Þjóðviljinn - 24.12.1947, Page 4

Þjóðviljinn - 24.12.1947, Page 4
4 MlðvLkudagur 24. des. 1&47. þlÓÐVILIIN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Hitstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðu- stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur) Áskriftarverð: kr. 8.00 á mánuði — Lausasöluverð 50 aur. eint. Frentsmiðja Þjóðviljans h. f. Sósíalistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár linur) Friður a jorðn BÆJARPOSTIRINN í dag hljómar boðskapurinn friður á jörðu í kirkjum kristinna manna um allan heim og hef- ur hljómað old fram af öld. Sá boðskapur er þó að sjálfsögðu ekki eingöngu bundinn þessum degi né kristinni trú, hann er sameiginlegur öllu mann- kyni, hugsjón sem lifað hefur verið fyrir, barizt fyrir og dáið fyrir öld fram af öld. Einn megin þátturinn í þjóðfélagsátökum vorra tíma er bar- áttan um hugsjónina friður á jörðu, þvl það hugtak svífur ekki í lausu lofti fremur en nokkuð ann- að. heldur á sér raunverulegar, þjóðfélagslegar for- sendur. Afdrif þeirrar hugsjónar eru í einu og öllu háð þeim stórvægilegu þjóðfélagslegu átökum sem nú eiga sér stað um heiminn milli sósíalisma og kapítalisma. í heimi kapítalismans verður friður á jörð aðeins fagurt efni til túlkunar í prédikun- arstóli, því eðli þess þjóðskipulags er styrjaldir, ó- friður, kúgun, misrétti. En með sósíalismanum er hugsjónin orðin veruleiki. * Ýmsum kann að virðast sú stund f jarlæg að hug- sjónin um frið á jörðu verði veruleiki og uggvæn- legar horfur í alþjóðamálum. Forustumenn ríkustu þjóðar heims, bandarísku þjóðarinnar, stunda nú linnulausar stríðsæsingar og leggja allt kapp á að efla vígvélar sínar og auka stríðstæknina. Þeir hafa seilzt æ meir inn á svið varnalítilla og varnar- lausra þjóða, kúgað þær til að afhenda herstöðvar til notkunar í styrjöld þeirri sem herrar og þjónar dollarans þrá, og gerzt æ stórtækari í íhlutun sinni í málefni framandi þjóða í öllum álfum heims. Undir vernd þeirra hefur afturhaldið, boðberar ófriðar á jörðu, eflzt og styrkzt um sinn. í Frakk- landi býr verkalýðurinn við þrælalög og horfist daglega í augu við sultinn. í Grikklandi stunda kvislingar nasistanna ennþá morð, hryðjuverk og ofsóknir í skjóli dollaravaldsins. Franco heldur áfram blóðsúthellingum á Spáni. í Kína heldurj einræðisstjórn áfram styrjöld þeirri sem Japanir urðu að gefast upp við. Indónesíumenn og aðrar undirokaðar nýlenduþjóðir bíða enn frelsis og friðar. Og þannig mætti lengi telja. ★ En þó hefur aldrei verið eins lítil ástæða til uggs og svartsýni og nú. Sósíalisminn, hugsjónin um frið á jörðu, hefur aldrei verið eins öflug og þróttmikil og einmitt nú. Hver þjóðin á fætur ann- arri starfar af miklum ötulleik að því að koma á hjá sér hagkerfi sósíalismans, og meðal þeirra sem skemmra eru komnar hafa fylgismenn sósíalism- ans aldrei verið eins fjölmennir. Hugsjónin um sósíalisma og frið á jörðu spennir nú um veröldina alla, færir kúguðum þjóðum og stéttum nýja von og nýtt baráttuþrek. Hitt þarf engan að undra þótt fulltrúar auð- hyggjunnar reyni að halda aðstöðu sinni með kjafti og klóm og sízt tjóir að loka augunum fyrir því að enn er framundan hörð barátta. En þeirri bar- áttu lýkur allri á einn veg. Sósíalisminn er hug- sjón framtíðarinnar, fyrir framkvæmd hans munu tugir og hundruð milljóna af íbúum heimsins .berjast af allri orku þar til sigur er unninn. Bar- Ekki Iátið sjá sig um skeið Vegna þess að hin mörgu verzlunarfyrirtæki hafa að und- anfömu þurft svo mikið prent- pláss til að segja landsfólkinu, hvað þau væru dæmalaust góð fyrirtæki og ættu á boðstólum ósköpin öll af heimsins beztu jólagjöfum hefur Bæjarpóstur- inn ekki látið sjá sig um skeið. * Endilega einhverastaðar að vera Jólaauglýsingarnar fóru að tútna út á síðum blaðsins í byrj un mánaðarins og eftir því sem á leið, þrengdu þær stöðugt meir að.öðru efni, oft urðu fast ir þættir að kúldrast úti í homi, jafnvel hoppa alveg út af síðun um eins og einn dag, meira að segja framhaldssagan og Sam- særið voru farin að draga sig alveg í hlé fyrir heilsíðuauglýs- ingum um reyfara, og þá gat það ekki lengur talizt kurteisi af einum hversdagslegum smá- letursdálki að standa ekki úr sæti sínu á 4. síðu og gefa það pláss fyrir gildar útblásnar aug lýsingar, sem endilega þurftu einhversstaðar að vera. ¥ Peningaspursmál Blaðaútgáfa verður að grund vallast að miklu leyti á auglýs ingum ,— hugsaði Bæjarpóstur inn. Það er því veigamikið at- riði að blaðið geti birt og íengið borgað fyrir allar þær auglýs- ingar, sem því bjóðast; og þó að fátt fari eins mikið í taug- aniar á Bæjarpóstinum og þess ar auglýsingar, þetta sjálfhæli- raus bisnismennskunnar, þá sá hann sem var að hér kom til greina peningaspursmál blaðs- ins og hann stóð upp og lét auglýsingunum eftir sæti sitt. ¥ Svoua er aðeins næst á uudan jólum En nú er Bæjarpósturmn kominn aftur og gerir ráð fyrir að geta lengi setið sem fastast í friði fyrir ásælni auglýsinga. Það er ékki nema næst á und- an jólum, að auglýsingar troð- ast inn á síður dagblaðanna eins og Reykvíkingar inn í strætis- vagninn á stoppstöðinni hjá bíó í Hafnarfirði að aflokinni frægri mynd um vændiskonur. ¥ Samkvæmt almanakinu Og nú ætti ég samkvæmt al- manakinu að tala langt mál um jól og komast í skáldlega stemn ingu í tilefni af því að jólin eru einmitt þar sem dagurinn byrj ar aftur að verða lengri en. lxættir að verða styttri og þann- ig er andi jólanna meira ljós, og allt þetta, sem séra Bjarni og allir liinir prestarnir okkar hafa sagt á jólunum síðan við' munum eftir okkur, alltaf í höf- uðdráttum sama ræðan en al- arei þreitandi, í rauninni jafn viðfelldin og fyrst, vegna þess að hún fjallar um jólin og jól- in sýna okkur ávallt þá vinsemd að rifja upp ljúfar minningar frá æskuánmum, gera okkur að dálítið minna fullorðnu fólki en við erum venjulega, gera okk ur líkari bömum, líkari mann- eskjum. En ég ætla að sleppa þessum hugleiðingmn, læt nægja að segja við alla lesendur mína Gleðileg jól Hafskipahöfn við Dyrhólaey Á framboðsfundum fyrir aukakosningu þá til Alþingis, sem fram fór i Vestur-Skafta- fellssýslu í sumar vakti ég máls á því, að hefjast þyrfti handa um rannsókn á hafnar- skilyrðum við Dyrhólaey. Ég taldi þetta stærsta framfaramál Vestur-Skaftafellssýslu og ná- lægra héraða og raunar eitt af stærri hagsmunamálum þjóðar- innar í heild, þar sem hér væri um að ræða stóraukin atvinnu- skilyrði til lands og sjávar. Eg verð að geta þess að mál mitt fékk litlar, eða öllu heldur engar undirtektir hjá frambjóð- endum hinna flokkanna. Eg man ekki til þess að á fundun- um hafi verið minnst á þetta mál af öðrum en mér og á ein- um fundi af Óskari Jónssyni í Vík, er tók í sama streng, enda hafði hann áður skrifað um þetta í blöð. Og svo virðist sem hin pólitísku samtök Sjálfstæð- is- og Pramsóknarmanna hafi meiri áhuga á því að halda uppi dýrlegum skemmtunum fyrir fólkið en á þessu máli. Af þessum undirtektum mátti ætla að óvænlega mundi horfa í þessu máli enn um sinn. Það gladdi mig því mjög að Fram- sóknarframbjóðandinn núver- andi þingmaður V.-Skaftfellinga «>Cx£0 VERKAMANNAFÉLAGIÐ DAGSBRtTN Jélatrésskemmtun fyrir börn verður í Iðnó laugard. 27. þ. m. kl. 4 e. h. Kl. 10 sama dag verður jólatrésdansleikur fyrir fullorðna. Aðgöngumiðar vei'ða seldir í skrifstofu félags- ins á annan jóladag kl. 2—4 og eftir kl. 10 f. h. á laugardag. NEFNDIN. >0000000000000000000000000000 áttulaunin verða framkvæmd hugsjónarinnar um frið á jörðu. Þjóðviljinn óskar íslenzkri alþýðu GLEÐILEGRA JÓLA hefur komið auga á mikilvægi þess og flutt um það þingsá- lyktunartillögu, þar sem farið er fram á rannsókn, eins og ég lagði til í sumar. Tillagan er nú komin til nefndar og vænti ég þess að hún nái fram að ganga og verði upphaf framkvæmda. Skora ég á Skaftfellinga og aðra sem áhuga hafa að styðja þingmanninn í þessu máli án tillits til flokksfylgis. Mál þetta er vitaskuld að- eins á rannsóknarstiginu ennþá. Það hefur engum dottið í hug að fara fram á annað eða meira en rannsókn að svo stöddu. Marga hef ég heyrt halda því fram, að hafnargerð við Dyr- hólaey væri fyrirfram dauða- dæmd sökum dýrleika. Mér finnst hæpið að fuilyrða slíkt. En úr þessu á einmitt rannsókn- in að skera. Þó s\xi reyndist, að þessi iiöfn yrði eitthvað dýrari en sambærileg maimvirki önnur, þá er ekki þar með sagt að hún yrði of dýr. Slíkt verður að meta í hlutfalli við þörfina. Og hér er þörfin einmitt mjög brýn og augljós. Öll suður- strönd landsins er hafnlaus, hún er lang-lengsta hafnleysiss/a.ð- ið á landinu. Reykjavíkurhöfn getur engan veginn fullnægt öllu Suðurlandi, sökum vega- lengda. Austurhluti þess er dæmdur til þess að dragast aft- ur úr og jafnvel til auðnar sök- um vöntunar á markaðs- og samgöngumiðstöð. Þar eru sums staðar einhverjir beztu landskostir hérlendis. Úti fyrir ströndinni eru einhver auðug- ustu fisksvæði við landið. Við höfum ekki ráð á því að láta auðsuppsprettur landsins lítt notaðar. Runóliur Björnsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.