Þjóðviljinn - 20.05.1951, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 20.05.1951, Blaðsíða 1
Sunnudagur 20. maí 1951 — 16. árgangur — 110. tplublað SÆTTASEMJARI boð- aði sáffafund mcð fulltm um veEkalýðsíéiaganna og atvinnurekenða 1 gær og átti hann að hefjasf kl. 4 síðdegis. ÍSLENDINGAR lifa nú daga, þegar afleiðingarnar af ó- stjórn afturhaldsins, hatri þess á alþýðusamtök- unum og landráðum þess birtast í einni heildar- mynd á svo skýran hátt að engum manni getur dulizt. Það ömuriega ástand.sem nú blasir viö .á rætur sínar í „baráttu fyrstu stjórnar Alþýðu- flokksins gegn dýrtíöinni", í marsjallstefnunni, í atlanzbafsbandalagsstefnunni, í „viðreisn“ geng- islækkunarstjórnarinnar og í öðrum þeim mynd- breytingum sem afturhaldsflokkarnir þrír hafa flíkað; á undanförnum. árum. ★ 10.000 manns í verkfalli. 60—70 V ERKALÝÐSFÉLÖG h^fa nú þegar Iagt niður vinnu um allt land, og mun sízt ofmælt að stöðv- unin nái nú þegar til 10,000 vinnandi manna. Langvóðtækust er stöðvunin hér í Reykjavík, þar sem raunverulegt allsherjarverkfall mun taka við verði deilan ekki leyst án tafar. — Þessi víðtæku verkföll, þau langstærstu í sögu þjóðarinnar, eru bein og óhjákvæmileg afleiðing af árásum aftur- haldsflokkanna á íslenzka alþýðu, skipulagðri verð- bólgu margra árá, geigvænlegu atvinnuleysi á síð- asta vetri. Verkföllin eru raunveruleg uppreisn þjóð arinnar gegn afturhaldsklíkunum, þau eru dómur almennings um afturhaldsflokkana þrjá og stefnu þeirra. ★ Hundruð fjölskyldna án húsnæðis. Á SAMA TÍMA gerast þeir atburðir í húsnæðismálum Reykvíkinga sem seint munu gleymast. Hundruð fjölsyldna eru flæmd úr íbúðum sínum og eiga ekkert þak yfir höfuðið. 296 manns hafa leitað á náðir fasteignaeigendafélagsins og ná þær um- sóknir til á annað þúsund einstaklinga. 78 fjöl- skyldur hafa leitað á náðir bæjarstjórnaríhalds- ins um neyðarhjálp og geymslu á húsmunum! Hundruð fjölskyldna hafa beinlínis leýstst upp, konan býr á einum stað, maðurinn á öðrum og börnin á þeim þriðja. 33 fjölskyldur bíða þess að vera bornar út á götuna með valdi. — Þannig er ástandiö á þessu sviöi í höfuðborg íslands á miðri tuttugustu öld! Pramhald á 8. síðu Ösvííin framkoma: Mjólkursamsakn neitar börnum og sjúklihgum ujh m Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær leyfði verkfallsstjórn in fyrir sitt Jleyti alla vinnu sem nauðsynleg er til þess að nægjanlegt mjólkurmagn ber- ist til bæjarins og verði af- greitt, svo unghörn og sjúkl- ingar geti fengið mjólk. Engin mjólk kom hinsvegar til bæjarins í gær, þar sem M jólkursamsalan neitaði að fallast á mjólkUrdreifingu sem væri takmörbuð við þessa aí- ilav Yrði hinsvegar leyfð'ur fJutningur og afgreiðsla á meira mjólkurmagni en því, sem að' dómi borgarlæknis myndi nægja ungbörnum og sjúklingum, er augljóst að því miður yrði það misnotað í svo stórum stíl að ekki yrði við ún að. Borgarlæknir tjáði Þjóðvilj- anum í gær að haun myndi Iialda áfram að finna lausn á þessu máii. Verkfallsstjórnin hefur fyrir sitt leyti leyft vinnu svo sjúklingar og börn geti fengið mjólk, og verður ekki trúað að Mjólkursamsalan geti lengi staðið fast á því að láta sölusjónarmið sitt sitja í fyrir- rúmi fyrir þörf sjúklinga og barna. Ekkert (áf á sókn aiþýðu- hersins suður Kóreuskaga Ekkert lát var í gær á sókn alþýðuhersins í Kóreu á endilöngum vígstöövunum. Á austurvígstöðvunum held- ur alþýðuherinn áfram að streyma í gegnum skarð í bandarisku víglínima og talg- máður bandarísku herstjórnar- innar játaði í gær, að þar hefði herdelld úr leppher Bandaríkja manna veríð tvístrað, hún beðið mikið manntjón og misst sam- band við meginherinn. Tvær herdeildir, önnur banda rísk, voru enn í herkví í gær, þótt þeim hefði tekizt að nálg- ast nokkuð skriðdrekalið, semi leitast við að koma þeim til. hjálpar. Á vesturvígstöðvunum hefur sókn alþýðuhersins farið harðn andi og hefur hann þar rofiS nýtt skarð í bandarísku víglín- una norðaustur af Seoul og tek- ið Uijongbu. Fréttaritarar hafa, eftir bandarísku herstjórninni, að meginliðsafli alþýðuhersins hafi enn engan þátt tekið í sókn, inni. Brezka ríkisst|órnln*liefnr í hétimuiti við Iran Ógnai með „alvadegustu afleiSingum" sé eiían þjóðnýtt Brezka sósíaldemókratastjórnin hótar Iransbúum „hinum alvarlegustu afleiðingum“, ef þeir þjóðnýti olíu- lindirnar í landi sínu. 1 orðsendingu, sem brezki sendiherrann í Teheran afhenti utanríkisráðherra Irans í gær, segist brezka stjórnin vilja senda nefnd til Irans áð ræða um olíumálin. Neiti Iransstjórn hinsvegar samningum og standi fast á þyí, að hún hafi rétt til að þjóðnýta olíulindirnar hljóti það að valda vinslitum milli Ir-t an og Bretlands. Talsmaður Bandaríkjastjórn,- ar lýsti yfir í gær, að Irans- stjórn mætti ekki vænta þess að geta ráðið bandaríska sér- fræðinga í þjónustu sína, ef brezka starfsliðið við olíu-* vinnsluna verði ,hrakið á brott'. HvaS líður samúð- araðgerðunum? Hvað líður samúðaraðgerðuni félaga eins og Sjómannafélags Reykjavíkur og Hins íslenzka prentarafélags sem Alþýðusam- bandsstjórn ætlaði að tryggja verkfallsfélögunum ? Hvað líður stuðningi Alþjóða sambandsins sein Alþýðusam- bandið er nú í, og Alþýðusam- bandsstjórn ætlaði einnig að tryggja? Þannig spyrja verkamenn í Reykjavík og vilja íá greið svör. tMÓÐVIUINN 179 áskrifendur hafa safn- azt —- 21 eftir að markinu fyrir 1. júní. Samkeppnis- skráln birtist í þriðjndags- blaðinu. ★ f-.n-ty-t •' Skömmu eftir að Bandaríkjastjórn lét dönsku fitjórr.ina endurnýja éamning- inn um bandarískt hernám Giiænlands, koin bandarískt her námslið til íslands. „Vestrænt lýðræði sækir fram hröðum skrefum“, segir Bidstrup, hinn snjalli teiknari Kau mannahafuarbiaðs- ins „Land og FoIk“.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.