Þjóðviljinn - 10.09.1950, Blaðsíða 8
llurt nteS svikaa*ana er sðindti vi«$ gengis-
lækkusiarstjérnina á bak við verkalýðlnn!
Hvert af ööru víta verkalýðsfélögin svik Alþýðusambandsstjórnarinnar í hags-
munabaráttu verkalýðsins. Þau svik, að hún hvatti félögin tii að segja upp samn-
ingum en hundsaði síðan kröfur félaganna um sameiginlega baráttu til að fá upp-
borna kjaraskerðingu gengislækkunarinna r, og sat á sama tíma að leýmmakki við
gengislækkunarstjórnina um að svíkja verkalýðinn með hundsbótunum alræmdu.
Enn einu sinni hefur forustufélag íslenzkra verkalýðssamtaka, Ðagsbrún, talað
fyrir munn verkalýðshreyfingarinnar þegar það scgir í ályktun sinni á síðasta
Dagsbrúnarfundi: •
Akureyrartogararnir hafa ú\ú þjéð-
inni gjaldeyris meðan Reykjavíkur-
fogararnir tiggjs bundnir
Á sama tíma og útgerðarauðvald Reykjavíkur, og
íhaldið sem ræður bæjarútgerð Reykvíkinga ásamt sjó-
mannahetjunni og Alþýðuflokksmanninum Jóni Axel,
hefur bundið togarana við Iand á þriðja mánuð hafa
Akureyrartogararnir og togarar annarra bæjarútgerða
haldið áfram gjaldeyrisöflun og tryggt sjómönnum líf-
vænleg kjör.
„. .. . íundurinn lítur hinsvegar svo á, að hagsmunabaráttan verði ekki
stöðvuð og að næsti áfangi hennar sé að ryðja burt núverandi stjórn Alþýðu-
sambandsins. Fundurinn skorar því á meðlimi allra verkalýðsfélaga, að
vinna ötullega að því að fella frá fulltrúakjöri til næsta Alþýðusambands-
þings alla stuðningsmenn núverandi sambandsstjórnar og að kjósa þá menn
eina, sem reiðubúnir eru til að tryggja Alþýðusambandinu nýja forustu
heiðarlegra manna, er leitt geta hagsmunabaráttu verkalýðsins til sigurs."
Félag bifvélavirkja, Félag járniðnaðarmanna og Félag blikksmiða hafa öll haldið
fundi og samþykkt ályktanir þar sem þau víta svik sambandsstjórnar og setja fram
kröfuna um nýja heiðarlega sambandsstj órn í stað svikaranna. Samþykktir Félags
bifvélavirkja og Félags blikksmiða fara hér á eftir:
Félag bifvélavirkja hélt fund s.l. miövikudag og
samþykkti fundurinn meö samhljóöa atkvæöum eftir-
farandi ályktanir:
„Fundurinn telur að breyting sú er stjórn Al-
þýðusambands íslands samdi um við ríkisstjórnina
að gerð verði á kaupgjaldsvísitölunni sé algerlega
óíullnægjandi til þess að vega upp á móti lífs-
kjaraskerðingu gengislækkunarinnar.
Jafnframt lítur félagið svo á, að hinar dag-
£egu, stórfelldu verðhækkanir á öllum lífsnauð-
synjum almennings staðfesti hversu Alþýðusam-
bandsstjórn hefur brugðizt hiutverki sínu í launa-
baráttu verkalýðsstéttarinnar. Telur fundurinn
brýna nauðsyn á að allir meðlimir verkalýðs-
félaganna sameinist um að tryggja á sambands'
þingi í haust kosningu sambandsstjórnar sem verka-
lýðsstéttin getur treyst til að leiða barátiu alþýð-
unnar fyrir mannsæmandi lifskjörum til sigurs."
Minnisvarði
Bjarna riddara
afhjúpaður
I dag kl. 3 e. h. verður af-
hjúpaður minnisvarði sem reist-
ur hefur verið í Hellisgerði í
Hafnarfirði til minningar um
Bjarna riddara.
Minnisvarðinn er gefinn af
útgerðarfélögunum Hrafnaflóka
og Víði, en Ríkharður Jónsson
hefur gert brjóstmyndina. Við
afhjúpun minnisvarðans flytja
ræður þeir Adolf Bjömsson,
Kristinn Magnússon formaður
Magna og Helgi Hannesson
bæjarstjóri, en Lúðrasveit Hafn
arfjarðar leikur á milli ræð-
anna.
„Fundur í félagi bifvélavirkja, haldinn miöviku-
daginn 6. september 1950, samþykkir aö fela stjórn
félagsins að framlengja núgildandi kjarasamninga fé-
lagsins við atvinnurekendur, þannig að unnt sé að segja
þeim upp hvenær sem er með 30 daga fyryirvara.“
„Fundur í Félagi blikksmiða í Reykjavík,
haldinn föstudaginn 8/9 1950, vítir harðlega hina
furðulegu afstöðu Alþýðusambandsstjórnar. er hún
hefur tekið til hagsmunamála hinna einstöku fé-
Iaga, og telur þá afstöðu enganvegin samrýman-
lega þeirri afstöðu er fram hefur komið í bréfum,
sem farið hafa á milli Alþýðusambandsstjórnar og
sambandsfélaganna á starfstímabilinu. Með tilliti
til þessa ályktar fundurinn að núverandi Alþýðu-
sðmbandsstjórn sé alls ófær um að gegna hlut-
verki sínu, og felur því fulltrúa sínum á næsta
Alþýðusambandsþingi að vinna samkvæmi því."
„Fundur í Félagi blikksmiöa, haldinn 8. september
1950, lítur svo á, aö fallinn sé úr hendi sá baráttugrund-
völlur í kaupgjaldsbaráttu þeirri, sem hafin var fyrir
tilmæli A.S.Í. þar sem stjórn sambandsins hefur nú
afturkallaö tilmæli sín meö bréfi þann 31. ágúst s.l.
Með tilliti til þessa samþykkir fundurinn aö rétt
sé fyrir félagiö aö framlengja samninga sína viö Félag
blikksmiöjueigenda óbreytta, miöaö viö aö þeir séu
uppsegjanlegir meö 30 daga fyrirvara eins og áður.“
Það skal tekið fram, að Hell-
isgerði verður öllum opið í dag
og ekki seldur aðgangur.
Finnbjörn
Þorvaídsson
íslandsmeistari
í iugþraut
Tugþrautarkeppni meistara-
móts fslands lauk í fyrrakvöld.
íslandsmeistari í tugþraut 1950
varð Finnbjörn Þorvaldsson fR.
Illaut hann 5984 stig.
Þátttakendur voru níu, auk
Finnbjarnar, og varð árangur
þeirra sem hér segir: Sigurður
Friðfinnsson FH 5598 stig, Þor-
steinn Löve IR 5416 stig, Gylfi
Gunnarsson IR 5377 stig, Tóm-
as Lárusson UMSK 5154 stig,
Vilhjálmur Pálsson HSÞ 4989
stig, Rúnar Bjarnason ÍR 5940
stig, Valdimar Ömólfsson iR
4884 stig, Bragi Friðriksson KR
4043 stig og Þorvaldur Óskars-
son ÍR 3327 stig.
Árangur Finnbjarnar er góð-
Framhald á 7. síðu.
Um síðustu helgi kom Akur-
eyrartogarinn Kaldbakur með
Síldarútvegsnefnd
ákveður lágmarks
verð á Faxasíld
Síldarútvegsnefnd hefur nú
ákveðið lágmarksverð á Faxa-
síld til söltunar. Er það kr.
125.00 fyrir uppsaltaða tunnu,
3 lög í hring, og kr. 0,80 kg.
fyrir uppvegna síld. Verð þetta
er miðað við að 8% framleiðslu
gjaldið verði ekki innheimt.
Þeir sem nú þegar eru byrj-
aðir eða ætla að hefja síldar-
söltun á Suðurlandi, þurfa nú
þegar að tilkynna skrifstofu
síldarútvegsnefndar í Reykja-
vík um sölustað og aðstöðu til
söltunar, hver verði eftirlits- og
umsjónarmaður og af hvaða
skipum saltað verði.
AlþjóÖadagur
samvinnumanna
f dag, sunnudaginn 10. sept.
er alþjóðadagur samvinnu-
manna. f þvi tilefni efna sam-
vinnumenn um heim allau til
hátíðahalda.
Hér á fslandi efna kaupfé-
lögin, hvert á sínu félagsvæði
til fundarhalda og skemmti-
samkoma, eftir því sem aðstæð-
ur leyfa og í kvöld sjá sam-
vinnumenn um dagskrá ríkisút-
varpsins. Þetta er í 28. skiptið,
sem haldið er upp á alþjóðasam
vinnudaginn. Það er alþjóða-
samband samvinmunanna (I.C.
A., eða International Cooper-
ative Alliance), sem gengst
fyrir hátiðahöldunum.
'480 tonn af ufsa eftir fjögurra
daga veiðiferð. Svalbakur kom
nokkru síðar með tæp 400 tn.
Jörundur mun væntanlegur inn-
an skamms.
Síðan í vor hefur Kaldbakur
aflað 4660 tonn af karfa og
ufsa til bræðslu. Svalbakur hef
ur fengið nokkru minna.
Alls hefur afli Akureyrartog-
aranna á þessu tímabili verið
1300 tonn. Karfaaflinn er 9294
tonn, ufsi og annar fiskur til
bræðslu 2614 tonn og 800 tonn
af beinum.
Eyjafjarðaivezksmiðj-
uznar fengu
59 þús. málum
minni síld
en á sama tíma í fyrza
Síldarverksmiðjurnar þrjár
við Eyjafjörð, á Hjalteyri, Dag-
3f ■
verðareyri og Krossanesi höfðu
i vikunni sem leið brætt 42 þús.
mál síldar og er það rúmum
59 þús. máiurn minna en í
fyrra.
Samtals hafa verksmiðjurnar
fengið um 30 þús. mál af ufsa
til bræðslu.
Hjalteyrarverksmiðjan hafði
fengið 22 þús. mál síldar, en
47 þús. á sama tíma í fyrra.
1 sumar fékk hún ennfremur
rúm 15600 mál að ufsa.
Krossanesverksmiðjan fékk
í sumar 7321 mál síldar en
18750 mál af ufsa. Nú fékk hún
einnig 4369 mál af ufsa.
Dagverðareyrarverksmiðjan
fékk i sumar 13700 mál af síld,
en 3650 mál á sama tíma í
fyrra. Hún hefur fengið 9000
mál af ufsa.
0RÐSENDING til umboðsmanna
Happdrættis Þjóðviljans
um aElt land
Gerir þegar ráðstafanir til að dreifa mið-
unum til sölu, þar sem það hefur ekki þegar
verið gert að fullu. — Látið happdrættis-
nefndina vita ef þið getið tekið miða til
viðbótar. — Sendið \-insamlegast skil fyrir
þeim miðum sem þið haíið selt. — Ilefjum
öflugt starf í þágu happdrættisins og
tryggjum þar með tilætlaðan árangur þess.
HAPPDRÆTTISN EFNDIN.