Þjóðviljinn - 25.04.1951, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvi'kudagur 25. apríl 1951 --------------------------
^ i • f 11 n f ii' fi 'i
þlÓIIVILIINH
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Slgurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýeingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Simi 7500 (þrjár línur).
Áakriftarverð: kr. 15.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75. aur. elnt.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
V__________________________________________________>
Alþýðiiblaðsklíkan enn afhjúpuð
Að gefnu tilefni hefur Þjóðviljinn undanfarið minnt
cfurlítið á framkomu Alþýðublaðsins í verkföllunum
1947, begar það beitti allri orku sinni til að stuðla að
ósigri verkamanna. Tryllingur blaösins þá mun seint
gleymast, þaö gekk meira að segja svo langt að kalla
kjarabaráttu launþega glæp og þá sjálfa glæpamenn,
en slíkt orðbragð hafa jafnvel Morgunblaðið og Vísir kyn-
okað sér við að nota.
Það er nauðsynlegt að menn hafi þennan þátt úr
sögu Alþýðublaðsins í huga nú, því hann er skýring á
hegðun Alþýðublaðsklíkunnar síðustu vikurnar. Nú þyk-
ist hún að vísu vera áfjáö í þá kjarabaráttu sem nefnd
var ,,glæpur“ fyrir tæpum 4 árum, en þó dylst engum
að hugurinn að baki er óbreyttur, að nú er aðeins beitt
óheilindum og fláræði í stað opins fjandskapar.
Andstaða ríkisstjórnarinnar og auðmannaklíkunnar
íslenzku gegn kröfum verkamanna er nú harðari og ó-
vægilegri en nokkru sinni fyrr, og að baki standa hinir
bandarísku valdamenn íslands með fyrirskipanir sínar,
studdar vestrænum mútum. Fullkomin eining verkalýðs-
samtakanna er því alger forsenda þess að hægt sé aö
leggja til sigursællar baráttu, enda var lögð á það megin-
áherzla á síðasta alþýðusambandsþingi. Alþýðublaðið
hefur hins vegar beitt öllum ráðum til að torvelda slíka
einingu með látlausum níðskrifum um Dagsbrúnarmenn
og aðra eingingarmenn í verkalýðssamtökunum.
Skýringin á þessari framkomu Stefáns Péturssonar & Co
getur aðeins verið sú að þeir séu vitandi vits að búa í
haginn fyrir ríkisstjórnarklíkuna, tryggja að hún mæti
sundruðum verkalýðssamtökum í mestu stórátökum sem
orðið hafa á íslandi.
En á meðan Alþýðublaðið hefur ástundað þessa
iðju hafa einingarmenn unnið ótrauðir aö því að efla þá
samheldni sem er óhjákvæmileg forsenda kjarabarátt-
unnar. Og því marki hefur verið náð. 18. apríl sendu 11
reykvísk verkalýðsfélög og Hlíf í Hafnarfirði frá sér yfir-
lýsingu um sameiginlegar aðgerðir og síðan hafa fjöl-
mörg önnur félög bæði hér í bæ og úti um land gerzt
aöilar að samstarfinu. Þátttakendur eru forustumenn
verkalýðsh’.eyfingarinnar úr öllum stjórnmálaflokkum og
þeir hafa bundiö fastmælum algert samstarf til þess að
ná marki sínu.
Alþýðublaðið hefur birt skæting einn um þessa stór-
merku þróun. Og það hefur meira að segja gengið svo
langt að hamast gegn samþykktum verkalýðsfélaganna,
eins og þegar það lýsti yfir því í fyrradag að ekki kæmi
til mála að Hiö íslenzka prentarafélag hæfi samúðarað-
gerðir við þau blöð sem beittu sér gegn réttlætiskröfum
alþýðusamtakanna. í staðinn hefur Alþýðublaöið hins
vegar haldið því fram að aðferð sú sem beita ætti væri
aö senda einangruð félög hér og þar út í kaupgjaldsbar-
áttuna! Það lýsti yfir því að Baldur á ísafirði ætt.i að
brjóta ísinn, en Baldur ákvað -að fylgjast með Reykja-
víkurfélögunum. Það sagði að Vestmannaeyjafélögin ættu
að knýja fram mánaðarlega vísitölu upp á eigin spýtur,
en Vestmannaeyjafélögin valdu sjálf sama kost og Bald-
ur. Og nú klifar það á því dag eftir dag að verkakvenna-
félagið Framtíðin í Hafnarfirði eigi eitt að vinna sigur í
einhverjum mestu átckum sem orðið hafa á íslandi og
eys fúkyröum yfir hafnfirzka verkamenn vegna þess að
þeir vilja vera aöilar að allsherjarsamtökum verkalýðs-
félaganna í kjarabaráttunni!
Það leynir sér þannig ekki að Alþýðublaösklíkan er
enn að leika sama leikinn og 1947, það eru fjandmenn
verkalýðshreyfingarinnar sem stjórna skrifum þess blaðs.
Verkalýðsfélögin og forustumenn þeirra úr öllum flokk-
um hafa hins vegar ekki látið rógskrifin hafa nokkur á-
hrif á sig til þessa. Þeir vita að eining, þrátt fyrir allan
flokkaágreining, er forsenda þess að sigur fáist með sem
minnstum fórnum og frá þeirri afstöðu munu þeir ekki
ikvika.
Hvergi leiðarvísir um
ferðir strætisvagnanna.
Ungur stúdent, nýkominn
heim frá námi erlendis, hefur
m. a. þetta að segja um sam-
göngumál Reykjavíkur: „Eg
fullyrði, að það sé verra að
átta sig á strætisvagnaferðun-
um hér í þessari smáborg (sem
Reykjavík er þrátt fyrir allt
ennþá) heldur en á margbrotn-
um strætisvagna- og sporvagna
ferðum í stærstu borgum er-
lendis. Því að hér hefur fólk
raunverulega ekkert að styðja
sig við í þessum efnum, annað
en það sem því hefur lærzt af
reynslunni. Hvergi er skrá yfir
áætlanir vagnaima, hvergi
nokkur leiðarvísir um ferAir
þeirra, ekki einu sinni á sjálfu
Lækjartorgi, þar sem þó er
helzta miðstöð þeirra flestra,
eða allra.
□
Handhæg kort þarf að
gefa út.
„En auðvitað ættu slíkir
leiðarvisar að vera sem víðast
um bæinn. Og ekki nóg með
það. Stjórn strætisvagnanna
ætti líka að gefa út handhægt
kort, sem sýndi áætlunarleiðir
vagnanna og tilgreindi jafn-
framt á hvaða tíma þeirra væri
að vænta á hinum ýmsu biðstöð
um... Og svo virðist mér það
varla mega dragast lengur, að
tekið verði upp það fyrirkomu-
lag, sem tíðkast í flestum borg-
um erlendis, og leyfir mönnum,
innan ákveðins tímatakmarks,
að skipta um vagna á leið sinni
milli bæjarhluta, án þess þó að
greiða aukreitis nema eitthvert
brot a.f venjulegu fargjaldi“.
— Þetta segir stúdentinn, og
býst ég við að allir þeir, sem
þurfa að nota strætisvagna,
vilji taka undir orð hans.
□
Rrezkar fyrirskipanir í
landhelgismálum
Islendinga.
Idaður einn hringdi til blaðs-
ins í gær og spurði, hvort
Bjarni Benediktsson hefði ekki
látið svo ummmælt í umræðum
um landhelgismál á Alþingi í
vetur, að skynsamlegast væri
að bíða með aðgerðir til au'kn-
ingar landlielginni þangað til
fallinn væri dómur í Haag út
af landhelgisdeilu Breta og
Norðmanna. Manninum var
svarað sem var, að á þessa leið
gengu ummæli utanríkisráðherr
ans. Og þá sagði maðurinn:
„Mér finnst nú augljóst, að
ráðherrann hefur þarna talað
samkvæmt beinni eða óbeinni
fyrirskipun frá Bretum.
□
Míkið um „ráðíleggingar“
„Morrison hefur sem sé lýst
því yfir að brezka stjórnin hafi
„ráð^agt“ þeirri íslenzku að
bíða með aðgerðir unz dómur
er uppkveðinn í Haag! Nú er
aðeins eftir að vita hvernig ísl.
ríkisstjórnin bregzt við þeirri
„ráðleggingu" hinnar brezku,
sem Morrison skýrði einnig frá,
að fresta jafnvel aðgerðum, þó
að sá dómur gangi á móti Bret-
um. Úr því mun reynslan
skera“.
□
„Gangið ekki á
grasinu“
„Hlíðabúi" skrifar: ,,. .Þeg-
ar nú þessir fáu grasblettir,
sem prýða göturnar í bænum,
koma undan snjó, þá blasir
við manni átakanlegur vottur
um þann skilningsskort sem
bæjarbúar eru ennþá haldnir
gagnvart þeirri viðleitni til auk
innar prýði, sem hér um ræð-
ir. Blettir þessir eru sem sé
allir útsparkaðir, og sumir
þeirra raunar orðnir eitt flag.
— Fólk virðist nefnilega seint
ætla að skilja, að varnaðar-
orðin „Gangið ekki á grasinu"
eiga ekki siður við á vetrum
heldur en sumrum. Þau eiga
meira að segja fremur við á
vetrum en sumrin, því að þá er
rótin oftast lausari fyrir. .. .
En, sem sagt, ég ætlaði mér
ekki að orðlengja um þetta, —
aðeins vildi ég færa fram þá
ósk, að Reykvíkingar lærðu að
temja sér betri siði í umgengni
við nýgræðinginn. — HIíðabúi“.
* ★ *
lsfisksalan
Hinn 21. þ. m. seldi Geir 3619
kit fyrir 14115 pund í Grimsby.
Karlsefni seldi 3904 kit fyrir 15044
pund 23. þm. í Grimsby.
Ríkisskip
Hekla er á Austfjörðum á suð-
urleið. Esja verður væntanlega á
Akureyri í dag. Herðubreið er á
Austfjörðum. Skjaldbreið er vænt-
anleg til Reykjavikur í dag að
vestan og norðan. Þyrill er norð-
anlands. Ármann fer frá Reykja-
vík síðdegis í dag til Vestmanna-
eyja. Oddur er á Austfjörðum á
norðurleið.
Eimskip
Brúarfoss fór frá London 23.
þ. m. til Grimsby, Hull og
Reykjavíkur. Dettifoss kom til
Haifa i Palestinu 21. þm. Fjall-
foss er i Reykjavik Goðafoss fór
frá Rotterdam 21. þm. til Reykja-
víkur. Lagarfoss fór frá Reykjavík
í gærkvöld, 24. apríl, til Vest-
mannaeyja og Isafjarðar. Sel-
foss fór frá Gautaborg 22. þm. til
Reykjavíkur. Tröllafoss fór frá
Reykjavik 14. þm. til New York.
Tovelil fer væntanlega frá Rott-
erdam 25. þm. til Reykjavíkur.
Barjama fermir í Leith um 25. þm.
til Reykjavikur. Dux fermir í
Amsterdam um 26. þm. til Reykja-
víkur. Hilde fermir í Rotterdam
um 27. þm. til Reylcjavíkur. Hans
Boye fermir í Álaborg og Odda
í Noregi i byrjun maí til Rvikur.
Katla fer frá Reykjavík í dag, 25.
apríl, til New York; fermir þar
vörur til Reykjavíkur.
Skipadeild SIS
Hvassafell losar sement á
Hvammstanga. Arnarfell lestar
kol í Blyth í Skotlandi. Jökulfell
átti að fara frá Norðfirði í dag
áleiðis til Reykjavikur.
Loftleiðir h. f.
1 dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja, Isafjarðar, Akur-
eyrar, Patreksfjarðar, Sauðárkróks
og Hólmavíkur. — Á morgun er
áætlað að fljúga til Vestmannai-
eyja- og Akureyrar.
Nieturlaknir er í læknavarð-
stofunni. — Sími 5030.
Naeturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki, sími 1760.
8.30 Morgunútvarp.
* 1 9.00 Húsmæðraþátt
ur. 10.10 Veðurfr.
12.10—13.15 Hádeg-
isútvarp. 15.30 Mið-
degisútvarp. — Kl.
18.20 Framburfðarkennsla í ensku.
18.30 Islenzkukennsla; II. fl. —
19.00 Þýzkukennsla; I. fl. 19.25
Tónleikar: Óperulög (plötur). 20.30
Akureyrarkvöld: Þættir úr sögu
héraðsíns; — samfelld dagskrá:
Erindi, frásagnir, upplestur og
tónleikar. 22.10 Djassþáttur (Svav
ar Gests). 22.40 Dagskrárlok.
Stúdentar 1941 frá Menntaskól-
anum í Reykjdvík halda áríðandi
fund í Iþöku laugardaginn 28.
apríl e. h.
Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Guðlaug Ólafs-
dóttir frá Flatey
og Hákon Hákon-
arson, sjóm.. Rvik.
Rafmagnsskömmtunin.
I dag, kl. 11—12, verður raf-
magnslaust i Reykjavík á svæði
sem nær yfir Vesturbæinn frá
Aðalstræti, Tjarnargötu og Bjark
argötu. Melana, Grímsstaðaholtið
með flugvallarsvæðinu, Vesturhöfn
ina með Örfirisey, Kaplaskjól og
Seltjarnarnes fram eftir.
Á sumardaginn
fyrsta voru gef-
in saman í
hjónahand af
sr. Bjarna Jóns-
syni ungfrú
Nína Lárusdóttir frá Seyðisfirði
og Hans Benjamínsson, rennismið-
ur frá Seyðisfirði. Heimili ungu
hjónanna er á Grandavegi 39.
Flugfélag Islands
1 dag er áætlað ’að fljúga til
Akureyrar, Vestmannaeyja, Helli-
sands og Sauðárkróks. Á morgun
eru ráðgerðar flugferðir tl Ak-
ureyrar, Vestmannaeyja, Reyðar-
fjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Neskaup
staðar, Seyðisfjarðar og Sauðár-
króks. — GuIIfaxi kom til Reykja-
víkur í gærkvöldi frá Lóndon.
Tafl- og bridgeklúbburinn
tilkynnir: Aðalfundurinn er
í kvöld. Stjórnin.
Kvennaheimsókn
Framhald af 8. síðu.
gestirnir fiestir fara meö
„Brand“ norður, en nokkrir
þeirra þó landveg. Ættu ís-
ilenzkar konur að athuga það,
að þær geta keypt sér far með
skipinu norður, og auðvitað er
þeim heimil þátttaka í öðrum
þeim ferðalögum og samkom-
um sem efnt verður til í sam-
bandi við heimsóknina. Verður
þátttökugjald ávalt haft svo
lágt sem frekast er kostur, Til-
kynningar um þátttöku verða
að hafa borizt fyrir 1. júlí, í
síðasta Iagi, en eftirtaldar kon-
ur veita þeim móttöku: Arn-
heiður Jónsdóttir, sími 4768,
Llára Sigurbjörnsdóttir, sími
3236, Sigríður Eiríks, sími 1965,
Sigríður Magnússon, sími 2398,
Þóra Vigfúsdófctir, sími 5199.
Þær veita einnig nánari upp-
lýsingar.
Gestirnir munu búa um borð
í skipinu meðan á heimsókninni
stendur, nema hvað þær kon-
urnar, sem landveg fara norð-
ur, en þær verða að líkindum
30—40, þurfa áð gista í landi
eina nótt, og er það vissa
nefndarinnar, að gestrisni reyk-
vískra húsmæ’ðra bregðist þar
ekki fremur en endranær, og
verði auðfengin gisting fyrir
þennan hóp á heimilum þeirra.
Væri gott, að þær húsmæður,
sem hafa aðstöðu til að taka
gestina til gistingar, láti ein-
hverja af framanskráðum kon-
um vita sem fyrst. J