Þjóðviljinn - 18.12.1949, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 18.12.1949, Qupperneq 8
gflfi láir gefiS it 31 feækir í ír Skáldsögur - FerSalýsmgar og þjóÖfrœÖirif o. Bókaútgéfan Norðri hefur gefið úf allt að því 30 bækur á þessu ári; skáldsögur eftir inulenda liöfunda, þjóðiræðirit, leiðarlýsingar og svaðilfarasögur frá öræfum land.jins, þjóðsögur, Ijóðasafn og héraðslýsingu, auk barna- og unglingabóka. , Ern sumar þessara bóka hinar merkiiegustu og munu flestsr finna þar eitthvað við sitt hæfi. Skal nú bókanna lauslega getið hér á eftir: Smiður Andrésson og þættir, eftir Benedikt Gíslason frá Hof teigi. Meginefni þeirrar bókar er Smiðs saga Andréssonar, en um hana segir höf. í formála m. a.: „I raun og veru liggur hér fyrir allt tímabilið í is- landssögu frá 1262 til þess er Ísland skipti um örlög með falli Noregs undir danska krúnu. Það er enn á því að höggva, sem um hefur verið rætt: samband íslands og Noregs meðan Noregur var enn sjálfstætt ríki. Líklega má öllum verá það Ijóst, að íslenzkir valdamenn, sem að Gamla sáttmála stóðu, hafa víst síður en svo álitið sig vera að skerða frelsi lands- ins með þessum öryggissamn- ingi Íslands við Noreg. Þetta hefur auðvitað verið í þeirra augum, minnsta kosti á þeirra tungu, hinn hagkvæmasti samn tngur fyrir Islands hönd, og sjálfstæði landsins enn betur tryggt, þar sem tekið var fram, að utanstefnur viljum við eng- ar hafa. Hvílíkur sigur fyrir íslenzkt þjóðemi! Hefði press- an verið í gangi þá eins og nú á dögum, hefðu verið heilsíðu fyrirsagnir í blaði Gissurar Þorvaldssonar um þennan á- gæta samning. En rúmsins vegna verður að sleppa því að prenta þær hér, enda geta menn lesið þær allar í press- unni í dag eftir tvo samninga, ágæta, segir pressan, við er- lend ríki.“ Síðar í formálanum segist höf. hafa leiðrétt „margra alda ranga skoðun á Islandssögu á þessu tímabili, og komið út með allt annan Smið Andrésson en þann, sem íslenzk þjóð hefur verið að leika sér að níða að undan- förnu eftir rangri söguskoðun, sem hefur verið látin gilda, sem fræði um þennan mann“. Auk Smiðs sögu eru í bók- inni fjórir þættir: „Athuganir og íaukar", er urðu til út af skrifum Indriða á Fjalli um þingeysk fræði; „Beinafundur inn við Jökulsá", gamalt út- varpserindi, sem áður hefur birzt á prenti en mun samt vera í fárra höndum fyrr en nú, að það birtist í þessari bók; „Sigurður smali“, þáttur af Jökuldælingi er „átti enga ævi“, „bara lifði“ og loks „Milli tveggja víkna,“ er sá þáttur ferðasaga frá Reykja- ;vik til Austurlands, en höf. seg ist hafa samið hann í því augnamiði „að gera tilraun til, og sýna, að ferðasögur geta Jíka verið þjóðfræði, ef ferða- maðurinn veit eitthvað um land og sögu og líf fólksins, og fléttar betta nokkuð samau við sinn eigin hugsanaferil og hugblæ á ferðalaginu...“ Halldór Pétursson hefur teiknað kápumynd bókarinnar. Bókin er 201 bls., prentuð í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Hrakuingar og lieiðavegir, er fyrsta bindi ritsafns er Norðri hyggst gefa út. Hafa þeir Pálmi Hannesson og Jón Eyþórsson valið efnið, en sá síðarnefndi búið til prentunar. I formálsorðum komast þeir m. a. svo að orði: „Nokkur ár eru liðin síðan okkur kom til hugar að safna saman í bók fornum leiðarlýsingum frá heið um og öræfum landsins — ásamt sögum um svaðilfarir og slysaferðir, sem þangað hafa verið farnar. Átti safn þetta að vera í senn heimildir um landfræðisögu Islands, er sýndi þekkingu manna og hugmyndir um heiðalönd og öræfi á liðn- um tímum, og jafnframt var því ætlað að halda til haga minningu þeirra, sem hafa þol- að hrakninga á villugjörnum heiðavegi og barizt þar fyrir lífi sínu, oft einmana og átta- villtir. Sumir hafa borið þar beinin, aðrir bjargazt fyrir harðfengi og seiglu — eða slembilukku eina“. Bókin hefst á sögu Sprengi- sandsvegar eftir Einar E. Sæ- mundsen. Pálmi Hannesson birtir þarna fimm frásagnir: Villa á öræfum, Dirfskuför Sturlu í Fljótshólum, Villa á Eyvindarstaðaheiði, Mannskað- inn á Fjallabaksvegi og Grana- haugar og Granagil. Jón Ey- þórsson tvær: Um Kjalveg og Reynistaðabræður. Þá eru þar ennfremur þessar greinar: Á' átta sólarhringum yfir Sprengij sand, eftir Ásgeir Jónsson fráj Gottorp; Suður Kjöl, 1755, eft- ir séra Jón Steingrímsson; Válynd veður á Kili, eftir Svein Pálsson; Lýsing á Kjal- vegi, eftir Sigurð Pálsson í Haukadal; Yfir Héðinsskörð og Hjaltadalsheiði, eftir Kristin Guðlaugsson á Núpi; Suður heiðar, eftir Sigurð Jónsson frá Brún; Segir fátt af einum, eftir Pál Guðmundsson á Hjálmsstöðum; Miðlandsöræfi Islands, eftir séra Sigurð Gunn arsson og að lokum Útilegu- mannabyggðir, þættir eftir ýmsa höfunda. Göngur og réttir. I. bindi þessarar bókar kom út í fyrra og fjallaði um göngur og réttir sunnanlands og vestan. II. bindi þessa safns kom svo út nú í vetur og nær það yfir Húnavatnssýslu,- Skagafjörð og Eyjarf jarðarsýslu; auk þess er viðaukinn: Enn frá Vatnsdæl- um og Borgfirðingum og Ásgeir Jónsson skrifar skemmtilegan formála er hann nefnir Kinda- skraf. Á næsta ári. kemur væntanlega út II. bindi Gangna og rétta, og verður efni þess úr Þingeyjar- og Múlasýslum. II. bindið er 355 bls. og 45 myndir fylgja. Bragi Sigurjónsson hefur búið bókina undir prent- un. Þjóðsögur og sagnir, er upp- haf að ritsafni, sem áætlað er að nemi alls 16 bindum af sömu stærð og hið fyrsta. Verð ur þar í fyrsta skipti safnað saman í eina heild öllu því helzta, er Islendingar í Vest- urheimi hafa skráð af þjóðsög- um og sagnaþáttum, ferðaminn ingum vesturfara, sjálfsævisög um, þáttum úr lífi íslenzku landnemanna, minningum þeirra heiman frá íslandi, al- þýðukveðskapur o. fl. Safni þessu hefur verið gef- ið heildarheitið „Að vestan.“ Hefur efni þess verið skipt nið ur í 7 flokka, en þeir eru: 1. fl.: Þjóðsögur (tvö bindi), 2. fl.: Sagnaþættir (tvö bindi), 3. fl.: Ferðasögur vesturfara (tvö bindi), 4. fl.: Minningar frá íslandi (tvö bindi), 5. fl.: Þættir úr lífi landnemanna (tvö bindi), 6. fl.: Ævisögur (fjögur bindi) og 7. fl.: Alþýðu kveðskapur (tvö bindi). Hvert bindi verður um 250 blaðsíður. Árni Bjarnarson á Akureyri hefur safnað efni þessu og sér um útgáfuna. I fyrsta bindinu eru fornmannasögur, sagnir frá seinni öldum, sagnir um nafnkennda menn, reimleikar, draugasögur og svipir, draum ar, fyrirboðar og fjarhrif, huldufólkssögur, kímnisögur, ævintýri og ýmsar sagnir. Bók in er prentuð í Prentverki Odds Björnssonar. Lýslngar Eyjafjarðar, eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum er inngaugurinn að miklu ritverki um sögu Eyja- fjarðar, er Eyfirðingafélagið í Reykjavík og Eyfirðingar heima í héraði standa að. Bók in hefst á almennu yfirliti um takmörk sýslunnar, fjörðinn, megindrætti landslagsins og vatnsföll. Síðan koma byggða- jlýsingar og loks Héraðsflóra Eyjafjarðar eftir Ingimar jóskarsson. I formála bókarinnar segir Steindor m. a.: „Svo er til fætlazt, að seinna komi fram- hald þessarar lýsingar. Yrði Þar gerð nánari grein fyrir náttúrufari héraðsins, gróður- fari almennt, jarðfræði, dýra- fræði og loftslagi. Þá yrði þar einnig lýst atvinnuháttum, menningu, félagslífi, og raktar lýsingar á héraðsbúum, eftir því sem heimildir fást“. Lýsing Eyjafjarðar er 250 bls. að stærð, prýdd fjölda mynda. Frá mönnum og skepnum, eftir dr. Brodda Jóhannesson, er safn þátta, sem að formi til eru flest samtöl, eins konar smáleikrit. Hvert um sig eru SllOJU Þjóðviljanum hafa borizt sjö nýjar bækur frá Prent- smiðju Austurlands h.'f., en hún gerist nú æ umsvifameiri við bókaútgáfu sína. Á örlagastsmdu er skáldsaga eftir hinn kunna norska rithöf- und Sigurd Hoel og hafur hún hlotið mjög lofsainlega dóma. Lárus Jóhannesson og Jón Sig- urðsson frá Kaldaðarnasi hafa annazt þýðinguna. Bókin er 355 síður. Lífið er dýrt er skáidsaga Qftir Willard Motley með undir- fyrirsögninni: „Saga frá skugga hverfum stórborga“. Bókin er 565 síður og íslenzkuð af Theo- dóri Árnasyni og Óia Hertnanns syni. Frægar konur er eftir Henry Thomas og Dana Lsa Thomas, þýdd og endursögð af Magnúsi Magnússyni. í bókinni eru kafl- ar um 16 heimskunnar konur, en hún er 230 bls. að stærð. ■Pólskt sveitalíf er skáldsaga eftir W. S. Reymont, einn kunn- (asta rithöfund Pólverja í seinni tíð. Magnús Magnússon hefur !þýtt bókina. Hún er 243 síður. Hetjur hafsins (Two Years before the Mast) er eftir Ric- hard Heni*y Dana, heim-kimn bók um kjör og aðbúnað háseta á kaupförum á síðustu öid. Sig- urður Björgúlfsson hefur þýtt bókina sem er 382 síður að stærð. Kreutzer — sómtatam er eitt af kunnustu verkam Leo Tol- stoi og hefur Sveinn Stgurðsson ritstjóri þýtt söguna. Bókin er 135 síður. Á vígaslóð er ný skáldsaga eftir hinn heimskunaa og vin- sæla skcmmtisagnahöfund Jam- es Hilton. Axel Thorsteinsson hefur þýtt söguna sem er 309 síður. Jólablað Víkinsfs Jólablað VÍKINGS er nýkom ið út, skemmtilegt og iæsilegt að vanda. Það hefst á kvæðinu Jóla- klukkur, eftir Örn Arnar, þá er grein eftir Guðna Þórðarson: Síldarborgin um haust. Rit- stjórnargrein er um dýrtíðar- mál. Ritstjói-inn, Gils Guð- mundsson, skrifar langa grein: Upphaf siglinga, þættir úr siglingasögu, I. grein og fylgja henni margar myndir af elztu. gerðum skipa. Þá er þýdd saga: Longintes og Stubbur, eftir Stanyukovich. Matthías Þórðarson skrifar athyglis- verða grein um Fiskveiðar ís- lendinga og landhelgina. Grein er um fyrstu gufuskip yfir Atlanzál. Magnús Jónsson skrif ar frásögn: Enn í Bremer- haven. Þá er grein um Nelson. hinn fræga flotaforingja Breta. Þá er framhald hinnar skemmti legu sjómannasögu: Egill svarti, eftir J. H. Jónss. Þá er Ævintýraleg sjóferð eftir Knud Andersen, danska sjó- manninn og rithöfundinn og er þetta kafli úr bók hans Med Monsunen pá Atlanterhavet. Loks er svo smásagan Dikki lærir að tala. Ennfremur frétt ir í stuttu máli, smágrein og nokkur kvæði. í§ saga" — 3. bé ÞJÖÐLf FSMYN DIR Þættii ói íslenzkri menningaisögra Þriðja ritið í bókafiokknum; breyting orðin á ýmsutn hátt- Sögn og saga er nýkomið útJ um og siðum þjóðarinnai* frá Nefnist það Þjóðlífsmyndir ogj því, sem verið hafði fyrir og hefur að geyma nokkra þættij um miðja öldina. Ritgerð sr. úr íslenzkri menningarsögu. j Þorkels hefur einnig þann kost, Fremst í bókinni er hin mei*ka ritgerð sr. Þorkels Bjarnason- ar um þjóðhætti, atvinnulíf, siði og venjur um miðbik 19. aldar. Ritgerð þessi hefur al- gera sérstöðu, því að endur- minningar þær og frásagnir gamals fólks, sem birtar hafa verið síðari árin, lýsa nær ein- vörðungu síðustu áratugum 19. að frásögn hans er einkar hispurslaus og hvergi undan- dregið það, sem miður fór. Aðrar ritgerðir i „Þjóðlífs- myndum" eru þessar: Um minni í brúðkaupsveizlum og lielztu brúðkaupssiðir á fsiandi á 16. og 17. öld, eftir Sæmund Eyjólfsson. —fslenzka glíman, eftir sr. Stefán Sigfússon. — aldarinnar, en þá var veruleg íslenzkar kynjaverur í sjó og vötnum, eftir Ólaf Davíðsson. Gils Guðmundsson hefur bú- samtöl þessi í raun og veru „Þjóðlífsmyndit til prent- inngangur að rökræðum um til- unal' ■' Lágangm bókai- tekið sálfræðilegt, þjóðfélags- legt eða heimspekilegt efni, þar sem höfundurinn er málshefj- andi. Bókarauki er þýðingar dr. Brodda úr flnnska ljóðabálkin- um Kalevala. Bókin Frá mönnum og skepn um er 233 bls. Framhald á 14. síðu. innar mjög vandaður, eins og „Sagnaþátta Þjóðólfs“ og „Strandamanasögu Gísla Kon- ráðssonar", en það eru tvö fyrstu ritin í bókaflokknum „Sögn og saga“. Má ætla, að „Þjóðlífsmyndir11 þyki góð við- bót við þennan vinsæla bóka- flokk. Útgefandl er Iðunnarút- gáfan.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.