Þjóðviljinn - 24.12.1947, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 24.12.1947, Blaðsíða 5
Mlðvikudagur 24. des. 1947. ÞJÓÐVILJINN 21 Fyrsti kafli „laga um dýrtíð- arráðstafanir“ er Alþingi af- greiddi á laugardaginn var, og ganga í gildi 1. jan. 1948, er þannig: „Markmið laga þessara: „Til þess að vinna gegn verðbólgu og dýrtíð, tryggja áframhaldandi rekstur útvegsins, stemma stigu fyrir atvinnuleysi og auka fram leiðslu til gjaldeyrisöflunar er sett löggjöf sú, sem hér fer á eftir“. Þingmenn sósíalista sýndu fram á að hver einasta setning í þessum óvenjulega markmiða- kafla er algert öfugmæli. I nefndaráliti frá minnihluta fjár hagsnefndar efri deildar dró Brynjólfur Bjamason saman það sem bæði hann og aðrir sósíalistar sönnuðu í umræðun- ( um um efni frumvarpsins: „Það miðar ekki að því að lækka dýrtíðina, heldur verður! það til að auka hana stórlega. Það nær ekki þeim tilgangi að aðstoða sjávarútveginn, eins og nauðsyu ber til. Það hefur í för með sér mikla almenna launalækkun, sem mun nema um 10% nú þegar og að öllum líkindum miklu meira, er frá líður. Um leið og launa- menn eru þannig rændir þeim vinnulaunum, sem þeir hafa tryggt sér með löglegum samn- ingum, er mjög dregið úr rétt- indum alþýðutrygginganna og lífeyrisgreiðslur þeirra, sem verst eru stæðir í þjóðfélaginu, rýrðar verulega. Skattaákvæði frumvarpsins eru mjög ranglát og koma að mjög litlu leyti niður á þeim, sem bezt gætu borið þau. Launarán frumvarpsins leys- ir ekki vandamál dýrtíðarinnar og ekki vandkvæði sjávarútvegs ins, Hér er blátt áfram verið að misnota löggjafarvaldið til þess að hjálpa atvinnurekendum til að stórlækka laun verkamanna sinna. Með frumv. þessu er því óhjákvæmilega verið að stofna til vinnuófriðar í landinu." Þessi orð standa óhögguð. Þingvikan síðasta fyrir jóla-1 leyfið verður minnistæð, óvenju annrikt, þingfundir dag og r.ótt. Mánudaginn 15. dcsember birt- ist loks árangur af kappvinnu ráðheiTanna og sérfræðmga þeirra, frumvarp til laga um dýrtíðarráðstafanir. Laust eftir hádegi á laugardag, 20. desem ber, 'afgreiddi þingið frumvarp ið sem lög, og hafði það þá geng! ið gegn um sjö umræður. MikillJ meirihluti þings. samþykkti lögj in, 31 þingmaður greiddi þeimj atkvæði, en fjarverandi úrslita- atkvæðagreiðsluna voru nokkr- ir þingmenn, einn þeirra ráð- herrann Emil Jónsson, ákafur talsmaður frumvarpsins, svo örlagatalan 32, svarti skugginn yfir þessu kjörtímabili, hefði auðveldlega náðst. Gegn frum- varpinu greiddu atkv. aðeins einn þingmaður auk þingmanna Sósíalistaflokksins, Jón Pálma- son forseti sameinaðs þings. Þrír þingmenn sátu hjá við at- kvæðagreiðsluna, af ólíkum Þingsjá Þjóðviljans 24. desember 1947 Hve langt til MORGUNS? hvötum. Gylfi Þ. Gislason pró- fessor taldi sig andvígan launa lækkun laganna, en vildi ekki angra „fyrstu ríkisstjórn sem Alþýðuflokkurinn myndar á Is- landi" með hreinni andstöðu. Annar, Páll Zóphoníasson bún- aðarráðunautur, fékk ekki fram gengt þeirri breytingartiilögu að bæta í frumvarpið banni við grunnkaupshækkunum árið 1948 né öðrum tillögum er hann flutti á tveim þéttprentuðum þingsskjalssíðum. Jónas Jóns- son frá Hriflu skólastjóri Sam- vinnuskólans lýsti sig andvígan frumvarpmu vegna þess að samþykkt þess þýði framkvæmd kommúnismans, en þessi full- trúi Framsóknarmanna í Suður- Þingeyjarsýslu virðist. alveg hættur að ætlast til að þing- störf sín séu tekin alvarlega Þjóðviljinn hefur varið allmiklu af rúmi sínu frá 16 des. til að kynna málið og berjast gegn þessari lagasetningu. Hér er ráð fyrir því gert að lesendur hafi fylgzt með þingfréttum og leiðurum blaðsins og heyrt eða lesið hina snjöllu útvarpsræðu Brynjólfs Bjamasonar. Því er ekki rakið frumvarpið né end- urtekin í samhengi frásögn blaðsins af baráttunni gegn því á þingi, heldur rif juð upp nokk- ur atriði um afgreiðslu málsins. Ríkisstjórnin lagði á það höf- uðáherzlu að afgreiðslu frum- varpsins væri hraðað. Þrisvar lét stjórnin forseta þingsins skera niður umræður, afbrigða þurfti um hverja einustu um- ræðu. Fyrst virtist eiga að beita enn óþinglegri aðferðum, t. d. kröfðust báðir ráðherrar Al- þýðuflokksins þess er 2. umr málsins hófst í neðri deild, að umræðum væri haldið áfram tafarlaust, þrátt fyrir kröfu Einars Olgeirssonar um hlé til að undirbúa minnihlutaálit úr fjárhagsnefnd og breytingatil- lögur stjórnarandstöðunnar. Forseti hafði vit fyrir stjórn- inni og veitti þann dag nokkurt tóm til athugunar málinu. Því fór fjarri að sósialistar beittu málþófi, notuðu aðeins brot af þeim ræðutíma er þeir hefðu get að notað.Stjórnin var varla til viðtals um málið, tók aðeins þátt í fyrstu umræðunni í neðri deild og útvarpsumræðunni frá efri deild. Af ræðutíma sínum notuðu ráðherrarnir aðeins lít- inn hluta til að tala um frum- varpið en hespuðu af gargslitn- ar plötur úr plötusafninu „bar- áttan gegn kommúnismanum“, með viðeigandi hótunum um enn ósvífnari árásir ef alþýða landsins sætti sig ekki við að- albjargráð stjómarinnar, launa ránið. Stjórnin þóttist mjög af því hve vel og nákvæmlega frum- varpið væri undirbúið. Svo fór þó fyrir baráttu sósíalista og árvekni útvegsmanna að stjóm arliðið neyddist til að gera verulegar breytingar á frum- varpinu í báðum deildum þings ins, á þeim ákvæðum er fjalla um aðstoð við sjávarútveginn. Eins og til var getið í síðustu þiiigsjá þorði stjórnin ekki að bera fram frumvarp sitt án þess að taka í það kafla um fisk- verðsábyrgð upp úr dýrtíðar- frumvarpi sósíalista, og í með- ferð málsins neyddist stjórnin til að nálgast tillögur sósíalista og útvegsmanna í ýmsum fieiri atriðum, meira að segja í jafn umdeildu máli og því, að láta Alþingi fyrirskiþa bönkunum lækkun vaxta af rekstrarlánum útvegsins. Mótmælum alþýðusamtak- anna í landinu og opinberra starfsmanna gegn launaráni og dýrtíðaraukningu „var ekki sinnt. Á þeim hluta frumvarps- ins þóttist þingmeirihlutinn geta staðið, þrátt fyrir þá að- vörun eins æstasta fylgis manna ríkisstjórnarinnar, að lögin hlytu að reynast ófram- kvæmanleg og gætu orðið „hengingaról um háls ríkis- stjórnarinnar." Það var ekki eingöngu af rifr ildinu í stjórnarherbúðunum að árásin dróst þar til 15. desem- ber. Ráðherrarnir vita hve örð- ugt öllum þorra manna veitist að beina hugsun og athöfn að stjórnmólum síðustu vikuna fyrir jólin. Að minnsta kosti hér í Reykjavík hefur verið lamið í menn slíku undirbúningsbrjál- æði að síðustu daga fyrir há- tíðina er allt borgarlífið úr skorðum. Enda þótt þingflokki sósíalista tækist að hindra al- gera skyndiafgreiðslu launa- lækkunarfrumvarpsins, fer því fjarri að alþýða manna hafi gert sér ljóst hvað var að launþega landsins undir yfir- skyni öýrtíðarráðstafana en létu ósnertar tekjur auðmanna og braskara., sem arðrænt hafa þjóðina um tugi milljóna á fáum árum. Stjórnarfrumvarpið um „dýr- tíðarráðstafanir" var samþykkt, það „komst í gegn“ eins og Keflavíkursamningurinn, áður en þjóðin náði að átta sig á því sem var að gerast. I hádegis- útvarpi á sunnudag auglýsti eitt stéttarfélag opinberra starfsmanna í Reykjavík fund til að ræða „dýrtíðarfrumvarp- ið“, sólarhring eftir að Alþingi afgreiddi það sem lög. Þessi lagasetning hefur lostið menn illa, óviðbúna. Fróðlegt hefði verið að út varpa öllum umræðunum, helzt án þess að þingm. vissu, því flest ir tala þeir mjög með öðrum hætti í venjulegum umræðum á þingi en útvarpsumræðum. Leitt er að hér skuli ekki tíðkazt að gefa út þingtíðindi a. m. k. vikulega i stað þess að fá um- ræðumar ekki á prent fyrr en eftir þrjú ár. Væru umræðurnar um laimalækkunarfrumvarpið gefnar út strax, orð fyrir orð yrðu þær hnmstjórn Stefáns, Bjarna, Eysteins og Co ákaf- lega óþarft plagg. Ekki einung- is ræður sósíalista, -þó sjaldan muni stjórnaxandstaða liafa snúið vöm í sókn með jafn miklum yfirburðum, heldur cimi ig hin vesæla vöm stjórnarliðs- ins fyrir vondan málstað, flótt- inn frá málefninu, persónulegt níð um sósíalistana sem héldu fram alþýðumálstaðnum, beinar álygar sem ráðherrarnir mðu að kingja samstundis en klígjar ekki við að láta blöð sín jórtra í trausti á mátt margfalds blaðakosts á við sósíalista. Hrakfarirnar sem ríkisstjórn in fór í neðri deild eru óvenju- gerast þessa síðustu þingviku íegar á þingi og sást þegar í fyrir jólin. Þegar menn fréttu fyrstu umræðunni að aðstaða um frumvarpið var viðkvæðið hjá mörgum: Þetta verður aldrei samþykkt! Þetta kemst aldrei gegnum þingið! Enn vant ar mikið á að alþýða manna hafi gert sér ljóst hve ósvífinn þingmeirihluti hinna þrjátíu og tveggja til fjörutíu og tveggja er, að þama er samankominn skuggalegur hópur með æðstu völd landsins, mjög ólíkur þeim viðkunnulegu einstaklingum, sem tala mjúkt á framboðs- fundum, hópur íslenzkra manna sem ekki hikaði vikuna fyrir 4 okt. 1946, og hikaði heldur ekki nú síðustu þingvikuna, en skertu verulega laun livers einasta stjórnarinnar var óverjandi málefnalega. Sjálfsagt hefur stjórnarliðið talið, eftir með ferðina sem Einar Olgeirsson, Lúðvík Jósefsson, Sigfús Sig- urhjartarson, Áki Jakobsson, Hermann Guðmundss. og Sig- urður Guðnas. veittu því, að í neðri deild væri ekki sigurvæn- legt í útvarpsumræðum, og bað Alþýðufl., um að útvarpað yrði 1. umræðu málsins frá efri deild. Þar eiga sæti m. a. Hermann Jónasson, Björn Krist jánsson, Páll Zóphóniasson, Sigurjón Á. Ólafsson, Guðm. í Guðmundsson og Hannibal Valdimarsson. Þegar til kom gerðu Alþýðufl. og Fram sókn þessum sex flokksmönnum þá opinberu háðung að ieyfa- engum þeirra að tala lun málið í útvarp, enda þótt annar þess- ara flokka ætti upptökin að út- varpi frá efri deild, heldur sóttu báða ráðherrana til neðri deild- ar til að tala fyrir flokkana! En hafi stjórnin átt veika von um mildari átök í efri deild, brást hún. Einnig þar gáfu tveir sós- íalistaþingmenn sex hrunstjórn arráðherrum ráðningu sem. hljómaði um allt landið og mun í minnum höfð. Ein stund þessarar þingviku ann mér ekki friðar, hvað eftir annað, hvar sem ég er, sé ég hana fyrir mér. Langt liðið á. nóttu, aðfaranótt miðvikudags. í þröngu blaðamannastúkunni uppi undir lofti erum við orðnir tveir eftir. Fyrir framan og neð- an ljósbjartur þingsalurinnneðri deild fjölmenn á fundi. And- spænis okkur sækir vetrarnótt- in kolsvört að norðurgluggun- um, og gerir ljóshafið i salnum enn notalegra. Um flest brún- klæddu þingmannaborðanna liggja þingskjöl á dreif. Sætin sem fyrir stundu göptu tóm upp til okkar, eru nú nær öll setim Við bjöllukall Barða forseta Guðmundssonar höfðu þing- menn þyrpzt að úr þæginda- krókum hliðarherbergjanna til þátttöku í þingstörfum. Atkvæðagreiðsla. Fyrsta al- varlega atkvæðagr. um dýrtíðar frumvarp ríkisstjórnarinnar. Annarri umræðu lokið með af- brigðum, niðurskurði á umræð- um og nætursetu. Nú greiddu neðri deildar þingmenn atkv. um hverja einstaka grein frum- varpsins og gerbreytingartillög- ur Sósíalistaflokksins. Komið er að þeirri grein sem ráðherrarnir hafa hver eftir annan sagt að sé aðalefni frum varpsins, 12. greinin, sem kveð- ur á um launalækkun allra laun þega landsins frá áramótum og afnám frjálsra, löglegra samn- inga allra verkalýðsfélaga. Nafnakall. Forseti nefnir hvern þingmann og hann svar- ar já eða nei. Það er örlaga- spuming sem upp er borin. Strjál nei hinna sjö sósíalista hljóma skýrt og alvarlega. 1 miðri atkvæðagreiðslunni verð- ur það, að heyrnardaufur þing- maður úr stjórnarliðinu svarar hátt og skýrt nei, Allir verða undrandi snöggvast, rétt á eftir grípur sessunautur hans fram í atkvæðagreiðsluna og segir að þingmaðurinn hafi ekki heyr I hvað forseti bar upp, vilji leið- rétta svar sitt, hafi ætlað að segja já. Þetta atvik vekur óstjómlega kátínu meðal stjórnarliðsins. Háttvirtir þingmenn veltast um af hlátri, ráða sér ekki Brand- ararnir fjúka frá ráðherrastól- unum, forseti heldur áfram at- kvæðagreiðslunni um 12. grein- ina þrátt fyrir hlátursgusurnar úr salnum, nokkrir þingmenn Framh. á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.