Þjóðviljinn - 23.08.1951, Qupperneq 8
I
Merkileg rœktunarsiarfsemi.
asv^1© @
ooinni m
í Orafarholtslœknum, rétt hjá Smálöndum, hefur
Skúli Pálsson íramkvæmdarstjóri hafið lax- og silungs-
rækt. Hófst starfssmin í fyrraisumar og gekk þá að ósk-
um í sumar stendur þarna yfir uppeldi hátt á annað
hundrað .þúsund silungsseiða undir eftirliti og umsjá
dansks fiskimeistara, sem hefur mikla reynslu og þekk-
ingu í þessu starfi.
Skúli Pálsscn bauð blaða-
mönnum að líta á klakstöðina í
gærmorgun og skýrði frá þeirri
reynslu er fengizt hefur og
þeim framtíðarmöguleikum,
sem tengdir eru þessu merki-
lega ræktunarstarfi.
Tafðrst vegna styrjald-
arinnar.
Um það leyti sem styrjöldin
hófst hafði Skúli þessa starf-
semi í undirbúningi og hafði
hann farið til útlanda í þeim
tilgangi að afla sér upplýsinga
og kunnáttu í öllu er að klak-
inu lýtur. En þegar stríðið
skall á reyndust svo miklir erf-
iðleikar á að hefja framkvæmd-
ir að ekki' varð úr því að sinni.
1 fyrra sumar fékk Skúli
land til starfseminnar hjá
Reykjavíkurbæ fyrir ofan Graf
arholt, við lækinn sem rennur
milli þess og Smálanda. Hefur
hann reist þar klakhús. Og er
þar hægt að klekja út ca. 3
milljónum hrogna á sama tíma.
Til starfseminnar hefur Skúli
ráðið danskan mann, Niels
Andersen, er öðlast hefur mikla
reynslu í þessu starfi.
Uppeldiskassar og
fóðrunartjarnir.
Hrognin sem Skúli fékk í vor
SalfaS af kappi í
Síldarsöltun hófst í Hafnar-
firði á miðnætti í fyrrinótt og
í söltunarstöð Jóns Gíslasonar
stóð vinna yfir til kl. 7 í gær-
morgun. Var saltað á 4—5
stöðvum í Hafnarfirði í allan
gærdag, eða frá því síld tók
að berast, en hún er flutt á bif-
reiðum sunnan af nesi, aðal-
lega frá Grindavík. Er mikil
keppni milli söltunarstöðvanna
um að salta sem mest, því leyfi
það er söltunarstöðvarnar hafa
fengið hjá síldarútvegsnefnd er
mjög takmarkað.
Söfuferðir á
markað hefjasf
um
Búizt er við, að togararnir
farj að sigia með ísfisk á
Þýzkatandsmarkað um næstu
mánaðamót og eru markaðs-
horfur þar taldar sæmilegar.
Nokkrir togarar eru farnir á
ísfiskveiðar og horfur á að all-
margir bætist í þann hóp á
næstunni. Hallveig Fróðadótt-
ir, Skúli Magnússon, Karlsefni,
Geir, Elliði og Harðbakur eru
allir farnir á ísfiskveiðar og bú
ist er við að Kaldbakur fari í
dag.
voru flutt hingað frá Dan-
mörku. Þau voru nál. 200 þús-
und talsins. Hrognin eru flutt
inn í litlum trébökkum, sem
síðan er raðað í stærri kassa
og hann fylltur með ís, til að
verja hinn dýrmæta og við-
kvæma flutning eyðileggingu.
Þegar klakinu er lokið eru
seiðin flutt úr klakhúsinu í svo
nefnda uppeldiskassa og síðan
í fóðrunartjarnirnar, en þær
eru þegar tvær komnar í notk-
Framhald á 6. síðu.
Rafveiínaþingið
hefst í dag
Níunda þing Samhands ís-
lenzkra rafveitna hefst í dag að
Selfossi. f sambandiriu eru 25
rafveitur.
Á þinginu flytur danskur
verkfræðingur, I. Ovesen, erindi
um ljósgjafa. Ovesen er ritari
danska Ijóstæknifélagsins. Er
hann kominn hingað til lands
að tilhlutan Sambands íslenzkra
rafveitna og mun flytja fyrir-
lestur í Tjarnarbíó mánudaginn
27. ágúst n.k. um hagkvæma
notkun raflýsingar . Auk þess
verða flutt á þingi þessu er-
indi um rafveitur kaupstað-
anna á Suðurlandsundirlendinu
og Sogsvirkjunina í heild.
Stjórn sambandsins skipa raf
veitustjórarnir Steingrímur
Jónsson, Valgarð Thoroddsen,
Eiríkur Briem og Óskar Árna-
son og Jakob Guðjohnsen, skrif
stofustjóri.
sexfótungar á
si
40—50 ,,sexfótungar“ komu
saman í gær að Café Höll til
að stofna með sér félag. Ekki
var formlega gengið frá stofn-
un þessa félagsskapar, sem m.
a. mun hafa það markmið að
útvega ,,sexfótungum“ hæfi-
legan fatnað, en kosin var 5
manna nefnd til að undirbúa
stofnfundinn, sem verður hald-
inn í næstu viku. Um 70 menn
hafa látið skrá sig sem væntan
lega stofnendur „Félags sex-
fótunga." Heyrzt hefur að áköf
deila sé risin innan félagsins
vegna kröfu þeirra sem eru 6
fet og einn þumlungur að fá að
vera í sérdeild, ívið rétthærri
hinum eiginlegu „sexfótungum",
og hafa þeir jafnvel hótað
klofningi ef kröfunni ver'ður
ekki sinnt.
16 vdheysturnar
r
s
Sextán votheysturnar hafa
verið byggðir í sumar á vegum
Samvinnubyggingafélags Eyja-
fjarðar, 5 heilturnar og 11 hálf
turnar. Við byggingarnar eru
notuð sænsk hringmót. Formað-
ur Samvinnubyggingafélagsins
er Valdimar Pálsson, en bygg-
ingameistari Snorri Guðmunds-
son á Akureyri.
Mikill áhugi er ríkjandi meðal
bænda á Norðurlandi fyrir því
að koma sór upp votheysturn-
um. Víða eru notuð íslenzk
steypumót við byggingu hálf-
turna.
Jörundor fékk 908 inál undan
Langanesi
Engin síld borizt til Rauíarfeafnar síðustu tvo daga
Raufarhöfn í gær-
'kvöld — Frá fréttar.
Þjóðviljans.
Ágætt veður var hér í dag,
en litlar fregnir hafa borizt af
síid. E':tt skip mun hafa feng-
ið 40 mál í dag og fleiri orðið
vör, en ekki fengið nema 1—2
háfa hvert. Eru sfldartorfurn-
ar þunnar og vont að fást við
þær.
Akureyrartogarinp Jörundur
féklc 900 mál í gær, 100 sjó'
mílur undan Langanesi og önn-
ur tvö skip munu hafa fengið
60—70 tunnur hvort á svipuð-
um slóðum. Skipin halda sig
mest 50—100 mílur undan
landi og eru það ekki nema
stærstu skipin, og þau afla-
hæstu, sem þrauka ennþá.
Til Raufarhafnar hefur ekk-
ert skip komið með síid síðustu
tvo daga, og er búið að bræða
alla þá síld sem borizt hefur
verksmiðjunum.
Fáein skip stunda nú ufsa-
veiðar við Grímsey og Skaga,
en fá lítinn afla.
Farfuglar í Fljóts-
Híð um helgina
Farfugladeild Reykjavíkur
ei'nir til skemmtiferðar austur
í Fljótshlíð um næstu lielgi og
verður það • næstsíðasta fcrð
farfugla á þessu sumri.
Á laugardag, kl. 3 e.h., verð-
ur farið héðan úr bænum aust-
ur að Múlakoti og slegið upp
tjöldum. Skrúðgarðurinn í Múla
koti verður skoðaður um kvöld-
ið. Morguninn eftir verður
gengið að Bleiksárgljúfri og á
Þórólfsfell, en komið til bæjar-
ins á sunnudagskvöld. — Um
aðra helgi, 1—2. sept, fara far-
fuglar.til berja í Hvalfirði, og
verður það síðasta ferð þeirra
á þessu sumri.
ÆtEcir ríklsstiórnin ekki að
aS afhenda bœiars;6Si é
Enn hafa engin tíðindi borizt af þeim undirtcktum,
scm sú áskorun bæjarstjórnarinnar hcfur fcngið hjá rík-
isstjórn íhalds og Framsóknar að afhenda bæjarsjóði
Reykjavíkur ca. 6 millj. kr. af söluskattiriuni í ár.
Reykvíkingum cr inilcfl forvitni á að vita hvort bæj-
arráð qg seítur borgarstjóri liafa ekki þegar flutt ríkis-
stjórninni þessa einróma samþykkt bæjarstjórnarinnar
Og þeim er ekki síður forvjfcni á að fá skýrar og greini-
legar upplýsingar um þau svör, sem ríkissíjórain hefur
gefið, hafi henni verið flutfc samþykktin.
I samþ\ kktinni var það bundið, að fengizt þessi upp-
hæð aflient bæjars.jóði, þá skyldi aukaniðurjöfnun óreiðu-
útsvaranna niður falla. — Vegna þessa veltur það á miklii
fyrir Reykvikinga hverja afgreiðslu þessi samþybkt fær
hjá ríkisstjórninni.
Þess verður því að vænta að bæjarráð og settur borg-
arstjóri láti ekki undir höfuð leggjasí að fyfgja málinu fast
eftir og taki ráðherrar afturhaldsflokkanna beggja, Ihalds
og Framsóknar, nokkurt inark á bæjarfulltrúum sömu
flokka, ætíu úrslit málsins ekki vera vafasöm.
Bæjarbúar munu fylgjast með afgreiðslu þessa máls
og ætla mætti að bæjaryfirvöldin létu eiíthvað frá sér
heyra um þetta áffur en langt i'íóur.
Sfiidenf amef
Berlínarmótsins
Þjóðviljanum hefur borizt skrá yfir hin nýju íjiróttamet
stúdenta, sem sett voru á Berlínarmótinu. 1 25 ára langri sögu
hinna alþjóðlegu stúdentaleika eru hin miklu og glæsiíegu met
Berlínarmótsins einstakur íþróttaviðburður:
FRJÁLSAR ÍÞÓTTIR:
KARLAR:
100 m hlaup: Súkórcff (Rússi)
á 10,4 sek.
110 m grind: Búlansik (Rússi)
á 14,4 sek.
10 km hlaup: Semjeneff (Rússi)
á 31:40,0 mín.
Framhald ó 7. síðu.
Verkstjórasam-
sambandið vinnor
að aukinni
menntun verkstj.
Verkstjórasamband íslands
hélt 5. þing sitt að Hólurn í
Hjaltadal, dagana 10. og 11.
þm. Mættir voru 28 fuiltrúar
frá verkstjórafélögum víðsveg-
ar að af landiiiu. Mörg mál voru
tekin til atliugunar og ýmsar
samþykktir gerðar.
Sérstaka áherzlu leggur sam-
bandið á aukna menntun verk-
stjóra. enda er það mál sem allt
kapp hefur verið lagt á, allt
frá stofnun sambandsins. Má
í því sambandi geta þess, að
Verkstjórasambandið hefur
gengizt fyrir allmörgum nám-
skeiðum er haldin hafa verið í
þessum tilgangi.
Verkstjórasambandið gerðist
á síðastliðnu ári meðlimur nor-
ræna verkstjórasambandsins, en
það samanstendur af verkstjóra
Framhald á 7. síðu.
Eslenzkir hljém-
leikar í Þýzka
útvarpinu
í útvarpinu í Frankfurt am
Main verða fimmtudaginn 6|
september næstkomandi klukk-
an 21,10— 22,00 eftir Miðevr-
ópu tíma haldnir sérstakir tón-
leikar með íslenzkum verkum
eingöngu. Dagskráin verður á
þessa leið:
Jón Lcifs: Hljómsveitarfor-
leikurinn >,Minni íslands“,
Sveinbjörn Sveinbjörnsson:
„Idylle“, píanólag,
Páll ísólfsson: „GIettur“,
Sigvaldi S. Kaldalóns: „Þrá“,
sönglag.
Jón Þórarinsson: Sónata fyr-
ir klarinett og píanó.
Jón Leifs: Tilbrigði við tema
eftir Beethoven.
Er þetta ein af þeim íslenzku
tónleikadagskrám, sem Fritz
Jaritz hefur undirbúið vegna
flutnings erlendis. Þessir tón-
leikar verða endurteknir í dag-
skrá stuttbylgjustöðvar Frank-
furt 10. september kl. 20>05 eft-
ir Miðevróputíma.
Af karfa-
veiðuiti
Egill Skallagrímsson kom
af veiðum í gærmorgun með
tæp 200 tonn af karfa.