Þjóðviljinn - 25.04.1950, Side 8

Þjóðviljinn - 25.04.1950, Side 8
Verkalýðsforingjar í 1. maí göngu jálssi og afvimmrekendum! Bandaríkjastjórn tekur upp I. maí sem „þjóð- hollustudag" að dæmi nazista Forsetar bandarísku verkalýðssambandanna CIO og AFL, þeir Philip Murray og William Green. gangast ásamt íoringjum samtaka bandarískra verkaíallsbrjóta, atvinnurekenda og kaupsýslu- manna íyrir gagnráðstöíunum gegn kröfugöngum bandarísks verkalýðs I. maí í ár. Það er Bandaríkjastjórn, sem stendur bak við þessar gagn- ráðstafanir eins og bezt sést af því, að Tobin, verkalýðsmála- ráðherra í stjórn Trumans, gaf út fyrstu tilkynninguna um þær. Segir í fréttatilkynningu To- bins, að í flestum stærri borg- um Bandaríkjanna sé verið að undirbúa fjöldafundi 1. maí og sé undirbúningnum stjórnað af forystumönnum American Leg- ion, samtaka fyrrverandi her- marína, stjórn sambands banda riskra iðnrekenda National Ass ociation of Manufacturers, stjórn bandaríska verzlunar- ráðsins US Chamber of Comm- erce og verkalýðssambandafor- setunum Murray og Green. Am- erican Legion hefur áratugum saman verið hjálparhella banda rískra atvinnurekenda við verk fallsbrot og hverskyns ofbeldi gegn verkalýðssamtökunum. Tobein fer í föt dr. Ley. Ráðstefna 800 fulltrúa verka lýðsfélaga og annarra samtaka, i New York, sem kom saman til að undirbúa 1. maí kröfu- göngu verkalýðsins þar í borg, fordæmdi þátttöku Murray og Green í hinum svokölluðu ,,þjóð Brezkum togara hleypt á land vegna leka Hornafirði í gær. Frá fréttar. Þjóðviljans. Leki kom að togaranum Og- ano frá Grimsby úti af Horni um hádegi í gær. Annar brezk- ur togari ætlaði að draga hann til Seyðisfjarðar en varð að hætta við það og var það ráð tekið að hleypa honum á land í botni Stöðvarfjarðar. Einn af skipverjum Ogano hafði fótbrotnað og flutti hinn brezki togarinn hann »lil Seyð- isfjarðar. Ekki er vitað hvað valdið hafi leka togarans, þess getið til að hann hafi rekizt á Hvít- ingana, sem eru sker úti af Eystra horni. Þar sem togaran- um var hleypt á land í botni Stöðvarf jarðar er góður sand- botn. Afli Hornafjarðarbátanna hefur verið tregur síðustu dag- ana. hollustudags“ samkomum og líkti þessu uppátæki við „1. maí fjöldafundina, sem dr. Ley, verkalýðsmálaráðherra Hitlers, skipulagði til að æsa upp ófrið- aranda í þriðja ríkinu.“ Framhald á 6. siðu Aðalfundur Aðalfundur Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis var haldinn í Iðnó í Reykja- vík, sunrudaginn 23. apríl 1950. Fundinn sátu 106 full- trúar, af 131, sem rétt átt'u til fuiidarseíu, félagsstjóra, framkvæmdastjóri og er.dur- skoðendur, svo og nokltrir starfsmenn félagsins. f félagsstjórn voru kosnir: Jór Brynjólfsson (endur- kosinn); Hallgrímur Sig- tryggsson, starfsmaður hjá S.f.S.: Borgþór Björnssson, framkv.stj. Samb. ísl. bygg- ingafél. Varamaður í félags- stjórn var kosinr Guðmund- '-r Finnbogason. Skýrt verður ránar frá fundinum í blaðinu á morg- un. Nýtt fjölbreytt og glæsilegt feeíti af Viimunni Jón Rafnsson hefur tekið við ritstjórn hennar Vinnan, tímarit Alþýðusam- bands íslands og FuI.' rúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykja- vík, er nýkomið út, allmikið breytt að efni og frágangi. Er það 1.—3. tbl., sem nú kemur út í einu hefti, 48 lesmálssíður auk auglýsinga. Sú breyting er orðin á rit- stjórn Vinnunnar, að Sigurður Róbertsson rThöfundur hefur látið af störfum sem ritstjóri tímaritsins, en Jón Rafnsson tekið við því starfi. Efni Vinnunnar er mjög f jöl- breytt, birtir hún auk greina um verkalýðsmál o. fl. mörg kvæði og nokkrar smásögur eftir innlenda og erlenda höf. Þessar greinar eru í 1.—3. hefti: Eining er afl (forystu- grein), Verkalýðsráðstefnan, eft ir Bjarna Þórðarson, Athyglis- verð kjaradeila, Verkalýðsfélag Bolungavíkur, eftir Ágúst Vig- fússon; Belsen (kafli úr bók- inni From D-day to Denmark, eftir skozka blaðamanninn Ge- org McMillan), Gengislækkunin rýrir mjög lífskjör launþeg- anna — en tryggir þeim ekki atvinnu, eftir Steingrím Aðal- steinsson; Lykillinn að skáld- inu í manninum, eftir Rós- berg G. Snædal, Stéttadómar og mótmæli gegn þeim. Birtar eru sögurnar Brúðkaupsferðin, eftir Dorothy Parker og Mig dreymdi, eftir Jón Jóhannes- son, kvæðin Þjóðvísa eftir Hjört Kristmundsson, Um kalda nótt, eftir Sigríði Einars, Hauð- lognið hæga, eftir Þorstein Valdimarsson, Vísnabálkur eft- ir Þórdísi Jónasdóttur, Það er einhver að kalla og I nótt eft- ir Kristján frá Djúpalæk, Hvar viltu vera, eftir Ásgeir Ing- vars og Sveitarómantík í þrem pörtum eftir Jón Jóhannesson. Ennfremur er í heftinu þetta efni m. a. Af alþjóðavettvangi, Athyglisverðar tclur, Stjórn Framhald á 5. síðu. Hæfmsglíma Skarphéðiits þlÓÐVILIINN Fyrsta hæfnisglíma Héraðs- sambandsins Skarphéðins, var háð í Hveragerði s. 1. laugar- dag. Keppt var um fagran silfurbikar sem glímuflokkur Ármanns gaf í tilefni af 40 ára afmæli sambandsins. Keppendur voru 12 frá 6 ungmennafélögum. Urslit urðu sem hér sgir: 1. Rúnar Guðmundsson UMF Vöku 832 stig, 2. Sigurður Er- lendsson UMF Bisk. 544 st., 3. Eysteinn Þorvaldsson UMF Vöku 503 st., 4 Guðmundur Pálsson UMF Laugd. 453 stig. Erindi Einars Olgeirssonar verður í kvöld Einar Olgeirsson alþm. flytur erindi í erindaflokknum: Úr frelsisbaráttu íslenzku þjóðarinnar í kvöld kl, 8,30 á Þórsg. 1 (salnum). Erindi þetta nefnir hann: úpphaf verkalýðsbarátt- 'unnar o.fL — Öllum heimill aðgangur. Rætt um útfelutun tistamannalauna á Alþingi I ncðri deild Alþingis í gær var tekið til fyrstu umræðu, frumvarp Magnúsar Iijartanssonar um úthlutun Iauna til lista- marna, en það hefur áður verið birt hér í blaðinu. Magnús fylgdi frumvarpinu úr hlaðj. Hann benti í upphafi á hversu kynlegt það væri að þeir menn sem áhugasamastir telja sig um andlegt frelsi og aðbúð listamanna í útlöndum eru næsta áhugalitlir um kjör íslenzkra listamanna og breyta oft gagnstætt við hinar fögru kenningar sínar. Síðan rakti hann í stórum dráttum úthlut- un listamannalauna undanfarið, ofsóknirnar gegn róttækum höfundum í stríðsbyrjun og eins nú eftir stríð. Vakti hann athygli á því að frumvarp það sem hann flytur er algerlega samhljóða tillögum listamann- anna sjálfra og væri það eitt veigamikil röksemd fyrir sam- þykkt þess. Að lokum vakti hann athygli á því að þriðja þing Bandalags íslenzkra lista- manna stendur nú fyrir dyrum og taldi að Alþingi ætti þess kost að votta listamannasam- tökrmum virðingu sína með því að koma þessum málum í fast og viturlegt horf á þessu þingi eins og lagt er til í frumvarp- inu. Á sama fundi kom til fyrstu umræðu frumvarp Gylfa Þ. Gíslasonar um úthlutun lista- mannalauna og listaráð, og mælti flutningsmaður fyrir því. Engar frekari umræður urðu um frumvörpin og var þeim vísað til menntamálanefndar og annarrar umræðu samhljóða. Karlakóú Reykjavlkur syngur í Gamla bíd M. 7,15 í kvöld Karlakór Reykjavíkur held- ur samsöng fyrir styrktarfélaga. sina í Gamla bíó í kvöld kl. 7.15. Söngskráin er mjög fjöl- breytt. "Flytur kórinn m. a. þessi verk: Frelsisljóð eftir Árna Björnsson, Kvöld eftir Jónas Tómasson, Agnus dey eftir Bizet (einsöngvari er Guð- mundur Jónsson), íslands hrafn istumenn eftir Björgvin Guð- mundsson, I félagsskap góðum, úr op. Ástradrykknum eftir Donizetti og úr hnotubrjótnum eftir Tschaikovsky. Auk Guðmundar Jónssonar syngur Magnús Jónsson einsöng með kórnum. Stjórnandi kórs- ins er Sigurður Þórðarson, en FTitz Weisshappel verður við hljóðfærið. Athygli styrktarfélaga skal vakin á því, að aðgöngumiðar frá þriðjudeginum 11. april gilda að samsöngnum í kvöld. Kvennadeild slysavarnafélags- ins gaf 50 .þús, kr. til björgnnarflug- vélar á 20 ára afmæline S. 1. laugardag hélt Kvenna- deild slysavarnafélagsins í Rvík hátíðlegt 20 ára afmæli sitt með hófi að Hótel Borg og tóku einnig þátt í því fulltrúar af 5. landsþingi Slysavarna- félags íslands. Frú Sigríður Pét ursdóttir, gjaldkeri Kvenna- deildar slysavarnafél. stjórn- aði hófinu, sem fór mjög mynd- arlega fram. Margar ræður voru fluttar og Guðmundur Jónsson söng ein- söng. Formaður Kvennadeildar- innar, frú Guði’ún Jónasson, var mjög hylit fyrir ágæta for- ustu í þágu slysavarnamálanna. Tilkynnti hún í hófinu að deild- in hefði ákveðið að leggja fram 50 þús. kr. til kaupa á full- kominni björgunarflugvél af helikoptergerð, auk þeirra 25 þús. kr. sem deildin hefur áð- ur ákveðið að veita til þess- ara kaupa. Samtals nemur nú framlag Kvennadeildariniftr til slysavarnarmála, þessi 20 ár sem hún hefur starfað, kr. 308 þús. og hafa skýli og annað verið afhent Slysavarnafélagi Islands. Deildinni barst fjöldi heilla- skeyta og gjafa í tilefni af afmælinu og konur færðu frú Guðrúnu Jónasson öll rit Guð- rúnar Lárusdóttur sem þakk- læti fyrir fórnfúst starf. Einar Þorgríms- son Einar Þorgrímsson forstjóri Lithoprents lézt í gær á heimili sínu hér í bænum, eftir þunga legu, 54 ára að aldri. Einar var vinsæll maður, ó- venjulegum gáfum gæddur, at- hafnamaður mikill. Hann dvald- ist í Ameríku um 20 ára skeið, kom aftur heim árið 1937 og stofnaði skömmu síðar Litho- prent, sem undir stjórn hans varð brátt umfangsmikið fyr- irtæki. Hafa á vegum þessa fyrirtækis Einars verið gefnar út margar bækur, sem mikill menningarauki er að fyrir ís- lendinga.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.