Þjóðviljinn - 16.04.1950, Qupperneq 5
Sunnudagur 16. april 1950.
9
JOHANNE DYBWAD
1867 — 1950
Johanne Dybwad.
Málverk eftir Christian Krogh.
f J ÖÐVILJINN
i ■ ... i.ii.
Jóhanna Dybwad andaðist
þann 4. marz á heimili sínu
í Osló, áttatíu og tveggja ára
að aldri. Hún var tvímælalaust
mesta leikkona sem Norðmenn
hafa eignazt, og má því furðu-
legt heita að láts hennar skyldi
ekki getið í íslenzkum blöðum;
þótt seint sé :kal starfs henn-
ar stuttlega minnzt.
Sextíu ár á leiksviði — það
er ævisaga Jóhönnu Dybwad i
fjórum órðum. Lif hennar var
ekki umbreytilegt né atburða-
ríkt í ytra skilningi, leikhúsið
var henni heimili og athafna-
svið frá því hún steig þangað
fæti sínum. Hún fæddist í Osló
2. ágúst 1867, móðir hennar
Johanne Juell var mikil og
merk leikkona, en dó á ungum
aldri, faðirinn einnig leikari að
atvinnu. Jóhanna Dybwad ólst
upp í Bergen og kom fyrst á
svið nítján ára gömul, en vann
ótvíræðan leiksigur ári síðar.
Hún var ráðin að leikhú;:inu
í höfuðstaðnum og komst
skjótt til mikils þroska, enda
þjálfaði hún líkama sinn, rödd
og andlegt atgervi með dæma-
fárri seiglu og óbugandi þreki.
Hún var lítil vexti og hvorki
glæsileg né fríð sýnum, en lét
enga örðugleika á sig fá, sigur-
viss og djörf ruddi hún sér
braut til frægðar og hárrar
listar. Þegar Þjóðleikhúsið
norska tók til starfa árið 1899
varð hún sjálfkjörin drottning
þess og fremsta leikkona æ
síðan; þeirri stofnun vígði hún
alla krafta sxna, en var tíður
gestur erlendra leikhúsa. Fjör
hennar og leikgleði áttu vart
sinn líka, síðast lék hún þann
8. desember 1947, þá áttræð að
aldri, Ásu í ,.Pétri Gaut“.
Þó að ég hafi séð Jóhönnu
Dybwad á leiksviði ætla ég ekki
að reyna að lýsa eða skýra
leik hennar og séri’tæða list-
gáfu. Landar hennar hófu hana
jafnan til skýja, sæmdu hana
háfleygustu lofsyrðum tung-
unnar, líktu henni við allt sem
þeir vissu helgast og dýrast.
Skapandi listamaður var hún
í fyllsta skilningi orðsins, setti
mark snilldar sinnar og ein-
Btæðs persónuleika á öll hlut-
verk sín, stór og smá. Hún
var eldsál öllu framar, þrung-
in heitri ástríðu, sannleiksást
og hlífðarlausri dirfsku, gædd
ótæmandi hugarflugi; skarp-
gáfuð og skyggn á sálir. Ofsa-
fenginn þróttur einkenndi list
hennar, hún leitaði út yfir endi-
mörk hins mannlega og var
tæpast einhöm; oft er í það
vitnað er hún lék Puek í „Jóns-
vökudraumi“ og Gerð^ í
,,Brandi“. Fáir leikarar eða
engir voru . henni víðfeðmari,
hún naut tsín jafnt í harmleik
og gleðileik, sígiidum verkum
og nýtízkum; ekkert mannlegt
ingu og þemu lék hún með jafn
miklum yfirburðum, móður,
eiginkonu og unga mey. Opin-
ská og innfjálg var túlkun
hennar á ástum kvenna; feimni
og ljufsár þrá ungu sfúlkunnar,
ástarvíma og fullsæla hinnar
þroskuðu konu, vonbrigði og
örvilnan — þar náði list henn-
ar mestri fjölbreytni, hæstri
snilld. Jóhanna Dybwad þrosk-
aðist á blómaskeiði raunsæis-
i=tefnunnar, en hvarf mjög frá
henni er á leið, list hennar varð
stöðugt hreinni og einfaldari í
línum, stærri í sniðum. Hún
spennti á stundum bogann of
hátt, og fór ómildum höndum'
um hlutverk og leikrit, en
képpti aldrei að hinum lægri
og hversdagslegri markmiðum.
Það gat ekki hjá því farið
að Jóhanna Dybwad yrði mikil
Shakespeareleikkóna, ' verkum
hins enaka meistara fann hún
það sem hún þráði, skáldlega
fegurð og hugarflug, logandi á-
stríðu og £kæra lífsgieði. Og
hún átti þvi láni að fagna að
merta leikskáld nútímans var
landi hennar, Henrik ■■ IbBen;
hún lék átján hlutverk í leikrit-
um lians, og rnörg með slikum
ágætum að ekki verða nöfn
þeirra skilin að, leikkonunnar
og skáldsins. Af yngri skáldum
Norðmanna var Nordahl Grieg
henni hugfólgnastur, hún
greiddi ætíð braut hans sem
leikrit hans og síðan fleiri,
meðal annarra „Vár ære og
vár makt“. Þetta seiðrferka en
alþýðlega verk, sem er í senn
friðarlofsöngur og mannúðar
og bitur og beinskeytt ádeila
á yfirgang auðvaldsins, varð
mikilfenglegt, hvetjandi og
máttugt í höndhm Jóhönnu
Dybwad, að minnsta kosti
hreif sýningin mig sterkar en
orð fá lýst, gekk opinberun
næst. íslendingar mega minn-
ast þess að það var frú Dybwad
uem fyrst lék Höllu í „Fjalla-
Bywindi,“snilld hennar og frægð
átti hið óþekkta íslenzka skáld,
Jóhann Sigurjónsson, mikið að
þakka. Ári síðar, eða 1913,
flutti hún „Fjalla-Eyvind“ til
Noregs, og annað leikrit ís-
lenzkt setti hún á svið Þjóð-
leikhússins norska, „Oss morð-
ingja“ eftir Guðmimd Kamban;
sjálf lék liún aðalhlutverkið og
bar það leikrit einnig fram til
i'igurs.
Jóhanna Dybwad var ráðrík
og drottnunargjorn sem mikl-
um leikurum er títt, leikhús-
stjórarnir voi'u ekki ætíð öf-
undsverðir af sinni stöðu. Og
hún átti það til að oftreysta
getu sinni, krafðist þess að fá
að leika kornimgar stúlkur þótt
komin væri á efri ár, og vakti
fullkomið hneyksli er hún lék
Ariel í „Storminum" sextug að
aldri. En þó að hún biði ó-
sigra stöku sinnum þurfti hún
ekki að kvarta um fálæti eða
skilningdeysi, hún var jafnan
dáð og virt um aðra fram í
Noregi, á öllum Norðurlöndum.
Tvær leikkonor urðu frægastar
um hennar daga, Sarah Bern-
hardt og Eleneora Duse, en
þegar þær leið var engin leik-
kona í Evrópu talin henni
fremri. Á efri árum varð Jó-
hanna Dybwad eins konar
dýrlingur norsku þjóðarinnar
eða hálfguð; þess má geta að
konungurinn sæmdi hana átt-
ræða æðsfa heiðursmerki lands-
ins, en slíkan sóma hefur eng-
inn leikari í heiminum áður
hlotið.
Með Jóhönnu Dybwad hófst
nútíðarsaga norskrar leiklistar;
nú er i"æti hennar autt. En
ekki má því gleyma þegar
minnzt er hinnar látnu leik-
konu að frábærir listamenn
, stóðu við hlið hennar á sviði
Þjóðleikhússins allt frá upp-
hafi, þeirra á meðal August
Oddvar sem var meðleikari
hennar um alla aðra fram,,
Egil Eide, Ragna Wettergreenr.
Harald Stormoen, Ingolf
Schanche, Stub Wiberg, Hauk.
Aabel og Halfdan Christensen;
margir dánir, aðrir setztir í
helgan stein. þeir síðustu að
hverfa af sviðinu. Norsk leik-
list er í blóma nú á dögum, en
gullöld hennar er liðin, það
skeið i:em framar öllu var öld
Jóhönnu Dybwad. Hú'n var í
fremstu röð þeirra stórmenna
í Noregi sem hófu land sitt og
þjóð til vegs og virðingar á
örlagaríkum tímum; Nordahl
Grieg líkti henni með réttu við
tindrandi sólskin og iðandi
norðurljós, hreinsandi storm
og eld brennandi.
virtist henni framandi. Drottn-
hún mátti, setti á svið fyrsta
Á. Hj.
Hvert er gildi frjóðviljans
fyrir íslenzka alþgðu?
Reykvískar alþýðuhúsmæður
og aðrir, sem komnir eru yfir
fertugt og muna eftir sulti
og niðurlægingu á reykvísk-
um verkamannaheimijum á
árunum fyrir fyrri heims-
styrjöld hljóta að sjá og við
urkenna að þó ídenzk al-
þýða eigi enn langt að mark-
inu hafa kjör hennar stórum
batnað á tveim til þrem síð-
ustu áratugum.
Þær miklu kjarabætur sem
alþýðunni hafa hlotnazt á
þessum árum eru fyrst og
fremst því að þakka að hún
hefur átt málgagn. Það eitt
að eiga góða leiðtoga er ekki
nóg, raddir þeirra þurfa að
ná til fólksins.
Hvaða gildi hefur þá
Þjóðviljinn fyrir íslenzka al-
þýðu ? Þjóðviljinn barðist
einn allra reykvískra dag-
blaða gegn innlimun okkar
kæra fósturlands í hernað
arbandalag Atlanzhafsþjóð-
anna. Þjóðviljinn benst einn
allra reykvískra dagblaða
fyrir einingu alþýðunnar í
baráttu hennar fyrir bættum
lífskjörum. Þjóðviljinn er í
minum augum ein aðal lífæð
íslenzkrar alþýðu og hefur
tvímælalaust mest gildi af
öllu því sein hún á fyrir lífs
afkomu hennar og menn-
ingu.
Ef Þjóðviljinn hætti að
koma út mundi alþýðan
missa mikið af þeim kjara-
bótum sem unnizt hafa á
síðustu árum. Fylkingar henn
ar mundu fljótt riðlast og
jafnvel sökkva í sama sult-
inn sem við vorum í á árun-
um fyrir fyrra etríð. Þá yrði
aftur önnur aðalmáltíð dags
ins kartöflulaust tros og hin
normalbrauð, magarín og te.
Nei, við getum með engu
móti án Þjóðviljans verið.
Hann er óskabarn alþýðu-
konunnar. Hann kemur,
sem kær og þráður vinur,
sameinar fjölskylduna og
gefur henni daglega nýtt og
lífrænt umræðuefni. Hann
sýnir okkur sannar myndir
af baráttu alþýðunnar í flest
um löndum heims undan oki
auðvaldsins og tengir okkur
við hana órjúfandi kærleiks
böndum.
Án Þjóðviljans yrði líf ís-
lenzkrar alþýðu ekkert líf
Fyrir harin eru okkur því
engin ispor of þung og hann
verður seint of dýru verði
keyptur.
Guðrún Guffjór.sdóttir*
Gesisl áskdíendui aS HÓDVILIANliM
Veena afeana
sem fram fara á því, hvaö hægt sé að gera til
hjálpar vangefnum og á annan hátt afbrigöilegum
börnum, unglingum og fullorönum, eru aöstánd-
endur eöa aörir framfærendur þeirra, sem þetta
snertir í Reykjavikurlæknishéraöi, beönir að mæta
til viötals 1 skrifstofu borgarlæknis, Austurstræti
10 a, IV. hæö, (sími 3210) fyrir 20. apríl.
Borgarlæknirinn í Reykjavík
' >WWWWWVWVWtfWV^^WWWV'^WWWWWWWV»
IftWAVJ'/.V^.V.VV.V.V.V.V.V.