Þjóðviljinn - 24.09.1950, Page 1

Þjóðviljinn - 24.09.1950, Page 1
15. árgangur. Sunnudagur 24. sept. 1950. 212. tölublaS. Stofu- skápur er einn af 15 vinningum í HAPPDRÆTTI ÞJÖÐVILJANS Ifinverksfóik ver samtök sín gegn árásum atvinnu- rekenda mei því að kjosa A listann í Iðju Sfálfsfœðisflokkurinn, Framsákn og Aiþýðuflokkurinn samfylkia fii að lama Iðju í þágu verksmiðjueigenda Til reykvískra verkalýðssinna. Allir verkalýðssinnar í bæn- um sem vilja leggja fram starf og krafta til þess að hindra á- hlaup atvinnurekenda og geng- islækkunarflokkanna á Iðju, fciag verksmiðjufólks, eru beðn ir að mæta í dag í kosninga- skrifstofu A-listans að Þórs- AfturhaldiS smalar meS óþrjótandi bilakosti en i&jufélag- ar svara með þvl oð fylkja sér um A-listann KosiS i dag kl. 10 f.h. til kl. 6 e.h. á skrifst. FulIfrúaráSsins, Hverfisgötu 21 7105 (gjáiístæðisíiokk götu 1, sími 7510. Kosningaskrifstofan opnuð kl. 9 f. h. verður ÖLL TIL STARFA FYRIR A—LISTANN. A-LISTINN Það er ekki lengur farið í launkofa með yfir- stjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar, gengis- lækkunarflokkanna, á kosningum í verkalýðsfélög- um, en Alþýðuflokkurinn hefur sem kunnugt er gert bandalag við verstu óvini verkalýðssamtakanna og er að opna flugumönnum þeirra leið til áhrifa í verkalýðssamtökunum — til að lama þau innan frá. Iðjufélagar hafa í dag tækifæri til að launa Morgunblaðinu, Alþýðublaðinu og Tímanum — og flokkunum sem þessi blöð gefa út— fyrir „hjálp” þeirra þegar Iðja hefur barizt hörðustu baráttunni fyrir hagsbótum félaga sinna. Það var ekki nóg að þessi blöð hafi alltaf nítt og svívirt málstað Iðjufélaga í hverri einustu vinnudeilu sem félagið hefur háð, heldur gekk Alþýðublaðið svo langt að krefjast þess er Iðja stóð í erfiðri verkfallsbaráttu að félagið yrði leyst upp. Hver Iðjufélagi skildi þá og fann hverjir það eru sem berjast fyrir hagsmunum iðnverkafólksins. Það eru ekki mennirnir sem vilja Iðju feiga þegar hún á í harðastri baráttu um kjör félaga sinna. Það er nógu samstilltur fagurgali í blöðum í- halds, Framsóknar og Alþýðuflokks nú, til þess ætl- aður að fleka Iðjuíélaga til að gerast sínir eigin böðlar, en hvaða Iðjufélagi treystir þessari svörtu samfylkingu íhalds, Framsóknar og Alþýðuflokks til að standa í sókn og vörn fyrir hagsmuni iðnverka fólksins? Hver er sá reykvískur iðnverkamaður að hann treysti flokki Claessens og Sigurjóns á Álafossi til að stjóma verkalýðssamtökum? í gær kusu 396 og reyndi afturhaldið hams- lausa smalamennsku, kosningaskrifstofur íhalds, Framsóknar og Alþýðuflokksins störfuðu og höfðu óþrjótandi bílakost á ferðinni. Alþýðuflokksburgeisarnir eru nú í algeru blygðunarleysi að afhenda andstæðingum verka- lýðshreyfingarinnar lyklavöld- in að verkalýðsfélögunum og á- hrifum í alþýðusamtökunum, — áhrif sem afturhaldið hefði aldrei náð nema í samvinnu við fimmtu herdeild Alþýðuflokks- ins. Vekja þessar aðfarir undr- un og gremju heiðarlegra Al- þýðuflokksmanna sem skilja hvað það þýðir að draga þann- ig lokur frá hurðum alþýðusam takanna og efia þar til áhrifa flokk Sigurjcns & Péturs á Álafossi, Eggerts Claessens og Thórsarahyskisins. Þrjú síma- númer Alþýðublaðið auglýsir í gær þrjú símanúmer, sem Iðjufélag- ar geti hringt í og fengið upp lýsingar um kosningir á Al- þýðusambandsþing. Þessi aug- lýsing er táknræn fyrir niður- lægingu Alþýðuflokksins. Þau eru: urinn) 6066 (Framsóknar- flokkurinn). 5020 (Alþýðuflokksfé- lag Reykjavíkur). Þannig er komið „verkalýðs- flokknum“ sem vogar enn að kalla sig Alþýðuflokk, og hóf göngu sína sem sóknar- og varn arflokkur verkalýðsins gegn burgeisum og afturhaldi. A-listinn - al- þýÓulisfinn A-listinn í Iðjukosningunum er listi skipaður þrautreyndum baráttumönnum félagsins, hann er fram borinn af stjórn og trúnaðarráði félagsins og sam- þykktur af trúnaðarmönnum Iðju á vinnustöðvunum. Listinn er skipaður þessum mönnum: Aðalf ulltrúar: Björn Bjamason, form. Iðju. Halldór Pétursson, ritari. Helgi Ólafsson. Guðlaug Vilhjálmsd., gjaldk. Fanney Vilhjálmsd., meðstj. Páll Einarsson, meðstj. Pálína Guðfinnsd., meðstj. Jóhann V. Guðlaugsson. Pétur Lárusson. Varafulltrúar: Sigurður Valdimarsson. Oddgeir Jónsson. Sigurbjörn Knudsen. Bergþór Ivarsson. Halldór H. Snæhólm. Láretta Stefánsdóttir. Rannveig Guðmundsdóttir. Ingibergur Kristjánsson. Björn Kjartansson. B-listinn, listi atvinnu rekenda Iðjufélagar vita að það eru atvinnurekendur, einmitt þeir sem verstir hafa verið í skipt- um við iðnverkafólkið í kjara- málum þess, sem hafa barið saman B-listann. Það dugar ekki að birta myndir af B-lista- AlþýSuherinn mun verja hvert hús é Seoul Banáaríkjdílugmeiin árepa brezka hermenn í ógáti Geysiharðirbardagar ei'u háðir um Seoul, höfuðborg Kóreu, og hefur alþýðuherinn þar fengið liðsauka bæði að norðan og af Suðurvígstöðvunum. Á Naktongvígstöðvunum sækir innrásarher Bandaríkja- manna hratt fram, en yfirherforingi innrásarhersins á þessum slóðum játaðí í gær að alþýðuherinn væri hvergi í upplausn á undanhaldinu. Framh. á 7. síðu Fasistísk lög um skoðanakugun samþykkt af Bandaríkjaþingi Öldungadeild Bandaríkjaþings fór í gær að dæmi fulitrúa- deildarinnar og samþykkti á ný hin fasistísku lög um „eftirlit með kommúnistum“. Voru Iögin samþykkt með 57 atkv. gegn 10, en það er'u 12 atkvæði fram yfir hinn tiltekna meirihluta sem þarf til að hrinda neitunarvaldi forsetans.. fólkinu í Morgunblaðinu og öll- um afturhaldsblöðum með væmnu lofi um lýðræðisást þess og frelsisást. Þetta fólk er, sumt án þess að vita hvað það er að gera, að ganga erinda verstu andstæð- inga alþýðusamtakanna, þeirra manna sem hata verkalýðshreyf inguna vegna þess að hún hef- ur gert verkamönnunum fært að knýja fram kjarabætur, gert þeim fært að halda höfðinu hátt í stað þess að 'þurfa að eiga allt sitt undir arðræningjum og bur geisum sem komizt hafa yfir verksmiðju eða önnur atvinnu- tæki. Verkamenn vita það, að i Morgunblaðinu og öðrum aft- urhaldsblöðum eru ekki birtar myndir af sönnum verkalýðs- leiðtogum nema í þvi skyni að svivirða þá. (Jnga fólkiÓ svarar afturhaldinu Þeir ætla sér að hrósa sigri yfir Iðju í kvöld á þennan hátt, Pétur á Álafossi og aðrir hans líkar. Með þremur flokksskrif- stofum gangandi, æðislegri smöl un, fortölum og hótunum ætlar afturhaldið að lama Iðju og alla. verkalýðshreyfinguna í þessum kosningum. Þeir halda að þeim takist þetta í Iðju vegna þess að þar sé margt af ungu fólki og óþroskuðu sem ekki viti hvers virði verkalýðs- hreyfingin er. Iðjuíélagar! Látið þá verða fyrir vonbrigðum. Einmitt unga fólkið sem. burgeisarnir ætla að smala til kosninga í sína. þágu, getur nú sýnt að það kann að meta verka- lýðsfélagið sitt, að ungi pilturinn og unga stúlk- an veit hvers virði það er að eiga samtök til sóknar fyrir bættum kjör- um, hærra kaupi, styttri vinnutíma, betri aðbún- aði við vinnu. Morgun- blaðsmenn og Tímamenn. hafa barizt á móti öllum kjarabótum ykkar. Svar- ið þeim með því að kjósa I-Iistann.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.