Þjóðviljinn - 09.04.1949, Síða 4
ÞJÖÐVILJINN
Laugardagux 9. efcjjríl 1949,,
ÞIÓÐWILJINN
titfíeíandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnúa Kjartansson. Sigurður GuSmundsson (&b>.
Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason.
BlaSam.: Arl Kárason, Magnús TorfJ Ólaíaaon. Jóaas Arnaaon,
RlUtjóm, afgreiðala, auglýsingar, prentsmJSja, Skúlavprðjjz
■tig 18 — Sími 7600 (þrjér línur)
Askrlí ' arvarð: kr. 12.00 & mánuöl. — LausasðíuvarS 30 aw. eint.
PrentsmlC'a ÞjóSvUjana íl. t
MabUiftafiokkurlnn, Þórsgötu 1 — Sími 7610 (þrjár línur)
37 -- 11
37 alþingsmenn samþykktu landráðasamninginn 30. marz,
37 menn sem svikizt hafa inn á þing á fölskum forsendum
og haí'a ekkert umboð frá þjóðinni til slíkra glæpaverka.
Útifyrir stóðu á sama tíma 10.000 Reykvíkingar, mótmæltu
svikunum og kröfðust þjóðaratkvæðis. Áður höfðu borizt
mótmæli frá öðrum tugum þúsunda, nær hundrað -félags-
samtökum víðsvegar um land. Meðmæli höfðu borizt frá
einu ungmennafélagi 1 Kjós. Bandaríkjalepparnir þorðu
því ekki að bera landráðamálið undir dóm kjósenda, þeir
vissu hver örlög þess yrðu þá. Hins vegar þorðu þeir að
bera það undir dóm 52 alþingismanna, því í þeim hóp voru
37 öruggir, reiðubúnir að svikja þjóð sína. Og í sama mund
og þeir höfðu framið svikin réðst lögregla og vopnaðir
heimdellingar á þúsundirnar fyrir utan. Það er táknrænt
um ofbeldið sem framið var, landráðunum var fylgt eftir
með kylfuvaldi.
Það var hliðstætt atvik að eðli til sem gerðist á bæjar-
stjórnarfundi í fyrrakvöld, og iþótt það skipti ekki miklu
máli, er það einkar táknrænt og lærdómsríkt. Afturhalds-
flokkarnir finna glöggt hvern hug Íslendingar bera til
þeirra eítir atbui'ðina 30. marz og þeir eru hræddir, dauð-
hræddir við afleiðingar verka sinna. Hins vegar leggja
þeir ekki málstað sinn fyrir Reykvíkinga, alþýðu þessa
bæjar, írekar en leppstjórnin lagði landráðin undir dóm
þjóðarinnar. Nei, þeir leggja hann fyrir bæjarstjórn, þar
sem þeir eiga vís 11 atkvæði (þ. á. m. „þjóðvarnarmanns-
ins“ Pálma Hannessonar! Hann er ekki Framsóknarmaður
til einskis), atkvæði fulltrúa sem svikizt hafa inn í bæjar-
stjórn á íölskum íorsendum og ekki eru í neinum tengsl-
um við íbúa þessa bæjar.
Þetta er „lýðræði“ afturhaldsflokkann'a, yfirdrottnun
fámennrar klíku, 37 eða 11 manna. Og væntanlega hefur
samþykkt ellefmenninganna átt að vega upp útifundinn
á sunnudaginn var, stærsta og glæsilegasta útifund sem
verið hefur í Reykjavík!
Og bæjarstjórnaríhaldið var vissulega ekki að vega orðin
um umbjóðendur sína, reykvískan almenning. „Skríll”,
.,grjótkastslýður“. „æsingahyski“, „áflogaseggir“ voru þær
nafngiftir sem þúsundunum á- Austurvelii voru valdar —
í byrjun fundarins. En þegar umræðunum var lokið var
heldur lægra risið á bæjarstjórnaríhaldinu, og var greini-
le^t að það sá eítir að hafa stofnað til umræðanna, þrátt
fyrir ellefumannasamþykktina. Fulltrúar sósíalista veittu
þeim smámenninu Gunnari Thoroddsen og kammerherran-
um Jóhanni Haístein svo eftirminnilega rassskellingu að
lengi mun undan svíða. En ímynd bæjaríhaldsins var þó
hvítliðinn Sveinbjörn Hannesson, stéttarsvikarinn og at-
vinnurekendaþýið, sem fékk framan f sig fullkomnustu
lýsingu á hinum smánarlega bardaga sínum 30. marz og
þyngsta dóm reykvískrar alþýðu — en þagði, deyrrauður
og niðurlútur!!
íhaldið þóttist sigurvisst með 11 uppfúsar hendur á
hanabjálka Eimskipafélagshússins. Hins vegar fölnaði
Gunnar Thoroddsen upp þegar Sigfús Sigurhjartarson
skoraði hann á hólm á almennum útifundi frammi fyrir
reykvískum kjósendum. Á þeim vettvangi veit hann hvem
d<'m hann fær og sá dómur verður ekki umflúinn.,
Víkverji Morgunblaðsins hef-
ur að undanförnu streytzt við
að finna nafn á hið nýja hótel
Keflavíkurflugvallar. Hótelið
verður vígt í dag, og er því ekki
seinna vænna að ganga frá mál-
inu. í tilefhi af þessu sendir
„Hjálpfús" eftirfarandi línur:
— „Aumingja Ivar, þama hefur
hann setið við viku eftir viku
og streytzt við að finna nafn
á Keflavikurvallar-hótelið.
Hann hefur fengið ótal uppá-
stungur (væntar.lega flestar frá
sjálfum sér), en enga nothæfa.
Það eina, sem hægt er að segja,
að hann hafi haft upp úr krafs-
inu er einn fimm-kall, sem hann
ætlar víst að gefa í Stranda-
kirkju. Mikið má Ivar vera hug-
myndasnauður maður — hon-
um hefur ekki einu sinni dottið
í hug Lonely Hearts Club! —
Nú skal ég benda Ivari á pass-
andi nafn á allt klabbið, flug-
stöðina og hótelið og allt það —
og ég krefst ekki einusinni
neinna verðlauna.
Hótel ískaríot.
„Mér finnst Iskaríot fyrir-
taks, hæfandi nafn á allt drasl-
ið — eins og nú standa sakir.
Það er auðvelt að snúa því til
amerísks máls: Iceehariot.
Þetta orð hefur líka þann höf-
uðkost, að það bindur í sér
hluta af nafni landsins: Is —
íce — (land), en orðið í heild
má ekki nota sem hótelnafn, seg
ir Ivar. Karíot (charíot) þýðir
auðvitað ekki land, en það þýðir
hinsvegar skrautvagn eða her-
vagn (skrautv. gæti m.a. minnt
á vissa fljúgandi ráðherra,
sehi þarna hafa viðkomu og her
vagn á lögreglubílana, sem eru
að passa sömu ráðherra fyrir
vondum mönnum).
Enn fleiri rn.öguleikar við
skiptinguma.
„Ef við hinsvegar skiptum
orðinu á þennan hátt: ískar-
íot (icecar-iot), þá verður fyrri
hlutinn ísvagn — og veitir víst
ekki af eins og einum ísvagni til
að kæla allt sprúttið, sem Ivar
er svo logandi hræddur um, að
ekki verði veitt i hinu nýja
hóteli. — Iskar getur líka hér-
umbil rímað á móti ívar. — En
hvað verður þá um niðurlag
orðsins með þessari skiptingu
þess: íot. Orðið jota eða jot
(iot) þýðir merkilegt nokk:
ögn, depill, atom o. fl. Úr orð-
inu ískaríot fáum við þvi: Is
(land), skrautvagn (ráðherra-
bil), hervagn (skriðdreka, víg-
vélar) ísvagn (fyrir wiskýið
hans Ivars) og atóm (-stöð,
-styrjöld). Þetta er nú allt nokk
uð, og mætti þó kannski fleira
fiana; — ea svo kaau líka vel
að vera, að orðið Iskaríot minni
ýmsa á enn annað. —
Hjálpfús“.
„Eg dái ró og stiMingu
þessara manna“.
Þá er hér bréf, sem Islending-
ur sendir: — „Sæll Bæjarpóst-
ur! 1. apríl sl. birti Morgun-
blaðið ræðu eftir Ólaf Thors er
hann flutti á Alþingi. I ræðu
þessari eru það nokkur orð sem
mig langar til að tala um, sem
sé: „Eg dái ró og stillingu þess-
ara manna.“ „Eg hygg að slík
framkoma jafn margra ungra
manna sé fátíð.“ Hann var að
tala um hvítliðana. —; Jú, mikið
rétt, ró og stilling þessara skríl-
menna mun hafa verið með af-
brigðum, eftir að þeir sluppu aft
ur inn í Alþ.húsið. Og kannski
.hefur Ól. Th. fundizt hann líka
sleppa vel, að þurfa ekki að hug
hreysta þá eins og Bj. Ben. Auk
þess sem hann hefur þá e. t. v.
ekki talið sig mann til að gera
það.
Það er líka rétt hjá honum,
að framkoma ísl. ungmenn'a er
gersamlega frábrugðin fram-
Framhald á 6 síðu,
HÖFNIÍÍ.
Katla og Hekla komu í gær, einn
ig brezku togararnir Búrfell og St.
Mary. Sá siðarnefndi hafði verið
tekinn í landhelgi. Kári fór á veið
ar í gær og Belgaum var að búa
sig á veiðar. Þórólfur átti að fara
í nótt og sömuleiðis þýzki togarinn
sem um daginn var tekinn i slipp
með brotið stýri.
Einarsson & Zoöga:
Foldin kom til Grimsby á mið-
vikudag, lestar í Amsterdam og
Antwerpen 8—10. þ. m. Spaarne-
stroom er í Reykjavík. Reykjanes
er í Vestmannaeyjum, lestar fiski-
mjöl til Amsterdam.
RlKISSKIP :
Esja fór frá Reykjavík um há-
degi í gær austur um land í hring
ferð. Hekla kom til Reykjavíkur
kl. 17.00 í gærdag að vestan úr
hringferð. Herðubreið var væntan-
leg til Reykjavíkur seint í gær-
kvöid að austan og norðan. Skjald
breið er á Breiðafirði á vesturleið.
Þyrill var á Vestfjörðum í gær.
Flugveður var ekki
gott í gær, og var
einungis flogið til
Keflavíkur. — Gull
faxi fer til Kaup-
mannahafnar næstkomandi þriðju
dagsmorgun, fullhlaðinn farþegum.
20.30 Útvarpstríóið:
Einleikur og tríó.
20.45 Leikrit: „Sjúk
leg ást“ eftir Fran
cois Mauriac.
(Leikendur; Ind-
Inga Þórðárdóttir,
ir og Róbert Arnfinnsson. —■ Leii:
stjóri: Indriði Waage). 22.00 Frétt
ir og veðurfregnir. — 22.05 Passíu-
sálmar. 22.15 Danslög. 23.00 Út-
varp frá Iðnó: Hljómsveit undir
stjórn Tage Möller leikur danslög.
Athugasemd.
Þess skal getið að þegar rætt va r
um Björn Sigurbjörnsson, son Sig-
urbjörns í Vísi, í sðustu æskuiýðs-
síðu, var að sjálfsögðu átt við Sig-
urbjörn Þorkelsson sem áður átti
verzlunina en ekki Sigurbjörn
Björnsson sem á hana nú.
Háskólafyrlriestur.
Sunnudaginn 10. þ. m. flytur
prófessor Ólafur Jóhannesson fyrir
lestur í hátíðasal háskólans Um
MANNRÉTTINDI. Fyrirlesturinn
hefst stundvíslega kl. 2 og er öll.-
um heimill aðgangur.
„Tíminn" licíur
löngum verið frum
legur í erlendum
fréttaflutningi, sbr.
hina frægu fregu
SwÆfl'i /)JJi af kvennamálum
Síainskouungs. I gær birtir blað-
ið á forsíðu mynd af tveim
Hollywoodleikurum, Robert Mitcli-
um og Lila Leeds, sem blaðið seglr
riðin við „mikið morðmál“ í Holly-
vvood. ,,Tíminn“ er fyrsta biaðið,
sem komizt hefur á snoiJr um
þetta morðmál, og væri fróðlegt a3
fá nánarl upplýsingar hjá bíað-
inu, svo sem hver (eða líklega
hverjir, úr því að morðmáJið er
,,miklð“) hafa verið myrtir og hve-
nær.
Þau skötuhjúin Leeds og Mitch-
um liafa aldrei verið orðuð við
manndráp, eu hinsvegar tók banda
ríska lögregian þa’u í fyrrasumar
reykjandi marihújana og hlutu
þau fangelsisdóm fyrir bragðið.
1 sambandi við þann málarekstur
voru auðvitað myndir af þeim
sendar út um allar jarðir, og ein
þeirra er svi, sem „Timinn“ birtir.
En skyldi fréttin uin „morðmállð
mikla“ ekki komin frá sömu frétía
stofu og frásögniu af ósiðsamiegu
líferni Síamskonungs?
Kaupendur, sem ekki fá blaðið
skilvislega eru vinsamlega teðnir
að láta vita í sima 7500.
Guðsþjónustur á
morgun: — Dórvr-
kirkjan. Ferming
kl. 11 f h. Séra Jón
Auðuns. Ferming
kl. 2. e. h. Séra
Bjarni Jónsson. — Laugarnes-
prestakall. Messa kl. 2 e. h. Séra
Gai'ðar Svavarsson. Barnaguðsþjón
usta kl. 10 f. h. — NesprestakaU.
Messa i Mýrarhúsaskóla kl. 2.30 e,
h. Séra Jón Thorarensen. — Frí-
kirkjan. Messa á morgun kl. 2,
ferming. (Séra Árni Sigurðsson).
M U NI Ð
að lesa smáauglýsingarnar, þær
eru á 7. síðu.
Söfntn: LandsbókasafniB er opjtJ
kl. 10—12, 1—7 og 8—10 alla vrtrita
daga nema laugardaga, þá kl. 10 —
12 og j,—7. Þjóðskjalasafnið kl. 2
—7 alla virka daga. ÞjóðminjasafB"
ið kl. 1—3 þriðjudaga, fimmtudaga
og sunnudaga. Listasafn Einaru
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnH
dögum. Bæjarbókasafnið kl. 1Q—1!J
alla virká daga.
Næturakstur í nótt annast B.S.R.
— Sími 1720.
Næturvörður er í Ingóifsapóteki.
— Sími 1330.
iiiiiHiiiiiiiiinimiiiiiiiiiiiiiiiiiit<|iujOi
Veðurútlit í da« : Hægviðri og
léttskýjað, en þykknar upp með
austan golu þegar kvöldar.
riði Waage,
Helga MöUer, Erna SiguilcUsdótt |||||t|||||l|l|illllllllllllllHlllHUMUIUIi