Þjóðviljinn - 18.03.1952, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.03.1952, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 18-. marz 1952 17. árgangur 64. tölublaö Aðgöiígumiðar að fundinum, sem verða áfiti í Austurbæjar- bíói s.l. sunnudag, verða end- urgreiddir í skrifstofú Sósíal- istafélags Keykjavíkur. Hvalfjörður gerður flotastöð? llva^a lyrtrinælum íók Bjarni Ben. við hjá McCormick llotaforingja? Petnr Eggerz ,5sambandsliðsforingi “stjórnarimiar McCormick yfirmaður Iierskipafiota Atlanzhafsbanda- lagsins kom til Keflavíkur í fyrradag og fyrir hádegi í gær sat hann fund í stjórnarráðinu með Bandaríkja- þjónunum Bjarna Ben. og Steingrími Steinþórssyni. Vafalaust kemur McCormick flotaforingi hingað til þéss að undirbúa hér nýjar herstöðvar og gefa ríkisstjórn- inni ný fyrinnæli þ\i ekki mun hann hafa komið alla leið hlingað til þess einis að sjá smettið á Bjama Ben. Má því vænta þess að bandaríska hernámsliðið leggi bráðJega einnig undir sig Hvalfjörð. En um þau fyrirmæli sem rík- isstjórnin hefur fengið er þjóðinnli ekkert sagt. Þegar McCormick yfirflota- foringi kom til Kefiavíkur tóku á móti honum Bjarni Ben. dómsmálaráðherra, McGaw hershöfðingi og Lawson, sendi- herra Bandaríkjanna hér. 1 fylgd með McCormick er að- sto'ðarflotafox’ingi hans, Sir Sharl Andrews. Yfirflotaforinginn ræddi við Bjarna Benediktsson dómsmála ráðherra og Steingrím Stein- þórsson forsætisráðherra í Stjórnarráðinu í gær fyrir há- degi. Að iþví loknu ræddi yfir- flotaíoringinn við blaðamenn. Kvaðst hann vera i heimsókn- arferð til allra þátttökuríkja í Atianzhafsbandalaginu, nema Luxemburg, Italíu, Grikklands og Tyrklands en ekkert þessara ríkja á land að Atlanzhafi). Til að ræða við stjórnarvöld og kynnast vandamálum. Fagurt skal mæ!» . . . Yfirflotaforinginn kvaðst bera mikla virðingu fyrir ís- lenzku þjóðinni sem hefði varð- veitt sjálfstæði sitt (!!) og lýðræðislegt stjórnarform, á- samt menningu, sem aðrar þjóð ir gætu lært af. íslendingar hafa sýnt hvernig þjóð getur lifað í friði við allar þjóðir heims. Hvernig á a'ð heimfæra þessi orð yfirflotaforingjans við þann verknað að undirbúa að drita niður • herstöðvum um landið eins og pestarkýlum mun flest- um íslendingum ofvaxið að skilja. Þrátt fyrir friðsemd íslendinga. Þrátt fyrir ummælin um frið- semd Islendinga var hafður strangur lögregluvörður um Stjórnarráðið meðan yfirflota- foringinn dvaldist þar og enn- fremur bústað bandarísku sendi sveitarinnar. Viðbrögð Bjarna Ben. voru þó ekki eins fárán- leg nú hvað lögregluvörð snerti og þegar Eisenhower kom sæll- ar minningar. Yfirflotaforinginn var vænt- anlegur brott af landinu ásamt fylgdarliði sinu s.l. nótt. Nazlstar erra liðsterkari i rat- aiiríkisþ|ónusÉu Adeuaraers era Adolís Ilitlers Ríkisútvarp Bajern birtir niðurstöður rannsóknar Rannsókn hefur verið framkvæmd á fortíð þeirra manna, sem valizt hafa í utanríkisþjónustu Vestur-Þýzka- lands. Yfirfiotaforinginn kvaðst hingað kominn til að ræða við stjórnarvöld landsins og kynna sér vandamál í sambandi við hervarnir þess. Undanfarna mánuði kvaðst hann hafa notið mjög ánægjulegra samskipta við Pétur Eggerz, sendiráðs- fulltrúa í Washington, sem gerður hefur verið fulltrúi Is- lands gagnvart flota Atlanz- hafsbandalagsins (Liasion offi- cier). FuIIIjóst mikilvægi Islands. Yfirfiotaforinginn kvað sér fullljóst hve mikilvægt Island væri og myndi hann því leggja allt kapp á að hervarnir þess væru sem öflugastar, og myndu íslendingar ekki þurfa að kvíða, cf Atlanzhafsbandalaginu tæk- ist að rækja ætlunarverk sitt. Fréttamenn frá ríkisútvarp- inu í Bajern, einu af fylkjum Vestur-Þýzkalands, hafa fram- kvæmt rannsókn og útvarpið birti niðurstöður þeirra í gær. Útvarpsmennirnir komust að raun um að hvorki meira né minna en 85% af starfsmönn- um utanríkisrá'ðuneytis Vestur- Þýzkalands voru á sínum tíma meðlimir í nazistaflokknum. Konrad Adenauer, forsætisráð- herra veitii utanríkisráðuneyt- inu persónulega forstöðu. Otvarpið í Bajern benti á, að meðal starfsmanna utanrík- isráðuneytis Adenauers er hundraðstala fyrrverandi naz- istar hærri en flokksbundinna nazista í utanríkisráðuneyti þei"ra Hitlers og Ribbentropfs. Talsmaður utanrikisráðuneyt isins í Bonn fékkst ekki til að Bevan skorar á krafa að kasta bandariska kíafanum segja neitt í gær um uppljóstr- anir útvarpsins. Útvarpinu í Bajern stjórnar ráð skipað full- trúum kirkju, verkalýðshreyf- ingar, stjórnmálaflokka og ann- arra fjöldasamtaka. Fangelsi fyrir að móðga Farúk Ahmen Hussein, formaður e g y p z k s stjórnmála- flokks, sem kallar sig þjóðernis'íinn- aða sósíalista, var í gær dæmdur í 18 mánaða fang- elsi fyrir að birta greinar, þar sem Far- — . — ---------- úk konungur var gagnrýndur. Áður höfðu þrjú blöð flokksins verið bönn- uð fyrir sömu sakir. Aneurin Bevan, foringi upp- reisnarmanna í Verkamanna- flokknum brezka, sýndi það í fyrradag, að hann álítur sig kjörinn til forystu fyrir sósíal- demókrötum hvaiwetna í Vest- ur-Evrópu. I ræðu í Norður-Englandi 'hét Bevan á sósíaldemókrata í Vestur-Evrópu að taka sjálf- stæðari stefnu gagnvart Banda- ríkjunum en þeir hafa gert til þessa. Þa'ð væri mikil skyssa að láta andlega og siðferðilega fcrystu fyrir hinum vestræna heimi komast í hendur Banda- rikjamanna, sem hefðu engan þroska til að takast á hendur það heimsforystuhlutverk, sem þeir teldu sér bera. Bevan skoraði á sósíaldemó- krata að hefja upp raust sína svo að fleira heyrðist í heimin- um en rödd bandarískra auð- kýfinga og görótt rödd Rúss- lands. Hann kva'ð æðisgengna hervæðingu Bandaríkjamanna ógna friðnum og vera vel á veg komna með að sliga.þær þjóðir. sem fylgja Bandaríkjunum að málum. Vilja fá Eisenhower heim sem fyrst Paul Hoffman, sem var yfir- stjórnandi Marshalláætlunar- innar og nú er einn af þeim, sem harðast berjast fyrir for- setaframboði Eisenhowers hers- höfðingja, hefur lýst yfir, að hershöfðinginn verði að Ikoma iheim og skýra frá stjórnmála- stefnu sinni ef hann eigi að hafa nokkra möguleika á að verða valinn frambjóðandi republikana við forsetakosning- amar í haust. Bjarni Benediktsson ásamt yfirboðurum sínum. Sir William Andrews til vinstri, en McCormick og bandaríski sendiherran t.h. „Préf. Kristjén Aiberfsson" miðdepill heimsfrétfanna Ummæli „prófessors Kristjáns Albertssonar“ voru aðal- frétt flestra vestrænna útvarpsstööva í gær. „Prófessor Kristján", sem þennan mánuð er formaður nefndar þeirrar, sem þing SÞ kaus að undirlagi Vesturveld- anna til að kynna sér ástandið í Þýzkalandi, ræddi við blaða menn í Bonn í gær. I fréttum af viðtalinu var hann hvarvetna titlaður prófess or. „Prófessorinn“ skýrði frá því, að erindi nefndarinnar til Þýzkalands í þetta skipti væri að kynna sér, hvaða starfsskil- yrði henni yrðu búin þar. Hún biði enn svars við málaleitunum til stjórnar Austur-Þýzkalands og Sjúikoff Ihershöfðingja, her- námsstjóra Sovétríkjanna, ó- víst væri, hve lengi hún myndi bíða eftir því en það yrði ekki lengi. Undir forystu „prófessor Kristjáns“ ræddu nefndar- menn í gær við Adenauer, for- sætisráðherra Vestur-Þýzka- Iands, og hernámsstjóra Vest- urveldanna. Reutersfréttastofan ' skýrði frá því í gær að Eden utanríkis- ráðherra og sendiherrar Banda- ríkjanna og Frakklands í London ynnu nú að því áð semja svar við orðsendingu Sovétríkjanna um friðarsamn- inga við Þýzkaland. Endan- lega verður gengið frá svarinu í París nú í vikunni er Eden hittir starfsbræður sína frá Frakklandi og Vestur-Þýzka- landi á fundi ráðherranefndar Evrópuráðsins. Reuter segir, að Vesturveldin muni taka það skýrt fram að þau vilja sam- Réðstefna um ‘aukna verziun í Evrópu Efnahagsnefnd SÞ fyrir Evr- ópu samþykkti einróma í Genf í gær að fela aðalritara sínum, Svíanum Gunnar Myrdal, að grennslast eftir því hjá stjórn- um Evrópulanda, hver tök eru á að auka viðskipti milli Aust- u.r- og Vestur-Evrópu. Ef Myr- dal finnst ástæða til á hann að kalla saman ráðstefnu sér- fræðinga um málið í haust og ef viðræður þeirra ganga að óskum skal kveðja til fulltrúa frá ríkisstjómum. einingu Þýzkalands en telja það prófraun á einlægrii sovét- stjórnarinnar hverja afstöðu hún tekur til nefndar „prófessor Kristjáns Albcrtssonar“. Stálverkfall vofir yfir Bandaríkjunum Verkfall stáliðnaðarmanna í Bandaríkjunum vofir yfir um næstu helgi. Á fimmtudag kem- ur fulltrúaráð sambands stál- iðnaðarmanna saman á fund til að ákveða endanlega hvort boða skuli ti] verkfalls. Stál- framleiðendur eru þegar farnir að gera ráðstafanir til að stál- bræðsluofnarnir verði tómir um helgina ef af verkfallinu skyldi verða. Síitnað upp ú r samningum í Teheran Tilkynnt var í Teheran í gær, að slitnað væri upp úr samning um Iransstjórnar og hins banda ríska Alþjóðabanka um að bankinn leggi fram fé til að hefja á ný olíuvinnslu í Iran. Stranda'ði á því að bankinn krafðist algerra yfirráða yfir olíuiðnaðinum og að flytja á ný til Irans brezka olíuvinnslu- sérfræðinga. Námumenn neita aukavinnu Fulltrúar kolanámumanna í Skotlandi ákvá'ðu í gær með 120 atkv. gegn 10 að leggjast gegn því að endurnýjaður verði til eíns árs samningur námu- manna um að vinna aukavakt á laugardögum. Moffat, formað ur skozka námumannasam- bandsins, kvað þá ekki sjá neina ástæðu til að afsala sér réttinum til fimm daga vinnu- viku ti] að höggva kol, sem fara myndu til brjálæðiskenndr ar hervæðingar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.