Þjóðviljinn - 09.11.1949, Qupperneq 4
ÞJÖBVILJINN
■MidvikHfiagur ’naéesaf --.1949.
PIÓÐVILIINN
Útgafandl: Samelnl-agarflokkur alþýOu — Sósíallataflokkurlnn
Rltatjórar: Magnúa Kjartansaon (áb.). SlgurOur QuOmundaaon
Fréttarltatjórt: Jón Bjarnaaon
Blaöam.: Arl Káraaon, Magnúa Torfl Olnfaaon. Jónaa Árnaaon
Auglýslngaatjórl: Jónstelnn Haraldaaon
Rltatjóm, afgreiOala, auglýslngar, prentamlOja: BkóIavörOu-
attg 19 — Siml 7560 (þrjár línnr)
LakrtftarverO: kr. 12.00 & mánuOl — LauaaaöluvexO 50 aur. elnt.
PrentsmlOja ÞjóOviljana b.f.
BðafaHstaflokkurlnn, Þórsgötu 1 — Slml 7516 (þrjáur Ilnur)
Alþýðublaðið heimtar gengislækk-
unarstjórn
Alþýðuflokkurinn hafði andstöðu gegn gengislækkun að
helzta baráttumáli sínu í kosningunum í haust. Hann hét
því að berjast af öllum mætti sínum gegn yfirvofandi
gengisiækkun og ta.ka þátt í hverjum þeim ráðstöfunum
't sem að gagni mættu koma til að hrinda iþeirri árás á lífs-
kjör almennings. Þess er að vænta áð þeir sem flokkinn
kusu hafi trúað þessum yfirlýsingúm, þrátt fyrir fdrtíð
flokksbroddanna sem ekki er beiiUínis til þess fallin að
styrkja trúnaðartraust manna.
En reynslan um efndir Alþýðuflokksforsprakkanna virð-
ist ætla að verða sú sama og jafnan fyrr. Nú, að kosning-
um loknum, hafa ráðamenn flokksins valið sér þann kost,
að minnsta kosti í bili, að lýsa því yfir að þeir afsali sér
allri ábyrgð, að þeir ætli sér að vera í stjómarandstöðu á
hverju sem gengur. Og þeir gera. meira. Þeir hamra á því
dag eftir dag að það sé skylda ,,borgaraflokkanna“, íhalds-
ins og Framsóknar, að mynda samstjóm og framkvæma
gengislækkun þá sem sé eitt helzta stefnumái þessara
flokka. Með öðrum orðum:
Alþýðuflokksforsprakkamir krefjast þess að mynduð
i verði afturhaldsstjórn á Islandi, stjóra sem eigi að
gera það að fyrsta verkefni sínu að lækka gengið og
banna kauphækkanir og kjarabætur!!
Þetta mega kallast heldur sérstæðar efndir á hinum há-
tíðlegu loforðum ráðamanna Alþýðuflokksins fyrir kosn-
ingar. Ef gengislækkun verður framkvæmd skiptir það al-
menning engu máli hvort þingmenn Alþýðufl. gera sér leik
að því að greiða atkvæði með henni eða móti á þingi. Að-
alatriðið er hitt að koma í veg fyrir að gengislækkun verði
framkvæmd.
Eina ráðið til þess er það að takast megi að mynda
„vinstri stjórn", stjóm sem starfar í samræmi við hags-
muni íslenzkrar alþýðu til sjávar og sveita og í samvinnu
við samtök alþýðustéttanna. Slíka stjóm er hægt að
mynda ef hleypidómar og pólitískt ofstæki blinda ekki
augu manna. Og myndun slíkrar stjómar er sameiginleg
krafa bænda til sveita og launþega í bæjunum.
En ráðamenn Alþýðuflokksins virðast nú sem jafnan
fyrr ætla að virða að vettugi hagsmuni óbreyttra fylgj-
enda sinna. Eftir þeirra eigin yfirlýsingum að dæma virð-
ast þeir enn ætla að svíkjá hin hátíðlegu heit sín um virka
andstöðu gegn gengislækkun og róa í staðinn að því öllum
árum að mynduð verði gengislækkunarstjórn; ef ekki sam-
stjórn Framsóknar og íhaldsins, eins og nú virðist helzta
hugsjón Alþýðubl., þá utanþingstjórn sem sé sama eðlis.
Og síðan þykjast þeir geta þvegið hendur sínar með því að
greiða atkvæði gegn gengislækkunarfrumvarpinu, þegar
það kemur fram á þingi.
Engum ætti að koma þessi afstaða Alþýðuflokksklík-
unnar á óvart, þessi. beini stuðningur hennar við myndun
gengislækkunarstjórnar, og þó ætti að rnega vænta þess
að óbreyttir fylgjendur Alþýðuflokksins þættust nú enn
grálega sviknir. Og enn er það á valdi þess alþýðufólks
sem gert hefur Alþýðuflokksþingmennina að fulltrúum
sínum að taka í taumana. Það er mikið í húfi hvernig til
tekst um myndun nýrrar stjómar, og pólitískt ofstæki má
ekki verða til þess að eyðileggja þá kosti sem hagstæðastir
éru allri alþýðu.
Enn stendur
Sjómannaskólaklukkan.
,,Það hlýtur að vera lélegt
sigurverkið í klukkunni á Sjó-
mannaskólanum. Þetta er til-
tölulegá ný klukka, en samt er
hún alltaf að bila. Að minnsta
kosti verður ekki önnur álykt-
un dregin af þeirri staðreynd,
að klukkan snarstanzar alltaf
með fárra vikna millibili.“ —
Þannig farast ,,Sogmýringi“
orð í bréfi, sem hann sendir
okkur. Og hann heldur áfram:
„En það merkilega er, að
klukkunni er aldrei komið í lag
aftur, fyrr en hún er búin að
standa langa ieagi ____ Þetta
sleifarlag er sérlega merki-
iegt, þegar við athugum það,
að úrsmiðafélagið gaf kiukk-
una upphaflega, ... og maður
skyldi halda að það væri sam-
eiginlegt áhugamál úrsmiðanna
allra, vegna virðingar stéttar-
innar, að Sjómannaskólaklukk-
an væri alltaf i sem beztu lagi.
En svo virðist sem sagt ekki
vera ... Nú hefur klukkan t.
d. staðið í marga daga, og þeg-
ar þessar línur eru skrifaðar
verður þess ennþá ekki vart,
að vísarnir hreyfist ... —
Sogmýringur."
□
Styður nafnið
„götu vitar“.
,,Málvandur“ skrifar: >rEg
er ætíð fylgjandi þvi, að við
íslendingar reynum að finna
falleg og hagleg orð yfir ný-
ungar, þegar þær sækja okkur
heim. Mér leizt til dæmis bölv-
anlega á þessi „umferðarljós"
eða „umferðaljósmerki" svo-
kölluðu, þ. e. a. s. mér leizt
bölvanlega á orðið. En nú hef
ur einhver orðhagur maður
valið fyrirbrigðum þessum
nafn, sem að mínum dómi er
hið ágætasta. Hann kallar þau
„götuvita". — Gætum við nú
ekki öll orðið sammála um að
nota þetta nafn yfir umferðar-
nýjungina, kallað ljósin götu-
vita? — Málvandur."
□
... baðst eindregið
undan endur-
kosningu ...“
í gær birtist í Bæjarpóstin-
um bréf eitt, sem skrifað var
fyrir helgi, en hafði að geyma
epádóm um, að skipt yrði um
formann í félagi ungkrata á
aðalfundi þess um helgina. Var
í bréfinu fullyrt, að hin aftur-
halassama forusta flokksins
mundi vilja bola Eggert Þor-
steinssyni frá formannsstöð-
unni, af því að hann væri ekki
nógu þægur henni, væri of
stéttvís til að hljóta hylli aft-
urhaldsins. Jafnframt var gizk
að á, að Alþýðublaðið
mundi þannig túlka fráför Egg
erts, að hann hefði „eindregið
skorazt undan endurkjöri". —
Allt þetta rættist. Og Alþýðu-
blaðið sagði í gær orðrétt um
formannskosninguna: „Frá-
farandi formaður, Eggert Þor-
steinsson, baðst eindregið und-
an endurkosningu“ (!)
□
Sanaankurðurinn á
tveim ríkisstjórnum.
Ingvar skrifar: „Það er oft
verið að gera samanburð á
tveimur seinustu stjórnum.
Framsóknarmenn hafa lagt
sig sérstaklega fram við
ófrægja nýsköpunarstjórn-
ina, talið hana einhverja
fyrirhyggjulausustu bruðl-
stjórn sem verið hefur ....
Þessar fullyrðingar Framsókn-
armanna-eru út af fyrir sig'
ekki svaraverðar. En mér datt
í hug, í sambandi við þennan
samanburð á tveimur ríkis-
stjórnum, að benda á dálítið
atriði, sem mér finnst að tali
sínu máli um kosti og lesti
þessara ríkisstjóma. Þannig
bregður nefnilega við, að allir
flokkar vilja þakka sér stefnu
nýsköpunarstjórnarinnar (sem
auðvitað var fyrst og fremst
mörkuð af sósíalistum), en
stefnu hinnar stjórnarinnar,
afturhaldsstjórnarinnar, reyna
Framh. á 6. síðu
(tyennablaöið, á.
' tblV' " 1949, er
komið út. 1 blað
inu eru þessar
greinar m. a.:
Frá Alþjóða-
hjúkrunarkvennaþinginu í Stokk-
hólmi, eftir Sigríði Eiríksdóttur;
Merkur gestur heimsækir F. I. H.
Berklar í eldra fólki, eftir Þor-
björgu Árnadóttur.
18.30
Islenzku-
ÍSFISKSALAN:
Þann 7. þ. m. seldu eftirtald-
ir togarar afla sinn í Þýzkalandi:
Egill Skallagrímsson 292,9 smál.
í Bremerhaven, Keflvíkingur 286, í
smál. í Cuxhaven, Helgafell 292,3
smál. í Bremerhaven, Bjarni ridd-
ari 298,7 smál. í Cuxhaven,. Þann
8. þ. m. seldi Fylkir 278,7 smál.
í Cuxhaven.
E I M S K I P :
Brúarfoss fór frá Reykjavík
7.11. til Kaupmannahafnar og
Gautaborgar. Dettifoss fór frá
Reykjavík kl. 20 í gærkvöld 8.11.
til Vestmannaeyja, Leith, Ant-
werpen og Rotterdam. Fjallfoss er
S Reykjavík. Goðafoss kom til
Reykjavíkur 7.11. frá Leith. Lag-
arfoss fór frá Hull 7.11. til Reykja
víkúr. Selfoss fermir í Kasko og
Kotka í Finnlandí 7.-12. nóvem-
ber. Tröllafoss fer frá Reykja-
vík í kvöld 9.11. til New York.
Vatnajökull er. við Noröuriand.
RIKISSKIP:
Hekla fór frá Reykjavík í gær-
kvöld vestur um land til Akureyr-
ar. Esja er í Reykjavík. Herðu-
breið or á Vestfjörðum á suður-
leið. Skjaldbreið er á Akureyri.
Þyrill er í Reykjavík.
EINABSSON&ZOfiGA:
Foldin fór frá Amsterdam s.
1. laugardag, væntanlcg til Reykja
víkur á fimmtudag. Lingestroom
er í Amsterdam.
Beykjavíkursýningin er í dag
einkum helguð blaða- og bókagerð
Kvikmynd um þetta efni verður
frumsýnd í dag. Einnig verða
ýmsar vélar í gangi, bókhalds-
vélar o. fl. Kvikmyndasýningar
verða kl. 6 og kl. 10.30 Barna-
gæzla verður frá kl. 2-6-
kennsla; I. 19.00
Þýzkukennsla; II.
19.25 Tónleikar:
Óperulög (plötur).
20.30 Kvöldvaka:
a) Erindi: Forskynjun og forlög
(Kristján Linnet fyrrum bæjar-
fógeti). b) Útvarpskórinn syngur,
undir stjórn Róberts Abraham.
c) Upplestur: „Aldrei gleymist
Austurland", kvæði eftir austfirzka
höfunda (Broddi Jóhannesson les)
d) Erindi: Kofnafar á Breiðafirði
(Bergsveinn Skúlason). Ennfrem
Ur tónleikar af plötum. 22.10 Dan3
lög (plötur). 22.30 Ðagskrárlok.
LOFTLF.IBIB: ’
I gær var flógið
til Vestmannaeyja, i
| Akureýrar,- * - Isa- -
j fjarðar. I dag .. er ,
áiBtlað að. fljjigii.
til Vestmannaeyja,
Akureyrar, Isafjarðar, Fiateyrar, "•
Þingeyrar. Á morgxirt er áætláð að ;
fljúga tiþ .Sigluf jarðar, Isaf jarðar,,
Hellissands, Vestmannaeyja, Ak-.
ureyrar.
FLÚGFÉLAG ISLANDS:
I dag verður flogið til Akureyrar,
Sigluf jarðar, Blönduóss, Sauðár-
króks, Isafjarðar og -Hólmavxkur.
I gær var - flogið - til Akureyrar..
Gullfaxi er væntanlegur um Prest
vik frá Kaupmannahöfn kl. 17
í dag.
Hjónunum Lilju.
4 \\'V Guðmundsd. og
fo-”’ & ~ Ingibergi Her-
f jtjl \ mannssýni, Lang-'
í w v holtsvegi 39, fædd-
ist 13 marka son-
ur 1. nóvember.
Opihberað hafa trú
löfun sína, ungfrú
Áslaug Nanna
Jónsdóttir, Brekku
í Aðaldal og .Hadl
ur Júlíusson, Hörg,
Svalbarðsströnd, Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Systkinabrúð-
kaup: S.l. laug-
ardag voru gef
in saman í
hjónaband, ung
frú Stefanía
Sigurgeirsdóttir, Ártúni Kaldakinn
og Þorgeir Pálsson (Jónssonar
frá Grænavatni í Mývatnssveit).
Ennfremur ungfrú Hildur Eiðs-
dóttir, Þóroddsstað í Kaldakina
og Jón Sigurgeirsson, Ártúni. —
Nýlega voru gefin saman í hjóna
band, ungfrú Þóra Þorvaldsdótt-
ir, Brekkugötu 10 og Nikulás M.
Nikulásson, Fálkagötu 34. — Ný-
lega voru gefin saman í hjóna-
band, ungfrú Vilhelmína Hjaltalín
Akureyri og Jón Rósberg Jónssón,
bifreiðastjóri frá Dunhaga í Hörg-
árdal. Heimili ungu hjónanna
verður að .Ránargötu G, ^kureyri
— Nýlega voru gefin saman x
hjónaband, Svcinbjörg Péturs-
dóttir og Siguröur Haraldsson,
trésmiðux-, Akureyri. — Nýlega
voru gefin saman í hjónaband á
Möðruvöllum i Hörgárdal, ungfrú
Sigrún Jóhannsdóttir, Ytri-Reist-
ará og Baldvin Helgason, Kjarna.
— Nýlega voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Halldóra Snori'a
dóttir, Syðri-Bægisá og Arnsteinn
Stefánsson, Stóra-Dunhaga.
Næturlæknir er í lælcnavarðstof
unni, Austurbæjai'skólanum. ------
Sími 5030.
Næturakstur í nótt annast
Hreyfill, sími 6633.—
Næturvörður ér í Ingólfsapóteki.
— Sími 1330. ■ :