Þjóðviljinn - 04.09.1952, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 04.09.1952, Blaðsíða 8
„Viðreisn" útflutningsverzhinarinnar ■ ■ ú saifa síi I sumar, þegar síld fór að veiðast hér við Suðurl'and, en sýnt þótti að síldveiðin. við Norðurland myndi bregðast nær algerlega, bönnuðu stjórnarvölödin að síldin við Suðurland væri söltuð. Til að kóróna þetta bann hefur síldarútvegsnefnd nú bannað að selja þá síld er bezt mun vera af þeirri síld er söltuð hefur verið syðra í sumar — liún var söltuð í óleyfi nefndarinnar! Það var Sturlaugur Böðvars- som á Akranesi er lét söltunar- bann síldarútvegsnefndar ekki aftra- sér frá að salta síldina í sumar. Hefur hann látið hafa eftir sár að af þeirri síld er hanft- saltaði hafi þurft 400 í tunnuna, en nú fari 475 í tunn- una af þeirri síld er síldarút- vegsnefnd tekur að sér að selja. 1 sumar hafi ekki þurft að fleygja burt vegna smæðar nema 25—30% af síldinni en nú 40—50%. Sturlaugur getur selt síld sina- frá í sumar fyrir sama verð og Norðurlandssíld — en síldarútvegsnefnd bannar hon- um að seija!! Hefur hann snú- ið sér til rikisstjórnarinnar til að rejma að fá leyfi til að selja síldina. Vetur gengur snemma í garð Húsavík. Frá fréttaritara Þjóðviljans. VeðUrfar hefur verið afleitt hér um það bil vikutíma. Hef- ur snjóað í fjöll, virðist vetur ætla að koma snemma og illa. Votengjar hafa farið víða undir vatn og ekki líkur til að heyjað verði meira á þessu sumri. Ekki hefur gefið á sjó og síldarbátarnir er voru djúpt úti af Langanesi eru nú komnir heim, nema Smári, sem mun liggja á Raufarhöfn. Hagbarð- ur kom með 100 tunnur en Pétur nokkru minna. Ljosmyndasýning í tilefni af 25 ára afmæli Ferðafélags íslands Ferðafélag Islands efnir til alhliða Jjósmyndasýningar fyrir áhiigamenn um mánaðamótin október og nóvember. Er efnt til sýningar þessarar í tilefni 25 ára afmæli Ferða- félagsins, sem er á þessu ári. Hefur félagið áður efnt til þriggja stórra Ijósmyndasýninga fyrir áhugamenn og jafnan 5 tilefni af stórafmælum, fyrst á 5 ára afmæli félagsins 1932, á 10 ára afmælinu 1937 og loks á 20 ára afmælinu 1947. Sýningar þessar hafa orðið vinsæll liður í starfsemi Ferða- félags Islands, auk þess sem það hefur vakið áhuga fjölda manna og kvenna fyrir ljós- .myndum og hvernig þær skuli teknar og gerðar. Hefur jafnan verið góð þátttaka í öllum sýn- ingunum og aðsókn að þeim mjög mikil. Þórsmerkurferð Páll Arason efnir til Þórs- markurferðar nú um helgina. — Lagt verður af stað kL 2 e. h. á laugardag, og komið aftur í bæinn á sunnudagskvöld og á mánudagskvöld, eftir því hvort menn vilja heldur. Síðustu sýningu sem haldin var í Listamannaskálanum 1947, sóttu hátt á 6. þúsund gestir, og alls voru þar sýndar nær 400 ljósmyndir frá 25 sýn- endum. Öllum lieimil þátttaka Ljósmyndasýningin í haust verður í Listamannaskálanum og verður opnuð um mánaða- mótin október—nóvember. ■— Þátttaka .er heimil öllum á- hugaljósmyndurum og ekki nein takmörk sett um . f jölda ljósmynda. Hinsvegar áskilur sýningarnefndin sér rétt til þess að velja milli mynda og hafna ef þörf 'krefur t. d. ef mikil þátttaka verður, eða ef Framhald á 7. siðu. Vísir fagnar komn drápsvélanna: | „Þétt! mörgum það tilkomumikil </ • r ll sjort Vísir fagnar því í gær að hingað sé nú komin til fastfar dvalar sveit bandarískra hernaðarflugvéla. „Er hér um að ræía 24 flugvélar af nýjustu gerð Mustangvéla, sem voru hraðfleygastar þeirra véla er notaðar voru í síðasta stríði. .... Vélarnar hafa bækistöð í Keflavík. — Yfirmaður þeirra heitir Irvin C. Ethelt.“ Þótt ekki hafi Vísismenn fengið að sjá nýjustu dýrðina —: stóru flugvélarnar sem notaðar eru til að fleygja eldi yfir konur, börn og gamalmenni í Kóreu, þá þurfti ekki meira til að Vísir ræki upp fagnaðaróp við komu dráps- vélanna: „Þær flugu yfir bæinn t skipulegri fylkingu við komuna OG ÞÖTTI MÖRGUM ÞAÐ TILKOMUMIKIL SJÓN“ Það hfyti að verða ,.TILKOMUMIKIL SJÓN“ fyrir gömul augu Vísisritstjóranna ef þeir mættu sjá þær spúa eldi og dauða. Misjafn afli í Eyjum Vestmannaeyjum. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Þrjátíu og þrír bátar héðan munu nú vera byrjaðir á rek- netaveiðum. Afli hefur verið misjafn. Var góður einn dag hjá nokkrum bátum, á annað hundrað tunnur, en sama dag fengu sumir bátanna engan afla. Enn hefur mjög lítið verið saltað hér af síld og aðeins úrgangur bræddur en smærri síldin fryst til beitu. Nokkrir bátar hafa stundað þorskveiðar með línu en fiskað lítið. Þá hafa nokkrir trillu- bátar fiskað á handfæri og línu og aflað sæmilega suma dagana. þlÓÐVIUINN Fimmtudagur 4. sept 1952 — 17. árgangur — 197 tölublað „Skagafjarðar- sardínurí4 Sauðárkróki. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. Á s.l, vori var komið upp niðursuðuverksmiðju á Sauðár- króki og eiga hreppurinn og Karl Friðriksson hana, en Karl hafði áður niðursuðuverksmiðju á Akureyri. Verksmiðjan hefur soðið nið- ur smásíld er veiðzt hefur við sandinn, í sumar, en þar hef- ur verið sæmileg veiði i land- nætur. Alls munu hafa verið soðnar niður um 30 þús. dósir en verksmiðjan á að geta soðið niður 10 þús dósir á sólarhring með fullum afköst- um. „Mánagarður“ hið nýja félagsheimili í Nesjum í Hbrnafirði. — Fyrir neðan er mynd af kifkjunni, en í kjallara- hennar voru samkomurnar haldnar áður í 40 ár. , ili í INesjiim í Hornaíirði Höfn. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Sunnudaginn 24. ágúst var vígt nýtt félags- heiinili í Nesjum í Hornafirði. Að byggingu þessa húss hafa staðið auk Ncsjahrepps ýms félagssamtök byggðarlagsins, svo sem Ung- mennafélagið „Máni“, kvenfélagið „Vaka“ og Karlaltór Hornafjarðar, sem gaf heimilinu nýtt og vandað píanó. Einstaklingar innan hreppsins hafa lagt fram mikla gjafavinnu, allt frá 3 tiil 15 dagsverkum. Bygging hússins hófst 1949 og er nú að mestu lokið, hefur kostnaður við bygginguna num- ið allt að l/i milljón króna. Húsið er tvær álmur og stærð þeirra 22x8 metrar og 6x8 metrar. Aðalálman er samkomu Tólf hundruð tunnur saltaðar í Grundarfirði Grundarfirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. I Grafarnesi hefur nú verið saltað í samtals um 1200 tUnnur og frystar til beitu 2000 tunnur. ________________________ Síldin hefur undanfarið verið mjög misjöfn, stundum ágæt, stundum afarsmá, t.d. voru bát arnir er komu í gærmorgun með smásíld. Síðustu tvo daga hefur veiði verið lítil, en þó fengu tveir bátar ágæta veiði í gærmorgun, Voru þeir foáðir grynnra en vanalega og bendir það til þess að síldin hafi grynnkað á sér, því þeir sem dýpra voru fiskuðu lítið. Nokkrir aðkomubátar, frá ísafirði, Reykjavík og Vest- mannaeyjum, hafa lagt afla upp í Grafarnesi. Bandaríska hunda feimnismál Moggans! kjötið Mogginn og Tíminn heyja nú harðvítuga keppni um hylli bænda. Mogginn birti í fyrradag ,,úr ræðu“ Sverris Gíslasonar á að- alfundi stéttarsambands bænda. Ræðukaflinn sem Mogginn birti um sölu dilkakjötsins til banda- rísku kjölturakkanna í guðs eigin landi er undarlega stutt- ur, hann er fjórar línur — með fyrirsögn og hljóðar svo: „Ameríkukjötið". Þá minnt- ist hann á kjötsöluna til Ameríku og afskipti Fram- leiðsluráðs af því máli". I öðru liefti af Árbók land- búnaðarins þetta ár er frá því skýrt að þegar Reykvíkingar fengu óvænt að kaupa dilka- kjöt i búðunum þá liafi það verið kjöt „er upphaflega áttl að selja á Amerikumarkáð . . . en þessi markaður brást vestra og var kjötið þá selt í Reykja- vík~. Hvernig er það, er lystarleysi bandarísku kjölturakkanna orð- ið feimnismál í Mogganum?! salur 15x8 m og leiksvið 6x8 m, auk þess er á efri hæð for- stofa og herbergi fyrir bóka- safn Nesjahrepps og til skóla- halds, Á neðri hæð er eldhús, veitingasalur, tvær fatageymsl- ur, fjögur snyrtiherbergi og baðherbergi, er stærð neðrihæð- ar- 14x8 metrar. Um smíði hússins hafa þeir séð Ásgeir Guðmundsson, Höfn og Helgi Guðmundsson, Hof- felli, raflagnir hefur annazt Gísli Björnsson á Höfn, en málun þeir Bjarni Henriksson og Þórhallur Kristjánsson á Höfn. Vígsluhátíðin hófst í kirkju- kjallaranum við Láxá, flutti Hjalti Jónsson, hreppstjóri, í Hólum, þar kveöjuorð til gamla samkomusalsins, sem um 40 ára. skeið hefur verið notaður til fundahalda, skólahalds, þing- halds og samkomuhalda fyrir hreppsbúa, en síðan var gengið undir fánum að hinu nýja fé- lagsheimili, sem stendur á grundunum nokkru innar í sveitinni. Ur fordyrum hússins flutti formaður ungmennafélags ins ,,Máni“ Hreinn Eiríksson, Framhald á 7. síðu. Fyrsta síldarsöltun í Hcrnafirði Höfn Hornafirði 2. sept. Frá fréttaritara Þjóðv. Fyrir nokkru fór m.b. Helgi frá Hornafirði á reknet út af Hornafirði og fékk í einni drift um 70 tunnur af síld, en þar sem engin tök voru á að salta síld hér var síld þessi tekin til frystingar. Nú hefur sildarsöltunarstöð- in „Máni“ á Þórshöfn flutt bækistöðvar sinar hingað og hefur í félagi við Kaupfélag Austur-Skaftfellinga hafið hér sildarsöltun, barst fyrsta síldin til stöðvarinnar á land í gær og voru saltaðar um 18 tunnur. var það m.sk. Freyfaxi frá Neskaupstað, sem með þessa síld kom. Það sem ekki var saltað var tekið til frystingar. Enn eru aðeins tveir bátar héðan á reknetum, þeir ,,Helgi“ og „Hvanney", en stórviðri undanfarna daga hafa hamlað veiðum. Sumaraflinn 60 til 70 tonn Sauðárkróki. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. í sumar hefur fiskazt ágæt- lega á trillubáta er stundað hafa veiðar hér úti í firðinum. Frá því í aprillok hafa aflazt um 60—70 tonn á smátrillur, en afli var farinn áð minnka undir það að veður versnaði um daginn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.