Þjóðviljinn - 15.03.1952, Qupperneq 8
Bíí&mark&ffcriim tekur ti! starfa
Selur notaða bíla, laudbúnaðarvélar cg vinnuvélar
1 dag h&fur nýtt fyrirtæki starfsemi sína: Eílamarkaðurinn
s.f. í Brautarholti 22. Verður þar verzlað með notaða bíla, land-
búnaðarvelar og allskonar vinnuvélar.
Bílamarkaðurinn hefur þegar
nokkra notáða bila til sölu, en
bíla tekur hann í umboðssölu,
þannig að bæði þeir sem vilja
selja bila sína og þeir sem
vilja kaupa bíl geta snúið sér
þangað og segjast forstöðu-
mennimir reyna af fremsta
megni að greiða fyrir báðum
aðilum eftir því sem við verð-
,ur lcomið. Bílamarkaðurinn tek-
ur einnig bíla til geymslu gegn
vissu gjaliji og hefur liann
10 þús. ferm. geymslupláss til
umráða.
Töluverð eftirspurn er eftir
bílum, en peningaleysi hamlar
þó mjög kaupunum. Aðallega
er spurt um fjögurra manna
bíla. og rú uppá síðkastið er
vaknáður áhugi fyrir vörubíl-
um — og stendur það vitan-
lega í sambandi við þær vinnu-
vonir hjá hernámsliðinu sem
marshallflokkarnir hafa gefið
og þá miklu stríðsbraut milli
Keflavikurflugvallar og Hval-
Hætta d nýjj-
um fldðum
í Pd
Þúsundir manna vinna að því
að styrkja stíflugarða meðfram
ánni Pó á Norður-ltalíu. Vor-
leysingarnar eru nú að byrja
í Alpafjöllum og hætta á að
nýtt flóð belji yfir héruðin,
sem verst urðu úti í stórflóðun-
um í veturrl gær var loks til-
kynnt, að 270 manns hefðu far-
izt í þeim flóðum en 200.000
orðið að flýja heimili sín.
fjarðar sem sagt er að byggja
eigi á næstunni.
Greiðsluskilmálar eru atriði
sem kaupandi bilsins þarf að
eiga við eiganda, þar sem um
umboðssölu er að ræða.
Þegar blaðamenn ræddu við
forráðamemi fyrirtækisins í
gær fengu þeir þær upp’ýsingar
að af 71 þús. kr. sem plymoth-
bíll kostar nú eru 31 þús. og
300 kr. tollar og 9 þús. og 700
kr. flutningsgjald, eða samtals
tollar og flutningsgjald 41 þús.
kr. af 71 þús. kr. söluverði.
-— Raunverulegt innkaupsverð
slíks bíls- er hinsvegar 26 þús.
18 kr. og 16 aurar.
SMp stFandaF
— losnar aftur
1 fyrrinótt strandaði norskt
fiskflutningaskip út af Sand-
gerði. Var það á leið frá Kefla-
vík, lestað saltfiski til Italíu.
Eftir um það bil klukkustund-
ar dvöl á skerinu, þar sem þáð
strandaði, losnaði það af sjálfs-
dáðum. En Slysavarnafélagið
sendi Sæbjörgu á vettvang,
enda var þá kominn nokkur
leki að skipinu og stýrisútbún-
aður þess bilaður. Dró Sæ-
björg skipið síðan til Reykja-
víkur ,og komu bæði skipin
þangað um fjögurleytið í gær.
Veður var engan veginn vont
er skipið strandaði, og er enn
óuppiýst livernig þetta hefur
borið aðb Skipið nefnist Tourkis
og er nýlegt. Mun ekki Vera um
alvarlegar skemmdir á því að
ræða.
FiskaíliMAf i fauiiar var
14.519 lestir
Fiskaflinn í janúarmánuði s.l. varð alls 14.519 smál .Til sam
anburðar má geta þess að í janúar 1951 var fiskaflinn 11.908
smál. og 1950 var hann 7.598 smál.
Hagnýting þpssa afla var sem
hér segir: (til samanburðar eru
settar í sviga tölur frá janúar
1951)
ísvarinn fiskur 4.967 smál.
(6.909); Til frystingar 7.962
smál. (1.952); Til herzlu 516
smál. (15); Til söltunar 756
smál. (924); 1 fiskimjölsverk-
smiðjur 167 smál. (1.865);
Annað 151 smál. (242).
Þungi fisksins er miðaður við
slægðan fisk með haus að und-
anskildum þeim fiski, sem fór
til fiskimjölsvinnslu, en hann er
óslægður.
Skipting aflans milli veiði-
skipa í janúar varð; Bátafiskur
Fjör í starfsemi Leikfélagsins
Sýningar á Pi-pa-ki halda áíram
Leikfélau Reyk.iavíkur hefur
starfað af miklu f.iöri í vetur.
Sýningar félaasins á kínverska
s.iónleiknum Pi-T>a-lú hafa ver-
ið íádæma vel sóttar ou verður
26. sýninu leiksins á rnorgun.
í vikunni hafði félagið innan-
félagsskemmtun með skemmti-
atriðum fyrir félagsmenn og
gesti þeirra og áður en mjög
Skálaferð í dag kl.
, 6. — Hver hreppir
ókeypis dvöl í skál
anumum páskana?
ílver farseðill fram
að páskum er liappdfættis-
miði. — Farseðlar á skrifstofu
Æ.F.R. frá kl. 1—6, sími 7510.
langt um líður getur félagið
haldið upp á 3000. sýningu, sem
það heldur hér í bæ. En sem
kunnugt er hefur félagið gert
út ieikflokka víða um land og
eru þær sýningar ekki taldar
hér með.
Sýningin á Pi-pa-ki annað
kvöld er hin fyrsta eftir nokk-
urt hlé, sem varð á sýningum
leiksins. En eftir undirtektum
áhorfenda og aðsókn að leikn-
um íná reikna með því að félag-
ið eigi eftir að sýna leikinn
nokkrum ísinnum ennþá. Er
ekki ólíklegt að 3000. sýning
lendi á þessum vinsæla sjón-
leik. — Sýningin annað kvöld
er liin 2989. í röðinni.
Varaar á Bí
Eigniz félagsir.s jukust á árinu um 3565 kr. og
nerna nú samtals 20 þús. kr.
Bíldudal. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Verkalýðsfélagið Vörn hélt aðalfund sinn sunnudaginn 2.
marz s.l. í stjóm félagsins voru kosin: Jón Kristófersson for-
maður, Kristján Ásgeirsson varafonnaður, Guðbjartur Ólason
ritari, Guðbjartur Jónasson gjaldkeri. Sigrún Jónsdóttir með-
stjómandi.
Fyrrverandi formaður, Ingi-
mar Júlíusson, senf gegnt hefur
því starfi s.l. 5 ár, og Guðný
,S. Guðmundsdóttir, sem verið
hefur meðstjómandi s.l. 11 ár,
höfðu bæði skorast undan end-
urkosningu, en fyrrv. vara-
form., Sigurður Guðmundsson,
var fluttur til Reykjavíkur.
Jón Kristófersson, hinn nýi
formaður, er fjarverandi og
gegnir því varaformaður, Krist-
ján Ásgeirsson, formemisku um
sinn.
Fjárhagur félagsins batnaði
nokkuð á s.l. ári. Jukust eignir
félagssjóðs um kr. 1306,83 í kr.
6067,47, eignir styrktarsjóðs
félagsins um kr. 1136,17 í kr.
9808,79, og vinnudeilusjóður
um kr. 1122,48 í kr. 4144,98.
Félagsmenn vom 110 í árslck
1951.
4.510 smál. Togarafiskur 10.
009 smál. eða samtals 14.519
smál.
Laugardagur 15. marz 1952 — 17. árgangur — 62. tölublað
Framf ærsla vísitalan 156 stig
Gamla vísitalan komin upp í 612 stig
Kauplagsnefnd hefur reiknað úl íramfærsluvisitöluna
miðað við verðlag 1. niar/. s.l. Reyndist hún 156 stig og
liafði hækkað um eitt stig frá næsta mánuðj á undan. Gamla
visitalan var hins vegar komin 'upp í 612 stig, og hafði
hækkað uin 257 stig síðan gengið var fellt, eða rúm 72%.
Kaup er nú greitt samkvænit vísitölunni 148 og er tíma-
kaup Dagsbrúnarmanns kr. 13,68. Ef kaiip greitt sam-
kvæmt framfærsluvísitölunni ætti ]>a ðað vera kr. 14,41 um
tímann. Og ef káup væri greitt samkvæmt gömlu vísitölunni
ætti tímakaup Dagsbrúnarinaiuis að vera kr. 18,85. Mismun-
urinn er kr. 5,17 um tímann, eða sem svarar.kr. 12.408 á
ári miðað við 300 fulla vinnudaga. Það er sú uppliæð sem á
skoi-tir að fullt Dagsbrúnarkaup hafi fyígzt með dýrtíðinni
— og er þó óreiknað milljónatuga ránið sem af atvinnuleys-
inu stafar.
EFI.IÖ íslenzkt atvlnnulíf og vel-
niegun í landinu með ]>ví að
kaupa ilvalt að öðru jöfnu inn-
lendar Iðnaðarvörar.
AÉhyglisverð viirnsýíiisig
Undanfarna daga hefur staðið yfir sýning á framleiðsluvörum
Nýju Skóverksmiðj'unnar h.f. í sýningarglugga Málarans, sem
vakið hefur verðskuldaðða athygli vegfarenda. — Verksmiðjan
hefur nú byrjað á þeirri nýjung að framíeiða karhnannaskó í
mismunandi víddum að amerískri fyrirmynd, og eru þeir þar
til sýnis í miklu úrvali, ásaml mörgum tegundum af mjög smckk-
Icgum kvenskóm.
ViSskipfi
íslands og
Danmerkur
Hinn 12. þ.m. var undirritað
í Reykjavík samkomulag um
viðskipti milli Islands og Dan-
merkur á tímabilinu frá 15.
marz 1952 til 14. marz 1953.
Samkomulagið var undirritað
fyrir hönd íslands af Bjarna
Benediktssyni, utanríkisráð-
herra, og fyrir hönd Danmerk-
ur af danska, sendiherranum í
Reylcjavílt, frú Bodil Begtrup.
Samkvæmt samkomulagi
þessu munu dönsk stjórnar-
völd veita innflutningsleyfi fyr
ir íslenzkum vörum á svipaðan
hátt og áður, þar á meðal fyrir
20.000 tunnum af saltsíld (þar
með talin kryddsíld og sykur-
söltuð síld). íslenzk stjórnar-
völd munu heimila innflutning
frá Danmörku á sama hátt og
áður hefur tíðkazt, að svo
miklu leyti sem gjaldeyrisá-
stand landsins leyfir. Auk þess
munu islenzk stjórnarvðld
leyfa útflutning til Danmerkur
á ákveðnum hundraðshlutum
af síldarlýsis- og síldarmjöls-
framleiðslu Islands á samnings-
tímabilinu.
Togararnir
Fylkir seldi ísfisk í Grims-
by í gær, 3785 kit fyrir 11438
pund.
Kaldbakur seldi ísfislc í
sl, miðvikudag, 4111 kit fyrir
11934 pund. Pétur Halldórsson
seldi í fyrradag í Hull, 4110
kit fyrir 11395 pund. — Isólfur
selur í dag.
Mjög lélegur afli
í Sanclgerði
Sandgerði.
Frá fi'éttaritara Þjóðv.
Afii liefur verið mjög iéleg-
ur hér þessa viku.
Á mánudaginn var afli frá
4—22 skippund; Víkingur var
hæstur þann dag. Á þriðjudag-
inn var hann frá 2—9 skip-
pund. Á miðvikt’idaginn var
enghm á sjó. Á fimmtudag var
hann 1—11 skippund og bát-
ai-nir sem komnir voru að þeg-
ar fréttin var send í gær höfðu
fengið mjög lélegan afla, eða
allt niður í 30—40 fiska, en
rétt er þó a,ð taka tiliit til
þess að ekki vo*u þá komnir
aðrir |en jþeir sem grynnst
höfðu farið.
Myndasýning áhugaljósmyndara opn-
uð í Listvinasalnum í dag kl. 1
130 mynáir eftir 40 áhugaljósmyndara
I dag kl. 1 verður opnuð í Listvinasalnurn á Freyjugötu ljós-
myndasýning þar s'em sýndar eru samtals 130 myndir eftir 40
áhugal jósmyndara.
Á sýningunni eru eingöngu
myndir eftir áhugaijósmyndara.
Nefndin er valdi 'myndir þær
sem teknar voru til sýningar
var skipuð þessum mönnum:
Þorsteini Jósepssyni, Hjáloari
Bárðarsyni og Guðna Þórðar-
syni.
Dómnefnd, er úthlutar tvenn-
um verðlaunum fyrir heztu
myndirnar verður skipuð at-
vinnuljósmyndurum. Áuk þess
yerða veitt tvenn verolaun þeim
myndum sem flest atkvæði fá
hjá sýningargestum, en hver
sem á sýninguna kemur fær at-
kvæðaseðil, þar sem hann skrif-
ar á þær 2 myiidir er hann
telur beztar á sýningunni.
Á sýningunni eru myndir eft-
i>- þessa áhugaljósmyndara:
Árna. Matthíasson ísafirði, Ás-
geir Long Hafnarfirðj. Auðun
Þorsteinsson Reykjavík, Axel
Jóhannesson Reykjavík, Bíbi
Framh. á 7. siðu
Pétur Lámssoo
fulltrái látisiu
Pétur Lárusson fulltrúi í
skrifstofu Alþingis andaðist s.l.
miðvikudag að heimili sínu Sól-
vallagötu 25, tæplega sjötugur
að aldri. Hann hafði átt við van-
heilsu að striða síðustu. mán-
uðina.
Pétur Lárusson var fæddur
að Valþjófsstað 4. maí 1882.
Hann hafði verið starfsmaður
Alþingis frá 1911 og m. a. lesið
prófarkir af Alþingistíðindun-
um um áratugi og auk þess
unnið að útgáfu margra ann-
arra ritverka, m. a. búið til
prentunar ritsafn Jóns Trausta,
sem Guðjón Ó. Guðjónsson gaf
út. Pétur var fyrsti nótnasetj-
ari hérlendis og sá eini um
langan tíma.