Þjóðviljinn - 21.03.1952, Side 8
DIÓÐVILIINM
Föstudagur 21. marz 1952 — 17. árgangur — 67. tölublað
Málverkasýningu Snorra Arinbjarnar í Listamannaskálanum
Iýkur í kvöld. Þetta er mynd af einu málverki hans á sýning-
unni, og heitir Jónsmessunótt 1945.
,Sameinuð Evrópa4 til tJral
markmið A.-bandalagsins
segir „uianríkisEéðheria" Vestur-Þýzkalands
Æ'ðsti utanríkismálaráðunautur vesturþýzku ríkis-
stjórnarinnar telur það verkefni A-bandalagsins að „sam-
eina Evrópu“ allt austur til Úralfjalla.
Prófessor Hallstein, sem er
óopinber utanríkisráðherra
Vestur-Þýzkalands þótt Aden-
auer forsætisráðherra beri ut-
anrikisráðherratitilinn, komst
svo að orði á ferðalagi í Banda
ríkjunum, að „frjáls og samein-
uð Evrópa til tjralfjalla“ væri
markmið A-bandalagsstefnunn-
ar. Blaðaþjónusta kristilegra
demókrata, flokks Adenauers,
leggur blessun sína yfir stríðs-
stefnu Hallsteins í grein sem
heitir: „Til Úral!“ og þar sem
segir: „Þetta er áætlun, sem
er eins víðtæk og frelcast verð-
ur óskað. Eðlilegir áfangar á
leiðinni að þessu takmarki eru
sameining Vestur-Evrópu, þýzk
sameiuing, endurskipun Iiinnar
frjálsu Evrópu og loks samein-
ing hennar og Austur-Evrópu,
sem frelsuð hefur verið uudan
hinu bolsévistiska oki“.
Þingflokkur sósíaldemókrata
í Vestur-Þýzkalandi hefur kraf-
izt þess, að Adenauer víki Hall-
stein úr embætti fyrir þessi
ummæli.
Eins og kunnugt er lýsti
Hitler yfir, að tilgangurinn
ineð árásarstyrjöldum hans
væri að „koma á nýrri skipan
í Evrópu“ og nú hefur verið
opinberlega staðfest i Bonn, að
Hallstein hefur fyllt utanríkis-
ráðuneyti Vestur-Þýzkalands af
aðstoðarmönnum hans við fram-
kvæmd þeirra fyrirætlana. Þing
nefnd sem rannsakað hefur á-
sakanir um að fyrrverandi naz-
istar séu fjölmennir í utanríkis-
ráðuneytinu lýsti yfir í gær, að
bær hefðu við rök að styðjast.
Þegar nefndin spurði yfirmenn
ráðuneytisins, hverju þetta
sætti, var henni svarað, að
reynsla þeirra, sem störfuðu í
ut&nríkisráðuneyti nazista væri
ómissandi.
Goðanes selnr
Togarinn Goðanes frá Norð-
firði seldi í fvrradag afla sinn
í Grimsby 3822 kit fyrir 10158
sterlingspund.
Iðnnemasamtökm
25 ára
I kvöld niinnist Félag járn-
iðnaðarnema 25 ára afmælis
síns með hófi í Tjarnarkaffi,
en það er elzta iðnnemafé-
iagið sem stofnað var hér á
landi og starfað hefur til þessa
dags.
Skemmtunin hefst með sam-
eiginlegri kaffidrykkju. Ketill
Jensson syngur einsöng. Bryn-
jólfur Jóhannesson leikari fer
með gamansögur. Ingþór Har-
aldsson leikur á munnhörpu
(með gítarundirleik) og Hjálm-
ar Gíslason skemmtir með eft-
irhermum. Að lokum verður
dansað.
Sjúkrahúsinu á
Húsavík berst
gj©f
Nýlega barst sjúkrahúsinu á
Húsavík 3000 króna gjöf til
minningar um hjónin Guðnýju
Friðbjarnardóttur og Pál Jóns-
son. Gefendur eru þrjú börn
þeirra hjóna. Fylgir gjöfinni
ósk um að upphæðinni verði
varið til kaupa á lækningatækj-
um fyrir sjúkrahúsið.
Vilja samning um
lóðarréttindi
Húseigendur í smáhúsahverf-
inu við Suðurlandsbraut hafa
skrifað bæjarráði bréf og far-
ið þess á leit áð fá 15 ára lóð-
arréttindi fyrir hús sín.
Bréfið til bæjarráðs var
undirritað af 65 húseigendum.
Var samþykkt að visa því til
samvinnunefndar bæjarins um
skipulagsmál.
Ferðaleyfi fyrir
Kristján Alberts-
son skilyrði fyrir
samningnm
Uppkast að svari Vesturveld-
anna við orðsendingu Sovétríkj
anna um friðarsamnkig við
Þýzkaland var i gær sent Ache
son, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, til endanlegrar sam-
þykktar.
Fréttaritarar segja, að í svar
inu sé það skilyrðd sett fyrir
viðræðum við sovétstjórnina að
nefnd SÞ, sem Kristján Al-
bertsson er formaður fyrir,
verði veitt ferðafrelsi um Aust-
ur-Þýzkaland.
Útför Péturs
Lárussonar
Útför Péturs Lárussonar,
fulltrúa í skrifstofu alþingis,
fór fram frá Fríkirkjunni í gær
að viðstöddu miklu fjölmenni.
Séra Friðrik Friðriksson flutti
húskveðju í heimahúsum, en
séra Þorsteinn Björnsson flutti
ræðu í kirkjunni og jarðsöng.
Félagar úr Prentarafélagi ís-
lands báru í kirkju, en starfs-
menn alþingis úr kirkju.
Genglð frá ákipiiagi
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum s.l. þriðjudag skipulags-
uppdrátt af svæðinu milli Miklu
brautar, Hlíðargerðis, Bústaða-
vegar, Hálsgerðis og Breiðholts
vegar.
Hér er verið að útskýra véí og gang hennar fyrir nemendum
véivirkjadeiidarinnar. — (Ljósm. Vignir).
Ila es darik|a imk» n vilja ráéa
kosiiingalögum Grikfelands
íhlutun Bandaríkjamanna um innanlandsmál Grikk-
lands gengur nú svo Iangt, að þeir vilja fá að ráða þar
kosningafyrirkomulaginu.
1 næstu viku hefjast nám-
skeið í trésmíði og meðferð bif-
véla. Eru þau á vegum verk-
námsskólans.
Námskeiðið í meðferð bifvéla
verður á þriðjudögum og föstu-
dögum frá kl. 8—10 síðdegis,
alls 8 klst. Verður þar kennd
meðferð á benzín- og rafmagns
kerfum bifreiða svo og ýmsar
viðger'ðir sem auðvelt er að
framkvæma á vegum úti.
Kennslugjald er 50 krónur.
Trésmíðanámskeið hefst
einnig á föstudaginn kemur og
verður á föstudags- og þriðju-
dagskvöldum kl. 8-10. Kennslu-.
gjald er 75 krónur og leggja
nemendur til efni sjálfir.
Umsóknir um námskeiðin
þarf að senda fyrir n.k. þriðju-
dag til Jónasar B. Jónssonar
fræðslufulltrúa, Iiafnarstræti
20.
Mundhnutt-
leihsmótið
Á Handknattleiksmótinu að
Háiogalandi urðu úrslit í gær-
kvöldi þessi:
Meistarafl. kvenna, Ármann
Valur, 9:0. 2. fl. kvenna,
Þróttur Fram, 3:0. 1. fl.
karla, Fram Valur, 5:3. 2. fl.
karla, Víkingur Þróttur, 9:2;
og Ármann iR 6:5. 3. fl.
karla, Valur FH, 6 : 4.
Mótið heldur áfram í kvöld.
In.nanríkisráðherra Grikk-
lands tilkynnti fyrir viku síð-
an, að fyrirhugað væri að taka
upp hlutfallskosningar á ný
vegna þess að hætta væri á
að kosningar í einmennings-
kjördæmum leiddu til einræðis.
Orð hefur leikið á því, að
Bandaríkjamenn vildu gera
Papagos hershöfðingja, for-
ingja stjórnarandstöðunnar og
helzta talsmann einmennings-
kjördæmakosninga, að einræð-
isherra í Grikklandi.
John Peurifoy, sendiherra
Bandaríkjanna í Aþenu, brá
við eftir tilkynningn innanríkis-
ráðlierrans cg lýsti yfir, að
ef hreinar hlutfallskosningar
Framhald á 7. síðu.
Ií\ikmy iidaliús
í Langholti
Á fundi bæjarráðs 18. þ. m.
voru lagðar fram nokkrar um-
sóknir um ]óð fyrir kvikmynda-
hús í Langholtsbyggð. Bæjar-
ráð samþykkti að ætla kvik-
myndahúsi fyrir hverfi'ð stað
við gatnamót austan Langholts
vegar og sunnan Drekavogs.
Skóliitit síarfar i 5 deiMaiit
í fræðslulögunum nýju var svo ráð fyrir gert að á gagn-
. fræðaskólastiginu gætu nemendur valið millj verklegs náms og
hóklegs, verknámsdeildar og bóknámsdeildar.
í fyrsta sinn í vetur hefur verið starfandi hér slíkur verk-
námsskólí fyrir 3. bekk gagnfræðastigsins og er hann í 5
deildum: sauma- og vefnaðardeild, hússtjórnardeild, sjóvinnu-
deild, trésmíðadeild og járnsmíðadeild. Eru nemendur verk-
námsskólans samtals 110.
í>á hefur enníremur verið ákveðið að hafa námskeið í tré-
smíði og meðferð bifvéla, fyrir pnglinga sem eru utan skól-
ans, og hefst það á föstudaginn kemur.
Námskeið í tré-
smíði og meðferð
biffvéla
Sauma- og vefnaðardeild.
Sauma- og vefnaðardeildin er
Skólastjóri verknámsskólans
er Magnús Jónsson og ásamt
Jónasi B. Jónssyni fræðslufull-
trúa skýrði hann blaðamönnum
í gær frá starfsemi skólans.
Trésmíðadeild.
Trésmíðadeildin er uppi á
lofti á Hringbraut 121. Þar eru
15 nemendur. Hver nemandi
hefur þar sinn verkfæraskáp
og ber ábyrgð á sínum verk-
færum. Efni legg-ja þeir til
sjálfir og eiga smíðisgripi sína.
Ennfremur er þarna rennibekk-
ur, þvinga o. fl. vélar til sam-
eiginlegra nota. Kennari þess-
arar deildar er Marteinn Sí-
vertsen.
Málmsmíða- og vélvirkjadeild.
Málmsmíðadeildin er. á sama
stað og hin fyrrnefnda. Nem-
endur eru þar 24. Þarna eru
smíðaðir meitlar, bréfahaldar-
ar, verkfærakassar, öskubakkar
o. fl. Hamingjusamastir munu
þó vélvirkjadeildarnemarnir
vera yfir vél sem þeim er kennt
á: þegar þeir hafa skilið gang
vélarinnar er hún aflöguð og
þeir látnir spreyta sig á að
koma henni í lag aftur. Kenn-
ari þessarar deildar er Jón G.
Hinriksson. •— Þeir sem stunda
nám i þessari deild geta feng-
ið stytt nám sitt í Iðnskóla,
ef þeir hverfa að slíku námi.
á efsta lofti Austurbæjarskól-
ans. Þar eru nemendur 48.
Vefstólar eru 10 og vefa stúlk-
urnar dregia og púða, en í
saumadeildinni læra þær að
sauma vinnuföt á börn, kjóla o.
fl„ ennfremur pils og blússur
á sjálfar sig. Hafa þær vinnu-
bækur þar sem þær hefta inn
snið o. fl. Efni leggja nemend-
ur til sjálfir. Kennarar deildar-
innar eru Svanhvít Friðriks-
dóttir og Hólmfriður Kristins-
dóttir.
Sjóvinnudeildin.
1 sjóvinnudeildinni eru fimm
reglulegir nemendur og auk
þess þrír. Læra þeir að hnýta
net og hefur hver þeirra hnýtt
sem svarar bálki í botnvörpu.
Kennari er Guðmundur Þor-
bjarnarson.
Bóknámsdeildin.
í bóknámsdeildinni var Rút-
ur Halldórsson að kenna ensku
í gærmorgun.
Bóknámsgreinar þær sem
kenndar eru í verknámsskólan-
um eru: íslenzka, stærðfræði,
félagsfræði og eðlisfræði í iðn-
námsdeildunum. Ennfremur eitt
eða fleiri erlend mál. Kröfur
og kennsla í þessum greinum
Framhald á 7. síðu. ■