Þjóðviljinn - 04.06.1950, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 04.06.1950, Blaðsíða 1
9, * M UNI Ð Heiðmerkurför Kvenfélags sósíalista í dag kl. 1.30 frá Þórsgötu 1. Hin dauSa hönd gengislœkkunarstjórnarinnar: s hjá byggingaverkatnðniium og H gerðim gengislækkunarstjórnarinnar Gengislækkunarstjórnin hefur lagt hina dauðu hönd stöðvunarinnar á byggingaframkvæmdir í Reykjavík, með þeirri afleiðingu að algert at- vinnuleysi er framundan hjá byggingaverkamönn- um og iðnaðarmönnum. Trésmiðaíélag Reykjavíkur hefur lýst því hvernig ekki hefur verið hægt að Ijúka hálfsmíð- uðum husuin né sinna nauðsynlegu viðhaldi eldri húsa sökum efnisskorts, og hundraða trésmiða bíður nú atvinnuleysi af þeim sökum. Málarameistarafélag Reykjavíkur hefur lýst því hvernig með núverandi ástandi ,,er alveg úti- lokað, að hægt sé að halda við ýmiskonar mann- virkjum, húsum skipum o. fl., sem kostað hafa þjóðina hundruð milljóna króna, og, sem mun kosta miklu meira, ef við verðum að láta þau grotna niður vegna vöntunar á nauðsynlegum efn- um til viðhalds þeim." í dag birtir Þjóðviljinn kröíu Félags ísl. raf- virkja um aukinn innflutning efnis til raflagna, og lýsingu þeirra á yfirvofandi atvinnuleysi raf- virkja. í dag birtir Þjóðviljinn einnig umsögn Landssambands ísl. rafvirkjameistara um *hinn mikla skort á rafmagnsefni, búnaði og öðrum raf- magnsvörum" og ,,hefur ástandið í þeim málum aldrei verið jafnslæmt og nú." Landssamband ísi. rafvirkjameistara lýsir því einnig hvernig stjórnar- völdin hafa vikið innflutningsleyfum að heildsölum er skort hefur þekkingu á þeirri vöru er þeir verzl- uðu með og notuðu leyfin einungis til að græða á þeim, og jafnframt hafi stjórnarvöldin hundsað iðnaðarmennina er sérþekkingu höfðu og synjað þeim um leyfi. Jafnframt því að búa þannig hundruðum reyk- vískra fjöldskyldna kjör atvinnuleysisins, með stöðvun húsbygginga eykur gengislækkunarstjórnin húsnæðisleysingjahópinn um hundruð manná þar sem byggja þarf árlega 200—300 íbúðir á ári aðeins til þess að vega upp á móti eðlilegri fjölg- un Reykvíkinga. „Landssamband íslenzkra raf- virkjameistara hélt aðalfund sinn mánudaginn 22. þ. m. Úr stjórninni áttu að ganga 2 menn, en voru báðir endurkjörn ir, og er því stjórn landssam- bandsins skipuð þessum raf- virkjameisturum: Jón Sveins- son, Rvík, form., Vi'.berg Guð- mundsson, Rvik, ritari, Gissur Pálsson, Rvík, gjaldkeri, Eyj- ólfur Þórarinsson, Akureyri, varaform., Jóhann Jóhannes- son, Sigluf., meðstjóiTiandi. — Varastjómendur: Aðalst. Gísla- son, Sandgerði, Guðmundur Sveinsson, Hafnarfirði. — End- ursk.: Hjálmar Halldórsson Hólmavík, Jónas Ásgrímsson, Rvík. Á fundinum voru rædd vanda mál stéttarinnar, þ.á.m. hinn jmikli skortur á raflagningaefni, búnaði og öðrum rafmagnsvör- um, enda hefur ástandið í þeim málum aldrei verið jafnslæmt og nú. Á fyrra ári varð samkomulag við Viðskiptanefndina of Fjár- hagsráð um skiptingu útgefinna gjaldeyris. og innflutningsleyfa Framhald á 7. síðu. Gjöf gengis- lækkanarstjóm- arinnar til aldr- aðra sjómanna Það eru kaldar kveðjur sem gengislækkunarstjórnin sendir öldruðum sjómönnum í dag, gjöf hennar til aldr- aðra sjómanna táknræn fyr- ir gefandann. Á sjómannadaginn hefur um langt árabil safnazt fé til að byggja dvalarheimili fyrir aldraða sjómenn. Ætl- 'unin hefur verið að byggja stórt og vandað heimili er sæmandi væri að bjóða þeim mönnum í elli sinni er slitið hafa kröftum sínum langa ævi á hafinu, við þann at- vinnuveg sem erfiðastur og liættulegastur er á þessu norðlæga landi okkar, þann atvinnuveg er krafizt heí'ur álíka mannfórna og Þtyrj- aldir hinna stærri þjóða, þann atvinnuveg er velmeg- Framhald á 8. síðu Félag íslenzkra raívirkja telur óforsvaranlegt ú stöðva1 hósabyggmgar s hænum ,,Fundur í íélagi íslenzkra raívirkja, haldinn 1. júní 1950, telur að samdráttur sá í byggingar- íramkvæmdum, sem nú á sér stað, muni leiða til alvarlegs atvinnuleysis meðal þeirra stétta er að þessum framkvæmdum vinna. Eru afleiðingar beirrar stefnu er haldið hefur verið að undanförnu, í þessum efnum, þegar farnar að koma í ljós, í vaxandi atvinnuleysi hjá byggingaiðnaðarmönnum og verkamönnum. Telur fundurinn að óforsvaranlegt sé að draga svo úr fjárfestingu til bygginga sem raun er á, og skorar á Fjárhagsráð að gera sitt ítrasta til þess að viðhalda eðlilegri byggingarstarfsemi í landinu, og afgreiða þegar í stað þau fjárfestingarleyfi sem fyrirhugað er að veita á þessu ári. Jafnframt skorar .fundurinn á Fjárhagsráð að auka innflutning efnis til raflagna og* haga leyfis- veitingum þannig, að þeir aðilar fái innflutnings- leyfin, sem bezt innka,up geta gert, svo og að útiloka óþarfa milliliði við innflutning efnis til raflagna. Félag íslenzkra rafvirkja telur að eðlileg byggingarstarfsemi í landinu sé eitt af frumskil- yrðum þess að haldið verið uppi fullri atvinnu í landinu, auk þess sem samdráttur í húsbyggingum myndi auka mjög á þau vandræði sem stafa af húsnæðisleysi almennings." Héppnga dagsins hefst kl. 1 e. h. Sjémannablaðið VÉkingur Sjómannablaðið Víkingur, maíblaðið, er komið út. Jón Kr. Isfeld skrifar um sjómanna- skólann og hvort verknámsdeild sé óviðkomandi sjómannastétt- inni. Guðmundur Gíslason skrif ar frásögnina: Rekald á haf- inu, birt er framhald greinar um Súðarleiðangurinn til Græn- lands. Hvaða laun ber sjóverka manni að dómi löggjafans ? heit- ir grein; grein er um gæzlu kælivéla í skipiitn og önnur um skip og vélar. Þá er ennfremur OLundarfjórðungi fyrir ki. 1 e.h. í dag verður safnazt sam- an við Miðbæjarskólann og hefst hópganga sjómannadags- ins þaðan kl. 1. Lúðrasveit R.- víkur leikur fyrir göngunni. Gengið verður með Lúðra- sveit Reykjavíkur í fararbroddi. Gengið verður um Lækjargötu, Kalkofnsveg, Tryggvag., Póst- hússstræti, og staðnæmzt við Austurvöll. Kl. 13.30 Útiguðs- þjónusta af svölum Alþingis- hússins, biskupinn yfir Islandi herra Sigurgeir Sigurðsson pré Framhald á 2. síðu. þátturinn á frívaktinni, margt smærri greina og f jöldi mynda. Sjomanna- dagsblaðið Sjómannadagsblaðið verður selt á götunum í dag. Hefst það á kveðju til sjómannadagsins frá dr. Richard Beck; Vestfirð- ingur skrifar um Bíldudal um og eftir síðustu aldamót; Ragn ar Þorsteinsson birtir þarna sögu: Ásmundur á Núpi“; Þor- varður Bjömsson skrifar: Dval arheimili aldraðra sjómanna á að vera í Laugarnesi og hvergi annarstaðar; birt er ávarp það er Guðmundur Ásbjömsson Framhald á 7. síðú.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.