Þjóðviljinn - 17.02.1952, Qupperneq 8
Borgar sig ekki að kalda
göfunum ökufærum? .
flve miklu nemur tjón vegna árekstra, benzíneyðslu og
slits vegna ófærðarinnar síðan á áramótum?
I fyrradag skýrði Þjóðviljinn frá því að 10 næstu daga á
undan hefðu 12—13 bifreiðaárekstrar verið tilkynntir daglega.
1 janúarinánuði s.l. voru einu tryggingarfélaginu af fjórum,
— Samvinnutryggingum — tilkynnt 99 bifreiðatjón og telur
félagið að einn fjórðj eða einn þriðji af þeim tjónum sem það
þarf að greiða hafi ekki verið tilkynntur enn.
Áætlaður kostnaður við bótagreiðslur vegna hinna þegar tát
kynntu tjóna er áætlaður 128 þús. og 300 kr. Má því. gera ráð
fyrir að þegar tiilkynningar um öll tjón í máriuðinum hafa borizt
niuni bótagreiðslur fyrir þáu samtals nema allt að 170 þús. kr.
— aðeins hjá þessu eina tryggingarfélagi.
Þjóðviljinn hafði í gær tal af
tryggingarfélögunum, en aðeins
þetta eina félag taldi sig geta
gefið yfirlit yfir tilkynntar bóta
kröfur á undanförnum vikum,
ástæðurnar til þess að þetta
liggur ekki fyrir eru þær hve
óvenjumargir bifreiðaárekstrar
toafa orðið og líka hitt að það
getur dregizt í margar vikur
að tjón vegna árekstra séu til-
ðiynnt.
Einum atvinnu-
leysingja færra
Forstjórastaðan við Inn-
kaupastofnun ríkisins hefur
yerið laus síðan Finnur Jóns-
son féll frá, og voru um hana
mikil átök að tjaldabaki. Vildi
AB-flokkurinn ólmur halda
bitlingnum, en Framsókn og
Ihaldið vildu einnig hreppa
hann. Nú hefur Ihaldið orði'ð
hiutskarpast og staðan verið
veitt Eyjó'lfi Jóhannssyni. Ekki
er vitað hvort hann hefur verið
meðal þeirra 718 er síðast létu
skrá sig atvinnulausa.
Falin skráning og
utgáfa nýyrða
Menntamálaráðherra hefur
falið stjórn ísl. orðabókarinnar,
þeim dr. Alexander Jóhannes-
syni, háskólarektor; dr. Þorkeli
Jóhannessyni, prófessor; og
dr. Einari Ól. Sveinssyni, pró-
fessor, að hafa umsjón með
skráningu og útgáfu nýyrða
sem fé er veitt til í fjárlögum
þessa árs. Er gert ráð fyrir
að skráningu nýyrða verði lok-
ið fyrir 1. júlí n. k. og mun
þá Menntamálaráðuneytið sjá
um að þau verði gefin út al-
menningi til leiðbeiningar, —
(Frá menntamálaráöuneytinu).
Á s.l. ári munu Samvinnu-
tryggingar hafa orðið að greiða
1350 til 1400 tjón vegna á-
rekstra. I sumum tilfellum er
vitanlega um litla upphæð að
ræða, en í einstöku tilfellum
allt uppí 30—40 þús. kr.
Venjulega mun lögreglunni
ekki tilkynnt um nema einn
þriðja af bifreiðaárekstrunum
og tjónum sem verða af þeim,
og gefa því upplýsingar sem
byggðar eru á tölum lögregl-
unnar villandi mynd af þeim
bifreiðatjónum sem verða ár-
lega.
Aðalástæðan til hinna mörgu
árekstra undanfarnar vikur hef-
ur ver'.ð ófærðin á götuntim.
Hjá Samvinnutryggingum ein-
um munu bótagreiðslurnar vart
verða undir 200 þús. kr. Þá hef-
ur ekki verið tekið með atvinnu-
tap og veikiridi sem verða af
umferðaslysum. Ekki heldur
hefur verið vikið að þeirri
benzíneyðslu og bílasliti sem
beinlínis hefur orsakazt af ó-
færðinni.
Það hlýtur því óhjákvæmilega
að vakna spurningin: Borgar
það sig ekki að halda göt'unum
umferðarhæfum ? Það sem af er
þessu ári er a. m. k. ekki hægt
að bera því við að ekki hafi
fengizt vinnuafl til að moka
göturnar.
Fýkur yfir hæðir
Austurbæjarbíó hefur hafið
sýningar á athyglisverðri kvik-
mynd, „Fýkur yfir hæðir“, en
myndin er byggð á hinni kunnu
skáldsögu Emily Bronte sem
út kom í íslenzkri þýðingu í
vetur.
Það er full ástæða til að
mæla með kvikmynydinni, sem
er vel gerð og prýðilega leik-
in; með aðalhlutverkin fara
Laurence Olivier og Merle Ob-
eron.
UiræÉ Wur um list og samtíð
Næstkomandi miðvikudags-
kvöld verður nýstárlegur um-
ræðufundur í Listamannaskál-
anum.
Það er Listvinasalurinn sem
gengst fyrir fundinum og um-
ræðuefnið er: Listin og samtíð-
in. Frummælandi er Valtýr Pét-
ursson listmálari, en síðan eru
frjálsar umræður, og er þeg-
ar vitað að þær muni verða
fjörugar og hin andstæðustu
sjónarmið koma fram.
Þar sem búast má við mikilli
aðsókn að fundinum verður að
tákmarka aðgang við styrkt-
armeðlimi Listvinasalarins og
alla starfandi listamenn lands-
ins eldri sem yngri. Hins vegar
skal vakin athygli á því að
Valtýr Pétursson
Listvinasalurinn veitir viðtöku
nýjum styrktarmeðlimum dag
hvern kl. 1—7.
vegna gin- ©g klaufaveiki
Félagsmálaráðuneytið hefur
auglýst nýjar varúöarráðstaf-
anir gegn gin- og klaufaveiki.
Samkvæmt því verða engin ný
abvinnuleyfi veitt erlendum
mönnum, nema brýnasta nauð-
syn krefji og að viðhöfðum
sérstökum varúðarráðstöfun-
um. Af sérstökum ástæðum
verða útlendingum sem hér
dveljast ekki veitt ferðaleyfi
til útlanda; og ennfremur hafa
verið afturkölluð leyfi sem veitt
hafa veri'ð til fólksskipta við
landbúnaðarstörf. — Auglýsing
um þetta efni er birt á öðr-
um stað í blaðinu.
ÞlÓÐVlLllNN
Sprinúdagur 17. febrúar 1952 — 17. árgangur — 39. tölublað
Munið Jræðslufimd Sosí-
gsiíis 1
©
Fræðslufundur Sósíalistafélags Reykjavíkur hefst
í Stjörnubíóli kl. tvö í dag. Þar verður sýnd sovét-
myndin „Samsæri hinna fordæmdu“. Hún er tekin
með eðlilegum litum, fjallar um stjórnmálaátökin
í Austurevrópulöndunum eftir styrjöldina og er
ein bezt gerða mynd sem hingað hefur borizt
árum saman. Á undan myndinni flytur Magnús
Kjaitansson nokkur inngangsorð. — Öllum sósíal-
istum er heimill aðgangur.
Itölsb söngvamynd
Trípó’ibíó hefur nú hafið
sýningar á ítalskri stórmynd,
Bajazzo, gerðri eftir hinni
heimsfrægu óperu Leoncavallo:
Pagliacci.
Fer sjálfur Tito Gobbi með
eitt áðalhlutverkið, og er þá
ekki að sökum að spyrja.
Allir hljómhstarvinir ættu að
sjá þessa mynd.
Bærinn samþykkur leng-
ingu flugbrautarinnar
Hægt að hefja fiamkvæmdii með litlnm fyiiivaia
1 framhaldi af viðræðum bæjarráðs við ríkisstjórnlna s.l. mið-
vikudag um atvinnuleysið hér í bænum og leiðir til að bæta úr
því, þar sem m. a. bar á góma fyrirhuguð lenging flugbrautar á
Reykjavíkurflugvelli, ræddi bæjarráð málið á fundi sínuni í
fyrradag. Samþykkti bæjarráð fyrir sitt leyti lengingu flug-
brautarinnar.
Norskur styrkur
til háskólanáms
Samkvæmt tilkynningu frá
norska sendiráðinu í Reykja-
vík hafa Norðmenn ákveðið að
veita íslenzkum- stúdent styrk,
áð fjárhæð 3200 norskar krón-
iir, til háskólanáms í Noregi
næsta vetur. Koma einkum til
greina stúdentar, er nema vilja
norska tungu, sögu Noregs,
norska þjófimenjafræði, -dýra,
grasa- og jarðfræði Noregs,
kynna sér norskt réttarfar og
bókmenntir.
Styrkþegi skal dvelja við
nám í Noregi a.m.k. 8 mán-
uði á tímabilinu frá 1. septem-
ber til maíloka.
Þeir, sem kynnu að hafa
hug á að hljóta þenna styrk,
sendi umsóknir til menntamála-
ráðuneytisins fyrir 1. apríl n.
k., ásamt afriti af prófskír-
teini og meðmælum, ef til eru.
(Frá menntamálaráðuneytinu.)
Á bæjarráðsfundinum mættu
þeir Agnar Kofoed-Hansen
flugvallarstjóri, Hörður Bjarna-
son, skipulagsstjóri, Marteinn
Björnsson, verkfræðingur og
Þór Sandholt. Skýrðu þeir fyr-
irhugaðar framkvæmdir við
stækkun brautarinnar. Ef af
framkvæmdum verður á að
lengja flugbrautina um 250
metra eða úr 1450 metrum í
1700 metra. Er nauðsyn þessa
rökstudd me’ð því að stærri
flugvélar en þær sem nú eru
notaðar til millilandaflugs geti
ekki athafnað sig á vellinum
nema ílugbrautir séu lengdar.
En 5 ráði mun vera hjá Flug-
félagi Islands að afla sér stærri
flugvéla en nú eru fyrir hendi.
Þá telja forráðamenn flug-
málanna mikils vert, vegna
samkeppninnar við hin erlendu
flugfélög sem hafa viðkomu-
stað á Keflavíkurflugvelli, að
fariþegarnir eigi kost á að
fljúga beint héðan af Reykja-
víkurflugvelli til útlanda og
losna þannig við ferð suður á
Reykjanesskaga.
Ef af framkvæmdum verður
við stækkun flugbrautarinnar
ætti allstór hópur verkamanna
og vörubílstjóra að geta kom-
izt þarna að störfum. — Yrði
þetta fyrst og fremst vinna
við grjótnám og flutning grjóts
ti] hinna fyrirhuguðu fram-
kvæmda.
1 þetta verkefni er unnt að
ráðast með mjög stuttum fyr-
irvara. Þess verður því a'ð
vænta að ríkisstjórnin dragi
ekki málið á langinn heldur
verði framkvæmdir hafnar án
tafai, og þannig að nokkru leit-
ast við að bæta úr því sívax-
andi atvinnuleysi sem þjakar
reykvíska verkamenn og vöru-
bílstjóra.
Ferðafélag Islands efnir til Ijós-
niyndasýningar á næsta liansti
Haláin í tilefni af 25 áia afraæli félagsins
Ferðafélag Islands efnir á komandi hausti til ljósmyndasýn-
ingar, sem haldin verður í Listamannaskálanum. Verður hún
væntanlega opnuð um miðjan nóvember n.k. Sýning þessi er
baldin í tilefni 25 ára afmælis Ferðafélagsins. Hefur það haldið
þeirri venju að efna til Ijósmyndasýningar á 5 ára fresti, en
féll þó niður 1942, aðallega. vegna styrjaldarinnar og efnis-
skorts á Ijósmyndavörum.
Síðasta sýning var haldin í
Listamannaskálanum 1947. —
Þátttaka í henni var góð og
samtals voru um 400 ljósmynd-
ir sýndar. Aðsókn að henni;
var með ágætum og samtals
sáu hana um 6000 manns.
Myndwnnm skipt í flokka
Ákveðið hefur verið að
myndunum á næstu ljósmynda-
sýningu verði skipt í flokka.
Ber þá fyrst og fremst að
nefna landslagsmyndir, en fyr-
ir þeim hefur Ferðafélagið
hvaö mestan áhuga vegna land-
kynningarstarfsemi sinnar og
árbókarútgáfu. I öðru lagi
verða sýndar litskuggamyndir
og jafnvel kvikmyndir, er sýnd-
ar verða ákveðna tíma á kvöld-
in. Loks verður svo öðrum
myndum, hverju nafni, sem þær
nefnast, skipað í einn og sama
flokk.
1 landslagsmyndaflokki verð-
ur sérstök deild með ákveðnum
fjölda mynda frá hverjum þátt-
takanda, er lýsir ákveðnu
byggðarlagi eða héra'ði.
Búast má við að toá verð-
laun verði veitt fyrir beztu
myndir í hverjum flokki.
Ef þátttaka að sýningunni
verður mjög mikil, er viðbúið
að takmarka verði fjölda sýn-
ingarmynda, og verður þá lög'ð
áherzla á að sýna þær myndir,
sem ekki hafa verið hér á sýn-
ingum áður.
LeikkvöM
Menntaskólans
Annað kvöld byrja hin ár-
legu Leikkvöld Menntaskólans
í Reykjavík. Leikurinn sem
nemendur skólans sýna að
þessu sinni nefnist Æskan við
stýrið. Höfundurinn er þýzkur,
Hubert Griffith að nafni, en
Sverrir Thoroddsen toefur þýtt
leikinn eftir enskri staðfærslu.
Leikstjórar eru að þessu
sinni tveir, þeir Baldvin Hall-
dórsson og Klemens Jónsson.
Magnús Pálsson hefur gert
leiktjöldin.
Aðalhlutverkin tvö fara með
þeir Erlingur Gíslason, V. bekk,
og Steinn Steinsson, VI. bekk.
Formaður leiknefndar er Már
Egilsson.