Þjóðviljinn - 09.08.1950, Page 4
ÞJÖ ÐVXLJINN
'' ’íatiPf-
luómnuiNii
Útgefandl: SameÍTilngarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnós Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari K&rason, Magnús Torfi Ólafsson,
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjóm, afgreiðsia, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Gjaldþrot gengislækfcunarinnar
Reykvísku nýsköpunartogai-axnir hafa nú legiö bundn-
ir \áð landfestar á annan mánuö, og er það önnur alls-
herjarstöövunin á nímu ári. TilefniÖ er taliö kiaradeila
milli sjómanna og útgerðarmanna, en hitt er alkunnugt
að deilan er ekki ástæðan til stöövunarinnar. Togararnir
myndu liggja bundnir viö landfestar þótt engin deila
væri. M. a. lýsti Björn Ólafsson viöskiptamálaráöherra
yfir því í útvarpsræðu í fyrrakvöld aö ísfiskmarkaðurinn
væri algerlega hruninn í rúst og engin leið aö starfrækja
mikilvirkustu framleiöslutæki íslendinga til þeirra nota.
Ekki eru liðnir fimm mánuðir isíðan þessi sami ráð-
herra og fylgifiskar hans sögðust vera búnir að finna upp
það ráð sem dygði til aö bæta úr erfiðleikum íslenzkra
atvinnuvega. Ráðið var stórvægileg gengislækkun. Sú aö-
gerö átti að vera upphafið að snöggi'i og glæsilegri „viö-
reisn“ og brýnt var fyrir almenningi aö þótt gengislækk-
unin yröi þungbær fyrst í stað fylgdi henni sá stóri kost-
ur að öll atvinnutæki myndu veröa hagnýtt, hver hönd
myndi fá verkefni viö framleiðsluna. Áhrifin áttu fyrst
að koma í ljós 1 ;sambandi við togaraútgeröina, sem seldi
framleiöslu sína beint til útlanda og ætti að fá 75%
meira fyrir sama magn að óbreyttu verölagi utanlands.
Hún gæti meira aö segja lækkaö veröið að mun, fariö í
margumtalaða irsamkeppni“ við keppinauts. okkar og bor-
ið sigur úr býtum.
Sósíalistar héldu því þá fram einir aö þetta væri alger
falskenning. Þeir sýndu fram á þaö meö rökum að vandi
íslenzkrar útflutningsframleiðslu væri ekki verölagið,
heldur skortur á mörlcuðum. Hér í blaðinu voru birt mörg
dæmi um það að tilgangslaust væri að hefja „samkeppni“
á marsjallmörkuðunum, viö myndum ekld fá að selja nema
mjög takmarkað magn, jafnvel ekki gefa íslenzkar afurð-
ir, þótt við vildum. Sönnuðu sósíalistar að orsakir erfið-
leikanna væri kreppan 1 löndum þeim sem viðslúptin
hafa veriö einskorðuð viö, „offramleiösla" sem stafaöi af
geigvænlegum kaupgetuskorti. ÚrræÖi sósíalista voru öfl-
un nýrra markaða u.tan kreppusvæðisins ásamt ráðstöf-
unum innanlands til aö minnka dýrtíöina og lækka fram-
leiðslukostnaðinn. En afturhaldiö lét röksemdir sósial-
ista sem vind um eymn þjóta og hélt dauöahaldi í geng-
islækkunina, en þuldi sér til vamar kafla úr hagspeki
þeiiTa Benjamíns Eiríkssonar og Ólafs Björnssonar.
Rúmum ársfjórðungi síöar er ástandiö orðið þannig
að æstasti hvatamaður gengislækkunarinnar lýsir yfir því
sökum þess að markaðir séu ekki fyrir hendi. Hann skýrir
aö mikilvægustu frámleiöslutækin veröi ekki hagnýtt
jafnframt frá því aú freefiskframleiðslán verði áðeins
helmingur af því magni sem selt var 1 fyrra sökum mark-
aösskorts og sala á saltfiski sé einnig erfiðleikum bundin.
Ráðherrann birtir sem sé þau tíðindi sem sósíalistar sögöu
fyrir einir manna. Og hann lýsir jafnframt yfir algera
gjaldþroti gengislækkmiarinnar, sem í engu hefur bætt
sölumöguleika islenzkra afurða erlendis en stóraukiö
framleiðslukostnaöinn innanlands og fært alþýðuheimil-
unum sárustu fátækt.
Réttilega ættu viöbrögö gengislækkimarflokkanna nú
að verö2 þau aö þeiv játuöu gjaldþrot sitt og gæfu þjóð-
inni kost á að dæma í nýjum kosningum. Með þvi er hins
vegar gert ráð fyrir heiðarleik sem forráðamenn aftur-
haldsis eiga ekki til. Þeir munu þvert á móti halda á-
fram að vega í sama knérunn, og hver veit nema þeir
læk^i gengið enn í haust.
Óheyrilegt okur.
Húsmóðir hringdi mig upp í
gær og var mikið niðri fyrir.
Hún sagðist hafa keypt nokkr-
ar fiskabollur í einni þeirra
verzlana, sem sel.ja tilbúinn
mat hér í bænum, og gekk verð
ið alveg fram af henni. Bollan
kostaði 3,33 kr. eða þrjár fyr-
ir 10 krónur. Einhver sósu-
sletta fylgdi með og nokkrar
baunir. Hver bolla var ca. 150
grömm, og geta þeir, sem til
þekkja þá reiknað út hvað fisk
kíóið hefur kostað. Það væri
sannarlega ekki vanþörf á verð
lagseftirliti á þessu sviði.
Nauðsyn brýtur lög.
Annars er það orðið sjald-
gæft að fólk kippi sér upp við
annað eins okur og þama hef-
ur átt sér stað. Verzlunarhætt-
ir eru nú orðnir þannig hér á
landi, að fólk þykist fegið að
fá vöruna, og þá orðið auka-
atriði hvað hún kostar, þegar
um nauðsynjar er að ræða. Þó
á þettá fyrst og fremst við um
erlendan vaming. Mikill hluti
hans er seldur á svörtum mark
aði, og þeir munu vera færri,
sem ekki hafa gert sig brotlega
við landslög með því að verzla
við braskarana. En eins og
kunnugt er brýtur nauðsyn lög.
Vofa einokunarinnar.
Nú hafa staðið yfir þriggja
daga hátíðahöld verzlunar-
manna, og er sagt að þau hafi
farið fram með miklum ágæt-
um, og er engin ástæða til að
efa það. Hins vegar mun hafa
borið minna á því í ræðuhöld-
um þessa daga, að ágæti
„frjálsrar verzlunar," sem jafn
an hefur verið höfð í háveg-
um á þessum tyllidegi, væri róm
uð en verið hefur undanfarin
ár. Ekki er óliklegt að vofa
þeirrar harðsvíruðu einokunar,
sem við Islendingar búum nú
við, hafi birzt ræðumönnum
þessa dags, svo þeim hafi vaf-
izt tunga um tönn, þegar þeir
vildu nefna „frjálsa verzlun“.
„Skákunnandi“ skrifar
mér:
„Nú er norræna skákmótinu
senn lokið og fer nú hver að
verða síðastur, sem vill njóta
þeirrar miklu skemmtunar og
uppfræðslu, sem fólgin er í að
horfa á skákmeistara tefla.
Öll tilhögun mótsins er ísl.
skáksambandinu til mikils
sóma, og er allt gert til þess
að áhorfendur geti haft sem
mest upp úr heimsókn sinni,
án þess þ.ó að skákmennirnir
séu truflaðir. Sérstakar þakkir
eiga ráðamenn mótsins skilið
fyrir ‘ skýripgíirtöflin í anddyr-
inu, sem gerir mönnum kleift
að fylgjast með öllum skemmti
legustu skákunum leik fyrir
leik, með skýringum afbragðs
leiðbeinanda."
t H ■ ’ 7?»
★
Hppljómuð borg?
„Pix", skrifar:
„Eg las um daginn í Þjóðvilj
anum í grein eftir útlendan es-
perantista, sem hér hafði verið
á ferðalagi, að það sem honum
þótti mest til koma í yfirbragði
Reykjavikur, væri ljósadýrðin.
Hvergi í heiminum mátti skilja
á þessum útlenda ferðalang
vferi farið eins ósparlega með
rafmagn og í Reykjavík. Eg
hef ekki farið víða um heim, en
ótrúlegt þykir mér, að ekki sé
til bjartari borg að næturlagi
en Reykjavík hefur verið síð-
ustu vikuna. Eg verð vegna
vinnu minnar oft að ganga um
bæinn að næturlagi, og að und-
anförnu hef ég orðið að gæta
mín við hvert fótmál vegna
myrkursins. Hvers vegna er
ekki farið að kveikja á götu-
Ijósunum? Eftir hverju er ver-
ið að bíða?“
Miðvikudagur 9. ágúst 1990,
inni, að í þjónustu þess er met-
hafi í þeirri list að týna niður
móðurmálinu.
1 gær voru
gefin saman í
hjónaband hjá
borgardómara
ungfr. Guðríður
Árnadóttir
(Árna Jónsson-
ar frá Múla) og Kristján Jóhanns-
son, stýrimaður, Boston, U.S.A. —
S.l. laugardag voru gefin saman í
hjónaband af séra Gunnari Bene-
diktssyni ungfrú Kristín Svanhild-
ur Njarðvík og Jón Bergþórsson,
Teigavegi 1 og ennfremur ungfrú
Hulda Baldursdóttir og Páll Berg-
þórss., veðurfræðingur Flókag. 58.
V
Sl. laugardag opin
beruðu trúlofun
sína, ungfrú Jóh.
Bjarnadóttir (Sigv
hvatsson banka-
stjóra, Vestmanna
eyjum) og Birgir Þorgilsson (Guð-
mundssonar, íþróttakennara frá
Reykholti).
20.30 Útvarpssag-
an: „Ketiilinn" eft
ir W. Heinesen;1
XIX. Vilhj. S. Vil-
hjálmsson rithöf-
undur). 21.10 Tón-
leikar: Melachrino strengjasveitin
leikur (plötur). 21.40 Danslög.
22.10 Danslög. 22.30 Dagskrárlok.
Blfreiðaárekstrar voru með
mesta móti-um sl. helgi. Munu um
20 bifreiðar hafa lent í árekstri.
þessa daga, en lítil eða engin
meiðsli munu hafa orðið á fólki
því er i bifreiðunum var.
Happdrætti Háskóla lslands.
Á morgun kl. 1 verður dregið í
8. flokki happdrættisins. 1 dag er
síðasti söludagur happdrættismiða.
Vinningar í 8. fl. eru kr. 178.300.00
en alls eru vinningar til ársloka
rúmlega 1% milljón króna.
Frá Þjóðminjasafninu. Norská
safnið i þjóðminjasafnsbygging-
unni nýju verður opið til sýnis
almenningi dagana 10.—16. ágúst
að báðum dögum meðtöldum kl.
13.00—15.00 (1—3 e.h.).
HÖFNIN:
Norskt tankskip kom hingað í
fyrradag. Tekur það hvallýsi í
Hvalfirði.
ShSipadeáld S.Í.S.
Amarfell losar timbur á norður
landi. Hvassafell er í Hafnarfirði.
Rikissklp
Hekla er á leiðinni frá Glasgow
til Reykjavíkur. Esja er í Reykja
vík. Herðubreið fer frá Reykjav.
í dag austur um land til Siglufj.
Skjaldbreið fer frá Reykjavík til
12 á hádegi í dag til Skagafjarð-
ar- og Eyjafjarðarhafna. Þyrill
er norðanlands.
Eimsklp
Brúarfoss er í Kiel. Dettifoss
er í Rotterdam, fer þaðan 12.—
14.8. til Antverpen, Hull og R.-
víkur. Fjallfoss er á Siglufirði,
fer þaðan væntanlega 10.8. til
Gautaborgar um Leith. GoSafoss
er í Gautaborg, fer þaðan 12.8. til
Norðurlandsins og Reykjavikur.
Gullfoss fór frá Kaupmannahöfn
5.8. og frá Leith 7.8. til Reykjavík-
ur. Lagarfoss er í Vestmannaeyj-
um. Selfoss er væntanlegur til
Raufarhafnar í kvöld 8.8. frá
Flekkefjord. Tröllafoss ,fór frá
N.Y. 7.8. til Rcykjavíkur.
Sunnudagsvéfrétt
Alþýðublaðsins
eggjar menn lög-
eggjan að „veiða
Jgfc/ humal við strendur
landsins" til út-
flutnings. Ekki getur blaðið þess
hvaða brugghús séu líkleg til að
kaupa þessa nýstárlegu tegund af
humal. Vera kann þó, að Alþýðu-
blaðsmenn hafi uppgötvað markað
fyrir humal sinn í „borginni við
Malarann," sem getið er í sama
blaði. Mun Malari þessi eiga að
vera vatn eitt, sem hingað til
hefur nefnzt Lögurinn á islenzku.
Má .með sanni segja að Alþýðu-
blaðið'Iáítúr J»að ékki ligpja í !ág-
Panl Victor
Framliald aí 1. síðu.
og hver áhrif hann hefur á
Norður-AUanzhafssvæðið. Enn
er eftir að vinna úr rannsókn-
unum að mestu leyti, en það
er hægt að segja strax, að á-
rangur þeirra hefur orðið mjög
mikill og meiri en vonir stóðti
til.
Leiðangurinn er að mestu
leyti kostaður af franska vís-
indafélaginu, Centre National
de la Reeherche Scientifique,
en einnig með almennum sam-
skotum. Préttamaður Þjóðvilj-
ans spurði Victor, hvort frönsk
hernaðaryfirvöld hefðu enga
hönd í bagga með lelðangrinum
Hann kvaðst hafa verið lán-
samur að geta komizt hjá því,
rétti maður þeim litlafingurinn
taka þeir alla höndina sagði
hann, og þá er eins líklegt, að
niðurstöðum rannsóknanna
hefði verið haldið leyndum, en
leynilegar vísindaniðurstöour
eiga í raunimii ekkert skylt við
vísindi, sagði hann ennfremur.
Victor bað blaðamenn að lokum
um að taka það fram, að sam-
vinna leiðangursins og Loft-
leiða h.f. hefði verið raeð mikl-
um ágætum og hefðu þau við-
skipti verið blönduð vinarþeli,
sem glöggt hefði komið í ljós
í þeim móttöku^fl,. sem leiðang-
ursmenn héfði£( fe«gið hingað
koxanir. 1