Þjóðviljinn - 04.11.1951, Blaðsíða 3
Sunnudagur 4. nóvember 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3-
Hvítur mátar í 18. leik
BERLÍN 1853.
LANGE MAYET
1. e2—e4 e7—e5
2. Rgl—f3 Rb8—c6
3. Bfl—c4 Bf8—c5
4. 0—0 d7—d6
5. b2—b4 Rc6xb4
6. c2—c3 Rb4—c6
7. d2—d4 e5xd4
8. c3xd4 Bc5—b(i
9. h2—h3 Rc6—a5
10. Bc4—d3 d6—d5
11. e4xd5 Dd8xd5
12. Rbl—c3 Dd5—h5
13. Ilfl—elf Kc8—d8
14. Rf3—g5 Dhðxel
15. Rg5xf7f Kd8—-d7
16. Pd3—fðf Kd7—c6
17. Rf7—d8f Kc6—d6
18. Bcl—-f4 ínát.
Þáttur úr löngu drama
MtÍNCHEN 1936.
Barcza, Ungv.
Þetta er ein af ágætustu þraut-
um þessa fræga höfundar. —
Hér er sýnilega þörf skjótra að-
gerða. Riddarafráskákin kemur
manni fyrst í hug. En hvert á
riddarinn að fara? Hann þarf
að vera hæfilega fjarri kóngin-
umj en þó nógu nærri til þess
að geta veitt drottningunni að-
stoð. Frá því sjónarmiði kemur
Re3 helzt til greina. Reyndar
er hætt við því að hann verði
kónginum að bráð eftir fáeina
leiiki, því að tæpast getur drottn-
ingin bundið sig við að valda
hann jafnframt því að hún eltir
kónginn. En ef kóngurinn drep-
ur Re3, standa svörtu hjónin á
sömu línu, K á e3, D á e7, og
þá mundi drottningarskák frá
el ríða svörtum að fullu. Þetta
Dc4f, Ka5, Dc3f, Kb5 virðist
heldur ekki vænlegt. — Og þó
er til leið:
7. Db2f Kb3
8. Da3f!!
og svartur missir drottninguna
eða verður mát.
Hér hefur ein leið verið rak-
in, en sjálfsagt er að athuga
aðra möguleika svarts nánar,
atriði bendir til þess að maður sé á réttri leið: þótt eigi verði það gert hér.
1. Re3f 2. Dg4f 3. Df4f Kg3 Kf2 Ke2 Hverju svöruðu sjémenn? Framhald af 8. síðu.
4. Dflf ! Kd2 nýjar spurningar, sem ekki er
5. Ddlf! Kc3 víst að allar væru þægilegar
6. Dc2f Kb4 fyrir landherrana.
En ekki Kd4, Rf5f. Hér er kom- Við sjáum hvað setur.- Vænt
ið að örðugastá hjallanum. anlega sténdur ekiki á svari frá
Dblf virðist etranda á Rb3, og stjórn Sjómannafélagsins.
ABCDEFGH
Ojanen, Finnland.
Lítum á þessa stöðu. Fyrsta
þætti orustunnar er lokið og
svörtum hefur sýnil. veitt bet-
ur. Biskup hans og riddari hafa
gert strandhögg og drepið tvo
bændur á drottningararmi hvíts.
En aðalher hvíts stendur sókn-
búinn á kóngsvæng, svo að bezt
er að hafa gát á öllu. — Barcza
lék síðast.
26. ---- Iíe8—í'8
og þóttist við öllu búinn, en
honum brá ónotalega í brún,
þegar Ojanen lék
27. Bf4—h6!
Biskupinn er ódræpur vegna
28. Rf6 (Dc5, 29. Dg8f og 30.
De8 mát, eða Dd8, 29. Dxb4f og
30. Dxb2). Hér er því ekki
nema um éitt að gera.
27. ---- Kf8—e8
28. Bh6x£7 Ke8—-d7
Hvítur ógnaði með Rf6t, Dd4f
og Dxb2.
29. Rel—fGf Kd7—c8
30. Ri'6—tl5! De7—c5
31. Dg4xb4 Dcðxbl
32. Kd5xb4
Með glæ-ilegri taflmennsku hef-
ur hvítum tekizt að vinna mann.
' En nú hefst nýr þáttur, barátta
hvítu mannanna við riddarann
og peðin. Hvítu'r var kominn í
tímaþribg og tefldi lokin illa.
Hann tapaði Pa2 og eftir það
réði hann ekki við frípeðin þrjú.
TAFLÞRAUT
Leonid Kubbel
-.Á'í j§f
p| 41 §g#§|
a H IB ISl^lll
Ve r nd
ABCDEFGH
Fyrir nokkru birtu blöðin þá
gleðifregn að enn hefði ör-
yggi Islands aukizt að miklum
mun, því nu tækju þrír Is-
lendingar þátt í vernd lands-
ins. Voru nöfn þessara læri-
sveina iátins Norðmanns til-
greind og nefndust þeir Ólafur
T. Ólafsson landhermaður,
Ragnar Stefánsson ofursti í
flughernum og Þorgrimur Jó-
hannsson, en ekki var tilgreint
hverja tegund stríðslistar hann
iðkaði. Hins vegar var hann
talinn mestur afreksmaður
þeiira þremenninganna, enda
hafði hann hlotið verklega
kennslu í vernd framandi þjóða
á vígvöilunum í Kóreu og
reynzt svo námfús í þeirri list
að hann hefur nú leyfi til að
hafa bronsstjörnu framan á
sér. Einnig var skýrt svo frá
að hann hefði unnið það stór-
virki að sprengja upp brú i
Kóreu, þannig að hér er hon-
um eflaust falin sérstaklega
vernd islenzkra brúa. Þá þarf
maður ekki að hafa meiri
áhyggjur af þeim.
Það er glögg sönnun þess
af hvílikri umhyggjusemi
Bandaríkin hugsa um vernd Is-
lands að jafnvel íslenzkir af-
reksmenn frá Kóreu skuli
kvaddir hingað til starfs, én
það er alkunna að Islendingar
hafa reynzt öðrum fremri við
vernd þess fjariæga lands.
Er einkum tilnefndur í hern-
aðarsögunni maður að nafni
Þorvaldur Friðriksson, og birt-
ist frásögn um hann í Tim-
anum 4. júlí í sumar. Þor-
valdur þessi er þvílík hctja að
hann hefur ekki aðeins leyfi
til að bera bronsstjörnu fram-
án á sér eins og brúarvernd-
arinn, heldur einnig silfur-
stjörnu, og um tign hans fóí-
ust Timanum þannig orð: „var
hann búinn að fá þá stööu, sem
liðsforingi, sem þeir geta æðsta
fengið, er ekki hafa verið í
herforingjaskóla". Og enn var
sagt að hann sé næsti maður
við sjálft herforingjaráðið og
framkvæmi skipanir þess á .
vigvöllunum. „Það var í janúar
í vetur, í bardögunum um
Wonju, sem Þorvaldur gat sér
mikið frægðarorð fyrir góða
hcrstjórn og hugreklci. Var
sagt frá því í erlendum blöð-
um, bandarískum (Timanum
þykir rétt að taka það fram
að bandarísk blöð séu erlend),
að hann hefði haft mjög hvetj-
andi og uppörfandi áhrif á her-
menn sína, er þeir unnu mikil-
væga orustu á þessum vigstöðv-
um í 25 stiga frosti". Og enn
segir svo um Þorvald og flokk
hans: „dugnaður hans og hug-
rekki mun hafa haft mikil á-
íiril á gang styi'jaldarinnar og
er oft sagt, að með þeim á-
tökum, er þar áttu sér stað,
hafi þessi herdeild snúið gangi
styrjaldai'innar við“. Hefur
margur fengið leyfi tii að bera
framan á sér tvær stjörnur
fyrir minna, og mikið má það
vora Islendingum hjartfólgin
vitneskja að nú væru Kórvérj-
ar verndarlausir ef Þorvaldar
Friðrikssonar hefði ekki notið
við. Þess má geta að frásögn
Tímans kom frá fréttaritara
blaðsins í Borgarnesi.
Eins og alkunnugt er kemur
vernd Bandaríkjanna í Kóreu
einkum fram í því að ganga
af sem flestum innbornum
mönnum dauðum. Hafa þeg-
ar hátt í fjórar milljónir Kór-
verja látið lífið, en jafnframt
eru svo verk þjóðarinnar jöfn-
uð við jörðu, brýrnar sprengd-
ar af sérstökum brúarvernd-
urum, húsin skotin í rúst, bú-
smala eytt, akrarnir tættir
sundur. Og við verndina er
beitt nýjustu tækni. Það mun
einmitt hafa verið Þorvaldur
Friðriksson sem sagði i viðtali
við Morgunblaðið að hvar sem
hann beitti sér rynnu árnar
blóðlitaðar til sjávar. Og auð-
vitað stoðar ekki að vanþakka
verndina. — Kóreufréttaritari
Tímans í Borgarnesi skýrði
einnig frá því að austrænir
mer.ii hefðu fengið það verk-
efni í maí að „gereyða" Þor-
valdi Friðrikssyni og mönnum
hans, en málalokin hefðu orð-
ið þau að 40,000 austrænum
mönnum hefði verið gereytt í
staðinn, en af liðsmönnum Þor-
valdar féllu aðeins 134.
Því eru þessar frásagnir
stjórnarblaðanna tilgreindar að
þær sýna glöggt að vernd ís-
lands er tryggð eins og bezt
má vera af þeim mönnum sem
mesta og bezta reynzlu hafa
hlotið. Og í því er ekki litið ör-
yggi fyrir þá þjóð'sem iöngum
hefur trúað á helgi mannlifs-
ins, fyrir verkamennina sem
öy&S'Ju brýr og hús, fyrir bónd-
a,nn sem sinnir búsmala og erj-
ar jörðina, meðan árnar renna
ólitaðar til sjávar. Hins er svo
að vænta að verndararnir séu
orðnir næsta óþolinmóðir að
bíða þess að geta tekið til við
hina eiginlegu iðju sina með
verulegum afköstum, enda
hófu tveir þeirra. nýlega -til-
rauair til að vernda tvo inn-
borna æskumenn með hmfi m
sínum. — Voru þeir þó full
bráðlátir og fengu dóma fyrir
verndina. Reyndist þeim að
vonum ei'fitt að skilja það að
verk sem tryggjá rétt tii að
bera stjörnur framan á sér í
Kóreu séu saknæm i verndnr-
ríkinu Islandi, en þetta 3iu
auðvitað aðeins byrjunaröröug-
leikar. Endá fengu þeir hma
vægustu dóma, þannig að þ'að
cr þó að minnsta kosti ódývt
•sport að vernda Islending.
Á meðan hið eiginlega ve. iv-
efni er ekki talið tímabært or
áhuga verndaranna einkum
beint að menningu og siðgæði,
en á þeim sviðum eru Islenú-
ingarnir þrir auðvitað ekki
síður nýtir milligöngumenn.
Hafa þeir visað hinurn erlendu
mönnum sérstaklega á bæ’vi-
stöðvar menningarinnar í Rin-
kydink með hinum bezta ár-
angri. Verndinni er fyrst og
fremst beint að þrem megin-
dyggðum sem kommúnistar
vilja einkum feigar að sögn
Morgunblaðsins 27. október i
ár og því þurfa sérstakrar um-
hýggju við, en þær eru „skír-
lífi, hjúskapártryggð og þjóð-
rækni“. Eru þessir þrír eigin-
leikar sem alkunnugt er mjög
ríkt einkenni íslenzku auð-
mannastéttarinnar, þótt óþarfi
sé að nefna nöfn í því sam-
bandi; allir þekkja dæmin. En
þessar megindyggðir njóta nú
um fram allt verndar hins en-
lenda liðs, sem réttilega Íegg1
ur áherzlu á að gæta æskunn-
ar, og er sú vernd ekki síður
virk en hin sem íbúarnir í
Kóreu og eignir þeirra hafa
notið.
Sama daginn og Morgunblað-
ið birti forustugrein sína um
skírlifi, hjúskapartryggð og
þjóðrækni sem megineinkenni
islenzku yfirstéttarinnar, hafði
það einnig að geyma frásögn
um hvernig þær dyggðir væru
verndaðar í framkvæmd. Kom
það fram í svofelldri auglýs-
ingu frá bifreiðastöð Steindórs
Einarssonar, en sú auglýsing
hefur síðan verið þulin daglega
í útvarp: „Aukaferð til Kefla-
víkurflugvallar alla virka daga
frá Reykjavik kl. 11 s. d. Frá
Keflavikurflugvelli kl. 12,30 eft-
ir miðnætti. Ennfremur auka-
ferð alla mánudaga kl. 7 ár-
degis". Eru þessar aukaferðir
jafnt ætlaðar verndurum þeim
sem gegna skyldustörfurn sin-
um fram á nótt hér í Reykja-
vík ög. innbornum stúlkum á
ýmsum .aldri sem njóta per-
sónulegrar verndar suður á
Kefiavikurflugvelli, en um
helgar er auðsjáanlega haldið
uppi sérstakri vernd að næt-
ui'lagi, enda mun dyggðunum
þrem einkum hætt þann tima
vikunnar. Er .ekki að efa að
bifreiðar skírlífis, hjúskapar-
tryggðar og þjóðrækni séu
jafnan vel skipaðai', þannig a.ð
umhyggjan fyrir dyggðunum
færi Steindóri Einarssyni einn-
ig góðan arð að þessu sinni.
Þannig hefur vernd hinna
borgaralegu dyggða þegar ver-
ið færð í kcrfi á hinn full-
komnasta hátt og eflaust undir
yfirstjórn Islendinganna þriggjá.
Hins vegar renna árnar enn
óhtaðar til sjávar, enda Þor-
valdur Friðriksson ókominn.
Og þó rennur blóð eftir slóð
á íslandi. 1 sumar fannst á
Kefiavíkurflugvelli lik af ó-
fullburða barni úti á snjó-
skafli, vafið innan í morgun-
blað skírlifis, hjúskapartryggð-
ar og þjóðrækni. Hins vegar
liefur dómsmáaráðherra lands-
ins ekki enn komizt að niður-
stöðu um það hver tegund
verndar þar hafi verið að
verki, sú sem kennd er við
dyggðirnar þrjár, eða hin sem
ástunduð er
af mestri
f ramtaks-
semi í Kó-
reu.
Dönsk 0g íslenzk
Silkiundirföt
frá kr. 98,75 settið. —Silki-
náttkjólar frá kr. 127,50. —
Stakir undirkjólar og miili-
pi's.
ÞORSTEINSBtÐ,
Snorrabraut 61.
Drengjanærföt
og Sportsokkar með Nylon-
hæl og tá- Einnig dönsk
herranærföt.
ÞORSTEINSBÚP,
Sími 81945.
Telpubolir
frá kr. 9,25 stk. Telpubuxur
frá kr. 10,75. Skóbuxur, —
Barnaföt, Ungbarnapokar,
Bleyjubuxur, Ungbarnabolii,
Hvítt flúnel, Mislitt flúne] í
náttföt.
þorsteinsbUð,
Sími 81945.
Vínber
og melónur
eru að koma-
Einnig þurrkaðir, blandaðir
ávextir. Steinlausar rúsínur,
aprikósur, gráfíkjur í lausri
vigt.
Fyrirliggjandi:
Þurrkuð epli
Ný epli
Döðlur og gráfíkjur
í pökkum.
ÞORSTEINSBÚÐ,
S‘mi 2803.
Saumanámskeið
Mæðrafélagsins hefst í Stýri
mannaskólanum við Stýri-
mannastíg föstudaginn 9.
nóv. — Uppl. í síma 80349.
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins í Reykjavík
heldur
FUNDUfi
í Tjarnarcafé mánudaginn 5.
nóv. kl. 8.30 eh. Skemmti-
atriði: Leikþáttur: Nina
Sveinsdóttir og Klemens
Jónsson. DANS.
Stjórnin.