Þjóðviljinn - 03.09.1950, Síða 4
ÞJÓÐVILJINN
Suimudagur 3. september 1950
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurina.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
FréttaritStjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafsson,
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólávörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Askriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Kjarslaráitai! heldur áfram
Ráðamenn Alþýðusambandsins hafa svikið í kjara-
baráttunni. Kjarabaráttan heldur áfram og skal verða
til lykta leidd með fullum sigri.
En áður en hægt verður að hefja þá sókn sem und-
irbúin var með uppsögn 40—50 öflugustu verkalýðsfé-
iaga landsins verður að gera upp við svikarana sem vógu
aftan að alþýðusamtökunum á úrslitastund. Næsti á-
fangi kjarabaráttunnar fer fram innan verkalýðsfélag-
anna sjálfra, í hverju einasta félagi og að lokum á þingi
Alþýðusambandsins í haust.
Markmið þeirrar baráttu er að fjarlægja úr öllum
áhrifastöðum í verkalýðshreyfingunni þá menn sem nú
hafa svikið samtökin og alla samherja þ'eirra. Kosninga-
baráttan í verkalýðsfélögunum verður bein kaupgjaldsbar
átta; hver einasti verkamaður verður þá að gera upp við
sig hvort hann vill sætta sig við smánarbætur tveggja-
krónusvikaranna eða koma á þeirri stéttareiningu sem
enginn máttur fær staöizt. Kosningarnar til sambands-
þings eru allsherjaratkvæðagreiðsla um það hvort verka
menn vilja vinna upp þá óhemjulegu kjaraskerðingu
sem orðið hefur toein afleiöing gengislækkunarinnar eða
beygja sig undir okið og sætta sig við eina árásina ann-
ari þungbærari.
Fyrir tveimur árum sýndu sameiningarmenn fram á
það að þeir menn sem sölsað höfðu undir sig yfirráðin
yfir Alþyðusambandinu með lögleysum og ofbeldi væru
beinir erindrekar atvinnurekenda sem hefðu það eitt
hlutverk að gera heildarsamtök verkalýðsins óvirk. Auð-
mannastéttin vissi fullvel að einhuga samtök alþýðunnar
voru þaö afl sem ekki varð unnið í beinum átökum; eini
möguleikinn var að sundra þeim innan frá. Bitlingaklíka
Alþýöuflokksins tók það hlutverk að sér og tókst að
hrinda því í framkvæmd. Og þau tvö ár sem hún hefur
drottnað yfir alþýðusamtökunum hefur ein stórárásin
á lífskjör almennings rekið aðra. Allar þessar árásir voru
því aðeins mögulegar að Alþýðusambandið var í höndum
atvinnurekenda, sjálf gengislækkunin var framkvæmd
í þeirri öfuggu vissu að takast myndi að koma í veg
fyrir gagnaðgerðir verkalýðssamtakanna.
Með gengislækkuninni var hins vegar teflt á tæpasta
vaö. Það var ekki lengur talið ráðlegt aö bitlingahjörð Al-
þýðuflokksins tæki þátt í ríkisstjórn, henni var falið að
beita sér eingöngu að því að „stjófna baráttu alþýöu-
samtakannna." í júlí voru síðan búnar til þær „uppbæt-
ur“ sem Alþýðusamtökin áttu að fá! því aöeins var vísi-
talan fölsuð að ætlunin var frá upphafi að endurgreiða
tveggj akrónusmánarbætur þær sem nú er daglega lýst
í Alþýðublaðinu, sem „einum stærsta sigri alþýðusam-
takanna.“ Og Alþýðusambandsstjórnin vann sitt hlut-
verk af trúmennsku, boðaði fyrst til baráttu til að vega
upp „alla kjaraskerðingu gengislækkunarlaganna,“ og
vóg síðan aftan að félögum þeim sem hlýtt höfðu kalli
hennar.
Og nú hrósar auðmannastéttin sigri en ráðherrastól-
arnir blasa á ný við bitlingaklíkunni. En kjarabaráttan
lieldur áfram. Það tilræði sem tókst fyrir tveim árum
xnun ekki veröa endurtekið nú. íslenzk alþýða mun taka
undir hvatningarorð þeirra þriggja forustumanna sem
birt voru í Þjóðviljanum 1 gær:
„Við heitum á alla einlæga verkalýðssinna, á
Krossgáta nr. 22.
Alþýðublaðið setur met.
Verkamaður skrifar:
„Oft hefur mér blöskrað Al-
þýðublaðið undanfarandi ár en
sjaldan eins og í dag þegar það
reynir að telja okkur trú um
að unninn hafi verið stórsigur
fyrir alþýðuna með samningum
Alþýðusambandsins um rúm-
lega tveggja króna kauphækk-
un á dag. Það líður varla svo
dagur að ekki komi tilkynning-
ar í útvarpi og blöðum um
nýjar og nýjar verðhækkanir á
brýnustu lífsnauðsynjum, og ef
marka má tóninn í samþykkt-
um bænda er vist ekki langt að
bíða að yfir skelli nýjar verð-
hækkanir á mjólkurvörum og
kjötmat. Fiskurinn hækkar, en
hækkar ekki líkt því nóg segja
fiskkaupmennimir og loka búð-
um sínum til þess að fá meiri
hækkim. Svona er það með eina
vöruna af annarri. Allt hækkar
gífurlega, ekki um aura, heldur
heilar krónur og margar krón-
ur.
★
Túkallinn hrekkur
skammt.
Það lítur einkennilega út fyr-
ir þeim sem þurfa að vinna
fyrir stórum heimilum og sjá
daglega hvemig kaupið verður
sífellt minna virði, að kaup-
hækkun um rúmar tvær krónur
á dag sé „stórsigur" fyrir al-
þýðuheimilin. Enda duga eng-
in Alþýðublaðsskrif til að
hamra það inn í hausinn á
okkur, hér hefur það sama
gerzt eins og svo oft áður þeg-
ar Alþýðuflokksbroddar eiga að
stjórna baráttu, úr því verður
engin barátta heldur samninga-
makk við óvini verkalýðsins, og
svo er samið um einhverjar
hundsbætur handa verkamönn-
um. en stóra bitlinga, stundum
ráðherrastóla handa broddum
Alþýðuflokksins.
★
Afturhaldið fagnar
„stórsigri" alþýðusam-
takanna.
Ef nokkur verkamaður væri
í efa um það sem gerzt hefði
þarf hann ekki annað en líta í
afturhaldsblöðin þessa daga.
Við reykvískir verkam. vitum
hvemig syngur í tálknum þess-
ara auðvaldsmálgagna þegar
verkalýðsfélögin vinna raun-
vcrulega stórsigra. Þar er ekki
um að villast. En nú bregður
svo við að öll afturhaldshers-
ingin, öll blöðin sem berjast
eins og vitlaus gegn bættum
kjörum verkamanna, gegn mál-
stað verkamanna í hverju ein-
asta verkfalli, þau fagna nú úr-
slitunum, og Vísir kallar það
„smámuni“ sem verkamenn hafi
fengið fram. Það hefur áreið-
anlega aldrei komið fyrir að
þessi auðvaldsblöð fagni stór-
sigri verkamanna. Fögnuður
þeirra er vitnisburður um það
hverjir hafa sigrað í þessari
deilu, ef nokkur þyrfti þar
vitnanna við. En við ættum að
þekkja betur þá menn sem mis-
nota jafnsvívirðilega samtök
okkar, í beinni samvinnu við
verstu andstæðinga verkalýðs-
hreyfingarinnar, eftir það sem
gerzt hefur síðustu dagana“.
★
Bíkisskip:
Hekla fór frá Glasgow í gær á
leið til Thorshavn og Reykjavíkur.
Esja er á Austfjörðum á leið til
Siglufjarðar. Herðubreið var á
Patreksfirði i gær á vesturleið.
Skjaldbreið var á Hólmavík í gær
á suðurleið. Þyrill er í Rvík. Ár-
mann er á Hornafirði.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Akureyrar í
gærmorgun fer þaðan til Húsa-
víkur. Dettifoss fór frá Akureyri
1 .9. til Hollands og Hamborgar.
Fjallfoss kom til Leith 1. 9. fer
þaðan í gær til Reykjavíkur.
Goðafoss kom til Rvíkur um kl.
34.00 í gær frá Akranesi. Gull-
foss fór frá Kaupmannahöfn í
gær til Leith og Rvíkur. Lagar-
foss kom til N. Y. 27. 8. fer það
an væntanlega 7. 9. til Halifax og
Rvíkur. Selfoss kom til Gautaborg
ar 31. 8. Tröllafoss fór frá Rvik
27. 8. til Botwood í New Found-
land og fermir þar 2500 tonn af
pappír til N. Y,
Messur í dag:
Laugarneskirkja.
Messa k'l, 11 f. h.
Sr. Garðar
Rvbvarrson. Nes-
prestaitall. Messa
í kapellu Háskól-
skólans kl. 2 e. h. — Sr. Jón Thor-
arensen. Hallgrímskirkja. Messað
kl. 11 f. h. Magnús Már, prófessor.
Dómkirkjan. Messað kl. 11 f. h. Sr.
Bjarni Jónsson.
Sr. Jakob Jónsson er í sumarfiíi.
Unglingar
seai vilja selja Arbók Slysa-
varnaféiags Islands eru beðnir aö
mæta í skrifstofu félagsins í Hafn
arhúsinu kl. 9 á mánudagsmorgun.
Siysavarnai'élag Isiands.
Helgidagslæknir er Karl Sig.
Jónasson, sími 5970.
Næíurvörður er í Laugavegsapó-
teki ,sími 1616.
alla andstæðinga gegnislækkunarinnar, að gera
næsta ]>3ng ASÍ að baráttuþingi íslenzlta verkalýðs-
ins með því að fella frá fulltruakjöri alla forsvars-
menn núverandi sambandsstjórnar, en kjósa full-
trúa. hvar í flokki sem þeir annars standa, sem
vilja skapa Alþýðusambandinu nýja sambandsstjórn
sem verkalýðurinn getur borið fullt traust til og sem
er fær um að leiða réttláta baráttu hans fyrir bætt-
um lífskjörum fram til sigurs.“
Lárétt: 1. mikilmenni — 7. hljóð
— 8. iiát — 9. nögl — 11. vindur
— 12. 2eins — 14. samhl. — 15.
tók — 17. 2eins — 18. reykja. —
20. hlær.
Lóðrétt: 1. rita — 2. hljóð — 3.
samhl. •— 4. trjátegund — 5. inn-
yfli — 6. smáki — 10. títt — 13.
tjóns — 15. blessuð — 16. sníkju-
dýr — 17. vond — 19. 2eins.
Laus ná nr. 21.
Lárétt: 1. dvergur — 7. AA — 8.
rota — 9. ull — 11. rak — 12. of
— 14. RA —• 15. akra — 17. ós
— 18. áta — 20. Skortur.
Lóðrétt: 1. daun — 2. val —•
3. KR — 4. gor — 5. at-ar — 6.
rakar — 10. lok — 13. frár —• 15.
ask — 16. att — 17. ós — 19. au.
/ýS' Útvarpið í dag:
11.00 Messa í Laug
arneskirkju (séra
Garðar Svarsson).
15.15 Miðdegistón-
leikar (plötur): a)
Tíu tilbrigði í G-dúr (K455) eftir
Mozart. b) t,Kindentotenlieder“
eftir Hahler. c) Svita nr. 4 í
D-dúr eftir Bach. 16.15 Útvarp til
Islendinga erlendis: Fréttir. 16.30
Tónleikar: Lög við ljóð eftir
Shakespeare (plötur). 18.30 Barna-
timi (Þorsteinn Ö. Stephensen):
a) Upplestur og tónleikar. b)
Framhaldssagan: „Óhappadagur
Prillu" (Katrín Ólafsdóttir). 19.30
Tónleikar: Píanólög eftir Chopin
(plötur) 20.20 Tónleikar. Hornsón-
ata í F-dúr op. 17 eftir Beethoven
(plötur). 20.35 Erindi: Sveinn Jóns
son og kvæði hans (Ólafur Gunn-
arsson frá Vík í Lóni). 21.00 Tón-
leikar (plötur): Pittsburgh sinfón-
íuhljómsveitin leikur; Reiner stj.:
a) Sinfóníetta eftir Nicolai Lop-
atnikoff. b) Tveir rúmenskir lans
ar eftir Bela Bartok. 21.30 Staðir
og leiðir: Úr Borgarfjarðar- og
Breiðafjarðardölum (séra Emil
Björnsson). 21.55 Danslög (plötur).
22.05 Danslög (plötur).
Útvarplð á morgun:
19.30 Tónleikar: Lög úr kvik-
myndum (plötur). 20.20 Útvarps-
hljómsveitin (Þórarinn Guðmunds-
son stjórnar): Lagaflokkur eftir
Smetana. 20.45 Um daginn og veg-
inn (Magnús Jónsson lögfræðing-
ur). 21.05 Einsöngur: Ninon Vallin
syngur (plötur). 21.20 Þýtt og end
ursagt (Frlðrik Hjartar skólastj.).
21.45 Tónleikar: Lög leikin á ýmis
hljóðfæri (plötur). 22.10 Létt lög.
Útvarpið, þriðjudaginn 5. sept.:
19.30 Tónleikar: Óperettulög (plöt-
ut'). 20.20 Tónleikar (plötur). a)
Kvartett í C-dúr op. 1 nr. 6 eftir
Haydn. b) Tríó op. 70 nr. 5 (Vofu-
tríóið) eftir Beethoven.' 20.45 Er-
indi: Hrfðafræðingar rækta risa-
dýr (dr. Áskell Löve). 21.10 Tón-
leikar (plötur). 21.20 Upplestur
(Sigurður Skúlason magister).
21.35 Vinsæl lög (plötur) 22.10
Tónleikar: Svíta nr. 2 í h-moll
eftir Bach (plötur).
Bölnsetning
gegn barnaveiki fer fram í
Templarasundi 3, miðvikudaginn
6, se.ptember, Pöntunum veitt mót
taka í síma 2781 mánudaginn 4.
sept. og þriðjuöaginn 5. sept.
„Þeim er orðið brátt í brók“
Verkaraaður’ orti eftir fyrirlest-
ur Hriflu-Jónasar í Austurbæjar-
bíó:
Ameríska öxi skók
auðvalds kjaftaskjóða..
Þeim er orðið brátt í brók
böðlum frjálsra þjóða.
S.
Hafið þið munað eftir að líta
yfir smáauglýsingarnar á 7.
síðu?