Þjóðviljinn - 19.09.1952, Side 1

Þjóðviljinn - 19.09.1952, Side 1
&ðgöngumiSar Föstiidagur 19. sept. 1952 argangur 210. tölublað að samkomu MÍR á morgun fást í dag í Bckabúð Máls og memiingar og skrifstofu MlK, Þingholtsstræti 27. Ameríkanar byggja 500 íbúðir í Keflavík Islendingum bannaS að byggja og þeir lögsóffir ef þeir koma yfir sig þaki Suður á Keflavíkurílugvelli eru Bandaríkjamenn nú að byggja 10 húsablokkir þriggja hæða, 80x20 m hver að flatarmáli, eþa 1600 fermetrar hver hæð. Þetta eru um 500 íbúðir, eða svipað og talið er nauðsynlegt að byggja í Reykjavík á ári vegna eðii- legrar fólksfjölgunar. Flatarmál hvers húss er 1600 ferm. Hvert hús er 3 hæðir eða samtals 4800 ferm. Húsin eru tiu, samtals eru þau því 48 þús. ferm. Handtökur í Túnis Mótspyrnan gegn Frökkum í Túnis fer vaxandi. Nýlega skýrði franska lögreglan frá því, að hún hefði liandtekið fjóra flokka skemmdarverka- manna í Túnis, Sousse og Biz- erta. Flokkurinn frá Sousse, sem í voru 12 manns, var undir stjórn lögfræðings og verk- fræðings. I Kalaa-Kebira hefur Iögreglan handtekið sjö menn, sem ákærðir eru fyrir skemmd- arverk. I Bizerta hefur einn af leiðtogum þjóðernissinna Salah Ben Hedi Ben Múhameð og sex menn aðrir verið handtekn- ir. Þeir eru grunaðir um að hafa sprengt brú eina í loft upp. 15 menn voru handteknir í Túnis, Flug-menn á Grænlandsjökli Brezku flugmennirnir, sem nauðlentu á miðjum Grænlands- jökli, hafa nú dvalizt þar í þrjár nætur. Ek'ki er óttast um þá, en þó talið að björgun þeirra sé miklum erfiðleikum bundin. Vinnudeila í Bretlandi Atvinnurekendur í brezka málmiðnaðinum hafa enn hafn- að kaupkröfum verkamanna og leggja til að málið fari fyrir gerðardóm. Verkamenn hafa áð- ur lýst yfir að á það geti þeir ekki fallizt. Það verður því að öllum líkindum úr banni verka- lýðsfélaganna við yfir- og á- kvæðisvinnu. EDEN er nú í Belgrad og hefur átt viðræður við Tító og Kardelj, utanríkisráðherra. Ólafur Jóhannes- son fundíinn heill r a húfi Ólafur Jóhannesson, sem hvarf frá heimili sínu á laug- ardaginn var og leitað hefur verið síðan dag hvern, fannst í gær — heill á húfi. Var hann þá staddur í svonefndri Dysja- mýri ekki alllangt frá bænum Hliði á Álftanesi. Var hann ekki vel haldinn, enda mun hann hafa hafzt við úti allan þennan tíma. Ólafur var fiuttur á sjúkra- húsið í Hafnarfirði. Hús þessi munu eiga að vera íbúðir fyrir liðsforingja og sé reiknað með 100 ferm. íbúð verða þetta nær 500 íbúðir. Á sama tíma verða Ísíending- ar að hafast við í allskonar hreysum vegna þess að þeim er bannað að byggja íbúíir yfir sig. Á sama tíma og herraþjóðin byggir í Keflavík húsnæði sem nemur um það bil árlegri þörf Reykjayjkur fyrir auknar íbúðir — er fjárhagsráð með réttar- höhl yfir Islendingum fyrir þann „glæp“ að hafa komið yfir sig þaki!! (Nánar eru þessi mál rædd í leiðara biaðsins í dag). Fyrirmæli síðasta Alþýðusara- bandsþings til stjórnar Á.S.1 Vegna mjög rætinnar greinar í garð járniðnaðarmanna í AB-blaðinu í gær, sem eitt sinn hét AEÞÝÐUblað, skal AB-blaðið 'upplýst um að síðasta Alþýðusambandsþing gaf sambandsfélögunum og miðstjórn sambandsins bein fyrirmæli um að standa vel á verði gegn atvinnuof- sóknum. Fyrirmæli síðasta Alþýðusambandsþings eru svo- lil jóðandi: „Þingið skorar á öll verkalýðsfélög að vera vel á verði gegn öllum tilraunum í þessa átt og standa saman sem einn maður um þá með- limi samtakanna, sem kunna að verða beittir atvinnu- og skoðanakúgun af hálfu atvinnu- rekenda eða fulltrúa þeirra." Evrópuherirnir fá kjarnorkuvopn, segir Collins Formaður herforingjaráðs Bandaríkjahers, J. Lawton Coll- ins, sagði nýlega þegar hann var í heimsókn í aðalbækistöðv- um atlantsherjanna í París, að þeir myndu „fyrr eða síðar“ fá kjarnorkuvopn. „Kjarnorkufallbyssur munu framleiddar í stórum stíl innan tíu ára“, sagði hann, og Banda- ríkin yrðu þá að láta banda- mönnum sínum slík vopn í té. Hann flýtti sér þó að bæta við, að enginn mætti halda að minni þörf gerðist fyrir stóra landheri í Evrópu um árabil. Hins vegar mundu brátt hefj- ast umræður milli bandarískra og evrópskra herstjórna um notkun kjarnorkuvopna í Evr- ópuherjunum. f skffrslu efnahagsnefndar 8M* í Errópu segir: Framleiðslan í ríkjum sósíalismans hefur vaxið m fimmtung á eimi ári. - samdráttur og stöðnun í auðvaldsríkjum Vestur-Evrópu Efnahagsvandamál auSvaldsheimsins: Hvernig draga megi úr framleiSslunni til að hindra verSlœkkun „í ársfjórðungsskýrslu efnahagsnefndar SÞ í Evr- ópu er vakin athygli á þeirri uggvænlegu staðreynd, að framleiðslan í Austur-Evrópu vex statt og stöð- ugt, en aíturkippur og stöðnun er einkennandi fyrir efnahagsástandið í öllum hinum miklu iðnaðar- löndum Vestur-Evrópu"- Þannig hófst fréttaskeyti Reuters daginn sem skýrslan var birt. Samkvæmt Reuter er sagt í skýrslunni, sem nær yfir fyrsta ársfjórðung þessa árs og nokk- uð af öðrum, að iðnaðarfram- leiðslan í Sovétrikjunum og öðrum ríkjum sósíalismans í Austur-Evrópu hafi „haldið á- fram að vaxa ört og verið a'ð meðaltali 20meiri en fyrir sama tíma í fyrra. Framleiðslu- áætlanirnar hafa að mestu leyti verið uppfylltar“. Fóru fram úr áætlun. í þessari síðustu setningu felst að framleiðsluáætlanirnar í þessum löndum hafa ekki ein- ungis verið uppfylltar, heldur fari'ð fram úr áætlun. Eina undantekningin er Tékkóslóvak- ía, þar sem aðeins 98,5% af markinu hafði náðst, þó er þar um að ræða 18% fram- leiðsluaukningu miðað við í fyrra og þess að gæta, að áætl- uninni var breytt og hún hækk- uð frá því sem hún var í upp- hafi. Þó að reynt sé i skýrslunni að bera brigður á einstök atriði í efnahagsskýrslum Austur- Evrópulandanna, þá er ekki reynt að neita því, að í þessum löndum á sér stað stórfelld og stöðug aukning þjóðarteknanna og auðsins. I Vestur-Evrópu dregst framleiðslan saman. Öðru máli gegnir um Vestur- Evrópu. Um minnkun framleiðsl unnar þar segir í skýrslunni, að hún sé „bæði afleiðing og orsök þess, að neyzlan heldur áfram að minnka“. Þess er get- ið, a/i með stöðvun bandariskrar efnahagsaðstoðar sé Vestur- Evrópa orðin enn háðari Banda ríkjunum. Minnkandi útflutningur frá Vestur-Evrópu mun valda því að dollaraskortur hennar verð- ur enn meiri. I skýrslunni er vikið að haftastefnu Bandaríkj- anna og farið hörðum orðum um ,,þær tilraunir sem enn.eru gerðar til að reyna að útilQka keppinauta frá markaði i Eanda.ríkjunum“. Samkvæmt bandarísku frétta stofunni AP er einnig minnzt í skýrslunni á nokkur atriði, sem lof-a „góðu“ í núverandi efna- hagserfiðleikum Vestur-Evrópu. Sagt er, að nú sé í undirbún- ingi að gera ráðstafanir til að GUNNAR MVRDAL, formaður efnahagsnefndar SÞ í Evrópu koma í veg fyrir verðfall á þeim hráefnum, sem framleiðsl- an hefur verið stóraukin á vegna stríðsundirbúningsins: „Nú eru í undirbúningi al- þjó'ðlegar áætlanir, sem eiga að koma í veg fyrir offram- leiðslu, sem framleiðendur segja að muni verða „erfið viðureign- ar“. Hér er um að ræða þess- ar vörur m. a.: gúm, baðm- uli, tin, ull og sykur.“ Hið langvinna stáliðnaðarverk- fall i Bandaríkjunum kom sér líka vel fyrir stáliðnað Vestur- Evrópu. 1 skýrslunni segir samkvæmt AP: „Bandaríska stálverkfallið orsakaði nettó- framleiðslutap á stáli sem nam 20 millj. lesta, og hefur það breytt mjög öllum viðhorfum og um stund hindrað erfiðleika fyrir evrópskan stáliðnað11. Skýrslan sýnir þannig Ijóslega þann eðlismun, sem er á hagkerfi sósíalismans og hagkerfi auðvaldsins. Á meðan framleiðslan vex stöðugt í ríkjum sósíalism- ans, vöruverð lækkar og vel- megun eykst jafnframt því sem grundvöllur er lagður fyrir aukinni velmegun í framtiðinni, er helzta efna- hagsvandamál auðvaldsþjóð félagsims, hvernig takast megi að hindra verðfækkun og þá er eina ráðið sem gripfð er til það að draga úr framleiðsltinni og leggja á hana höft og bönu með nlhiáðlePTmi samhvkktum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.