Þjóðviljinn - 13.12.1946, Page 6

Þjóðviljinn - 13.12.1946, Page 6
ÞJÓÐVILJINN Föstudagur, 13. des. 1946. € Torolt Elster: SAGAN UM GOTTLOB í lögregluna. Andrés Lilja mót- jnælir. — Nei, ég er mótfallinn því, ,að þér hringið í lögregluna í þetta sinn. Eg skal sjá um, að þetta endurtaki sig ekki. Mér þætti mjög illt, ef lögreglan ^æri að blanda sér í málið. Af mörgum ástæðum. Umsjónarmaðurinn horfir hik andi á þá hvem af öðrum. Sá feiti með vasabókina er með luntasvip og hefur greinilega löngun til að mótmæla, en virð- ingin fyrir hinum þekkta banka manni aftrar honum. Það er aft ur á móti ég, sem rýk upp. — Leyfist mér að spyrja, hr. Lilja, hvers vegna þér eruð að blanda yður í málið. Hvað kem- ur það yður við? Eg krefst þess, að náð sé í lögregluna, vil fá málíð hreint eins fljótt og unnt er. Hinum finnst kringumstæð- urnar fara að verða óþægilegar, •en Lilja svarar rólega: — Jd, hr. Lind, það kemur mér við. Eg óska ekki eftir, að lögreglan taki yður núna. Það er meðal annars út af máli, sem ég þarf að ræða við yður. Það er í sambandi við skjal.... Þarna kom það. Eg veit eiginlega ekki, hvers vegna ég tók þetta svona hátíð lega, dálitlar vanefndir á samn- ingum, ef til vill eitthvað af víx ilsvikum, það er eitthvað annað en beinn þjófnaður. En þessar sögur hvíla eins og farg á mér, og ég fæ næstum því taugaáfall, þegar Lilja minnist á þær. Þó svara ég vondur: — Jæja, svo að það eruð þér, hr. bankastjóri, sem standið á bak við þetta. — Þér vitið fullvel sjálfur, að ég stend ekki á bak við neitt. En ég vildi gjarna kippa þessu í lag í bróðerni. Að sinni látum við okkur nægja, að þessi herra hefur fengið vasabókina sína aftur, þar vantar ekki neitt eft- ir því sem mér skilst, og hr. Lind kemur með mér heim á skrifstofu nú þegar og situr þar með mér dálitla ráðstefnu. Okkur kemur áreiðanlega sam- an um niðurstöðu, sem við get- um báðir verið ánægðir með. Eg veit í raun og veru hvað það er, sem olli því, að ég gafst upp svona fljótt. En ég er allur úr lagi færður þennan dag, hið hræðilega farg, sem hvilt hafði á mér síðustu vikurnar og svo þetta með Ester og allt hitt. Eg þramma að minnsta kosti á eft ir Andrési Lilju út í bílinn. Eg kæri mig ekkert um að vera að rifja upp ráðstefnu okkar á skrifstofu bankastjór- ans. Þetta illmenni — þessi glæpamaður hefur yfirtökin bæði siðfræðilega og lögfræði- lega og alla vega. Meðan ég er stöðugt að rjúka upp í vonzku, skammast og rífst og síðast j næstum því sárbæni hann, þá I situr hann allan tímann og tal- ar rólega, málefnalega og með vingjarnlegum yfirburðum. Hin sanna framkoma yfirmanns við gamlan starfsmann, sem hon- um líkar á margan hátt vel við, 6n er nú kominn í vandræði, er hann sjálfur verður að taka afleiðingunum af. Kröfur hans eru skilyrðislaus ar. Brottrekstur, ■ gjaldþrota- skipti og dómstólar -— eða að ég að öðrum kosti fallist á að taka að mér verkfræðingsstöðu í Narvík og að frá launum mín- um verði dregið, það sem ég skulda í bankanum. Eg verð að hypja mig strax næsta morgun. Eg spyr, hvers vegna hann vilji endilega losna við mig, og hann svarar rólega, að hann vilji ekki hafa náunga eins og mig hér í borginni, en á hinn bóginn sé ég gáfaður meir en al mennt gerist, á því sé enginn vafi, og vegna þess sé mér gefið annað tækifæri. Eg spyr, hvort hann viti nokkuð, hvað orðið sé af Ester. —- Frú Gottlob eigið þér við. Hvernig ætti ég að vita það. Hún er veik hef ég heyrt. Ann- ars eigið þér að forðast að um- gangast hana, ég vil ekki koma starfsfólki mínu í nein vand- ræði. — Eg ætla að halda áfram, en hann tekur byrstur fram fyr- ir hendurnar á mér. — Þér óskið þess þá líklega, að ég skilji við Önnu Lenu ? spyr ég. Lilja verður mjög undrandi. — Skiljið við hana? Hvers vegna í ósköpunum ætti ég að óska þess. Kemur mér hjóna- band yðar nokkuð við? — Er þetta ekki helzt til mik- ið sagt? spyr ég hæðnislega. — Eg hef það ekki í huga að eyða tímanum í þvaður. Sam- þykkið þér eða samþykkið þér ekki ? Þetta endar vitanlega með því, að ég samþykki. Næsta morg- unn sit ég í lestinni á norður- leið. Eg finn, að ég er utan við allt, Ester tilheyrir nú þegar f jarlægri og óraunverulegri for- tíð, ég nenni ekki einu sinni að vera að hugsa um, hvað orðið hefur af henni. Nú hef ég fyrst fyrir alvöru gefið upp alla von um að mega vænta einhvers af lífinu. Hér eftir verður það ekk- ert annað en vinna til þess að viðhalda hinum jarðneska lík- ama, um annað var aldeilis sama. Þegar ég kem heim um nótt- I ina frá ráðstefnunni með Lilju, eftir Gils Gudmundssoii Þilskipaútgerðin var undirstaða alhliða vakningar í íslenzku þjóðlífi á öldinni sem leið. Með þessu glæsilega ritverki Gils Guðmundssonar er þiískipaveiðunum, útgerðarmönnum, skipum og „skútukörlum" gerð þau skil, sem þeim erusamboðin. Allir, sem láta sig einhverju máli skipta atvinnusögu þjóðarinnar, verða að eingast þessa bók. Þeir, sem eiga fyrra bindið, ættu að tryggja sér nú þegar eintak af síðara bindinu. Skútuöldin er jólabókin i ár! • • ■ • • f- ■ Bókaútgáfa Ouöjóns Ó. Guðjónssonar N.B. — Bóksalar eru beðnir að gera pantanir. H-HH-W"l"l-H-H--H-l--H-H"H--H-H--H--H--H--H--H-H--H--H--P-H--H-H~H-H-+-H-H--W"H"^-H-H"hhl"l"l"hl"hI"f'i"l"H"l"l"I'l'l''II'l'll"l"l"I''I Siðara bindið er komið út. Komin er í bókaverzlanir síðara bindi af rit- ; I inu Skútuöldin eftir Gils Guðmundsson rit- st jóra. Fyrra bindið, sem kom út í desember 1944, varð metsölubók ársins, og seldist upp á ör- fáum dögum. Varð hvergi nærri hægt að full- ‘ nægja hinni gífurlegu eftirspurn eftir bókinni. Skútuöldin er saga þilskipaútgerðarinnar á Islandi í máli og myndum frá öndverðu og unz henni lauk að fullu og togaraútgerðin tók við. Þetta nýja rit er nokkru stærra en fyrra hindið, 654 bls., og prýtt fjölda mynda af skipum, útgerðarstöðum, útgerðarmönnum, skipstjórum og loks ýmsum verkfærum við- víkjandi skútuútgerðinni, og munu fæstar þeirra hafa birzt áður.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.