Þjóðviljinn - 09.04.1947, Page 5
Miðvikudagur 9. apríl 1947.
ÞJ.OÐVILJINN
BLÍIÐ SEM ER ALLTAF AÐ TAPA
TAPIÐ Á KORPÚLFSSTAÐABÚINU NEMUR TUGUM ÞÚSUNDA ÁRLEGA — HÚSIN LÁTIN DRABBAST
NIÐUR — 40 KÝR í 150.GRIPA FJÓSI — SELT HEY — SELDAR SLÆGIUR — OG TÚNIÐ LEIGT
TIL HROSSABEITAR!
♦
Á þennan hátt œtlar íhaldið að ssjna óhtéini hœjar-
rehstmrs
Reykjavíkurbær rekur búskap að Korpúlfsstöðum í Mos-
fellssveit. Auk Korpúlfsstaða á Reykjavík eftirtaldar jarðir:
Arnarholt á Kjalarnesi, Þormóðsstaði i Kjós, Grafarholt, Reynis-
\ atn og Reykjahlíð, ásamt nokkrum eyðibýlum, og mun 'vera
að eignast Hóim í Mosfellsveit.
Búskapurinn á Korpúlfsstöðum er með þeim hætti að vart
mun finnast annar slíkur. Á sama tíma og borgarstjórinn í
Re^líjavík lýsir yfir á bæjarstjórnarfundi eftirfarandi: „Mjólk-
urmálin hér í bænum eru nú og hafa lengi verið í slíku ófremd-
arástandi að gersamlega óviðunandi er. Mun leitun á annarri
höfuðborg þar sem stíkt er látið viðgangast“, — á sarna tíma
og nokkrir læknar í Reykjavík stofna kúabú til að íramleiða
liolla mjólk fyrir Reykvíkinga vegna vöntunar slíkrar vöru, —
á sama tírna hefur bærinn á búi sínu á Korpúlfsstöðum 60 naut-
gripi, þar af 40 mjólkandi kýr, í fjósi sem rúmar 150 naut-
gripi, en tekur jafnframt liesta í fóður, leigir tún til sláttar og
Korpúlfsstaðatúnið til hrossabeitar fyrir þá ágætu menn sem
geta leyft sér þann leilt að hafa hesta til reiðar í Reykjavík.
Bær sem á jarðir og fjós yfir
nautgripi á vitanlega einnig
landbúnaðarnefnd. Formaður
þeirrar ágætu nefndar er bú-
fræðingurinn Valtýr Stefánsson,
ritstjóri Morgunblaðsins og fyr-
verandi bæjarfulltr. sama blaðs
(þ. e. íhaldsins í Reykjavík).
Aðrir í nefndinni eru: Einar
Ólafsson bóndi í Lækjarhvammi,
Finnbogi R. Valdimarsson (nú
oddviti í Seltjarnarneshreppi),
Ragnar Ólafsson lögfræðingur
og Árni G. Eylands.
Nefnd þessi hefur starfað 4
ár, og eins og sjá má af framan-
greindri upptalningu eiga sæti í
henni kunnir menn, a. m. k.
munu flestir geta orðið sam-
mála um hæfileika og þekkingu
Árna G. Eylands á þessum mál-
um. En undir forsæti ritstjóra
Morgunblaðsins, Valtýs búfræð-
ings (Cand. agr. Kaupmannah.
1914) Stefánssonar, hefur nefnd
inni orðið næsta furðulega lítið
úr verki.
Valtýr formaður Landbúnað-
arnefndar Reykjavíkurbæjar
hefur auðsjáanlega litið á það
sem skyldu sína við hugsjónir
íhaldsins um bæjarrekstur, að
sjá til þess að Korpúlfsstaðabú
ið væri rekið með þeim ódæm-
um að það gæti verið sönnun
fyrir óhæfni opinbers reksturs
að vitna megi til sem sönnun-
ar þess að einstaklingsframtak-
ið eitt sé fært um það að reka
nokkurt fyrirtæki svo i lagi sé.
Til þess- eru hinar átta íhalds-
sáiir í bæjarstjórn komnar að
þær standi þar á verði um lmgs
muni einstakra gróðamanna,
þeirra braskara sem eiga og
reka Sjálfstæðisflokkinn.
Alltaf að tapa
Váltý búfræðing Stefánssyni,
ritstjóra Morgunblaðsins hefur
tekizt þessi þjónusta sín við
sjónarmið einkabrasksins með
slíkum ágætum að undir for-
ustu hans hefur Korpúlfsstaða-
búið alltaf verið að tapa.
Árið 1945 varð hallinn á
Korpúlfsstaðabúinu 48 þús. kr.
og á þessu ári er áætlaður 42
þús. kr. halli á Korpúlfsstaða-
búinu og eru þó tekjur af hey-
sölu áætlaðar 40 þús. kr., tekj-
ur af túnleigu (!) 25 þús. kr.;
tekjur af hagabeit (fyrir eldis-
hésta „einkaframtaksins"!) 1
þús kr. og aðrar leigutekjur
5 þús. kr„ eða samtals 71 þús.
kr.
íhaldið — hrossabeitin
— og fjósin í íbúðar-
hverfunum
Þessi búrekstur hljóðar sem
öfugmæli í eyrum allra skyni
borinna bæjarbúa er líta á þetta
mál frá sjónarmiði he^brigðr-
ar skynsemi. En slík eru búvís-
indi Valtýs búfræðings Stefáns
sonar.
íhaldió vill ekki að bærinn
framleiði mjólk fyrir bæjarbúa
— hvað þá að bærinn hafi fyr-
irmyndarbú. Aftur á móti er í-
haldið ekkert á móti því að fé
bæjarins sé notáð til þess að
kaupa jarðir — aðeins ef tryggt
er að afnot þeirra jarða séu
leigð einkaframtakinu með
„hagkvæmum" kjörum, — að
reiðhestaeigendur fái þar beit
fyrif hesta sína, að fjósaeigend
ur í bænum fái þar hey fyrir
beljurnar sem holað hefur ver
ið niður víðsvegar um bæinn.
Á bæjarstjórnarfundum eru
ræður fluttar um það að fjar-
lægja verði fjósin sem höfð eru
víðsvegar í miðjum íbúðarhverf
um í bænum — jafnvel íhalds-
fulltrúar tala sig heita um þetta
mál; Vikverji Morgunblaðsins
heimtar hreinlæti, að nautgrip-
ir og menn séu aðskildir (maður
sér í huganum hvernig hann
grípur fyrir vitin), en allt er á-
rangursiaust.
Mikið á ílialdið í bæjarstjórn
inni bágt sem með annarri hend
inni stritast við að fjarlægja
fjósin úr íbúðarhverfunum en
selur með hinni hendinni hey
frá Korpúlfsstöðum, svo bless-
aðar kýrnar geti verið kyrrar
í bænum!
Þegar landbúnaðar-
nefndin klæddist
gúmmístígvélum
Sósíalistar hafa alltaf beitt
sér fyrir því að bærinn eignað-
ist jarðir, en það var ætlun
þeirra að bærinn hefði bú á
Korpúlfsstöðum og framleiddi
mjólk, en alls ekki að fé bæj-
arbúa væri notað til þess að
kaupa jarðir í því augnamiði að
leigja reiohestaeigendum túnin
til hagagöngu.
Fyrir tveim árum flutti Sig-
fús Sigurhjartarson vantraust
í bæjarstjórninni á landbúnað-
arnefnd bæjarins vegna sofanda
háttar hennar og aðgerðaleysis.
Auðvittjð felldi. Ihaldið van-
trauststillögu Sigfúsar — það
.ætlaðist aldrei til þess að land
búnaðarnefndin gerði neitt!
En Valtýr búfræðingur Stef-
ánsson, sem þá var einnig bæj-
arfulltrúi Morgunblaðsins, hugð
ist reka sliðfuorðið af nefnd-
inni, kallaði hana saman, klædd
ist liún gúmmístígvélum, hélt
upp í Kjós, var þar þann dag
allan — og skoðaði jörð!
Var svo kyrrt og fréttist ekk
ert af störfum landbúnaðar-
nefndar á annað ár.
Allt í lagi á Korpúlfs-
stöðum
Á bæjarstjórnarfundinum 6.
f. m. gerðu sósíalistar búrekst-
ur bæjarins enn að umræðu-
efni og fluttu eftirfarandi á-
lyktunartillögu:
„Bæjarstjórnin samþykkir að
fara þess á lcit við Pálma Ein-
arsson, jarðyrkjuráðunaxit,
Edvard B. Malmquist, ræktun-
arráðunaut bæjarins og Svein
Tryggvason mjóikurfræðing, að
Jteir ásamt bústjóranum á Korp-
úlfsstöðum, Stefáni Pálmasyni,
leiti að orsökum binnar lélegu
afkomu Korpúlfsstaðabúsins,
semji greinargerð um landbún-
að bæjarins í heiid og gcri til-
lögur um hvernig bærinn geti
notað jarðeignir sínar til fram-
leiðslu landafurða á hagkvæm-
astan hátt. Sérstaklega er þess
óskað, að þeir athugi hvort ekki
muni framkvæmanlegt og hag-
kvæmt að framleiða barnamjólk
| á Korpúlfsstöðum.“
I Ihaldið var snöggvast gripið
ótta. 1 guðs almáttugs bænum
ekki að finna ástæðuna fyrir
tapi Korpúlfsstaðabúsins! Enga
rannsókn á nefndina hans Val-
týs búfræðings Stefánssonar!
Allt var gott sem hann gerði,
— liann gerði nefnilega ekki
neitt —- nema selja hey og
leigja tún til hrossabeitar.
Og ílialdið bjargaði búfræð-
ing sínum með því að vísa til-
lögu sósíalista frá með dagskrá.
Allt í lagi hjá Valtý. Allt í
lagi á Korpúlfsstöðum!
„Samanber skoðunargerð
dags. 2. des. 1944“
Fyrir bæjarstjórnarfundi 20.
f. m. lá fundargerð landbúnað-
arnefndar, þar sem nefndin
komst að þeirri niðurstöðu ,,að
viðgerð á húsum jarðarinnar,
bæði íbúðum starfsfólks og
fjósi, verður að fara fram nú
þegar, þar eð húsin liggja und-
ir skemmdum, sbr. skoðunar-
gerð dags. 2. des. 1944.“ (Letur
breyting Þjóðviljans).
1 marz 1947 man landbúnað-
arnefnd Valtýs Stefánssonar
allt í einu eftir því að húsin
á búi bæjarins á Korpúlfsstöð-
um voru talin liggja undir
skemmdum í desember 1944!
— „Það er b.etra seint en aldrei
— og lítið betra en ekki neitt!“,
syngur Lárus Ingólfsson í Sjálf
staiðishúsinu.
Valtýr hrekkur við
I fyrrnefndri fundargerð
landbúnaðarnefndar segir enn-
fremur svo m. a.:
„Rætt um ræktunarfram-
kvæmdir bæjarins almennt. Svo
hljóðandi tillaga var samþykkt
með samhljóða atkvæðum allra
nefndarmanna:
„I bréfi, dags. 14. maí 1946,
4. lið, lagði nefndin til, að bær-
inn keypti þær ræktunarvélar,
sem þar eru taldar upp. Þar
eð nefndin telur nauðsynlegt,
að útvegun þeirra sé hraðað
sem mest, ítrekar liún tillögu
sina um að allt verði gert sem
unnt er, til að útvega þær“.
Ákveðið var að flokkarnir
skiluðu ályktunartillögum sín-
um með nokkurra daga fyrir-
vara fyrir bæjarstjórnarfund-
inn 6. f. m. Sósíalistaflokkurinn
og Alþýðuflokkurinn skiluðu
sínum till. á tilskildum tíma.
Það gerði Sjálfstæðisflokkurinn
ekki. Hann beið eftir till. and-
stæðinganna og tindi upp úr
þeim og gerði að sínum till. það
sem hann treystist elcki til að
fella. Þetta sparaði íhaldinu í
bæjarstjórn mikla hugsun. Það
fir óvant því að hugsa um hvað
þurfi að gera. Það er vanast
því að hugsa um hvernig eigi
að koma í veg fyrir að nokkuð
sé gert.
Eitt af því sem íhaldið sá
var tillaga sósíalista um rann-
sókn á hallarekstri Korpúlfs-
staðabúsins. Valtýr brá við og
kallaði landbúnaðarnefndina til
fundar (4. f. m.) og samþykkti
i að nú sé nauðsynlegt að „sé
, hraðað sem mest“ (!) kaupum
j þeirra véla, sem landbúnaðar-
j nefndin, eftir margra ára bú-
rekstur loks sér sl. vor að þörf
I var að kaupa.
Framh. á 7. síðu
Heiztu viðburðir
um
Bandaríkin fá Kyrrahafseyjar*'
Öryggisráðið samþykkti sam
hljóða s.l. miðvikudag tillögu
Bandaríkjanna, um að þau
fengju hernaðarlega verndar-
gæzlu eyja þeirra í Kyrrahafi.
er voru undir umboðsstjórn
Japana. Brezk tillaga um að
veita öllum þjóðum jafna að-
stöðu til verzlunar á eyjunum
var felld.
Bandarísk yfirvöld tálma
verkalýðssendinefnd
Rannsóknarnefnd Alþjóða-
sambands verkalýðsfélaganna
kom til Tokyo frá Kóreu á
skírdag. Saillant, aðalritari sam
bandsins og formaður nefndar-
innar skýrðu frá því, að her-
námsyfirvöld Bandaríkjanna í
Suður-Kóreu hefðu hindrað
nefndina í að hitta verkalýðs-
leiðtoga á hernámssvæðinu. Á
hernámssvæði Sovétríkjanna
hefði nefndin aftur á móti feng
ið að fara allra sinna ferða og,
ræða við hyern sem hún vildi.
Attlee lætur undan
Attlee forsætisráðherra heí-
ur borið fram hreytingartillögu
við frumvarp brezku stjórnar-
innar um herskyldu. Leggur
hann til að lierþjónustu tíminn.
verði styttur úr 18 mánuðum í
12. Yfir 100 Verkamannaþing—
menn höfðu lýst sig andvíga
frumvarpinu og greitt atkvæðr
gegn því við aðra umræðu r
þinginu.
Baiidarískum yfirgangi
mótmælt
Bandaríska utanríkisráðu-
neytið hefur skipað MacArthur
! að hef ja greiðslu stríðsskaða-
J bóta frá Japan án þess að ráð-
! færa sig við aðra. Bandamenn..
Fulltrúar Sovétríkjanna, Ind-
lands og Ástralíu í eftirlits—
nefndinni í Tokyo hafa mót-
mælt þessari ráðstöfun.
Molotoff vill stórveldasam-
starf
Baiidaríski blaðamaðurini;
Johannes Steele hefur átt tai
við Molotoff og spurði um álit
hans á aðstoð Trumans við
stjórnir Grikklands og Tyrk-
lands. Molotoff kvað enga vort
til að einhliða íhlutun Banda-
ríkjanna yrði til að binda frið-
samlegan endi á innanlands-
deilurnar í Grikklandi. Stór-
veldin yrðu að koma á friði og
hindra yrði erlenda íhlutun í
Grigglandi hvaðan sem húo
kæmi.
Harðstjórn í Grikklandi og
Tyrklandi
Bandaríski öldungadeildar-
maðurinn, Taylor frá Idaho
sem er demokrati, hefur lýst
sig andvígan aðstoð við stjórn-
ir Tyrklands og Grikklands.
Segir hann, að í báðum þessum
löndum ríki slík hakðstjórn, að
önnur verri fyrirfinnist ekki í
heiminum.
Grimmdarverk hers
Sjangkaiséks
Bandarískur blaðamaður hef-
ur lýst aðförum hersveita
.Sjangkaiséks, er þær bældu nið
ur uppreisn á eyjunni Formósu
nýlega. Segir liann, að er stjórn
arherinn tók borg eina af upp-
reisnarmönnum, hafi hanrt
brytjað niður 12 000 óbreytta
borgara, karla, konur og bönv