Þjóðviljinn - 21.07.1948, Page 4
tJÓÐVILJINN
Miðvikudagur 21. júli 1948
IIJðÐVILJINN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórax: Magnús Kjartansson, Sigurður Gu'ðmundsson (áb).
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi ólafsson, Jónas Amason.
Rltstjóra, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja. Skólavörðu-
stig 19. — Sími 7500 (þrjár línur)
Askriftarverð: kr. 10.00 á mánuðL — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðvlljans h. f.
Sósiolistaflokkurinn, Þórsgötu 1 — Simi 7610 (þrjár línur)
Fjárflóttamálið er í höndum
Alþýðuflokksins
Þíu) er nú fyrir löngn orðið öllrnn ljóst hvern leik Gylfi
Þ. Gíslason, prófessor, er látinn leika framnii fyrir íslenzk-
nm almenningi. Á sama tima og flokkur hans, aðstoðarí-
haldið, vinnur hin verstu óhæfuverk er Gylfi Þ. Gíslason
látinn sprikla ofurlítið til vinstri, og tilgangurimi er auð-
sjáánlega sá að hinn mikli fjöldi óánægðra Alþýðuflokks-
kjósenda telji Gylfa sinn mann og fylgi honum, þrátt fyrir
hina algeru óánægju með svik flokksins. Þó hefui' það varla
dulizt athugulum mönnum að síðan núverandi stjórn var
mynduð hefur Gylfi ekki brugðizt henni í nokkru verulegu
máli, að vegur hans innan flokksins virðist aldrei meiri en
nú, að hann hefur æ ofan í æ látið hafa sig til hinna verstu
þjónustustarfa fyrir afturhaldið, tékkagaldurs þar sem
hann missti alveg stjórn á sér, klofningstilrauna 1. maí o.
s. frv.
Vegur Gylfa Þ. Gíslasonar meðal hinna raunverulegu
i-áðamanna Alþýðuflokksins byggist þannig auðsjáanlega á
því að hann er talinn handhægur til vinstrisprikls og það
hlutverk leikur hann fúslega. Seinasta dæmið birtist í gær
í Alþýðublaðinu, en þar skrifar haim grein um liinar stór-
feldu stolnu og földu eignir auðstéttarinnar erlendis. Það
mál hefur undanfarið vakið mikla athygli og almennt um-
tgl, og ekki sízt þáttur Emils Jónssonar viöskiptamálaráð-
herra, en hann er uppvís að því að hafa dregið alla rann-
sókn í málinu á langinn í hálft ár og gefið á meðan fulltrú-
um auðstéttarinnar tækifæri til utanferða, sem alkunnugt
er, til að koma eignum sínum í lóg eða fela þær. Athæfi
Emils Jónssonar og flokks hans í þessu máli hefur opnað
augu almennings til hlítar fyrir því hver er nú orðinn þátt-
ur Alþýðuflokksins í íslenzkri pólitík og hver sú stétt er
sem hann telur hjutverk sitt að vemda.
Emil Jónsson skrifaði sem kunnugt er grein um þetta
mál í Alþýðublaðið fyrir nokkru og reyndi að verja athæfi
sitt, en sú tilraun tókst svo óhönduglega að hann hefur ekki
freistazt til frekari athafna á því sviði. Og til þess að jafna
örlítið hallan á flokknum hefur því verið leitað til Gylfa Þ.
Gíslasonar eins og oft fyrr, og hann beðinn að bæta úr af-
glöpum Emils Jónssonar út á við. Og Gylfi Þ. Gíslason
skrifar grein, fordæmir fjárflóttann, skýrir út hvernig
hann hafi átt sér stað í aðalatriðum og krefst þess með
feitu letri að ríkisstjórnin hefjist handa, hafi upp á hinu
dulda fé og komi í veg fyrir frekari fjárflótta.
Þetta er nú gott og blessað, og atet er rött að bera fram get-
sakir um það að prófessorinn mæli vitandi vits þvert um hug.
En hann er varla sk.vni skroppnari en það að honum hlýtur að
vera ljóst að tilgangur Alþýðublaðsins með því að birta grein
hans er ekki að stuðla að framgangi málsins, heldur að lægja þá
stórfelldu óánægju sem risin er meðal fylgjenda flokksins. Og
hann hlýtur að finna að það er blátt áfram lijákátlegt að bera
fram feitletraðar áskoranir í Alþýðublaðinu út af þessu máli
Það er í liöndur „fj'rstu stjórnarinnar sem Alþýðuflókkurinn hef
ur myndað“. Og þessi „fyrsta stjórn sem Alþýðuflokkurinn hef-
ur myndað“ hefur falið Emil Jónssyni, Alþýðuflokksráðherra.
að sjá um frekari aðgerðir með þeim alkunna skörungsskap sem
honum er iaginn. Og Gylfi Þ. Gíslason, prófessor, er sem kunn-
ugt er ritari þessa sama Alþýðuflokks, náinn samstarfsmaður
EmDs Jónssonar og stuðningsmaður ,,fyrstu stjórnarinnar“.
BÆ JARPOSTf R1N Nj
ssmsmmsm- mmsmm
Um gildi íþróttamóta
Gallharður er beðinn að. taka
eftirfarandi til athugunar:
,,Af mörgu furðulegu, sem
þessi Gallharður hefur látið
frá sér fara um dagana, eru
seinustu skrif hans kannski
furðulegust. — Það er helzt
svo að sjá, sem hann geti ó-
mögulega skilið, að íþróttamót-
in, sem fara svona voðalega
mikið í taugarnar á honum,
eru ekki fyrst og fremst bara,
sýningarfyrirbrigði líkt og
cirkus, þau eru vettvangur, þar
sem ungt og hraust fólk kem-
ur til að reyna með sér og gildið
er fyrst og frenist fólgið í því,
að þama fær annað ungt fólk
hvatningu til að þjálfa líkama
sinn til afreka. — Þess vegna
eru íþróttamótin í rauninni efl-
ing almennrar líkamsræktar
sem Gallharður þykist láta sér
svo annt um, — Þetta vildi ég
biðja hann að hugsa um, ef
liann hefur þá nokkurn tíma
til að hugsa. —
Gamall íþróttamaður.“
Berfætt á leið í
Laugarnar
Þá sendir ung stúlka langt
bréf um sokkahallærið og byrj-
ar á þessa leið: ,,Kæri bæjar-
póstui’. — Eg var að fara inn
í Laugar um daginn, og ég var
berfætt, því að ég á enga sokka,
bara eina nylon, og ég verð aö
spara þá, því þeir fást ekki.
Jæja, ég var á leiðinni inn í
Laugar, þegar ég mætti tveim-
ur strákum. Um leið og þeir
nálguðust mig, tók ég eftir því,
að þeir gláptu á fætuma á mér.
Eg lét sem ég sæi það ekki og
fór, framhjá þeim. En þá heyrði
ég að annar sagði: „Helvíti er
að sjá þessar stelpur; nú eru
þær farnar að ganga berfættar
og svo hevrði ég ekki meira.“
Ef hún fengi að stjórna
Því næst ræðir stúlkan nokkr-
um orðum ríkisstjómina, — og
er það engin ástarjátning —,
segir svo: „En þeir þurfa nátt-
úrlega ekki að kvarta, sem hafa
nóg af sokkum og geta keypt þá
úti, eins og þeirra fólk. En það
eru nú ékki allir, sem eigx
gjaideyri í bönkum úti.“ — Að
svo mæltu fer hún að bolla-
leggja um það, hvernig verzl-
unarmáium yrði hagað, ef-hún
og stallsystur liennar fengju að
stjóma landlnu dálitinn tima:
„Þá væri ekki leyfður innflutn-
ingur á karlmannasokkum og
karlmannadóti yfirleitt,
fengju þeir (núverandi ráðherr-
ar) að ganga berfættir, og helzt
í stuttbuxum, um allan bæ.“ —
Og bréfinu lýkur á þes^a leið:
„Eg veit ekki hvernig ég fer að
í vetur í skólanum, þegar engir
sokkar fást. Eg verð víst að
ganga berfætt. —
Ein alveg sokkalaus.“
Hver hefur elztur orðið
á Lslandi?
Og svo ætla ég að birta kafla
úr bréfi, sem mér barst í vetur.
— Bréfið týndist þá hjá mér,
en svo fann ég það aftur í gær,
þegar ég var að grúska í ó-
notuðum hándritum. Efni þess
er, sem betur fer, ekki bundið
y
neinni sérstakri árstíð:
„Kæri bæjarpóstur!
Aldraður góðkunningi minn
lagði f>TÍr mig þessa spurningu:
„Hver hefur elztur orðið á Is-
landi og hvað gamall?“ Svo
bætti hann við: „Eg hefi lagt
þessa spurningu fyrir lækna,
presta og alþingismenn og eng-
inn þessara mætu manna gat
svarað henni.“ Eg bættist einn-
ig í hóp hinna mörgu, sem gata
á þessari spumingu. .. .“
■ Bæjarpósturinn bætist einn-
ig í sama hóp. En væntanlega
verður einhver fróðnr maður til
að svara spumingunni.
er í Rvík. Selfoss fór frá Siglufirði
14. 7. til Amsterdam. Tröllafoss fór
frá Halifax 17. 7. til Rvikur. Horsa
fór frá Sau&árkróki kl. 08,00 i gær-
morgun til Siglufjarðar. Madonna
kom til Rvíkur 19. 7. frá Hull.
Southernland kom til Antwerpen í
fyrradag. Marinier kom til Rvik-
ur 19. 7. frá Leith.
Sklp S.Í.S.:
Hvassafell er í Kotka i Finn-
landi. Vigör er á leið frá Kaup-
mannahöfn til Gdj-nia. Varg er á
Akureyri. Plico er á leið frá Isa-
firði til Immingham.
KROSSGÁTA NR. 70.
9 B|S»3'o
i3 ^ ctBM
©
Fylkir fór til Englands í gær.
Keflvíkingur fór á veiðar í gær.
Kaldbakur og Helgafell VE fóru í
slipp í gær.
RlKISSKjr:
Hekla er á Akureyri. Esja er á
leið frá Glasgow til Rvikur. Herðu-
breið var á Þórshöfn í gærmorgun
á norðurleið. Skjaidbreið er á
Breiðafirði. Súðin fór frú Rvík í
gærkvöld til Vestfjarða og Stranda
hafna, Þyrill er í Hvalfirði.
EIMSKIP:
Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss
fór væntanlega frá Siglufirði i gær,
20. 7 .til Hamborgar. Goðafoss fór
frá Rvik í fyrradag 19. 7. til N. Y.
Lagarfoss fór frá Rotterdam 17. 7.
til Kaupmannahafnar. Reykjafoss
Honum ættu því að vera aðrar leiðir tiltækari og eðlilegri en feit-
letraðar áskorænir í Alþýðublaðinu!
Alþýðublaðsmönnum ætti nú að fara að verða það ljóst að
Gylfi Þ. Gíslason hefur verið látinn leika þennan leik of oft og
bf lengi. Almemiingur mun ekki meta fjárflóttamálið út frá
Alþýðublaðsgreinum, sem aðeins eru ætlaðar til blekkinga og
tilvitnana fj'rir kosningar heldur eftir reynslunni af verkum
stjórnarinnar. Þetta mál er í höndum Alþýðuflokksins, og hann
mun verða að bera ábyrgðina á þi-óun þess.
IArétt, skýrlng: 1. Það, sem datt í
í sjóinn; 4. mikil á velli; 5. tónn;
7. kveða við; 9. upplausn; 10.
fæddi; 11. foreldrafaðir; 13. neyð-
arkall; 15. forsetning; 10. Ósk og
von Wall Streets (þf.).
Lóðrétt, skýrlng: 1. Viðurnefni; 2,
leitist; 3. er neðst á manni; 4.
ávarpsorð; 6. stöðugt; 7. gefa frá
sér slæma lofttegun; 8. stjórn; 12.
hreyfing af einum stað á annan;
14. italskt fljót; 15. forsetning.
Útvarplð í dag.
19.30 Tónleikar: Lög leikin á
gítar og mandólín (plötur). 20.30
Útvarpssagan: „Jane Eyre“ eftir
Charlotte Bronte, XX. (Ragnar
Jóhanneson skólastjóri). 21.00 Tón-
leikar: ítalska symfónían eftir
Mendelssohn (endurtekin). 21.30
Þýtt og endursagt: Um Anton
Bruckner (Jón Þórarinsson). 22.05
Danslög (plötur).
Hjónaband. Sl. laugardag voru
gefin saman í hjónaband .ungfrú
Guðlaug Karvelsdóttir og Áki
Granz málari. — Heimili ungu
hjónanna verður i Bröttugö’tu 3. —
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band, Lára Ólafsson og Jóhann
Jakobsson, efnafræðingur.
Trúlofun. Nýlega hafa opinberað
trúlofun sína, ungfrú ’Gyða Jóns-
dóttir, starfsstúlka í Útvegsbank-
anum og Ragnar Bergsveinsson,
lögregluþjónn.
Kvénnadelld Slysavamafélagsins
í Reykjavík fer skemmtiferð að
Gullfossi og Geysi með viðkomu
á Þingvöllum n. k .föstudag.
Kona hverfur. Sl. sunnudags-
morgun hvarf kona frá vistheim-
ilinu í Arnarholti. Heitir hún Anna
Guðjónsdóttir og er 39 ára að
aldri. Hún er há og grönn, með
rauðskollcitt hár; klædd brúnni
kápu og svörtum gúmmístígvélum.
Barnaheimillð Vorboðlnn Rauð-
hólum. Allar heimsóknir strang-
lega bannaðar á heinanið.
Nefndin.
Nætnrvörður er í Laugavegs-
apótelci. — Sfmi 1616.
Næturakstur í nótt annast Hreyf
ill. — Sími 6633.
Söfnln: Landsbókssafnið er opið
kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga nema laugardaga, þá kl. 10—
12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 2
—7 alla virka daga. Þjóðminjasatln-
ið kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. Listasafn Einara
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. Bæjarbókasafnið kl. 10—10
alla virka daga, nema yfir sumar-
mánuðina, þá er aafnið opið kl.
1—i á laugardögure. og lokað fi
sunnudögum.
Veðrið í tlag: Suðvesturland
og Faxaflói: Noráaustan gola
eða kaldi. Orkomuiaust og víða
léttskýjað.