Þjóðviljinn - 19.03.1950, Side 8
Italska afturhaldsstj ómiii
afnemur fundafrelsið
Xögcegia® í Toiisto hjálpar Hylasisiam í sókihzings
ítalska. ríkisstjórnin ákvað' á fundi í gær að afnema
íundafrelsi í landinu. Allir fundir á vinnustöðum og í
verksmiðjum eru bannaöir.
Italska stjórnin ákvað enn-
fremur að neyta allra bragða til
að koma í veg fyrir að jarð-
næðislausir landbúnaðarverka-
menn haldi áfram að helga sér
óræktað land í eigu stórgóssa.
Straks eftir að ákvarðanir
ríkisstjómarinnar voru tilkynnt
ar kom stjórn Alþýðusambands-
ins saman á fund og mótmælti
þeim. Segir sambandsstjórnin,
að ríkisstjórnin sé að reyna að
kæfa réttmætar kröfur lágt-
launaðra verkamanna.
Lokið er allsherjarverkfalli
í Feneyjum og nærliggjandi
borgum. Vinna í öllum verk-
smiðjmn lá niðri og búðum
og skemmtistöðum var lokað
. til að mótmæla því að ríkislög-
regla skaut á fund verkamanna
Kveðjuhljémleik-
ar Tii Niemela
Vegna fjölda áskorana kalda
hin góðkunnu finnsku listahjón
kveðjuhljómieika í Gamla bíói
á miðvikudaginn kemur, kl.
7,15 síðdegis.
I dag syngur frú Niemela á
Akureyri en á þriðjudaginn í
Hafnarfirði. — Þau fara héðan
af landi burt á fimmtudaginn.
Li
þeirn látna
Ðönsk mynd með íslenzk-
um texta í Nýja Bíó
I dag hefjast í Nýja Bíó
sýningar á dönsku kvikmynd-
inni „Bréfið frá þeim látna“.
Myndin er dönsk en Nýja Bíó
hefur tekið upp þá lofsverðu
nýbreytni að fá settan á film-
una íslenzkan texta. Er hér um
tilraun að ræða, en ef aðsóknin
réttlstir það verður haldið á-
fram að setja íslenzkan texta
í danskar myndir, sem Nýja
Bíó sýnir. „Bréfið frá þeim
látna“ er sýnd í dag kl. 5, 7
Qg 9.
og særði fimm þeirra.
Síðastliðinn sólarhring hafa
verið látlausar götuóeirðir í
iðnaðarborginni Torino á Norð-
ur-Italíu. Áttust þar fyrst við
verkamenn og nýfasistar en
lögreglan skarst i leikinn og
kom nýfasistunum til. hjálpar
og fangelsaði verkamenn tug-i
um saman. Verkfall var í gær
gert í fjölda verksmiðja í Tor-j
ino til að mótmæla handtökun-J
um. Ríkislögreglan hefur reist:
véibyssuhreiður um allt mið-
bik Torino.
Menntatengsl Islands
og Ráðstjórnarlýðveldanna
Framhalds-
stofnínndur
í dag kl. I
I dag kl. 2 hefst í Stjörnu-
bíói framhaldsstofnfundur
félagsins Menntatengsl Is-
lands og Ráðstjórnarlýðveld-
anna. Á fu,ndinum mun
Þórbergur Þórðarson flytja
framsöguerindi, en að lokn-
um fundarstörfum verður
sýnd rússnesk kvikmynd.
Aðgöngumiðar sem óseldir
eru fást við innganginn og
kosta 2 kr.
Stofnendur félagsins geta
fengið skírteini afhent við
innganginn frá kl. 1.30.
þJÓÐVILJVNN
Leopoldsdeilan í Belgíu harðnar
Stjómin fer fzá, búizt við nýjum kosnmgum
Deilan um afturkomu eöa valdaafsal Leopolds kon-
ungs í Belgíu harönaöi enn í gær er ríkisstjórn kaþólskra
og frjálslyndra baðst lausnar.
Kúgun í
Vsstur-Berlín
90 mamis handteknir
fyriz „óheimilaða stjórn-
málastarfsemi"
Síðastliðna viku hafa yf-
irvöldin á hernámshiutum
Vesturveldanna í Berlin
handtekið og fangelsað um
90 meðlimi Sósíalistiska oin-
ingarflokksins. Er föngun-
um gefið að sök að hafa
„rekið stjórnmálatCarfsemi
án opinbers leyfis“.
F.Í.R. lýsir fyllsta
staðningi við sam-
þykktir verkalýðs
ráðstefnunnar
Á fundi í F.I.R. þann 17.
þ.m., var eftirfarandi tillaga
samþykkt samhljóða:
„Fundur í Félagi íslenzkra
rafvirkja 17. mar/, 1950, lýsir
yfír fyllsta stuðningi sínum við
samþykktir formannaráðstefnu
Alþýðusambands Islands varð-
andi framkomið fnumvarp um
gengisskráningu, Iaunabrcyting
ar o.fl.
Jai'nframt skorar fundurinn
á öil sambandsfélög að standa
cinhuga um samþykktir ráð-
stefnunnar og veita sambands-
stjórn hverntþann stuðning sem
unnt er og gera henni á þann
hátt kleift að skipuleggja þær
gagnráðstafanir sem verkalýðs
hreyfingin kann að þtarfa að
grípa til“.
Ráðherrar kaþólskra vildu að
báðar deildir Belgíuþings tækju
ákvörðun um framtíð Leopolds
á sameiginlegum fundi, þar
sem þeir myndu hafa meiri-
hluta og geta samþykkt að
láta Leopold taka við kon-
ungdómi á ný. Ráðherrar frjáls-
lyndra, sem nú hafa ákveðið
að styðja ekki endurkomu Leo-
polds, vildu að hvor þingdeild
greiddi atkvæði útaf fyrir sig,
en í fulltrúadeildinni eru ka-
þólskir í minnihluta. Fréttarit-
arar í Brussel telja, að erfitt
muni reynast að mynda nýja
stjórn og mestar líkur séu til
að kosningar verði látnar fara
fram hið bráðasta.
Verkföll til að mótmæla aft-
urkomu Leopolds héldu áfram
víða í Belgíu í gær. Á morgun
hafa verið boðuð verkföll í
Brussel og Antwerpen.
„W\ tel ég mér ekki skylt
asl svara hér“
Athyglisverð orðaskipii á þingi um faktúru-
fölsunarfyrirtæki, gjaldeyrisþjófnað og of
hátt vöruverð
I greinargerð þeirra hagfræðinganna Benjamíns og
Ólafs er eagt á bls. 45 að nú sé „verðlag á innfiuttri
vöru óeðliiega hátt innanlands, borið saman við inn-
kaupsverð erlendis.“ Um ástæðurnar segja hagfræðing-
arnir á næstu síðu á undan að það muni „borga sig
fyrir innflytjendur, ef þeir gætu komið því við — þótt
ólöglegt sé — að liafa eigin firmu erlendis, sem þeir
svo keyptu af, firm'u, sem legðu á vörurnar, áður en
þau seldu hana hingað.“
I sambandi við þes;a mjög athyglisverðu rök-
semdafærslu hagfræðinganna, lagði Steingrímur Aðal-
steinsson i gær eftirfarandi fyrirspumir fyrir Björn
Ólafsson, viðskiptamálaráðherra:
1. Er hæstvirtum ráðherra kunnugt um að slíkt
■hafi átt sér stað — og í það stórum stíl að veruleg
áhrif hafi á verðlagið?
2. Sé honum það ekki kunnugt, hefUr hann þá látið
rannsaka málið?
3. Hafi hann ekki látið rann;aka málið, telur hann,
þá slíka aðferð vera svo saklausa — eða jafnvel sjálf-
sagða — að ekki sé ástæða til að skipta sér af þessu?
4. Sé það skoðun ráðherrans — hefur þá ef til vill
hans eigið fyrirtæki notað aðferðina?
Björn Ölafsson stóð upp mjög vandræðalegur og
svaraði, að hann vissi ekkert um þetta mál. Steingrímur
skaut þá inn í, hvort ráðherrann sæi þá ekki ástæðu
til að láta fara fram rannsókn. „Því tel ég mér ekki
skylt að svara liér“, isagði Björn Ólafsson og settist!
íslenzkir lista-
menn sýna verk
sín í
Þann 22. þ.m. verður opnuð
í Helsingfors sýning norræna
Listbandalagsins.
Sýning norrænna Listbanda-
lagsins hafa nú verið á öllum
hinum Norðurlöndunum, var
hér í Reykjavík vorið 1948 og
er Finnland seinast í röðinni.
Er þetta í fyrsta sinn sem ís-
lenzkir listamenn sýna verk sín
í Finnlandi, en erlend listsýn-
ing hefur ekki verið haldin í
Iðja mótmælir gengislækkuninni
Á félagsfundi Iðju félags verksmiðjufólks sem
haldinn var 17. þ. m., var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt einróma:
„Fundur Iðju, íélags verksmiðjuíólks í
Reykjavík, haldinn 17. marz mótmælir ein-
dregið írumvarpi því um gengisskráningu,
launabreytingar oíl., sem nú liggur fyrir Al-
þingi og skorar á Alþingi að fella það.
Telur fundurinn frumvarpið, ef að lög-
um verður, leggi óviðunandi hömlur á starfs-
semi verkalýðsíélaganna og rýri stórkostlega
lífsafkomu alls almennings í landinu, án þess
að leysa að nokkru vandamál atvinnuveg-
anna".
Finnl. síðan löngu fyrir stríð
og er eftirvænting Finna að von
um mikil í sambandi við nor-
rænu sýnnguna.
Þessir listamenn sýna af
hálfu Félags ísl. myndlistar-
manna: málaramir Finnur
Jónsson, Þorvaldur Skúlason
Kjartan Guðjónsson, Valtýr Pét
ursson, Sigurður Sigurðsson,
Pétur Fr. Sigurðsson, Jóhann-
es Jóhannesson, Guðmundur
Einarsson, Magnús Árnason,
Gunnlaugur Scheving, Nína
Tryggvadóttir, Snorri Arin-
bjarnar, Kristján Davíðsson
Jóh. Kjarval, Sverrir Haraldss.
Örlygur Sigurðsson, Vigdís
Kristjánsdóttir, Barbara Árna-
son.
Höggmyndir: Gunnfríður Jóns
dóttir, Sigurjón Ólafsson, Tove
Ólafsson, Ásmundur Sveinsson,
Magnús Árnason, Gestur Þor-
grímsson. Gestir sýningarinnar
eru þau Hörður Ágústsson og
Gerður Helgadóttir.
Fulltrúar Islendinga í Finn-
landi verða Guðmundur Einars
son og Sigurjón Ólafsson.
Stúlka fótbrotnar
I fyrrakvöld varð stúlka fyrir
bifreið á Suðuriandsbraut, hjá
Tungu, og fótbrotnaði.
Stúika þessi heitir Ingibjörg
Sigurðardóttir, og á heima að
Bergi við Suðurlandsbraut. Hún
var flutt á Landsspítalann.