Þjóðviljinn - 22.09.1951, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 22.09.1951, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 22. sept. 1951 pIÓÐVILIINN Útgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — SÓBÍalistaflokkurinn. Rltstjórar: Magnús Kjartansson, SigurOur Guðmundsson (áb.) Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason. Blaðam.: Arl Kárason, Magnús Torfi Ólaísson, Guðm. Vlgfússon. Áuglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Simi 7500 (þrjár línur). jLskrlftarverð kr. 16 á mánuðl. — Lausasöluverð 75 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Ný skálkaskjól Sjálfstæffisflokkurinn er seinheppinn í tilraunum sín- um að fela hlutdeild íhaldsins í því einokunarkerfi, sem þjakað hefur íslendinga undanfarandi ár og þjakar enn. Verkaskipting íhaldsins í bæjarstjórn og íhaldsins í fjárhagsráði er orðin svo áberandi að hún er löngu hætt aö svara kostnaði. Það var beinlínis ekki hægt að leika þann leik lengur að láta Gunnar Thoroddsen setja upp helgisvip á bæjarstjómarfundum og lýsa yfir brennandi vilja Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn til að bæta úr hús- næðisleysinu en það strandaði allt á skuggalegri stofnun sem héti fjárhagsráð. Því þegar betur var að gáð hafði reyndar flokkur Gunnars Thoroddsen alltaf haft forust- una í þeirri skuggalegu istofnun og ráðið mestu um það einokunar- og haftakerfi sem í hug almennings hefur tengzt fjárhagsráði. Sjálfstæðisflokkurinn varð að sitja nauðugur viljugur með skömmina af þessu hafta- og ein- okunarkerfi, fólk sá í gegnum þann loddaraleik að full- trúar flokksins í einni stofnun kenndu fulltrúum hans í annarri stofnun allar vammir og skammir. Og það var Sjálfstæðisflokkurinn sem lét bandarísku húsbændurna skipa sér að afgreiða ekki frumvarpið um smáíbúðirnar á síðasta þingi, enda þótt búið væri að guma af því í Morgunblaðinu sem dæmi um dæmalaust frjálslyndi Sj álfstæðisflokksins. Nú er aftur hafinn af krafti sami söngur í Morgun- blaðinu, enda þótt tilefnið sé það eitt að þungi þess al- menningsálits gegn einokunarkerfi íhalds og Framsóknar. isem ekki sízt hefur skapazt fyrir baráttu Sósíalistaflokks- ins, hafi neytt íhaldið í bæjarstjórn og fjárhagsráði til nokkurs undanhalds í smáíbúðamálinu. En ekki virðist sá lofsöngur um frjálslyndi Sjálfstæðisflokksins ætla að verða varanlegri en hinn fyrri, ef dæma má eftir undir- tektum íhaldsins við tillögu Guðmundar Vigfússonar um ráðstafanir til að tryggja þeim mönnum nauðsynleg lán með viðráðanlegum kjörum, sem reynt hafa að notfæra sér þessa smugu í haftakerfi fhalds og Framsóknar. Viröast þarna vera að hefjast nýr þáttur í hráskinns- leik Sjálfstæðisflokksins með mál húsnæðisleysingjanna. Fjáx'hagsráð íhalds og Framsóknar veitir leyfi, bæjarstjórn lætur lóð, en síðan neitar afturhald íhalds og Framsóknar í bönkunum um lán til bygginganna. Andstaða Sjálf- stæðisflokksins í bæjarstjórn gegn jafn sjálfsagðri tillögu sýnir að það hyggst einungis taka upp nýja aðferð en hefur ekki bi'eytt um stefnu í þessum málum. Fólkið sem vantar húsnæðið á einskis góðs að vænta af íhaldinu. Þar sem íhaldið er knúið til undanhalds ein- kennast aðgerðir þess af einkunnarorðunum: Of seint, of lítið. í því máli sem öðrum hlýtur fólkið að læra að hagsmunaflokkur auðbi'askara og afturhalds tekur ekk- ert tillit til hagsmuna alþýðunnar. v«;.- •• TV*.r»y"V Siðferlisvettorð Maður er nefndur Jón Axel Pétursson. Var áður fyrr lóðs og talinn sæmilega öruggur á strikinu. Hann er Al- þýðuflokksmaður. Hann er bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins. í kosningum skammar hann íhaldið og lofar heiðarlegum Alþýðuflokksmönnum að berjast gegn bui'geisunum þar til yfir lýkur. Svo tóku ótætis burgeisarnir upp á því að fá Jóni þessum Axel Pétui'ssyni feitt embætti. Og þá brá svo við að húsbændur hans, bæjái'stjórnai’íhaldið, breytti um svip og innræti, alveg urn sama leyti. Og það sem undarlegast var. Enginn annar en Jón Axel sá nokkra breytingu á því. Því er þaö að öllum kemur það svo kynd- uglega fyrir sjónir þegar þessi „alþýðuforingi“ rís upp á bæjarstjórnarfundum og gefur flokki í’nalds og auðvalds hin sælustu siðferðisvottorð. Meira að segja ófeimnir Al- þýðuflokksmenn íara svolítið hjá sér. En ritstjórar Morg- unblaðsims í'eyna að halda glottinu í skefjum meðan þeir skrifa siðfei'ðisvottorðin vandlega upp og setja þau í ramma. Sjáið til, segja þeir, svona erum viö góðir! Hann Jcn Axel segir það! Ódýr húsgögn hjá K R O N KRON-félagi skrifar: „Mig langar til að biðja þig, Bæj- arpóstur góður, að koma á framfæri fyrir mig þakklæti til KRON fyrir þá framtakssemi að gefa almenningi kost á húsgögnum á mjög lágu verði. Ég keypti eitt sett af þessum húsgögnum, borð og 4 stóla. Borðið kostaði kr. 950,00, stóll- inn kr. 227,00, samtals 1858. Mér skilst að þetta verð sé langt fyrir neðan það sem við- gengzt í húsgagnaverzlunum al mennt hér í bæ og það svo áð skipti mörgum hundruðum kr. á einu setti. Þetta er ekki sízt athyglisvert þegar þess er gætt að efni og smíði mun vera í bezta lagi eftir því sem fag- lærður maður, sem skoðaði mitt sett, hefur tjáð mér. • Á skilið stuðning og viðurkenningu. ,,Ég vil hvetja alla þá, sem þurfa að kaupa svona húsgögn, og sem ekki láta sér á sama standa hvernig peningunum er varið, að kynna sér þetta mál, skoða húsgögnin í KRON og athuga síðan sambærileg hús- gögn og verð þeirra annars- staðar, Hygg ég þá að málið verði augljóst fyrir hverjum sem er. Ég vil að síðustu end- urtaka þakkir til KRON. Með þessu hefur félagið ennþá sýnt að það leitast við á sem flest- um sviðum að berjast gegn hin- um gífurlegu verðhækkunum, sem eru að sliga allan almenn- ing. Slík viðleitni, á erfiðum tímum fyrir alþýðu manna, er sannarlega athyglisverð og á skilið að hljóta fyllsta stuðn- ing og viðurkenningu. KRON- félagi“, Spárnaður sem ekbi borgar sig „Ásólfur“ skrifar: „Eins og allir vita fer útlit íbúðarhús- anna í bænum mikið eftir því hvernig eigendurnir hirða þau, hvernig þeim er haldið við o. s. frv. Auk útlitsins ræður þetta og miklu um endingu húsanna og skyldu menn því sízt spara þá skildinga sem til þess er varið að halda við húsum sín- um sem bezt, því slíkt hefnir sín fljótlega í stórfelldri nicur- níðslu sem innan tíðar kostar mikið fé að bæta úr svo að viðunandi sé. I sumar hefur verið óvenjulega mikið um það að fólk hefur notað góða veðr- ið í tómstundum sínum til þess að mála hús sín, þök þeirra og glugga, enda hafa mörg ibúðarhús í bænum tekið eftirtektarverðum breytingum til bóta í útliti á þessu sumri. Algjör stabkaskipti „Eitt hverfi bæjarins, sem ég er vel kunnugur í, hefur t. d. alveg verið „tekið í gegn“ , í sumar hvað þetta snertir. Þáð eru verkamannabústaðirnir í Rauðarárholtinu. Af, flest- um þeirra var málning að méstu horfin, bæði af þök- um og gluggum og þvi full þörf endurbóta. Þessar* endur- bætur hafa nú farið fram á verkamannabústöðunum og verður ekki annað sagt en þeir hafi tekið algjörum stakka- skiptum í útliti. Veit ég að allir íbúar þeirra eru bygging- arfélaginu þakklátir fyrir að hafa notað þetta góðviðrasan;a sumar til þess að tryggja end- ingu húsanna og prýða útlit þeirra. Skiljið garðana ekki eftir „En úr því ég fór að hripa þessar línur um verkamannabú- staðina og þær umbætur sem gerðar voru í sumar á útliti Framhald á 6. síðu. Elmskip Brúarfoss er I Reykjavík. Detti- foss er í Hull; fer þaðan til Lon- don, Bou'ogne, Antwerpen, Ham- borgar og Rotterdam. Goðafoss fór frá Gautaborg 18.9., væntan- legur til Reykjavíkur í dag. Gulifoss fer frá Kaupmannahöfn á hádegi í dag 22.9. til Leith og Reykjavikur. Lagarfoss er í N.Y. fer þaðan væntanlega 26.9. tii R- víkur. Reykjafoss fór frá Séte í Suður-Frakklandi 20.9. til Dord- recht í Hollandi. Selfoss er í R- vik. Tröl'afoss kom til Reykjavík- ur 18.9. frá Halifax. Ríkisskip Hekla var á Akureyri í gær- kvöld á vesturieið. Esja er í R- vílc og fer þaðan á mánudag aust ur um land í hringferð. Herðu- breið fer frá Reykjavík í kvöld til Vestfjarða. Skjaldbreið er á Skagafirði á leið til Akureyrar. Þyrill var í Hva’firði í gærkvöld. Ármann fór frá Reykjavík i gær- kvöld til Vestmannaeyja. Skipadeild SIS Hvassafell er væntanlegt til Reykjavíkur í kvöld, frá Borgar- nesi. Arnarfell lestar saltfisk fyrir ■suð-vestur'andi. Jökulfell . er í Guayaquil, Loftleiðir h.f. 1 dag er ráðgert að fljúga tii Isafjarðar og Akureyrar. Nýíega hafa opin- berað trúlofun sína uhgfru Sigurveig Kristjánsd. (Friðt- rikssonar, forstj. Ú’tíma) og Axel Schiöth (sonur Aage Schiöth, bak arameistará á Siglufirði). ^ 8,00—9,00 Morgun- útvarp.' 10,10 Veð- urfr. 15,30 Miðdeg- isútvarp. 16,25 Veð urfr. 19,25 Veðurfr. 19,30 Tónleikar: Samsöngur (pl.) 19,45 Auglýsing- ar. 20,00 Fréttir. 20,30 Útvarps- tríóið: Einleikur og tríó. 20,45 leikrit: „Brúðkaupssjcðurinn", gamanleikur eftir Peter Egge. Leikstjóri: Brynjólfur Jóhannes- son. .22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Danslög (pl.) til kl. 24.00. MESSSUR Á MORGUN: ,, Nesprestakaíl. i Messa í Fossvogs- kapellu kl. 2 e. h. — Séra Jón Thórarensen. Dóm- kirkjan. Messa kl. 11 f. h. — Séra Óslcar J. Þorláks- son. LauEarneskirkja. Messað kl. 11 f.h. — Séra Garðar Svavarsson. Öháði fríkirkjusöfnuðurinn. Messa k'. 2 e. h. — Séra Emil Björnsson. Flufélag íslands: 1 dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Vestmanna- eyja, B'önduóss, Sauðárkróks, ísa- fjarðar, Egilsstaða og Siglufjarð- ar. — Á morgun eru ráðgerðar flugferðir til Akureyrar og Vest- mannaeyja. — Guilfaxi fór í morg- un til Kaupmannahafnar og er væntanlegur aftur til Reykjavík- ur kl. 18,15 á morgun. Nýlega voru gefin saman í hjónaband ung- frú Aðalbjörg Jóhannsd. og. Bjarne Krogh, lögregluþjónn í Osló. Heimili brúð hjónanjna verður að Grue Solör í Noregi. — Nýlega voru gefin saman í hjónaband af sr. Friðrik J. Rafnar Anna María Guðmunds dóttir, Eskifirði og Pétur Sigur- jón Kristjánsson, Eyri í Glerár- þorpi. Ennfremur Björg G. Krist- jánsdóttir og Bjarni E. Bjarnason, Hrísey. 1 dag verða gefin saman í hjónaband af séra Emil Björns- syni, ungfrú Hal’fríður K.H. Stef- ánsdóttir og Helgi K. Sessilíusson, prentari. —- Heimili þeirra er í Stórholti 43. 1 dag verða gefin saman í hjónaband af séra Emil Björnssyni Sigríður Þórunn Jóns- dóttir og Guðmundur Böðvarsson, sjómaður. — Heimili þeirra verð- ur að Urðarstíg 11. Hjónunum Guð- , \ jo ' rúnu Helgu Högna 3 M dóttur og Ríkharði jfV, \ Val Magnúss., rak- W i ara, Barmahlíð 25, fæddist 12 marka sonur hinn 20. september. Orðsending frá kaffistofunni Mið- garði, Þórsgötu 1. Eftirleiðis verð- ur kvöldverður framreiddur í kaffistofunni alla daga kl. 6 til 9 e.h. Leiðrétting. í grein Þjóðvi'jáns í gær um mjólkurgjafirnar féll niður eitt núll, skólabörnin eru um 5500. Tillögu Katrinar Thor- oddsen var vísað til fræðsluráðs með 8 atkv. gegn 5. Málverkasýning Alfreds Jensens í Þjóöminjasafnshúsinu verður opin fram á n. k. fimmtudag. 1 dag og á morgun er hún opin kl. 13—22, en aðrá daga kl, 13—19. Iíomið með k j ó 1 i n n Gretíisqötu 3 Hverfisgötu 78

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.