Þjóðviljinn - 10.07.1952, Síða 8
Raufarhöfn. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Hér hefur verið landað frá kl. 4 I fyrrinótt til kl. 7 í gær,
en í fyrrakvöid fengu nokkrir bátar síM við Langanes.
Öll síldin fór í bræðslu því fitumagn hennar tr 17%, en
ekki má salta síld sem hefur undir 18% fitumagn. I sumar
eru hér 6 söltunarstöðvar. Er fólk þegar farið að flykkjast
hingað, einkanlega söltunarstúlkur.
Allur síldveiðiflotinn er nú
kominn að Slóttu. Sildin veidd-
ist við Svínalækjartanga á
Langanesi og út af Fontinum.
Hljóðið í síldveiðimönnunum er
fremur dauft, því enn er afli
hvers báts lítill. — Norðmenn
hafa fiskað vel.
Þessir bátar lönduðu hér á
Raufarhöfn:
Viðir GK 300 mál, Smári
380, Heimaskagi AK. 350,
Björgvin 400, Snæfuglinn 60,
Ægir GK 260, Smári IS 200,
Mummi GK 50, Einar Hálf-
dán 200, Flosi 130, Hilmir 180,
Muninn II. GK 216, Guð-
mundur Þorlákur 850, Ársæll
Sigurðsson 280, Páll Pálsson
JS 450, Grundfirðingur 360,
Ásbjörn 370, Vörður 450, Jón
Guðmundsson KE 400, Hag-
fcarður 40Ó.
Tveggja ára
drengur drukknar
I fyrradag vildi það sorg-
lega slys til á Dalvík að
tveggja ára drengur, Ingvar
Gestsson, féll í Svarfaðardalsá
og drukknaði.
Drengurinn var sonur hjón-
anna Jónínu Sigurjónsdóttur
og Gests Sigurðssonar. Hafði
hann ásamt öðrum dreng á
svipuðu reki farið að heiman
án þess að vitað væri um ferð-
ir þeirra. Móðir Ingvars fór því
að leita að honum og fann fé-
laga hans blautan og grátandi
austan við kaupstaðinn, en
hann gat ekki gert henni grein
fyrir því hvað gerzt hafði, en
gat sagt móður sinni það. Var
þá þegar farið að leita í
Svarfaðardalsá austan við kaup
túnið og fannst Ingvar á eins
metra dýpi skammt frá bakk-
anum. Læknir gerði þegar
h'fgunartilraunir, en þær báru
engan árangur. Líkur þykja
ibenda til að Ingvar litli hafi
fallið í ána um einni klst. áður
en hann fannst.
Kristján Jóhanns
hleypur 1500 m á
bezta tíma í ár
Meistaramót Reykjavíkur í
frjálsum íþróttum hélt áfram
í gærkvöldi. Veður var óhag-
stætt regn og bleyta enda var
árangurinn eftir því í flestum
greinum, nema 1500 m hlaupi,
þar hljóp Kristján Jóhannsson
á bezta tíma hér í ár og er
það einnig bezti timi sem
hann hefur hlaupið þessa vega-
lengd á.
Annars var þetta eitt léleg-
asta frjálsíþróttamót sem háð
hefur verið hér sl. 20 ár, og
það eftir allan Olympíuundir-
búninginn. Árangur Kristjáns
verður því eins og óasi í eyði-
mörk!
Reykjavíkurmeistarar urðú:
100 m Hörður Haraldsson Á
11,0.
400 m Ingi Þorsteinsson KR
53,6.
1500 m Kristján Jóhannsson
ÍR 4; 09,8.
Kringlukast Friðrik Guðmunds-
Framhald á 4. síðu.
Farfuglar fara á
Reykjanes
Farfuglar efna til tveggja
ferða um þessa helgi.
Önnur er suður á Reykjanes,
verður hjólað suður Vatns-
leysuströnd og gengið þaðan
um Afstapahraun á Höskuld-
arvelli og gist þar í tjöldum
aðfaranótt sunnudagsins. Dag-
inn eftir verður gengið á
Trölladyngju, Grænudyngju og
Keili.
Þá fara Farfuglar einnig til
Þórsmerkur um helgina og er
fullskipað í þá ferð.
Skrifstofa félagsins er nú
flutt í Melaskólann og er op-
in á miðvikudags- og föstudags
kvöldum frá kl. 8.30—10.
1 §am¥iimutrygginga§aiti-
bandinu eru 31 félag
I sambandi við miðstjórnar-
fund Alþjóðasambands sam-
vinnumanna ,sem haldinn va*-
hér í tilefr.i af 50 ára afmæli
S.Í.S., hé!t framkvæmdastjórn
Braut sér Eeið til
eldhúss
I fyrrinótt vaknaði maður á
Skólavörðustíg 10 við það að
verið var að rjála við glugg-
ann hjá honum og inn gægðist
ókunnugt andlit. Vék það síð—
an frá, en rétt á eftir heyrði
maðurinn brotna rúðu á eldhús
inu. Kom hann þá á vettvang,
ásamt öðrum manni. Er þeir
komu fram í eldhúsið stóð
hinn ókunni þar á gólfinu, og
hafði brotið sér leið inn um
gluggann. Var hann fenginp
lögreglunni í hendur, og er sú
saga ekki lengri — nema ef
hann skyldi eiga eftir að borga
rúðuna.
samvinnutryggingarsambands
ins fund 3. og 4. júlí. V7ar
þessi fundur haldinn í st.jórn-
arherbergi S.I.S. Erlendur -Ein-
arsson framkvæmdastjóri setti
fundinn og bauð hir.a sjö er-
lendu fulitrúa velkomna, en
þeir voru frá eftirtöldum lönd-
um: Bretlandi, Svíþjóð, Finn-
landi, Belgíu og Israel. Drap
Erlendur á þýðingu hins al-
þjóðlega samvinnutryggingar-
starfs og sagði, aö sú hjálp,
sem borizt hefði frá systur-
félögunum í Bretlandi og Sví-
þjóð ætti sinn þátt í því, hve
Samvinnutryggingar hefðu náð
skjótum og góðum vexti. I.ét
hann í ljósi ánægju sína yfir
því, að í gegnum endurtrygg-
ingarskrifstofu tryggingarsam-
bandsins, fengju Samvinnu-
tryggingar nú auknar endur-
tryggingar frá ýmsum löndum
heims.
Forseti tryggingarsambands-
ins, Mr. R. Dinnage, var fund-
arstjóri. FUndinn sat sem gest-
Framhald á 7. síðu.
Fyrsta síldarsölt-
un a
Norðfirði. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Síldarsöltun ér nú fyrirhug-
uð í Neskaupstað í sumar og
er það í fyrsta sinn að síldar-
söltun fer fram hér.
Stofnað hefur verið söltun-
arfélag útgerðarmanna hér og
fékk það í fyrradag 3000 tóm
ar síldartunnur hingað með
Lagarfossi.
Henry Bay látinn
Nýlega er látinn í Noregi
Henry Edward Bay, 75 ára að
aldri. Hann var aðalræðismað-
ur Norðmanna á Islandi frá
1918 til 1947, er hann lét af
því starfi fyrir aldurs sakir.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands
• í»* r _ »l l r
mg ijar
ar brýnasta uauðsviiin
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands var haldinn í hátíða-
sal Menntaskólar.s á Akureyri dagana 5.—6. júlí. Fundinn sátu
49 fulltrúar frá 18 héraðsskógræktarfélögum auk stjórnarinn-
ar, skógræktarstjóra og margra gesta.
Fundinum stjórnaði H. J.
Hólmjárn efnafræðingur í fjar-
veru formannsins, Valtýs
Stefánssonar ritstjóra. Fundar-
ritarar voru Steindór Steindórs
son menntaskólakennari og
Sigurður Blöndal skógfræðing-
ur.
Trygging fjárhags-
grundvallar.
Hákon Bjarnason skógræktar-
stjóri og framkvæmdastjóri
Skógræktarfélags Islands,
flutti skýrslu um starfsemi fé-
lagsins á liðnu ári. Meðal ann-
ars skýrði hann frá því að
formaður félagsins og skóg-
ræktarstjóri hefðu á síðastjiðn-
um vetri sent ríkisstjórninni
erindi þess efnis, að skógrækt-
arstarfseminni í landinu verði
tryggður fjárhagsgrundvöllur
með þvi að láta ákveðinn hluta
af aðflutningsgjöldum af viði
og viðarafurðum renna til
skógræktar.
Fræðslustarfsemi —
Ársrit
Framkvæmdastjóri gerði
grein 'fyrir fræðslustarfsemi
félagsins, sem aðallega er fólg-
in í sýningu skógræktarkvik-
mynda og útgáfu ársrits. Gat
hann þess að fyrir sérstaka
velvild sendiherra Norðmanna
á Islandi T. Anderssen-Rysst
hefði félagið fengið ágæta
norska kvikmynd „Skogen vár
arv“ til sýningar. Ársritið
1951—1952 væri komið út.
Var slegið saman tveimur ár-
göngum vegna hækkandi út-
gáfukostnaðar. Þrjú héraðs-
skógræktarfélög hafa gengið i
Skógræktarfélag Islands á ár-
inu. . Skógr.f. Neskaupstaðar,
Skógr.f. Heiðsynninga og
Skógr.f. A.-Skaftafellssýslu.
Framkvæmdarstjóri kom viða
við í skýrslu sinni og var gerð-
ur góður rómur að rnáli hans,
og urðu um skýrslu hans
nokkrar umræður.
Hvatti til áframhald-
andi skógræktarfara.
Haukur Jörundsson, kennari
á Hvanneyri ,sem var farar-
stjóri Islendinganna sem til
skýrslu um ferðina og hvatti
mjög til þess að slíkar ferð-
ir yrðu ekki látnar falla niður.
Hæfilegt væri að þær væru
annað eða þriðja hvert ár. Var
frásögn hans hin fróðlegasta.
Gjaldkeri félagsins las upp
og skýrði reikning Skógræktar-
félags Islands og Landgræðslu-
sjóðs fyrir árið 1951. Niður-
stöðutölur á rekstrarreikningi
Skógræktarfélags Islands eru
kr. 240.989.23. Skuldlaus eign
félagsins við árslok er
kr. 31661.33 og halli á
rekstri félagsins 1951 var kr.
967.88. Niðurstöðutölur á efna-
hagsreikningi Landgræðslu-
sjóðs við árslok 1951 eru kr.
609.753.30. Reikningar félags-
ins voru síðan bornir undir
Framhald á 4. síðu.
Það er sumarfagurt í Þórs-
mörk — Æskulýðsfylkingin
leggur af stað 19. þ.m. austur
í Þórsmörk til viku sumarfrís-
dvalar þar. — Þátttaka þarf
að tilkynnast fyrir fimmtudag
í næstu viku, í skrifstofu ÆFR
Þórsgötu 1, sími 7510.
öscar Clausen
formaður
Afengisvarnanc-fndar
Dómsmálaráðherra skipaði
með bréfi 4. þ.m. Oscar Clau-
sen, rithöfund, formann Áfeng-
isvarnanefndar Reykjavíkur.
Aðrir nefnde.rmenn, 8 að tölu,
voru kosnir af bæjarstjórn á
fundi hennar 16. maí sl.
Leðurbiakan
Þjóðleikhúsið hefur í kvöld
síðustu sýningu á óperunni
Leðurblökunni. Munu sýningar
vera orðnar um 20 talsins, og
má heita að húsið hafi verið
fullskipað í hvert skipti. Nú
er komið fram yfir ráðgerðan
starfstíma Þjóðleikhússins, auk
þess sem söngvararnir sumir
eru bundnir öðrum störfum.
Til dæmis á Einar Kristjáns-
son að syngja í finnska út-
varpið nú seinna í mánuðin-
um.
Áttunda þing S.I.B.S.
hefst í Kristnesi í Eyjafirði 11. þessa mánaðar
8. þing S.Í.B.S. verður sett í Ivristnesi föstudaginn 11. þ.m.
kl. 2 e.h. Mun þingið fjaíla um skýrslu um rekstur Vinnuheim-
ilisins og störf sambandsins.
Aðalmál þingsins verður’
byggingaframkvæmáir að
Reykjalundi næstu 2 ár. Auk
þess ýmis önnur mál. Fara
mun fram kosning forseta
sambandsins og þriggja maiina
í sambandsstjórn.
Meðal gesta, sem þingið
sitja, eru 8 stjórnarmeðlimir í
De Nordiska Tuberkulos För-
bundens Centralorganisation.
Eru tveir frá hverju landi:
Danmörku, Finnlandi, Noregi
og Svíþjóð. Eru þessir gestir
annars komnir hingað til að
sitja 4. fund stjórnarinnar,
sem haldinn verður að Reykja-
lundi 16. og 17. þ.m. Þetta
allsherjarbandalag berkla-
sjúklinga á Norðurlöndum, D.
N.T.C., var stofnað að Reykja-
lundi sumarið 1948 á 10 ára
afmæli S.Í.B.S. Fyrir S.I.B.S. i
stjórninni eru þeir Árni Ein-
arsson og Þórður Benedikts-
Noregs fóru í vor, flutti son.
Lögregían við
andaflutninga frá
Camp Iínox
I gær gerðist nokkuð óvænt-
ur atburður í Camp Knox: þar
birtist allt í einu önd með unga
sína. Voru ungarnir litlir og
mun öndin hafa átt hreiður
einhversstaðar þarna og verið
á leið til vatns með ungana.
Ferðalag andarinnar vakti
þegar óskipta athygli barn-
anna í liverfinu, en þau eru
mörg.
Lögreglunni var gert aðvart
og kom hún til aðstoðar þess-
um fiðruðu íbúum í flutninga-
vandræðum þeirra og flutti all-
an hópinn í lögreglubíl niður
að Tjörn.