Þjóðviljinn - 06.09.1952, Page 8

Þjóðviljinn - 06.09.1952, Page 8
tftþensla skrifstofubáknsins: SkrifsÉofukosÉiiaðiii* vex um T8?2% Á síðasta bæjarstjórnarfundi, við aðra umræðu 'um reikninga bæjarins og bæjarfyrirtækja árið 1951, flutti bæjarfulltrúi sós- íalista, Ingi R. Helgason, athyglisverða gagnrýni á þá f jármála- stefnu, sem reikningarnir mörkuðu og skýrði bæjarstjórn frá iithugunum sínum og samanburði á reikningum tveggja síðustu ára, svo' sem Þjóðviljinn skýrði frá í gær. Af samanburði þeim er ljóst, að fjármál bæjarins eru komin í hið mesta óefni: útsvarshækkun á hálfnuðu kjörtímabili 32,5% en skuldaaukuing gUÓÐVILSINN Laugardagur 6. sept. 1952 — 17. árgangur — 199. tölublað Iðnsýnlngin opnuð í dag Iðnsýningin 1952 verður opnuð almenningi kl. 5 í dag. Er það langmesta og fjölþættasta sýning er nokkurn tíma hefur verið haldin hér á laudi. á sama- tíma um 88%! Meginástæðan Meginástæðuna fyrir versn- andi fjárhag bæjarins kvað Ingi vera hina geypilegu út þenslu skrifstofubáknsins, en í því efni væri brýn nauðsyn á að snúa við og viðhafa meiri aðgæzlu og hagsýni. Birti Þjóð viljinn í gær samanburðartölur þær er Ingi hafði gert yfir kostnað á 13 tilteknum skrif- stofum bæjarins, en í heild hafði kostnaðurinn aukizt um 50,3% á kjörtímabilinu. Minnst var aukningin á Hafnarskrif- stofunum eða 32% en mest hjá skrifstofum Bæjarútgerðarinnar 196,5% og Innkaupastofnunar- innar 178,9%. Meðaltal þessara hækkana er hvorki meira né minna en 80,5%! Strætisvagnarnir En Ingi hafði aðra töflu í fórum sínum og hún var yfir rekstur strætisvagnanna á kjör- tímabilinu. Er hún birt hér í blaðinu í dag. Hún sýnir giögg- lega hina ískyggilegu þróun. Tekjur strætisvagnanna hafa aukizt ár frá ári vegna hækk- aðra fargjalda og er nú svo ftomið að það er orðin veruleg viðbót á útsvarsgreiðslur út- hverfabúanna það sem hjá þeim fer í strætisvagnaferðir miðað við þá, sem búa innan Hring- brautar. Á kjörtímabilinu hafa tekjur strætisvagnanna aukizt um 83,3%. Maður skyldi nú setla að með þeirri tekjuaukn- ingu væri hægt að gera I stóra hluti og koma í veg fyrir frekari skuldasöfnun. En hver er raunin? Skuldaaukningin hefet í hendur við tekjuaukninguna Nei, öðru nær. Eins og tafla Inga R. Helgasonar ber með sér hafa skuldirnar vaxið hröð- um skrefum á tímabili hinnar miklu tekjuaukningar eða um 49,4%. Þetta er óhugnanleg staðreynd, sem sýnir að rekstur Dettifoss vann Reykjafoss Áhafnir Dettifoss og Reykja- foss kepptu í farskipakeppninni í knattspyrnu í þessari viku og vann Dettifoss með 2 mörkum gegn 1. strætisvagnanna verður ekki fluttur á traustan grundvöll með hækkuðum fargjöldum ein- um saman, hér sem annars staðar þarf aukna aðgæzlu í meðferð fjármuna og meiri hagsýni í öllum rekstri, ef ráða á bót á hallarekstrinum. Hefur það verið gert? Skrifstofukostþaður vex um 78,2% Nei, aldeilis ekki. Eins og taflan sýnir, hefur skrifstofu- kostnaðurinn vaxið á tímabilinu en þó keyrt um þverbak við komu hins nýja unga forstjóra. Á tímabilinu hefur skrifstofu- ‘kostnaðurinn vaxið um 78,2% og hafa þó verið bætt mjög vinnubrögðin í sambandi við uppgjör við bifreiðastjóra. Þetta er sama útþenslan og i gjörvöllu skrifstofubákni nú- verandi íhaldsmeirihluta, sem er alveg úr fengslum við eðli- lega hækkun sökum vísitölu- hækkunar. Framhald á 6. eíðu. AB-blaðið segir ósaÉÉ AB-blaðið, sem aldrei segir satt orð um neitt, sem Sósíal- istaflokkinn áhrærir, skrökvaði því nýlega upp að maður hefði verið rekinn úr flokknum fyrir að 'kjósa Ásgeir Ásgeirsson! Auðvitað eru Jætta ósannindi. Hinsvegar var manni, sem hafði skuldað sig út úr flokkn- um með því að hafa ekki greitt flokksgjöld í 18 mánuði til- kynnt að hann hefði verið strikaður út, eftir að frá hon- um barst bréf þar sem hann lýsti því yfir að hann vitandi vits bryti lög flokksins. Til þessarar iðnsýningar er efnt í tilefni af tveggja alda afmæli Innréttinga Skúla Magn ússonar, fyrstu iðnfyrirtækja hér á landi. Sýningunni hefur verið komið fyrir í Iönskólan- um nýja, og leggur hann allan undir sig, samtals fimm hæðir. Sýnendur eru nokkuð á þriðja hundrað og úr öllum lands- fjórðungum. Hafa þeir að und- anförnu verið að hamast i áð koma vörum sínum fyrir, og mun því tæplega verða lokið að fullu í dag, þótt ekki hafi verið horfið að því ráði að 'fresta opnuninni meira en orð- ið var. Klukkan tvö í dag verður sýningin opnuð boðsgestum, og fer þá fram sjálf opnunarat- höfnin. Fyrst flytur formaður framkvæmdanefndar sýningar- innar, Sveinn Guðmundsson for stjóri, ávarp. Síðan lýsir for- seti Islands sýninguna opnaða. Verðlaunin voru blómaker til að hafa í garði. Þrír menn fengu viðurkenningarskjöl fyr- ir fallega garða. Voru það í Suðurbænum sr. Garðar Þor- steinsson og frú fyrir garðinn við Brekkugötu 18, Hákon Helgason kennari fyrir garðinn á Sunnuvegi 6 og Ágúst Páls- son og frú fyrir garðinn á R- víkurvegi 32. Bezta umgengni í verksmiðju í Hafnarfirði taldi nefndin hjá Rafha við Lækjargötu. Af Vegurinn til Kefla víkur afleitur Vegurinn til Keflavíkur er í þannig ásigkomulagi að margir leigubílstjórar veigra sér við að aka hann, ýmsir hafa neit- áð því. Þykir bílstjórunum hart að eiga á hættu að eyðileggja bíla sína á þessum vegi og léleg atvinna að fá greiddar 180 kr. fyrir Keflavíkurferð og brjóta fjaðrir fyrir 600 krónur. Framhald á 6. síðu. Að því búnu flytja þeir Bjami Benediktsson iðnaðarmálaráð- herra og Gunnar Thoroddsen borgarstjóri ræður. Einnig mun lúðrasveit leika. Þjóðviljinn hvetur fólk ein- dregið til að fjölmenna á þessa sýningu og skoða hana méð gaumgæfni. Hún er stórmerki- leg heimild um atvinnulif okk- ar og atvinnuþróun, tækni okk- ar og verkmennt. Og hún ætti að færa okkur heim sanninn um nauðsyn öflugs iðnaðar í land- inu. 351 tonn af fiski 520 pokar af mjöli Reýðarfirði. Frá frétta- ritara Þjóðviljans. Togarinn Austfirðingur land- aði hér í fyrradag 158 tonnum af saltfiski og 520 pokum af mjöli. Á Eskifirði landaði hann 193 tonnum af saltfiski. verzlunum fór nefndin viður- kenningarorðum um umgengni í apótekinu og verzlun Kaupfé- lags Hafnarfjarðar við Strand- götu. Fegrunarfélag Hafnarfjarðar hefur m. a. girt Hamarinn og goóðursett þar barrtré. Formaður Fegrunarfélags Hafnarfjarðar er Valgarð Thor oddsen. September- sýningin Septembersýningin hefur nú verið opin eina viku. Um 500 manns hafa sótt sýninguna á þessum tíma. Verður hún opin til næsta föstudags. Sýningin er í Listamanna- skálanum, og sýna þar einkum ungir málarar og myndhöggv- arar verk sín, auk nokkurra eldri. Mikill styr hefur staðið að undanförnu um liststefnu flestra þessara málara, og ætti enginn að bíða tjór. á sálu sinni þótt hann kynnti sér verk in af eigin sjón og raun. MlR-ráðstefna í Reykjavík 14.-15. þm. FiiIItrúar frá Sovétríkjunum og nágrannalöndunum sitja ráðstefnuna sem gestir Aðalfundur MÍR — Menningartengsla íslands og Ráðstjórn- arríkjanna — var haldinn í Tjarnarkaffi 2. þ. m. Félagsmenn í Reykjavík eru nú 700 og 15. þús. manns hafa sótt fundi, kvimyndasýningar og samkomur MÍR frá því á s.I. aðaffundi. Tímaritið MlR kemur út í 2000 eint. Dagana 14.—15. ]>. m. verður haldin MÍR-ráðstefna í Reykja- vik og sækja hana m. a. 4 rússneskir vísinda- og listamenn og Tafla yfir rekstur Strætisvagna Reykjavíkur 1949—1951 1949 1950 1951 Tekjur 3.842.151.- 5.585.146,- 7.043.807.- Tekjuaukning frá 1949 .. ... 1.742.995,- 3.201.605.- %-aukning frá 1949 .... 45.7% 83.3% Skuldir 3.311.616,- 4.342.656.* co Sí i Skuldaaukning frá 1949 .. 1.031.040.- 1.636.235.- %-aukning frá 1949 .... 31.1% 49.4% Skrifstofukostnaður .... 220.688,- 255.944,- 393.395.- Aukning frá 1949 35.256.- 172.707.- %-aukning frá 1949 .... 15.9% 78.2% Ýmsar greiðslur 183.350,- 257.422,- 375.087.- Aukning frá 1949 74.072,- 191.737,- %-aukning frá 1949 .... 40:4% 104.5% Herdís Jonsdottir á fegursta garðinn Fegrunarfélag Hafnarfjarðar kvaddi fréttamenn á fund sinn i Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði í fyrrakvöld og skýrði þar frá því að Herdísi Jónsdóttur hefðu verið veitt verðlaun félagsins fyrir fegursta garðinn í Hafnarfirði á þessu sumri. Er það garðurinn við Öldugötu 11. fulltrúar frá systrafélögunum í nágrannalöndunum. Lúta baitdariskir flugmsnn ekki ísíenzkum lögum í Reykjavík? Em heimálaráðheirann og rukkarinn mikli samsekii? Halldór Kiljan Laxness, for- seti félagsins, setti fundinn og benti á hve mikilla vinsælda félagið hefði notið og hver nauð syn væri á starfi þess, enn- fremur skýrði hann frá hinni fyrirhuguðu ráðstefnu. Kristinn E. Andrésson flutti Alþingi hefst 1. okt. Forseti Islands gaf út í gær að Bessastöðum bréf um að reglulegt Alþingi 1952 skuli koma saman til fundar 1. októ- ber n.k., svo sem gert er ráð fyrir í lögum frá síðasta þingi. (Frétt frá forsætisráðuneytinu) skýrslu um félagsstarfið. Fé- lagsmenn í Reykjavík eru nú 700 og deildir úti á landi eru ellefu. Kristinn sagði m.a.: Við þurfum ekki því að kvíða: verk efnin munu hlaðast á MÍR og kröfurnar sífellt aukast sem til félagsins verða gerðar. Auð- valdið getur ekki til langframa úr þessu hindráð að fréttir ber- ist af því stórfenglega athafna- lífi og þeirri síauknu velmeg- un sem á sér stað í Sovétrkj- unum. Menn eru farnir að leggja eyrun við og vilja fá meira að heyra um það sem gerist þar og stöðugt fleiri munu sækjast eftir að komast þangað. Menningartengslin við Framhald á 6. síðu. Undanfama daga hafa bandarískar flugvélar haft viðkomu á Skerjafirði. Um flughöfnina í Skerja- firðinum fara margra þjóða vélar, þ. á. m. bæði brezkar og danskar á þessu sumri og að sjálfsögðu hafa íslenzkir tollþjónar farið út í þessar flugvélar og haft tolleftirlit með þeim. Þegar þeir komu út að bandarísku flugvélunum brá hinsvegar svo við að þeim var sagt að út í þær fengju þeir ekki að fara, þeir hefðu þangað ekkert erindi. Tollgæzlan heyrir sem kunnugt er undir fjármála- ráðherrann, Eystein Jónsson og hafði hann engin fyrir- mæli gefið um að ekki skyldi fara fram tolleftirlit með bandarísku flugvélunum og spurðu tollþjónarnir því hverju það sætti að Banda- ríkjamenn neituðu íslenzku tolleftirliti í flughöfninni. Fengu þeir þau svör að Bjarni Ben. hefði sagt að þeim væri velkomið að nota flughöfnina eins og þeir vildu — og vitanlega án eft- irlits íslenzkrar tollgæzlu. Hvort er nú að hermála- ráðherra Bandaríkjamanna á Islandi, Bjarni Ben., hafi þarna gripið fram fyrir hendumar á samráðherria sínum, eða að tollarukkarinn mikli, Eysteinn, hafi ekki brjóst að rukka vini sína Bandarík jamennina ?!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.