbúarnir þar
brosa bara að slíkum lýsing-
um. Borgundarhölmsbúum
líkaði prýðilega við Rúss-
ana vegna hinnar nærgætnu
framkomu þeirra og siðfág-
uðu hegðunar.
— Hvernig litu t. d. dansk
ir kommúnistar á skilnað ís-
lands við Danmörku?
—■' Það er mjög leiðinlegt,
að hér á íslandi skuíi menn
hafa teklð dönsku blöðin svo
alvarlega. Það er rétt, að
mörg þeirra tóku mjög fjand
samlega afstöðu gegn Is-
landi, en hvaða blöð voru
það? Það voru málgögn, sem
eru fulltrúar hins afturhalds
samari hluta dönsku þjóðar-
innar, þess hluta, sem ekki
hefur að fullu losað sig við
hugsunarháttinn frá land-
vinningatíma Danmerkur,
þess hluta, sem einnig varð
sér til minnkunar á hernáms
tímanum. Það er engin á-
stæða til þess að spyrja sér-
staklega um ál-it danskra
kommúnista á skilnaði Is-
lands (kannski af því að að-
eins þar býstu við að mæta
frjálslyndi og skilningi). En
ég get alveg hiklaust fullyrt,
að öll hin vinnandi danska
þjóð, sem sjálf hefur orðið að
þola ánauð erlendra herra í
5 ár, telur það sjálfsagt, gð
ísland verði algerlega sjálf-
stæð þjóð. Það var þó vissu-
lega það eina sanngjarna.
Nú fyrst eru möguleikar fyr-
ir reglulegri vináttu milli
þjóðanna. Eg held, að hinn
gamli kali muni smárn sam-
an hverfa.
— Hvernig er það, eru ís-
lenzkar bókmenntir vel
þekktar meðal uppvaxandi
kynslóðarinnar í Danmörku?
— Því miður verð ég að
svara neitandi. Við Donir get-
um ekki lesið íslenzkar bók-1
menntir á frummálinu, og
Þýðlngar eru alltof fáar. ís-
lendingasögurnar hafa að
sjálfsögðu verið þýddar og
eru all-vel þekktar, en ís-
lenzkar nútímabókmenntir
eru óþekkt land,. nema auð-
vitað Gunnar Gunnarsson,
en hann hefur nú skrifað
mest á dönsku og telst nánast
danskur höfundur, að hálfu
leyti a. m. k.
- — Ja, ekki held ég nú, að
ég vilji viðurkenna það. Við
viljum nú helzt eigna okkur
hann allan, þar sem hann er
af íslenzku bergi brotinn og
Sjómaimadagurinn 2. júní 1946 \
Væntanlegir þátttakendur í hinum ýmsu
íþróttum Sjómannadagsins, eru beonir að
tilkynna þátttöku sína sem fyrst til hafn-
sögumanna í Reykjavík, eða skrifstofu sjó-
mannabl. Víkings, Bárugötu 2.
Sigurvegarar frá íþróttakeppni Sjó-
mannadagsins í fyrra eru beðnir að afhenda,
verðlaunafarandgripi á skrifstofu Slysa-
varnafélags íslands sem allra fyrst.
STJÓRNIN. |
----------------------------------------1]
Dómaranámskeið I. R. R.
-
I lok þessa mánaðar gengst I. R. R. < •’
fyrir dómaranámskeiði í frjálsum íþrótt-
um. Námskeiðið verður með svipuðu fyrir-
komulagi og undanfarin ár. Umsóknir um
þátttöku sendist ráðinu fyrir 26. maí n. k.
Umsóknunum fylgi þátttökugjald, sem er
kr. 10.00 fyrir hvern þátttakanda.
Nánar auglýst síðar.
íþróttaráð Reykjavíkur.
—1]
Auglýsið í I1 'jóðvil janum
allar sögur hans gerast á
íslandi. En sleppum því.
Hvaða höfundar íslenzkir
eru vinsælastir hjá ykkur?
— Alveg skilyrðislaust
Halldór Laxness. Iiann er
mik’ð les nn meðal danskrar
alþýðu og mjög dáður. Bæk-
ur hans, sem til eru á öll-
um bókasöfnum, eru slitnar
og snjáðar, þær fá aldrei
hvíld. Bækur eins og „Salka
Valka“ og „Sjálfstætt fólk“
fást ekki nema þær séu pant-
aðar fyrirfram. Og ferðasaga
hans frá Sovétríkjunum,
„Gerzka ævintýrið“, var fyr-
ir stríð, og er raunar enn sú
bók, sem menn leituðu sér
oftast upplýsinga í, um hið
nýja þjóðfélag í Rússlandi.
— Ja, ég get sagt, að þetta
komi mér ofurlítið spænskt
eða öllu heldur danskt, fyrir
sjónir, því að fyrir nokkrum
árum upplýsti sá fróði mað-
ur Jónas Jónsson okkur fá-
fróða íslendinga um það, að
þegar Danir hefðu fengið
„Gerzka ævintýrið“ í hendur,
hefðu þeir alveg gefið Lax-
ness upp á bátinn og hefðu
ekkert viljað með hann hafa
síðan, en í gamalli bók stend
ur einhversstaðar, að skylt
sé að hafa heldur það, sem
nýrra sé, og efast ég ekki
um, að hér reynist það sann-
mæli. En nú leyfir ekki rúm-
ið, að ég spyrji Poul Nielsen
að meiru, en ég þakka hon-
um mjög vel fyrir, hve ágæt-
lega hann leysti úr spurning-
um okkar.
Sig. Bl.
■rz ,