Þjóðviljinn - 30.07.1952, Qupperneq 1
Miðvikudagur 30. júlí 1952 — 17. ái’gangur — 168. tölublað
' Kínverjar komu seint
KlNVERSKU keppendumir 'a
ÓL, sundmenn eingöngu, komu
ekki til Helsinki fyrr en um
síðustu helgi. Þykir vandkvæð-
um bundið að koma við þátt-
töku þeirra þegar svo er liðiö
á leikina.
Kokkur síld heíur veiSzt á svæSinu
Frá BakkafIrðl fil Giettinpness
Sífd einnig við Hornafjörð — Mikið af sildinni við
Austfirði of smátt fil söltunar
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
1 fyrrinótt og gærmorgun fengu 20—30 skip nokkra síld við
Austfirði. Afli þeirra var mjög misjafn eða frá 100 uppí 900 mál.
Við Norðurland hefur hinsvegar engrar síldar orðið vart undan-
farið.
Ungverjar-Júgóslavar keppa
til úrslifa í knattspyrnu
Á laugardaginn keppa lið Ungverjalands og Júgóslavíu
um gullverðlaunin í knattspyrnu á ÓL í Helsinki.
Togarinn Jörundur var hæst-
ur með 900 mál, en nokkur skip
anna munu hafa fengið 400 mál.
I fyrrinótt yeiddist sildin í
Bakkafirði, Vopnafirði og við
Glettinganes, en það er milli
Seyðisfjarðar og Borgarfjarðar
eystra. Síldin þar veiddist 30—
40 mílur suður af Glettinga-
nesi.
Síldin við Austfirðina er yfir-
leitt mjög smá og mikið af
henni ekki söltunarhæft eða um
32 cm, en í sölusamningum
mun vera miðað við 37—38 cm
langa síld.
Tvö skip hafa landað hér
ufsa,, um 300 málum hvort, en
sildar hefur ekki orðið vart á
norðursvæðinu og nú er komin
hér norðaustanátt og rigningar-
súld.
Fitumagn komizt
niður í 11,4%
Raufarhöfn.
Prá fréttaritara Þjóðviljans.
Nokkur síld veiddist í fyrra-
fcvöld og fyrrinótt, einfcum í
Héraðsflóa. Það er millisíkl illa
fallin til söltunar og fitumagn-
ið hefur komizt allt nið’ur í
11,4%.
Tii Raufarhafnar komu nokk-
ur skip og var saltað á eftir-
töldum stöðvum af þessum
skipum: Söltunarstöð Óskars
Halldórssonar: Helgi Helgason
144 tunnur uppmældar, Ingvar
Guðjónsson 217 tn. uppm.,
Reynir Akranesi 90 tn. uppm.
Söltunarstöðin Skor: Mímir 250
tn. uppm. Söltunarst. Hafsíld:
KárJ Sölmundarson 30 tn. Norð-
ursíld: Smári frá Hýsavík 30
tn. uppm.
I bræðslu var látið af þessum
skipum: Helga Helgasyni 200
mál, Kára Sölmundarsyni 150
og Smára 150.
Ekkert veiddist í gær og eng-
in síld sézt koma upp síðan í
fyrrakvöld. Veður versnandi og
frekar slæmt.
Fyrsta síldarsölt-
un í 24 ár!
Neskaupstað.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
I fyrrinótt kom Hrafnkell
hingað með 400 tunnur síldar,
Gullfaxi með 600 bg Goðaborg
með 70. Síldina fengu þeir við
Síld söltuð á
Seyðisfirðs
Seyðisfirði.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Nokkur skip komu hingað í
riótt og í morgun með síld, sem
Framhald á 8. síðu.
Glettinganes og sáu þeir síld
aUt suður í Norðf jarðarflóa.
Síidin var söltuð hér og er
þetta 1 fyrsta sinni í 24 ár að
síld er söltuð að sumarlagi í
Neskaupstað.
Allmikið af þessari síld var
of smátt til söltunar og var
því nokkuð af henni fryst en
nokkuð verður brætt.
Sjómenn telja nú mjög sild-
arlegt við Austurland, en bú-
izt er við norðaustan veðri
og má þá gera ráð fyrir að
ekki verði veiðiveður.
Butler, fjármálaráðherra i
ríkisstjórn Churchills, lýsti yfir
að horfurnar i fjármálum
Breta hefðu aldréi verið geig-
vænlegri en nú. Ríkisstjórnin
hefði ákveðið að skera inn-
flutning óskammtaðra matvæla
frá löndum utan sterlingsvæð-
isins þegar í stað niður um
f jórðung. Innflutningur ‘ papp-
írs og trjákvoðu verður skorinn
niður um helming og innflutn-
ingur tóbaks, snyrtivara og fl.
vörutegunda um allt að 60%.
Hervæðingin að sliga
iðnaðinn
Butler skýrði ennfremur frá
því að nauðsynlegt væri áð
draga úr fyrirhugaðri hervæð-
TPinriy hafnað
í WaHhimytmi
Tilkynnt var í Washington
í gær að Bandaríkjastjórn hefði
með öllu hafnað beiðni frönsku
stjórnarinnar um vopnakaup
fyrir 600 miiljónir dollara í
Frakklandi. Segist Bandaríkja-
stjórn ekki hafa fé aflögu til
slíkra hluta og dregur auk þess
í efa að frönsk hergögn séu
til nokku.rs nýt.
Pinay, forsætisráðh. Frakk-
lands, hafði lýst yfir að fram-
kvæmd hervæðdngaráætlunar
stjórnar hans byggðist á því
að dollarar þessir fengjust.
Mikil síldarganga
við Hornafjörð
Síðustu dagana hefur
Gissur hvíti, vélbátur, sem
stundar línuveiðar frá
Hornafirði orðið var mikill-
ar síldar úti af Hornafirði.
Hafði hann með sér reknet
og fékk stóra og feita haf-
síld er hann notaði til beitu.
Síidin óð á þessum slóðum
og virtist svo sem mikil
síldarganga hefði komið upp
að landinu við Hornafjörð.
Síklina sem Gissur hvíti
veiddi fékk hann í netin
niðri við steinateina og bend-
ir það til þess að meiri síld
hgfi verið dýpra í sjónum.
ingu til að létta þær byrðar,
sem nú væru að sliga vélsmíða-
iðnaðinn, þýðingarmesta út-
flutningsiðnað Bretlands. Frá
þeim ráðstöfvmum kvað hann
Churchil] myndi skýra nánar
í dag.
I gær sigruðu Júgóslavar
Þjóðverja með þremur mörkum
gegn einu í síðari leik undan-
úrslifanna, en í fyrradag höfðu
Ungverjar sigrað Svía með sex
mprkum gegn engu. Svíar og
Þjóðverjar keppa um þriðja
sætið á föstudaginn.
Tvöfaldur sigur ungverskra
sundfcvenna
I sundkeppninni í gær unnu
tvær ungverskar stúlkur 200
m bringusund. — Seheli varð
fyrst á nýju ólympsku meti,
2;51,7, en Novak heitir sú,
sem varð í öðru sæti. Brezk
stúlka varð þriðja.
Bandaríska sveitin vann
4x200 m boðsund karla á nýju
meti, 8;31,1. Japanska sveitin
varð önnur og sú franska
þriðja.
Það þótti tíðindum sæta í
gapr er heimsmetíhafanum í
400 m sundi karla með frjálsri
aðferð, Ástralíumanninum John
Marshall, tókst ekki að komast
í úrslitakeppnina í þeirri grein.
Sovétríkin stigahæst
ÓOPINBER stigtala einstakra
þátttökuþjóða í ÓL leit þannig
út í gær að Sovétríkin héldu
efsta sæti, sem þau hafa haft
frá upphafi, með 456V2 stig,
Bandaríkin komu næst með
346, þá Svíþjóð með 197, Ung-
verjaland með 190 og Þýzka-
land 161.
Bandaríkin hafa flest
gullverðlaun
NÚ ER lokið keppni í 135
greinum. — Flest gullverðlaun,
eða 29 hafa Bandarikjamenn
fengið, keppendur frá Sovét-
ríkjunum 22 og Svíþjóð 10.
Sovétríkin hafa fengið flest
silfurverðlaun, 27 alls, Banda-
rikjamenn 16 og Svíar 12.
Ferð unga fólksins um helgina
Þátttakendur í sumarleyfisferð Æsfculýðsfylkingarinn-
ar eru nýlega komnir heim og varð ferðalagið og dvölin
í Þórsmörk eins ánægjulegt og frekast varð á kosið.
Mikill áhugi •hefur komið fram fyrir skemmtiferð um
verzlunarmannahelgina og hefur ferðanefndin ákveðið
ferðalag um Snæfellsnes. Verður lagt af stað á laugar-
daginn eftir hádegið, ekið vestur að Búðum og gist þar
í tjöld'um og sennilegt að þar verði stigin. nokkur dans-
spor. Daginn eftir verður svo ekið út fyrir Snæfellsjökul
til Sands og þaðan til Ólafsvíkur og farið aftur að Búð-
um um kvöldið..— Fararstjóri verður Böðvar Pétursson.
Þátttakendur þ’urfa að tilkynna þátttöku sína í skrifstofu
Æ.F.R. milli kl. 5 og 7, sími 7511.
Sveit Sevéírtkjanna sigraði með yfirhurðum í fimleibnm kvenna á ÓL í HeHsinki. Hér er mynd
af Wómarósunnm, stjóriian.diim stendur yzt til vínstri, ,
Fjárhagsvandræði Brefa
verri en nokkru sinni
Butler boðar niðurskurð innflutnings og að dregið
verði úr hervæðingunni
Brezka stjórnin sér sig tilneydda að skera niöur inn-
flutning og draga úr hervæðingunni til að foröa. fjár-
hagshruni.