Þjóðviljinn - 04.12.1947, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 04.12.1947, Blaðsíða 8
arver 20 Is&rsíst veldair fremja skemmd- ver særast er skemindarverk lársikraiiíarslysl norðnr af Faris Skemmdarverk á járnbrautarlínum íFrakklarídi fara óðum í vöxt, og í gær varð mikið slys er lestin frá París til Arras fór út af teinunum vegna skemmdarverks. Er atburður þessi var ræddur í franska þinginu í gær sagði Charles Tillon einn af þingmönnum kommúnista og fyrrv. flugmálaráðherra, að enginn vafi léki á, að hér væru hægri sinnar að verki. Ætlist þeir til að skuldinni sé skellt á jámbrautar- starfsmenn þá, sem eru í verkfalli. Sagði Tillon, að ekki væri grunlaust um, að yfirvöldin væru í vit orði með skemmdarverkamönnum. Jámbrautarslysið milli Par- ísar og Arras stafaði af því, að tveir járnbrautarteinar höfðu verið rifnir upp. Fór lestin út af sporinu og síðustu fréttir herma, að 21 maður hafi beðið bana en um 40 hlotið meiri og minni meiðsli. Yfirvöldin vissu um skemmd- arverkið Tillon sagði á þingi í gær, að yfirvöldunum nálægt slysstaðn um hefði verið sagt frá, að slcemmdarverk hefði verið framið á járnbrautinni, er þau hefðu ekkert aðhafst til að gera við járnbrautina eða aðvara lestir, sem kynnu að koma eft- ir henni. Myndi orsökin hafa verið sú, að á hverri stundu var búizt við lest með verkfalls- menn, sem fóru á milli járn- brautastöðvanna til að athuga hvernig verkfallið væri haldið. Þingflokkur kommúnista bar fram kröfu um, að þeir sem kynnu að reynast sekir um skemmdarverkið yrðu látnir sæta harðri refsingu. Innanríkis ráðherrann tilkynnti ,að rann- sókn yrði látin fara fram í mál- inu. Lestir fóru út af sporinu á fjórum öðrum stöðum í Frakk landi í gær vegna skemmdar- verka, en ekkert manntjón varð. 4000 manna hervörður um þinghúsið Er franska þingið kom sam- an í gær til að ræða þrjár síð- ustu greinarnar í kúgunarlög- um stjómarinnar gegn verka- mönnnm, hafði stjórnin safnað saman 4000 manna vopnuðu herliði í kringum þinghúsið, Innanríkisráðherrann gaf skýrslu um verkföllin og kvað 80% stáliðnaðannanna i Lot- hringen hafa hafið vinnu á ný. Hins vegar sagði hann verkföll in halda áfram að breiðast út í Suður- og Vestur-Frakklandi. Hermálaráðherrann hélt út- varpsræðu í gær til að réttlæta þá ráðstöfun stjórnarinnar að kalla 80.000 varaliðsmenn til vopna. Arásir á verkíallsverði Árekstrar milli lögreglu og verkfallsmanna verða æ tiðari. í Rouen hafði lögreglan hand- tekið verkfallsverði jámbraut- arverkamanna, en varð að hörfa úr jámbrautarstöðinni síðar. I Marseilles og Vallance beitti lögreglan kylfum og tára gasi gegn verkfallsmönnum. í Toulouse voru verkfallsverðir reknir með ofbeldi út úr járn- brautarstöðinni. I Garde héraði í Suður-Frakk- landi var lýst yfir allsherjar- verkfalli í gær. Léon Jouhaux, foringi hægrí arms stjórnar franska verkalýðssambandsms sagði í gær, að ríkisstjómin yrði að gera sér ljóst, að hún yrði að láta af ofbeldisstefnu sinni ef hún vi'.di komast að samkomulagi við verkamenn. Fiskiþingið: Síldarverksmiðja á Norð-Austur- landi NýsköpUaixrtogar inn E1 i- íðaey, eigu Vestmannaeyja- káupstaðar seldi afla sinn í gær í Englandi 5063 kit fyrir 12312 sterllngspund. Lifrin úr þessum afla var 327 föt, og er þetta talinn metafli. FLsldþinginu var sljtlí) s.l. j laugardag og hafði það f á set- ið að störfum í 12 daga og aí- greitt 36 mál. Hér fer á eftir samþykkt þingsins um síldarverksmiðju á Norð-austurlandi: ,,a) Fiskiþingið felur stjórn Fiskifélagsins að leita álits starfandi skipstjóra á herpi- nótaskipum og útgerðarmanna þeirra um staðsetningu síldar- verksmiðju á Norð-Austurlandi. b) Fiskiþingið skorar á ríkis- stjórnina og Alþingi, að flýta svo sem fært þykir, byggingu síldarverksmiðju á Norð-aust- uriandi.“ Þýzku togararnir byrjaðir veiðar í landhelgi I fyrradag var þýzkur togari Xrá Wesermiinde tekinn á veið- um í landhelgi. Fyrir lögreglurétti Reykja- vikur í gær játaði skipstjórinn brot sitt. Var hann dæmdur í 29500 kr. sekt og afli og veið- arfæri gerð upptæk. — Skip- stjórinn áfrýjaði til hæstarétt- ar. Fyrir nokkru var frá þvi skýrt að liemámsstjórn Banda- manna í Þýzkalandi hefði leyft Þjóðverjum smíði 100 nýrra tog ara og jafnframt bannað þeim veiðar í Norðursjó og við Nor- egsstrendur, — þ. e. stefut þcim á Islandsmið. Lagt af staðnorður mei 52 \jk mál í gær en 45 |ús. mál biðu í veiliskii llafiia rannsókn á giingii FaxasOdadnnar I gær fóru 5 flutningaskip áleiðis til Sigluf jarðar með 52 þús. mál. í gærkvöld kl. 6 biðu veiðiskip i Reykjavíkurliöfn með samtals 45 þús. mál Yfir 20 þús mál bárast hmgað frá þvi kl. 6 í fyrradag til 6 í gærkvöld. Hafnar verða rannsóknir á göngu Faxasfldarinnar og tekur dr. Hermann Einarsson þær að sér og fær til þess Faxaborg. Reynt verður einkum að finna hrygningarsvæði síldar- innar, en talið er að um þriðj- ungur síldarinnar sé búinn til hr-ygninga innan fárra vikna. Fitumagn norðurlandssíldar á sumrin er 20% en Hvalfjarð- arsíldarinnar nú 15—16% og þar sem ekkert æti er í Hval- firði rýmar fitumagn síldar- innar þegar kemur fram á vet- Félög víðsvegar um landið styrkja járnsmiðina með fjárframlögum Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá þeim fjárframlögum sem Dagsbrún, Bjarmi á Stokkseyri, Blikksmiðafélagið og Mjólk- uríræðingafélagið hafa veitt járasmiðum til stuðnings i yfir- >tandandi deilu. Auk þess hefur verkakvenuatelagið Snót í Vestniannaeyj- um veitt }>eim 500 kr. Sjómannafélagið Jötunn í Vestmanna- eyjum 1000 kr. og Félag bifvélavirkja 5000 kr. Jólaskammturinn: Ekki „sitt pundið af hvoru“ Ákveðið )iefur verið að stofn- auki nr. 15 gildi frá og með deginum í dag til næstu ára- móta sem mnkaupaheimild fyr- ir 250 gr. af brenndu og möl- uðu kaffi eða 300 gr. af ó- br. kaffi og 500 gr. af sykri Er aukaskammtui þessi vegna jólanna, Verður vatns- skatturinn hækkaður? Bæjarstjórnarfundur í dag Bæjarstjórnarfundur verður lialdlnn í dag kl. 5 í Kaupþings- salnum. 9 mál eru 4 dagskrá fundar- insv þar á meðal tillaga vatns- og hitaveitustjóra um stór- hækltun á vatnsskattinum. Toppgígur Heklu snævi þakinn Þelr Guðmundur Kjartans- son, Trausti Einarsson og dr. Sigurður Þórarinsson notuðu" góða veðrið um helgina til þess að athuga Heklu, en Árni Stef- ánssou fór þangað til kvik- m.mdatöku. Þeir segja svb frá að hiaun- gígurinn sé nú næstum lokaður en hraunstraumur renni úr f jailinu nokkru fyrir neðan gíg- inn, rennur* hraunið einkum kringum Höskuldsbjalla. Guðmimdur Kjartansson, sem gekk á fjallstoppinn, segir að toppgígurinn sé nú snæviþak- inn niður í botn. íþróttahandalag Snðurnesja Síðastliðinn mánudag var stofnað iþróttabandalag Suður- nesja. I stjórn vroru kosnir: Ragnar Friðriksson form., Sigurbergur Þorleifsson ritari, Páll S. Páls- son gjaldkeii og Svavar Áraa- son. urinn og kom það greinilega í ljós við veiðarnar í fyrra. Frá þvi um tólfleytið í fyrra- kvöld hafa þessi skip komið hingað með afla sinn: Víking- ur IS með 500 mál, Hafdís IS 1000, Særún, Sigluf. 500, Sigur- fari Ak. 800, Keilir 900, Síldin 1000, Victoría 800, Isbjöm ÍS 900, Farsæll 700, Guðmundur Kr. 1000, Hafbjörg 800, Ágúst Þórarinsson 1200, Trausti 580, Revnir 700, Hafdís Rvík. 700, Auður 500. Njósnuðu fyrir Vest- urveldin Réttarhöld hófust í Varsjá í gær yfir fimm körlum og tveim konum, sem ákærð em fyrir landráð og fleiri glæpi. önnur konan var túlkur hjá brezka sendiráðinu í Varsjá. 1 ákæru- skjalinu eru þau sökuð um, að hafa útvegað og látið af hendi leynilegar upplýsingar við leyni þjónustur Breta og Bandaríkj- anna. Einnig em þau sökuð um að hafa tekið saman ráð sín um að myrða liðsforingja úr Sovét- hernum, sem sjá um flutninga hernámsliðs Sovétríkjanna í Þýzkalandi yfir Pólland, og foringja pólsku vinstri flokk- anna. Nafnskírteina- afhendingin flutt Afhending nafnskírteinanna er flutt á Amtmannsstíg 1 og verða afhent í dag skírteini til þeirra er heita skímar eða ætt- amöfnum sem byrja á B, C og D, frá kl. 10 f. h. til kl 7 e. h. Ný bók Nýlega er komin út hjá Hlað- búð önnur bók í flokkinum „Væi ingjar". Nefnist þessi bók: Þeir fundu lönd og leiðir, og er eftir Loft Guðmundsson. Bókin segir frá siglingum og landkönnunarleiðöngrum og er skipt i eftirtalda kafla: Drengurinn í fjörunni, Norðui um höú, FjTsta för Kólumbusai vestur um haf, Frá Sevllla ti) Filippuseyja, Framleiðangurinr og Friðþjófur Nansen, Roaid Amundsen og sir Ernestf Shackleton. Bókin er 180 bls„ prentuð á góðan pappír og eru í henn: nokkrar mjmdir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.