Þjóðviljinn - 12.09.1951, Blaðsíða 8
fanna jatar loks
slnna við Kaesong
Eftir þriggja vikna hlé á vopnahlésviðræð-
unum í Kóreu vena griðrofa Bandaríkjamanna, hef-
ur bandaríska herstjórnin nú loks játað eina af
árásum flugmanna sinna á friðlýsta svæðið við
samningastaðinn Kaesong.
Joy aðmíráll, yfirmaður
bandarísku samninganefndar-
innar við vopnahlésviðræðurn-
ar, viðurkenndi í gær í bréfi
til Nam II hersht'Cðingja, sem
er fyrir samninganefnd alþýðu-
hersins og Kínverja, að í fyrri-
nótt hefði verið skotið af byss-
um bandarískrar sprengjuflug-
vélar á Kaesong.
Lofar refsingu
Joy segir, að flugstjórinn
beri að hann hafi villzt af leið,
haldið sig vera langt frá Kae-
song og skotið á Ijós, sem hann
sá. Joy lætur í ljós hryggð
bandarísku herstjórnarinnar
vegna þessa atburðar og lýsir
yfir, að ráðstafanir hafi verið
gerðar til að refsa flugmann-
inum, sem þarna var að verki.
Hingað til hefur bandaríska
herstjórnin alltaf neitað að rann
saka griðrof við Kaesong eða
haldið því fram, að þau væru
tilbúningur norðanmanna.
Ridgway svarað
Frá Peking var í gær útvarp-
að svari við tillögu bandaríska
yfirhershöfðingjans Ridgway,
að viðræður um vopnahlé verði
fluttar frá Kaesong. Segja yf-
irhershöfðingjar alþýðuhersins
og kínversku sjálfboðaliðanna,
að Kaesong sé tilvalinn fundar
staður og viðræður geti hafizt
þar á ný strax og bandaríska
herstjórnin lofi að sjá um að
frekari griðrof verði ekki fram-
in þar. Ef hún sé hinsvegar ó-
fáanleg til að gefa slíkt lof-
orð, sé það engin trygging fj rir
að nýjar ögranir verði ekki
framdar, að fundarstaðurinn sé
fluttur.
34 nemsndur voru á kjötiðnaðarnám-
skeiði Framleiðsluráðs og
Sláturfélagsins
Eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær er nýlokið
þriggja vikna námskeiði fyrir kjötiðnaðarmenn, sem haldið var
á vegum Framleiðsluráðs landbúnaðarins og Sláturfélags Suður-
lands. Kennarar voru tveir danskir sérfræðingar, þeir K. G.
Mickelsen, ráðunautur Dana í kjötiðnaði, sem kenndi allt faglegt
í þeirri grein, og Henry Hansen, slátrarameistari, sem kenndi
slátrun. 22 nemendur voru á kjötiðnaðarnámskeiðinu, en 12
lærðu slátrun.
Sláturfélag Suðurlands lagði
til húsnæði fyrir námskeiðið og
hráefnið sem unnið var úr. —
Alls voru framleiddar 44 vöru-
tegundir og seldar jafnóðum
í búðum Sláturfélagsins, Þar
voru t. d. búin til eftirlíking
af ávöxtum (eplum og per-
um) úr lifrarpylsu og máluð
með matarlit. Ennfremur gerð-
ur blóðmör á danska vísu, og
er hann allfrábrugðinn þeim
sem við eigum að venjast.
Á sláturiðnaðarnámskeiðinu
var aðallega kennd slátrun
stórgripa og höfuðáherzla lögð
á hreinlæti án þess þó að nota
mikið vatn til þvotta. Hinn
dauski slátrarameistari brýndi
það fyrir nemendum sínum að
geymsluþol kjötsins væri meira
ef skepnan væri hvíld vel fyrir
slátrunina.
Frambald á 6. síðu.
Úvenju mikið um
árekstra
Talsvert mikil brögð hafa ver-
ið að bifreiðaárekstrum síð-
ustu daga. Er ástæðan vafalaust
sú, að vegir hafa verið mjög
blautir og bifreiðastjórar oft
séð illa til vegarins fvrir úr-
komu. Virðíst fyllsta ástæða til
að brýna það fyrir bifreiðastjór-
unum að þeir gæti meiri var-
úðar í akstri en venjulega með-
an veður breytist ekki til batn-
aðar. >
Maður slasast í
bifreiðaárekstri
Rétt fyrir kl. 11 í fyrra-
morgun varð árekstur milli
tveggja bifrei'ða á gatnamót-
lun Engjavegar og Múlaveg-
ar. Önnur bifreiðin, vörubif-
reiðin R-694, valt á hliðina við
áreksturinn, og bifreiðastjórinn,
Þórður Þórðarson, Sogavegi 140
hlaut talsverð meiðsli og ligg-
ur nú rúmfastur. Báðar bicreið-
amar skemmdust mikið.
Bílstjórarnir voru báðir ein-
ir í bifreiðum sínum og slapp
hinn ómeiddur. Þór'ður var fyrst
fluttur í Landsspítalann, en
síðan heim til sín.
Rannsóknarlögreglan beinir
þeim tilmælum til þeirra, sem
kynnu að hafa verið sjónar-
vottar að árekstri þessnm, að
þeir gefi cig fram við hana
hið fyrsta.
1100 mairns
sóttu Berlínar-
sýninguna
Sýningu Berlínarfaranna á
hinum glæsilegu munum er þeim
voru gefnir á Berlínarmótinu
lauk á sunnudagskvöldið kl.
11,30. og höfðu þá 1100 manns
sótt sýninguna. ,
Allir sem á sýninguna komu
voru mjög hrifnir af gjtlfunum
til íslenzku þátttakendanna, en
þær báru greinilegan vott um
hagleik þeirra er gert höfðu og
vináttuþel gefendanna í garð
islenzku sendinefndarinnar.
Stjérnarblað Eýsir
domsmálaráð-
herra Framsóknar
A 1 blaði Steingríms fór-
sætisráðherra, Hermanns Iand-
búnaðarráðherra og Eysteins
fjármálaráðherra Var sam-
starfsmanni þeirra og dóms-
málaráðherra af Framisóknar
náð sent skeyti nú fyrir nokkr-
um dögum. Þar er það harð-
lega átalið að Bjarni Ben. hafi
tekið að elta ritstjóra með
innheimtu meiðyrðasekta. Seg-
ir orðrétt í blaðí forsætisráð-
herrans:
★ „Hitt er alvörumál, að
dómsmálaráðherra er hér að
brjóta niður hefð, sem hefur
skapað ritfrelsinu verulega
vernd. Það er líka alvörumál,
hvernig ráðherrann beitir eða
misbeitir hefðarréttinum eftir
persónulegum geðþótta. í um-
ræddu tilfelli afneitar hann
hefðarréttinum og telur lögin
hafa ríkara gildi. Þegar*hann
er hins vegar að láta veita
Sjálfstæðishúsinu vínveitinga-
leyfi telur hann hcfðarréttinn
æðri lagaréttinum, því að þá
lætur hann þverbrjóta skýr
lagafyrirmæli með jjeirri rök-
semd, að það sé orðin hefð að
brjóta þau! Þetta sýnir glöggt,
hve núv. dómsmálaráðherra er
ósýnt um að breyta réttvísi
og rökvísi, heldur fer hann
eftir persónulegum duttlunum
og flokkshagsmunum. Fleiri
enn augljósari dæmi má þó
nefna þess. að áhættusamt er
að hafa dómsmálastjórnina í
höndum slíks manns“.
★ Skyldi ekki hafa farið
um einhvern heiðarlegan Fram-
sóknarmann vnð lestur þessar-
ar opinskáu lýsingar á manni
beim sem falið hefur ver'ð
æðsta vrahl dómsmá'- landsins
— og bað einmitt af Framsókn-
arflokknum. Undir maiini. sem
annað aðalblað ríkisst.iórnar-
innar lýsir á þessá leið, eiga
Islendingar réttaröryggi sitt!
Og Framsókn lætur bióða sér
að bera ábyrgð á honum.
þlÓÐVIUIMM
Miðvikudagur 12. september 1951 —« 16. árgangUr — 206. tcílubl.
Allsherjaratkvæðagreiðsla um upp-
sögn togarasamninga Sjómanna-
félags Reykjavíkur hefst í dag
Samkvæmt fundarsam-
þykkt S.R. frá 24. ágúst s.
1. hefst allsherjaratkvæða-
greiðsla um uppsögn gildandi
samninga á togurunum frá
6. nóv. í fyrra, í dag á skrif-
stofu félagsins Hvg. 8—10.
Eru tvær spurningar lagðar
fyrir sjómenn, annars vegar
hvort þeir vilji segja upp
fyrrnefndum samningum og
hins vegar hvenær þeir vilji
segja þeim upp. Stendur at-
kvæðagreiðslan fram til 12.
okt. n. k. en segja þarf upp
samningunum með mánaðar
fyrirvara e'ða fyrir 15 okt.
n. k. ef hugsað er að segja
þeim upp við fyrsta tæki-
færi. Annars framlengjast
þeir um mánuð í senn, með
sama uppsagnarfresti.
S. 1. haust er samningar
stóðu yfir milli sjómannafél.
Reykjavíkur og útgerðar-
manna bentu sjómenn þrá-
sinnis hér í blaðinu á ýmsa
vankanta af hálfu þeirra,
er telja sig vera kjörna til
að stjórna þeim. Er ekki
tími til kominn fyrir sjó-
menn að velja sér menn úr
eigin hópi til þass að stjórna
málefnum sínum? Menn sem
þekkja kjör og hagi sjó-
manna eru færir um að tala
máli sjómanna við samnings-
borðið og er treystandi til
þess. Stjórn S.R. hefur sjálf
viðurkennt vanmátt sinn með
bréfi sínu og viðurkenning-
um á réttmæti aðfinnslna
starfandi sjómanna hér í
blaðinu, við fyrrnefnd sátta-
tilboð.
Sjómenn verða að tryggja
algeran sigur sinn í hönd-
Rússneskt síldvsiðiskip dæmt i 8 þús.
kr. sekt fyrir sð salta innan landhelgi
í fyrradag tók varðbáturinn Blátindur eitt hinna rússnesku
síldveiðiskipa í landhelgi úti af Sandgerði. I gær var skipstjóri
hins rússneska skips dæmdur í 8 þús. kr. sekt.
Skip þetta var 2,7 sjómílur eða 50 daga varðhald hafi hann
innan landhelgislínu úti af
Sandgerði, en rússnesku síld-
veiðiskipin leituðu þar land-
vars um helgina. Lá skip þetta
næst landi og annað skip fast
við það, lágu bæði fyrir akk-
erum. Voru skipverjar að salta
síld á þilfari skips þess er
næst lá landi. Kvaðst skipstjór-
inn hafa verið að flytja síldina
yfir í annað skip, hefði hann
tekið hana úr biluðu skipi, en
ekki haft pláss fyrir hana leng-
ur, og hefði sér því verið sagt
að færa hana yfir í annað
skip og hefði hann talið nauð-
synlegt að láta í hana meira
salt er hún var færð úr köss-
um i tunnur.
Skipstjórinn var sem fyrr
segir dæmdur í 8 þús. kr. sekt
ekki greitt sektina innan fjög-
urra vikna. Honum var og gert
að greiða sakarkostnað. Skip-
stjórinn hafði ekki ákveðið í
gærkvöld hvort hann áfrýjaði
dóminum, en setti tryggingu
fyrir greiðslu sektarinnar og
var því heimilt að fara sína leið.
★
Ekki létu verndaramir á sér
standa að bægja frá Reykvík-
ingum þeirri ægilegu hættu sem
stafaði af rússneska síldveiði-
skipinu þar sem það iá á ytri
höfninni. Óðara voru komnir
tveir bandarískir tundurspillari
og lagstir sinn hvoru megin við
það. t gær var þvi ekki aðeins
hlegið á Suðurnesjum heldur
einnig í Reykjavík! Svona van-
þakklát þjóð eru Islendingar.
farandi baráttu. Fjölmennið
við atkvæðagreiðsluna og
hvetjið félaga ykkar til þess
að greiða atkvæði.
Sænsk skip stunda
enn síldveiðar út
af Kolbeinsey
Siglufirði í gærkvöld. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Hingað komu í dag (11. sept-
ember) þrjú sænsk síldarskip
og hafði fréttaritari Þjóðviljans
tal af skipverjum á einu þeirra.
S. 1. laugardag voru þeir stadd-
ir 15—16 mílur norðaustur af
Kolbeinsey, en þar óð töluvert
mikil síld. Þá nótt fékk þetta
skip 50 tunnur í 40 net, en það
er yfirleitt sjaldgæft að síld
fáist í reknct þegar liún veður.
Þessi þrjú skip eru eklci hætt
veiðum og ætla aftur út að
Kolbeinsey. Telja að þar sé
mikla síld að fá ef veður leyfir.
Hér á Siglufirði liefur ekki
verið veiðiveður í 18 daga.
íslenzku síldveiðiskipin eru
öll hætt veiðum, en mörg liggja
hér ennþá vegna óveðurs. Flest
sænsku síldveiðiskipanna eru
farin heim og mörg með full-
fermi, en hjá sænska flotanum
var yfirleitt sæmileg veiði.
Fengu sænsku skipin mest af
veiðinni djúpt út af Austur-
landi.
Norsku síldveiðiskipin hafa
yfirleitt fengið ágætan afla í
reknet og mörg af norsku herpi
nótaskipunum fengu einnig góða
veiði í sumar. Hjá þeim hefur
veiðin líka yfirleitt verið fyrir
austan, en þó fengu mörg góða
veiði vestur frá, út af Isafjarð-
ardjúpi, fyrri hluta sumars.
Gjöf til Þjóðleikhússins:
Málverk af Soffíu
Guðlaugsdóttur
leikkonu
Þjóðleikhúsinu barst í gær að
gjöf málver.k af frú Soffíu
Guðlaugsdóttur, leikkonu. —
Myndina hefur gert Sigríður
Sigurðardóttir lislmálari. Mynd
þessi er gjöf frá nánustu ætt-
ingjum og vinum leikkonunnar.
Ujn leið og málverkið var
afhent mælti sr. Jón Auðuns
dómkirkjuprestur nokkur orð
fyrir hönd gefendanna, en
Guðlaugur Rósinkrans þjóðleik-
hússtjóri, þakkaði gjöfina með
stuttri ræðu.
Málver’únu hefur verið komið
fyrir i salarkynnum Þjóðleik-
hússins.