Þjóðviljinn - 23.08.1952, Blaðsíða 8
Aðalfundur Sambands íslenzkra rafveitna
81% allra landsmamia höfðu fen«ið
rafmagn í árslok 1951
ísafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Tíundi aðalfundur Sambands íslenzkra rafveitna, S. í. K.,
vár baidinn á ísafirði 20.—22. ágúst. Meðlimir sambandsins
eru 28 rafveitur og au!k þess 12 aukameðlimir. Mættir voru
fulltrúar frá 16 rafveitum og 5 aukameðlimir. Auk fulltrúa
rafveitnanna sátu fundinn hreppsnefndaroddvitar á Vestf jörðum.
Meðal þeirra mála sem rædd
voru á fundinum var prófun og
endurnýjun rafmagnsmæla, súg
þurrkun á heyi, útvarpstruflan-
ir og nauðsyn á byggingu end-
urvarpsstöðva. Þá var lagt
fram yfirlit um gjaldskrár raf-
veitna og rætt um samræm-
ingu þeirra.
Við samanburð á hækkun á
raforkuverði við verðlag al-
mennt sýndi sig að rafmagn
hefur hækkað minna en annað
verðlag.
Þá voru lagðar fram skýrsl-
ur rafveitna, sem sýndu að í
árslok 1951 höfðu 81% lánds-
manna rafmagn eða ca. 119
þús. af 147 þús. Einnig voru
samþykktar ályktanir varðandi
aukið eftirlit með húslögnum,
varðandi b.runahættu og að
samræma eftirlit, um allt land
og láta fara fram rannsókn á
brunatilfellum, sem talin eru
stafa frá rafmagni.
I sambandi við fundinn voru
f lutt eftirtalin erindi: Ágúst
Guðmundsson yfirvélstjóri, um
hirðiugu rafstöðva, Þórður Run
ólfssop, vélaeftirlitsstjóri, um
dieselvélar, og Jakob Gíslason,
raforkumálastjóri, um rafveitu-
mál Vestfjarða. Þá skýrði Guð-
mundur G. Kristjánsspn frá
IMál Arnar Clausen
Að gefnu tilefni vill stjórn
Frjálsíþróttasambands íslands
taka fram eftirfarandi:
Á stjórnarfundi FRÍ hinn 21.
þ. m. var lagt fram bréf Iþrótta
félags Reykjavíkur dags. 19.
þ, m. þar sem óskað var eftir
afriti af skýrslu flokksstjóra
og öðrum málsskjölum varð-
andi ákvörðun stjórnarinnar
um mál Arnar Clausen. Á
þessum sama fundi átti for-
maður sambandsins samtal í
síma við varaformann félags-
ins Jakob Hafstein, og bauð
ihonum að koma á fundinn og
kynna sér s-kýrsluna og önnur
gögn um málið, sem færð eru í
fundargerðarbóík stjórnarinnar.
Þetta boð þáði varaformaður
félagsins ekki, en það stendur
hins vegar enn opið og hefur
verið staðfest með bréfi til
íþróttafélags Reykjavíkur dag-
settu í dag.
Reykjavík, 22. ágúst 1952.
Stjórn Frjálsíþrótta-
sambands Islands.
rafveitu Isafjarðar og Axel
Tulinius frá rafveitumálum
Bolungavíkur. Voru skoðaðar
rafveitur bæði á Isafirði og í
Bolungavík.
Stjórn S. I. R. skipa nú:
Steingrímur Jónsson, rafmagns
stjóri í Reykjavík, formaður,
en meðstjórnendur eru Valgarð
Thoroddsen, rafveitustjóri í
Hafnarfirði, Jakob Guðjohnsen,
frá Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur, Guðjón Guðmundsson, frá
héraðsrafveitum ríkisins og Jón
©
Gestsson, rafveitustjóri á Isa-
firði.
Lagt var til að aðalfundur
sambandsins næsta ár verði á
Þingvöllum, en þá er samband-
ið 10 ára, og var ráðgert að
efna e.t.v. til samstarfsfunda
formanna og ritara rafveitu-
sambanda Norðurlanda.
Fulltrúarnir fóru til Bolunga
víkur í gær. Fundinum lauk
méð miðdegisverðarboði raf-
orkumálastjóra í gærkvöld.
Opnar á morgun
Miðgarður, hin vinsæla veit
ingastofa á Þórsgötu 1 opnar
á morgun að nýju, en hún hef-
ur verið lokuð um tíma vegna
breytinga og viðgerða á hús-
1 næðinu.
Metþátttaka utan af landi
í meistaramótinu í gær
25 ár liðin síðan Meistaramót fslands í frjálsum
íþróttum fór fram í fyrsta skipti
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum hefst klukk-
an fimm í dag á íþróttavellinum.
1 ár er aldarfjórðungur lið-
inn síðan Meistaramót Islands
í frjálsum íþróttum var haldið
í fyrsta skipti.
Þátttakendur frá 15 félögum.
Athyglisverðast við mótið í
ár er hin mikla þátttaka íþrótta
manna utan af landi. Af 15
félögum, sem senda keppendur,
eru 10 úti á landi í öllum lands-
fjórðungum. Þessa óvenjumiklu
þátttöku manna utan Reykja-
víkur má óefað að verulegu
leyti þakka frjálsíþróttakeppn-
inni milli Reykjavíkur og ann-
arra landshluta, sem fram fór
í sumar.
Greinamar, sem í dag verður
keppt í, eru þessar:
200 m hlaup. Það eru þátt-
tákendur sex og í þeirra hópi
Hörður Haraldsson og Ásmund-
ur Bjarnason.
Hástökk. Þátttakendur eru
sjö og fimm þeirra utan af
landi.
Kúluvarp. Af sex keppendum
eru þrír utan af landi.
800 m hlaup. Þar eru þátt-
takendur ekkj nema fjórir.
Langstökk. Sjö menn taka
þátt í því, f jórir þeirra utan af
landi. Meðal þeirra er Tómas
Lárusson úr Umf. Kjalarness-
þings, sem talinn er líklegastur
til að ná góðum árangri.
Picasso, Sartre og Gide í franskri
jnynd, sýndri um helgina
Um helgina hefur Austurbæjarbíó sýningar á óvenjulegri
franskri mynd. Nefnist hún á íslenzku I dagrenning (á frönsku
La vie commence demain). Koma þar m. a. fram málarinn
Picasso, og rithöfundarnir Sartre og Andre Gide. Eini leikarinn
er Jean Pierre Aumont.
Ungur maður (Aumont) er
á leið til Parísar til að eýða
sumarleyfi sínu. Blaðamaður
nokkur í leit að miðlungsmanni
hittir hann og býður honum
með sér, þar sem hann telur
hann fulltrúa fólksins og á-
kveður áð leggja niður fyrir
honum vandamál mannlífsins í
dag. Fyrst komum við með
Aumont á Café Flor ti] exi
stensíalistanna og erum innan
skamms komin í viðræður við
Sartre. Ekki er þar feitan gölt
að flá því að helzta niðurstað
Framhald á 6. síðu.
þlÓÐVILIINN
Laugardagur 23. ágúst 1952 — 17. árgangur — 188. tölublað
Orlofsferð HEKLU til Spánar
Skipaútgerð ríkisins ráðgerir, 1 samvinnu við Ferðaskrifstofu,
ríkisins, að Iáta Heklu fara skemmtiferð til norðurstranda
Spánar snemma í næsta mánuði, ef nægileg þátttaka verður.
Guðjón Teitsson, s'krifstofu-
stjóri Skipaútgerðarinnar, og
Þorleifur Þórðarson, frkvstj.
Ferðaskrifstofunnar, ásamt
Þórði Albertssyni, erindreka,
sem staddur er hér á landi,
skýrðu blaðamönnum frá þess-
um fyrirætlunum í gær. Ráð-
gert hafði verið, að Hekla færi
eina ferð til Norðurlanda eftir
að Glasgowferðum lýkur, þar
sem strandferðir skipsins hefj-
ast ekki fyrr en 20. október.
En nú hefur Gjaldeyrisnefnd
tilkynnt, að ekki verði hægt að
veita gjaldeyri til þeirrar ferð-
ar, en aftur á móti er gjald-
eyrisástand okkar gagnvart
Spáni í góðu lagi, og að fengn-
um mjög hagstæðum upplýs-
ingum hjá Þórði Albertssyni,
var ákveðið að fara þessa ferð,
ef næg þátttaka fæst.
Ferðaskrifstofan hefur gert
ferðaáætlun, og skv. henni
verður lagt af stað þann 8.
Spjótkast. Meðal fimm kepp-
enda er methafinn, Jóel Sig-
urðsson.
5000 m hlaup. Þar keppa
Kristján Jóhannesson, sem sýnt
hefur svo glæsilega frammi-
stöðu í sumar, Einar Guðlaugs-
son úr Þór á Akureyri, sem
þykir mjög efnilegur, og Gunn-
ar Svavarsson úr Ármanni.
400 m grindahlaup. Það er
tímanna tákn að meðal fimm
þátttakenda er einn, Björn Jó-
hannesson, frá Keflavík, en
af tæknilegum ástæðum hefur
þessi íþróttagrein hingað til
mátt heita algerlega bundin
við Reykjavík.
Agfalitir í íslenzk-
um l]ósmyudum
Fréttamönnum var í gær boð
ið að skoða nýjung í íslenz.kri
ljósmyndagerð.
Á vegum Ljósmyndarafélags
íslands hefur verið hér dansk-
ur kennari í ljósmyndatækni
Jörgen Justesen er hefur kennt
ljósmyndurum meðferð hinna
þýzku Agfa lita. Agfa-fyrirtæk
ið er nýbúið að gefa frjálsa
sölu á litfilmum sínum, en sala
þeirra er þó þeim skilyrðum
háð að ljósmyndarar hafi lært
meðferð þeirra. Er aðferð þessi
mikil framför frá því sem áöur
var, en krefst þó talsverðrar
kunnáttu. I grundvallaratriðum
er aðferðin sú sama og Rússar
hafa notað í kvikmyndum sín-
um og er vafalaust sú fullkomn
asta sem nú er völ á. Höfðu
Ijósmyndararnir allmargar
myndir til sýnis er þeir höfðu
unnið á námskeiðinu, og gera
sér miklar vonir um framtíð
Agfa-litmynda hér á landi.
Unnu Saar
I fyrradag unnu íslendingar
Saarskákmenn með fjórum
vinningum. Var það í fyrstu
umferð í neðsta flokki, þar sem
báðir höfnuðu. Eins og kunn
ugt er byrjuðu landarnir keppni
sína á því að tapa fyrir Saar
með 2y2:l3/2-
Berklasjúklingar
til Þingvalla í boði
Hreyfils
Samvinnufélagið Hreyfill bauð
sjúklingum á Vífilsstaðahæli og
vistmönnum á Reykjalundi síð-
astliðinn þriðjudag i skemmti-
ferð til Þingvalla.
Þátttakendur í förinni voru
hátt á annað hundrað í rúm-
lega 40 bifreiðum. Ekið var um
Þrastarskóg og Grafning til
Þingvalla. I Valhöll var setzt
að kaffidryk'kju í boði bifreiða-
stjóranna. Karl Guðmundsson
leikari skemmti með upplestri
og eftirhermum en að lokum
var dansað.
Var för þessi hin ánægjuleg-
asta að sögn þátttakenda. Hafa
sjúklingar á Vífilsstöðum beðið
blaðið að flytja bifreiðastjórun-
um á Hreyfli sínar beztu þakk-
ir fyrir hið rausnarlega boð.
sept. kl. 8 að kvöldi og komið
til Bilbaó að kvöldi þess 13.
Heimleiðis yrði svo haldið að
kvöldi þess 22. og komið hing-
að aftur þann 27. sept.
Fargjald er frá kr. 2700,00
til kr. 3950,00, og er fæði og
þjónustugjald innifalið.
Hollendingurinn
kominn í leitirnar
Hollendinguripn sem hvarf
frá skipi sínu hér í höfninni í
hinni vikunni, er nú kominn.
fram. Kom hann að Landakoti
í gærmorgun og gaf sig fram;
við nunnur. Hafði hann upphaf-
lega farið frá borði út úr ein-
hverjum leiðindum, og hefur
nokkurn hluta tímans dvalið í
einkahúsi hér í bænum, og haft
hægt um sig.
Presturinn i Landakoti fór
með piltinum um borð í skip
hans í gærmorgun. Var báðum
vel tekið, og sneri hinn endur-
heimti fljótlega til vinnu sinn-
ar.
Góð gjöf
Sumarsiátrun
♦
Leyfð hefur verið sumar-
slátrun dilka frá og með mið
vikudeginum 27. þ.m. Verðið á
kjötinu hefur enn ekki verið
ákveðið, enda má búast við að
það verði alls ekki smávægi-
legt.
Landið hefur mátt heita kjöt-
laust nú um langa hríð, og
dilkakjöt hefur ekki verið til
sölu.
vtn og
stálu bíl
I fyrrinótt óku tveir drukku-
ir drengir stolnum bíl í skurð
í Snorrabrautinni.
Maður nokkur var áhorfandi
atburðarins og lét lögregluna
þegar vita. Kom hún von bráð
að á staðinn, og voru þá öku-
þórarnir enn í bilnum í skurð-
inum. Voru þeir mjög drukkn-
ir en höfðu þó rænu á að við-
urkenna að þeir hefðu stolið
farartæki sínu. Höfðu þeir far-
ið allvíða um áður en þeir höfn-
uðu á greindum stað. Þeir voru
báðir settir í varðhald meðan
mál þeirra er í rannsókn.
til björgunarskútu ■
Norðurlands
Slysavarnafélagi Islands hef-
ur borizt gjöf að upphæð kr.
3.185.00 — frá Peysufatadegi
kvenna á Djúpuvík, Reykjar-
firði, en konurnar á Djúpuvík
halda árlega slíkan peysufata-
dag hátíðlegan með skemmtun
og fjáröflun til mannúðarmála,
sérstaklega slysavarnastarfsem-
innar. Síðustu árin hefur fjár-
öflun þeirra beinzt til bygging-
ar Björgunarskútu Norður-
lands, og er þetta síðasta mynd
arlega framlag þeirra gefið til
minningar um Valgeir Björns-
son frá Árnesi þar í sveit, sem
fórst í vetur með m.b. Grind-
víking.
Valgeir var ungur og efnileg-
ur dugnaðarmaður, sem mikil
eftirsjón var að.
Þýzka STEF
íimmtíu ára
I janúarmánuði næstkomandi
heldur þýzka STEF hátíðlegt
50 ára afmæli sitt með tveggja
daga minningarathöfnum í Ber-
lín.
Richard Strauss, þýzka tón-
skáldið heimsfræga, var aðal-
stofnandi STEFs, og átti hann
frumkvæði að úthlutunarregl-
um þeim, er síðar urðu yngri
sambandsfélögum til fyrirmynd
ar og tryggja tónhöfundum
tekjur i hlutfalli við tegund
tónverka. Sonur tónskáldsins
gerði svo höfundaréttinn að
ævistarfi sínu og samdi dokt-
orsritgerð um þau efni. Á
seinni árum lögðu þeir feðgar
höfuðáherzlu á endurbætur
löggjafar um siðferðisrétt höf-
unda, svokallaðan „droit mor-
al“, en það er lagarétturinn til
að vernda verkin um aldur og
ævi fyrir afskræmingu, ósæmi-
legri misnotkun og allskonar á-
Útshnekki hugsjóna þess.