Þjóðviljinn - 21.06.1951, Blaðsíða 6
6) _ ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 21. júni 1951
Undir eilífðarstjörnum
Eftir A. J. Cronin
186.
DAGUR
yrðir eins heppin og ég. Kær kveðja til mömmu,
Clarice, Phyllis og pabba og auðvitað til sjálfr-
ar þín líka. Ef þú hittir Davíð, þá skaltu segja
honum, að ég hugsi stundum um hann, Það
er enginn annar karlmaður í lífi mínu núna,
Sallý. Það geturðu líka sagt honum. Mér finnst
karlmenn óþjóðalýður. En hann var nú samt
góður við mig. Nú verð ég að hætta; ég þarf
að fara að skipta um föt fyrir kvöldverðinn.
Ég er nýbúin að fá nýjan svartan kjól með
pallíettum. Hann er sannkallaður draumur, Sallý.
Vertu sæl og guð veri með þér.
Þín einlæg systir Jenný".
Þögn. Svo stundi Davíð þungan. Hann ein-
blíndi á þessa undarlegu ritsmíð og hver ein-
asta lína vakti kveljandi og þó kærar minningar
hjá honum.
„Hvers vegna hefurðu ekki sagt mér frá
þessu fyrr?“ spurði hann loks.
,,Hvað hefði það stoðað?“ sagði Sallý lágri
röddu. Svo hikaði hún andartak. ,,Ég fór strax
til Cheltenham á hótel Excelsior. Það var satt
að Jenny hafði verið þar í nokkra daga meðan
á veðreiðunum stóð, en hún var ekki í fylgd
með neinni roskinni konu“ .
„Nei, því trúi ég vel“, sagði hann.
„Þú mátt ekki taka þetta of nærri þér, Davíð“.
Hún hallaði sér fram á borðið og tók um hönd
hans „Hertu þig upp, Dabbi minn. Það er þó
alltaf gott að vita að hún lifir og líður vel“.
„Já, það er sjálfsagt gott“.
„Var það ef til vill rangt af mér að sýna þér
bréfið?" spurði hún kvíðandi.
Hann lagði bréfið aftur í umslagið og stakk
því í vasa sinn.
„Ég er feginn því Sallý“, sagði hann. „Mér
finnst að ég eigi öðrum fremur að fá að fylgj-
ast með henni“.
„Já, það fannst mér líka“.
Aftur varð þögn og hún hafði ekki verið
rofin, þegar Alf kom aftur.
Hann leit sem snöggvast á þau bæði, en
spurði einskis. Þögn Alfreðs var oft innihalds-
meiri en mörg orð.
Hálftíma seinna fóru þau af hótelinu, og
Davíð fylgdi Alfreð og Sallý að sporvagninum.
Hann reyndi að láta sem ekkert hefði í skor-
izt. Honum tókst meira að segja að brosa. Sallý
var hamingjusöm — og hann vildi ekki eyði-
leggja hamingju hennar með einkaáhyggjum
sínum eða láta hana halda að hún hefði rifið upp
gamalt sár með því að sýna honum bréfið.
Bréfið var ruddalegt og auðvirðilegt og ein
lygaþvæla frá upphafi til enda. f huga sínum
gat hann séð hina sönnu mynd: Jenný var
ein stundarkorn á ódýru hótelherbergi, meðan
lagsmaður hennar var við veðreiðarnar eða
niðri á drykkjustofunni. Allt í einu hafði henni
dottið í hug að skrifa heim —> sumpart til að
stytta sér stundir og sumpart til að nota sér
heimsóknina á þennan fína stað til að miklast
af við fjölskyldu sína. Hann andvarpaði. Ilm-
urinn af hinum ósmekklega pappír var kæfandi.
Segðu Davíð að ég liugsi stundum um hann.
Hvers vegna hafði þetta þýðingu fyrir hann?
Og skyldi hún nokkurn tíma hugsa um hann?
Jú, ef til vill gerði hún það. Hann hugsaði lika
um hana. Þrátt fyrir allt gat ha-nn ekki gleymt
henni. Honum þótti ennþá vænt um Jenný og
minningin um hana bjó enn í huga hans og
lá eins og skuggi yfir lífi hans. Hann vissi að
hann hafði aðeins ástæðu til að fyrirlíta hana,
hata hana, en hann gat aldrei sígrast á þess-
um skugga, þessari leyndu ást.
Um kvöldið sat hann við arininn og hugsaði
og skýrslan lá óhreyfð á borðinu. Hann gat
með engu móti byrjað á henni. Hann var svo
undarlega eirðarlaus. Seint um nóttina gekk
hann út og gekk lengi um auðar, tómar göt-
urnar.
Þetta eirðarleysi stóð yfir í marga daga og
í meðan gerði hann enga tilraun til að vinna.
Hann fór í langar gönguferðir. Og hann kom
enn einu sinni á Tate listaverkasafnið og þar
stóð hann lengi fyrir framan litlu myndina
eftir Degas, Leeture de la Lettre, sem hann
hafði alltaf haft mætur á. Hann leitaði upp-
örvunar og huggunar með því að lesa Tolstoi.
Hann las Önnu Kareninu, Upprisu og Mátt
myrkursins hvað á eftir öðru.
Loks tókst honum að einbeita huganum að
starfi sínu. Nú var komið fram í maí og hver
atburðurinn rak annan. Það kom æ skýrara í
Ijós að stjórnin var dauðadæmd. Davíð varð
önnum kafinn við undirbúninginn að hinni miklu
kosningabaráttu og hann gaf sér ekki tíma
til að hugsa um eigin áhyggjur. Hann gaf sér
tíma til að fara í skyndiheimsókn til Tyne-
castle til að vera við brúðkaup Sallýar, ann-
ars eyddi hann engum tíma í sjálfan sig.
Hinn 10. maí var þingið rofið og 30. maí
fóru kosningarnar fram. Þjóðnýtingin var aðal-
málið 'á stefnuskrá jafnaðarmanna. Flokkurinn
snéri sér til þjóðarinnar með kosningaávarpi
sínu.
Ástandið í kolanámuiðnaðinum er svo hörmu-
legt, að þegar í stað verða gerðar ráðstafanir
til úrbóta í kolahéruðunum, iðnaðinum verður
gerbreytt' bæði hvað vinnslu og dreifingu snert-
ir og vinnudagurinn styttur. Jafnaðarmanna-
meirihluti þjóðnýtir námurnar, því að það er
eini möguleikinn til virkra úrbóta á vinnuskyl-
yrðunum. Auk þess vill flokkurinn efla vísinda-
lega nýtingu kolanna og fylgiefna þeirra, sem
nú fara að miklu leyti til spillis.
Ávarpið var undirritað
J. Ramsay MacDonald.
J. R. Clynes
Herb.ert Morrison
Arthur Henderson
Með þessu ávarpi og stefnu þess sigruðu
jafnacarmenn, Davíð jók meirihluta sinn um
næstum tvó þúsund atkvæði. Nugent, Bebbing-
ton, Dudgeon, Chelmers og Cleghorn fengu fleiri
atkvæði en nokkru sinni fyrr. Davíð var gagn-
tekinn fagnandi eft.irvæntingu þegar hann hélt
aftur til London. Hann sá í anda námufrum-
varpið, sem flokkurinn hafði svo lengi unnið
að, vera lagt fram í þinginu og samþykkt þrátt
fyrir alla mótspyrnuna. Hann svimaði við til-
hugsunina. Loksins, hugsaði hann, loksins. 2.
júlí 1929 var þingið sett opinberlega.
5»
Rigningarkvöld eitt í haustbyrjun 1929 komu
Davíð og Harrý Nugent út úr þinghúsinu og
stóðu um stund fyrir neðan þrepin og töluðu
saman. Fyrir rúmum tveim mánuðum hafði
konungurinn haldið hásætisræðu sína og ráð1-
herrar jafnaðarmanna höfðu kysst hönd hans.
Jim Dudgeon í stuttbuxum og með gullbryddað-
an, þrístrendan hatt hafði sett sig i stellingar
með bros á vör fyrir framan ótal ljósmyndara.
Forsætisráðherrann hafði farið í skyndiheimsókn
Uppeldismálaþing
Framhald af 5. siðu.
fræðaskóla, á þess lcost að fá
menntun sína við Háskóla ís-
lands. Samhliða námi kennslu-
greinanna mundi slíkt nám, sem
reglugerð háskólans gerir ráð
fyrir, koina að verulegu gagni.
2. Því leyfir þingið sér að
skora' á fræðslumálastjórnina
og rektor háskólans, að komið
verði upp hið bráðasta kennslu-
stofnun i uppeldisvísindum við
Háskóla Islands, svo sem á-
kveðið er í lögum frá 5. marz
1947. Telur þingið, að fram-
kvæmd þessara ákvæða fræðslu
laganna hafi dregizt um of og
ótækt sé að fresta. henni leng-
ur.
3. Kennslustofnun þessi veiti
fræðslu í sem flestum þeiro
greinum, sem kenndar eru á
gagnfræðastiginu, svo sem ís-
lenzku og sögu, ensku og
dönsku og í ýmsum greinum
náttúrufræði. Leyfir þingið sér
að benda á það, að við há-
skólann starfa þegar einn eða
fleiri kennarar í mörgum
vegamestu greinum, svo sem ís-
lenzku, sögu og ensku, en við
Atvinnudeild háskólans starfa
ýmsir færustu sérfræðingar
þjóðarinnar i náttúrufræðileg-
um greinum. Hér eru því nær-
tækir hinir ákjósanlegustu
kennarar, en þess eru mörg
dæmi erlendis, að rann-
sóknar- cg kennslustörf eru
þannig sameinuð. Þingið lítur
svo á, að með samvinnu og góðu
skipulagi mætti hrinda hér í
framkvæmd, án mikils kostnað-
ar, einu brýnasta nauðsynja-
máli kennarastéttarinnar.
4. Uppeldismálaþingið vill
benda á það, að þessi stofnun
mundi greiða stúdentum leið að
stuttu, liagnýtu námi, en fjöldi
stúdenta vex með ári hverju.
Starfssvið hennar yrði æski-
leg rýmkun á starfssviði B.A.-
deildar háskólans, svo að starfs-
kraftar þeirrar deildar nýttust í
þágu kennaramenntunarinnar.
5. Róttindi til náms í um-
ræddri kennaradeild eru ákveð-
in í 14. gr. laga um kennara-
menntun. Uppeldismálaþingið
vill þó leggja áherzlu á, að
kennarar, sem þegar eru í starfi
eigi kost á að ljúka námi í deild
inni, enda þótt þeir hafi ekki
þreytt tilskilin próf.
6. Þingið vill enn fremur
leggja áherzlu á nauðsyn þess,
að þeir kennarar gagnfræða-
stigsins, sem numið hafa er-
lend mál hér á landi, stundi
framhaldsnám í sömu grein á
heimalandi málsins, hið minnsta
6 mánuði, svo að þeir nái leikni
í að tala málið. Telur þingið,
að þetta mundi leiða til hag-
nýtari tungumálakennslu.
láíuðu á sig allmarga
innbrotsþjólnaði
Maður sá er lögreglan hafði
grunaðan um að hafa f'ramið
innbrot í veitingastofun „Skeif-
an“ aðfaranótt 13. þ. m., og
hafði í gæ/Juvarðhaldi, hefur
nú játað á sig verknaðinn.
Játaði maður þessi einnig að
hafa framið innbrot á þessum
stað 29. jan. s. 1., ásamt öðr-
um manni, sem einnig hefur
meðgengið. Stálu þeir miklu af
tóbaki og sælgæti. Þá hafa
þessir sömu menn játað að þeir
hafi, ýmist annar eða báðir,
stolið úr 4.. vélbátum er lágu
hér í höfninn^,,
Iran
Framhald af 1.- síðu.
ástandið í olíudeilunni væri nú
orðið ískyggilegt. Grady sendi-
herra Bandaríkjanna í Iran,
kom í gær að rúmstokk Mossa-
degh forsætisráðherra, sem er
veikur og sárbændi hann að
hefia aftur samninga við Anglo
Iranian.
Fréttaritarar i Teheran telja,
að Mossadegh ætli ekki að láta
sig heldur biðja þingið um nýja
traustsyfirlýsingu. Hann kall-
aði ríkisstjórnina saman á auka
fund í gærkvöld til að ákveða
einstök atriði við framkvæmd
þjóðnýtingarinnar. Fréttaritar-
ar segja, áð í Teheran sé talið,
að útflutningur olíu frá Iran
muni stöðvast, því ,að afgreiðslu
mönnum í Abadan verði skipað
að ferma engin olíuskip, nema
ekipstiórar þeirra gefi kvittun
fyrir að þeir hafi tekið við olí-
unni frá yfirstjórn hins þjóð-
nýtta olíuiðnaðar.
Gullíajsi SlySur visfis
Framhald af 8. síðu.
uðust Grænlandsflug í sumar
og á grundvelli þeirra hafa nú
verið farnar nokkrar ferðir með
varning héðan, en Loftleiðir
hafa í því skyni leigt bandarísk-
ar flugvélar.
Væntanlegir samningar um
Grænlandsflug og raunar ýmis-
legt annað, svipaðs eðlis, olli
því áð Loftleiðir ákváðu að
leita fyrir sér í Bandaríkjun-
um um leigij á Skymasterflug-
vél í sumar. Samningar stóðu
alllengi um þetta og leit svo
út um tíma að þeir myndu tak-
ast. Ófyrirsjáanleg atvik ollu-
því að nýlega slitnaði upp úr
samningum þessum og varð þá
ljóst að Loftleiðir myndu ekki
fá umráð yfir fjögurra hreyfla
flugvél fyrr en „Hekla" kem-
ur heim eftir að leigusamning-
urinn um hana rennur út, en
það er í lok næst komandi sept-
embermánaðar.
Loftleiðum höfðu borizt mjög
hagstæð tilboð frá bandarísku
flugfélagi, sem vildi annast
Grænlandsflutninga fyrir Vict-
or í sumar í umboði Loftleiða
og fara þær 10 ferðir. sem enn
eru ófamar yfir jökulinn. —
Stjórn Loftleiða taldi hins veg-
ar óeðlilegt að gengið væri
fram hjá íslenzku félagi, sein
möguleika hefði til þess að ann-
ast hetta og höfðu Loftleiðir
því milligöngu um að Flugfé-
lag Islands taki þetta að sér
fvrir Poul Emile Victor. Er þvi
í ráði að Flugfélag Islands fari
þessar ferðir og mun „Gullfaxi"
verða notaður til þeirra.
Ú? heimi sósíalismans
Framhald af 3. síðu.
FINS OG áður er sagt ligg-
ur Tbilisi í dalverpi, en kringum
borgin eru hæðadrög sem nú
ey verið að klæða skógi. Á einni
þessari hæð fyrir ofan borgina
í 700 metra hæð stendur mikil
og glæsileg menningarhöll,
einna líkust höll úr Þúsund og
einni nótt. Þarna eru lestrar-
salir, taflherbergi, musíksalir,
veitingasalir. Hingað streyma
Tbilisíbúar í frístundum sínum
allan ársins hring. Rafmagns-
braut gengur þarna upp mest-
allan sólarhringinn og flytur
fólkið á þægilegan og ódýran
hátt. Kringum þe§sa höll ligg-
ur fallegasti garðurinn, sem við
sáum á ,ölju ferðalaginu, og er '
þaðan fegursta útsýni yfir borg
ina og umhverfið.
gVÖLDIÐ ÁÐUR en við fór-
um var okkur haldin skilnað-
arveizla í menningarhöllinni og
komu þangað ágætir listamenn
og dönsuðu og sungu fyrir okk-
ur. Grúsíumenn eru gleðimenn
og vilja hafa mikinn söng í
veizlum sínum, eins og Islending
ar. Við sátum þarna í mikl-
um fagnaði fram eftir nóttu, og
næsta morgun kvöddum við
hina sólfögru Grúsíu,
Þ. V.
Aðalfundur S.Í.S.
Framhald af 5. siðu.
ir Samvinnutrygginga, líftrygg-
ingafélagsins Andvöku, Fast-
eignalánafélags samvinnumanna
og stofnfundur Vinnumálasam-
bands samvinnumanna.
Aðalfund SÍS munu sækja.
100 fulltrúar frá 54 samvinnu-
féiögum víðs vegar um land,
en félagatal sambandsfélaganna
um siðustu áramót var 30 680
og á framfæri þejrra tæplega
94:000 manns.
Fjórveidaíimchir
Framhald af 1. síðu.
Sovétstjórnin bendir á, að
Gromiko hafi fallizt á að taka
á dagskrá fjórveldafundar öll
bau atriði, sem Vesturveldafull-
trúarnir hafi stungið uppá. —
Með því að neita að taka á
dagskrána atriði, sem Sovét-
ríkin leggja áherzlu á, sé verið
að reyna að skipa þeim skör
lægra en hinum rókjunum þrem,
og slikt geti sovétstjórnin ekkt
sætt sig við.