Þjóðviljinn - 19.10.1952, Side 3

Þjóðviljinn - 19.10.1952, Side 3
Sunnudagur 19. október 1952 — ÞJÓÐVTLJINN (3 MEÐAN FOLKIÐ SVAF Aðfangadag jóla 1940 sendi bandaríski ræðisma'ðurinn í Rvik Bertel E. Kuniholm, yfirboðara sín- um Cordell Hull, orðsendingu frá utanríkisráðherra Islands. Ráð- herrann Stefán Jóhann Stefánsson, spurði hvernig hæstvirt Banda- ríkjastjórn tæki því ef til kæmi beiðni frá Alþingi um hei"vernd Islands. 1 orðsendingunni kvaðst Stefán Jóhann Stefánsson áhyggju- fullur vegna þess að þýzkt her- nám kynni að vofa yfir landinu ef aðstaða Bretlands versnaði. Bandaríski utanríkisráðherrann svaraði 18. janúar 1941 að þeir hefðu samúð með hinum kvíðandi íslenzka ráðherra og skyldu hafa alvarlega í huga samband Banda- ríkjanna og Islands en Banda- ríkjastjórn vildi engar skuldbind- ingar á sig taka að svo stöddu. Bandaríkin vildu áskilja sór fullt athafnafrelsi svo þau ættu hægt með að snúast við hverjum þeim atburðum er snertu hagsmuni Bandaríkjanna. í júní 1941 lýsti brezka stjórn- in yfir því i Washington að hún væri reiðubúin að láta brezka hernámsliðið á Islandi víkja fyrir Bandaríkjaher. Forseti Bandaríkj- anna ákvað þá að framkvæma þau skipti. (Sbr. The Memoirs of Cor- dell Hull, bls. 946-947). ★ Hvar er íslenzkra heimilda að leita um þessa örlagaþmngnu at- burði lslandssögunnar? Hvar er að Jeita fi-ásagna, skýrslna og skjaia íslenzkra ríkisstjóma um íslenzk utanrikismál? Skyldi hitt reynast rétt, að aldrei hafi is- lenzk ríkisstjórn látið svo lítið að fræða þjóðina um þessa mála- leitun Stefáns Jóhanns Stefáns- sonar, sem hann gerir af hálfu þriggja islenzkra stjórnmálaflokka, Alþýðuflokksins, Sjálfstæðisflokks- ins og Fiamsóknar, og hefur nú vegna framhaldandi baktjalda,- makks þeirra sömu flokka við stjórn erlends stói-veldis orðið að upphafshlekk særandi hernaðar- fjötra og erlendrar íhlutunar um allt þjóðlif Islendinga. Frásögnin í greinarbyrjun þræð- ig, stuttorða .lýsii\gp..Cordtílls Hulls á því hvernig bar að bandariska hernámið 1941. Fyrst hin vanhugs- aða orðsending Stefáns Jóhanns Stefánssonar, Hermanns Jónasson- ar, Ólafs Thórs, Eysteins Jónsson- ar og Jakobs Möllers, sem svar- að er á þann kaldrifjaða hátt sem einkennir slík milliríkjavið- : skipti eigi þau að fara leynt: Bandarikin kæra sig..ekki um að gefa neinar suldbindingar mn her- nám íslands, á því stigi stríðsins var það ekki fullljóst að hagsmun- um Bandaríkjamia væri bezt borg- ið nieð slíkri íhlutun i Evrópu. Og svo nokkrum mánuðum síðar afhendir brezka stjórnin landið bandariskum her. Samtímis því að sá her er að stíga á land eftir margra mánaða undirbúning, er settur á svið hinn hörmulegi sjónleikur á Alþingi Islendinga opinská háðung við sjálfsákvörð- unarrétt smáþjóðar, alþingismenn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Alþýðuflokksins samþykkja það sem hið erlenda stórveldi fyrirskipaði, voru látnir biðja um það hernám sem þegar var verið að framkvæma. Reynt var af al- efli að blekkja þjóðina um þáð sem raunverulega gerðist, áróður- inn barnalegi um gæzku og dá- seiiid og göfuglyndi hins erlenda stórveldis sem svo hrotta’ega tróð undir . járnhæl frelsi íslands og sjálfstæði hófst í keyptum mál- gögnum hinna scku flokka, er þá þegar höfðu kosið sér hlut. ★ Sag'nf ræð í n gu m f rarti tiðar i n nar, í frjálsu íslandi, mun reynast örð- ugt að skilja hvernig foi-ystu- menn þriggja stjórnmálaflokka á Islandi gátu lagzt jafn lágt og þeir hafa gert áratuginn 1941—-’51, hversu blygðunarlaust þeir smeygðu hernámsfjötri stórveldis á þjóð sina. Hitt mun )>ó ekki siður undrunarefni hve vel þeim tókst að leyna þjóðina hinu sanna uifi ætlanir sínar og athafnir, dylja stóran hluta hcnnar þess sem gcrðist að tjaldabaki, allt frá; ‘ hernámsbeiðni . þjóðstjórnar- .innar á aðfangadag 1940 ti) -undir- búnings hins grímulausa hemáms á friðartíma 1951. Hvernig verður það skilið siðar meir að opinberir stjórnmálaleiðtogar, sem hika ekki við að gera sjálfa sig að vesælum ómerkingum hvað eftir annað, geti villt mönnum svo sýn að flokkar og kjósendur halda áfram að láta eins og þetta séu heiðar- legir menn? Hvernig verður litið á þá svardaga ráðherra og þing- manna þríflokkanna að aldrei skuli koma til herstöðva á Islandi á friðartímum, í ljósi þess er gerðist vorið 1951. ★ Hvernig er hægt að stinga heil- um þjóðum þann svefnþorn að þær láti misþyrma sér eins og þríflokkarnir í þjónustu Banda- ríkjaauðvaldsins hafa misþyrmt ís- lenzku þjóðinni þennan áratug? Ekki sízt sú spurning mun framtíðamiönnum torráðin. >eg- ar flett er sögublöðum þessara ára. sést sú stórmerka staðreynd, að á öllum stigum hlnnar banda- rfsku ásælni hefur þjóðin verið vöruð \4ð, hefur henni verið sagt hvernig verið væri að mis- þyrma henni andvaralausri, fjötra hana og kefla. Á hverju einasta stigi hinnar bandarísku ásælni hefur Sósíai- istaflokkurinn barizt gegn myrkra- öflunum sem fært hafa þjóðina í fjötrana, þingmenn hans og blöð skýrt fvrir þjóðinni hvað væri að gerast. Ekki seinna en i febrúar 1941, tveimur mánuðum áður en Þjóðviljinn var bannaður, fletti hann ofan af baktjaldamakki ís- lenzku þríflokkanna við Banda- ríkjastjórn og varaði við afleið- ingunum. Barátta þingmanna Sósí- alistaflokksins við hin örðugustu skilyrði gegn bandarísku ásæln- inni mun lifa i Islandssögunni með heiðum ljóma þeirra tinda sem hæst ber i sjálfstæðisbaráttu þjóð- arinnar; barátta göfugs málstað- ar, málstaðar Islands, gegn hrædd- um og hugvilltum landráðalýð. Og nú þegar ætti ein staðreynd þess- ara ára að nægja til að vekja margan mannj: 'Elna stóiárás Bandaríkjamanna sem þjóðin fékk að vita um í tíma og hrundið var — hin ósvífna krafa Baudaríkja- stjórnar 1945 um lierstöðvar á ls- landl til 99 ára — fékk þau örlög vegna þess og þess eins að Sósí- alistaflokkurinn áttt þá memi í ríkisstjóm Islands, það var staðið á verði um málstað Islands alla leið upp í stjórnarráð. Og Banda- rikjastjórn skildi að það varð. að, fara lævíslegar að til að smeygja fjötrinumf "á' "IsTenáfng'a — ’ og fyrsta skilyrðið var að hrekja ný- sköpunarstjórnina frá völdum og fá í staðinn bandarískar lepp- stjórnir. Það tókst, vegna land- ráða stjórnmálamanna og and- varaleysis þjóðarinnar. Upp frá því tekur hin ömurlega„fígúra“ Bjarna Benediktssonar, hins ís- lenzka Lavals, að varpa landiáða- skugganum um allt þjóðlíf íslend- inga. ★ Er hægt að vænta þess ao þjóð- in vakni af þeim dvala sem gert hefur óþurftarmönnum hennar fæi-t að lauma á hana banda- risku fjötrunum? Margt bendir til að almenningur í Sjálfstæðis- flokknum, Framsókn og Alþýðu- flokknum sé farinn að rumská. sjái óljóst i svefnrofunum hvílík óhæfuverk hafi verið unnin á þjóðinni meðan mikill hluti lienn- ar mókti andvaralaus og treysti orðum manna eins og Bjarna Ben., Eysteins Jónssonar og Ste- fáns Jóhanns Stefánssonar. 1 her- búðum a,llra þessara flokka grípur nú um sig sá ótti að fólk- ið vakni og skilji, — viðbrögð lýð- skrumskompásanna Rannveigar og Gylfa sýna stefnu óttans. Megi þjóðsvikararnir í þríflokk- unum skjálfa af ótta við skiln- ingsauka íslenzku þjóðarinnar. Megi þeir sjá og finna að sú stund kemur er allir þjóðhollir Islendingar vakna til vitundar um ílivirkin sem leppar hins erlenda valds frömdu á andvaralausri þjóð áratuginn 1911—1951. Sú stund er skapast þjóðfyiking íslend- inga. úr ötium flokkum gegn cr- lcndri áþján; gegn hcrnámi lands- ins. S. G. SKÁK Ritstjóri: Guðmundur Arnlaugsson Shákir frá Heisinhi Þegar rætt er um stór skák- mót er oft jafnað til skákmóts- ins í Wien 1898. Þar mættust 19 taflmeistarar og tefldi hver þeirra 2 skákir við hvern hinna. Varla hafa verið tefldar meira en tvær umferðir á hverjum þremur dögum og hefur mótið því staðið tvo mánuði og þó sennilega nokkru lengur, því að einhverjum frídögum hefur á- reiðanlega verið skotið inn í. Ekki nægði þetta þó til þess að skera úr því, hver snjallastur væri. Tarrasch og Pilsbury urðu jafnir efstir og urðu að þreyta með sér einvígi eftir mótið. Þá vann Tarrasch. Á þessu móti tefldi hver þátttakandi 36 skák- ir. Voru því alls tefldar 342 skákir og eru þá skákirnar í ein- viginu ekki taldar með. Senni- lega hafa flestir keppenda feng- ið sig fullsadda á skák um sinn í þessari tveggja mánaða lotu, enda hygg ég að þetta sé mesta mót sinnar tegundar er haldið hefur verið. Að vísu hafa síðar verið haldin mót með fleiri þátt- taikendum og fleiri tefldum skákum, fyrst og fremst Fide- mótin,. en þau eru annars eðlis, þar eigast sveitir við. Á Fide- mótinu, sem fram fór í Helsinki í sumar, voru á annað hundrað þátttakendur og mér telst svo til að þar hafi verið tefldar 740 s'kákir. Þó þolir þetta mót ekki samanburð við skákmótið i Buenos Aires 1939, en þar kepptu sveitir frá 27 þjóðum, og 20 konur tefldu þar um heimsmeigtaratign kvenna. Þar voru tefldar 1142 skákir ails. En þótt Helsiriki jafnist ekki á við Buenos Aires að þessu leyti, er engu að síður úr nógu að velja, skákirnar voru prent- aðar nokkum veginn jafnharð- an og taka >Tir 190 blaðsíður, skjTÍngalausar, skammstafaðar og þéttprentaðar. Skákdáikurinn ætlar að birta eitthvað af slcákum frá mótinu, tvær hafa þegar séð ljós dags- ins og í dag kemur sú þriðja. Þar glímir fulltrúi þeirrar þjóðar, sem stóð fyrir mót- inu, við fulltrúa þeirrar, sem sigurinn vann. Keres þarf ekki að kynna og Böök verður held ur ekki kynntur að þessu sinni. Skákin mælir með sér sjálf, það er ekki daglegur viðburður að sjá einn snjallasta taflmeistara heimsins fá aðra eins útreið, og Keres fær í þessari skák. (17—<15 1 <12—dl 2 c2—cl 3 RkI—Í3 4 Rbl—c3 5 e2—e3 6 Bfl—dS 7 Bd3xc4 8 Bc4—e2 9 0—0 10 e3—e4 11 e4—c5 12 a2—a4 13 Rc3—e4 14 Bol—g5 En ekki 14 —Be7 15 Rf3—d2 16 Rd2—c4 c7—c6 Rg8—f6 e7—e6 Rb8—d7 d5xc4 b7—b5 a7—a6 Bc8—b7 c6—c5 Rf6—d5 b5—b4 Ha8—e8 Dd8—b6 — 15 Rd6t o5xd4 IIc8xc4 En þarna er Keres slyppiíengur- Með 18. leiknum hefur hann skapað sér færi, sem ótiailegt -er að hann sk.Uli ekki nota: 20, Bxd5. t. d. 20 Rd6t —Bxd5 21 Hc8t—Kf7 22 20 — Ke8—17 21 Bc4—b3 h<—li® 22 Bg5—d2 Bf8—<Hi) 23 Ddl—h5f gl—g<5 24 Dhó—e2 <12—d3: 25 De2—dl Da7—dl 26 Hfl—el Dd4—h4 Hótar einfaldlega Rg4. Eftir þann leik er ekki unnt að koma h3 við vegna Rxf2. 27 li2—h3 Rdö—Í4 Miðar bæði á h3 og g2 28 Bd2xf4 Dh4xí4 29 Hel—e3 h6—h5 30 Ddl—d2 h5—h* 31 Rg3—fl Hh8—h5 32 Hcl—el Hh5—g'5 33 f2—fS Bb7xf3 34 He2xe5 BdGxeS 35 í?2—&4 Be5—d4t 36 Rfl-g3 Df4xg3t 37 Kgl—fl Dg3xh3t og hvítur gafst upp. Á þessum leik hefur Böök byggt, fyrir skiptamuninn fær hann tvö peð og nær góðum tökum á mið- borðinu. 17 Be2xc4 R<17xe5 18 a4—a5! Db6—a7 19 Hal—cl DbG—a7 19 Hal—cl f7—f5 20 Re-1—g3 ? — 31. SKÁKÞRAUT Mát í 2. leik. La.usn á 4. síðu. ★ Um BÆKUR annað * ARTUR Lundlcvist, hinn sænski gagnrýnandi og skáld, hef- ur skrifað ritdóm um Atómstöðina s^m nú er komin út á sænsku, í þýðingu Peter Hallbergs. Hefur hann ekkert nema lof um söguna að segja: stílinn, mannlýsingarn- ar, húmorinn, svipuhöggin og hina sjóðandi gremju. Hann kallar sög- una þjóðlag leikið af sinfóníu- sveit, og hún er „samruni islenzkr- ar founsögu og amerísks kvik- myndadrama”. — í upphafi hins langa ritdóms segir Lundkvist að „Ameríku” hafi tekizt hingað til að stöðva nokkrar þýðingar sög- unnar á Evrópumál, og er það sama. og við höfum áður greint frá hér i blaðinu. Það virðist þannig sem menningarráðsmönn- um þar vestra þyki Atómstöðin ekki út af eins þunn og legátar þess hér heima vilja vera láta — auk þeirrar ræðu um prentfrelsi vestrænna lýðræðisríkja sem semja mætti af þessum texta. Ritdómur Lundkvist birtist í Morgon-Tidn- ingen i Stokkhólmi, aðalmálgagni sænskra sósialdemókrata, en Lund- kvist er bókmenntaritstjóri þess blaðs. Er skáldsagan á uppleið að nýju? leið upp úr öldudalnum. Hann segir að það sé meginhlutverk nútímahöfunda að sigrast á nihil- i§nia þeim sem sett hafi mót sitt á andlegt viðliorf Evrópumanna Á undanförnum árum hafa ýmsir vcrið haldnir mikilli svart- sýni um lífsskilyrði skáldsögunn- ar og framtíð hennar — að ekki sé talað um ljóðið sem ýmsir hafa sannað að væri að syngja sitt síðasta vers. Nú hafa tveir útlend- ingar skrifað nýlega i erlent tíma- rit sína greinina hvor um sagna- skáldskapinn á ítalíu og í Þýzka- landi. Þeir eru báðir bjartsýnir í lokin. Annar lýsir þvi hvílíkt efni sé lagt höfundum upp i hendurnar í hinni athafnasömu og viðburðaríku samtið vorri. Þeim sem skrifar um þýzku sögurua virðist sem hún ^ nú þegar .4 Iiatharlne Hepburn og Robert Helpman í The MiUionairess að undanförnu. — Vist er um það að heldur er farið að draga úr hinni sóttheitu rökstreitu fyrstu eftirstriðsáranna um form og stíl, og gæti það bent til þess að eftir- leiðis verði innihaldi, mannkyni og þjóðfélagi gefinn meiri gaumur í bókmenntunum hér vestur írá. Annars er það auðvitað mjög bundið þróun heimsmálanna. ClTT síðasta leikrit Bern- ard Shaw nefnist á ensku The Millionairess. Hann skrifaði það áttræður að aldri, og sagði hann sjálfur að „það ætti ekki að vera annað en gamanleikur um skemmtilega og skrýtna samtima- menn, eitthvað í stíl við það sem Ben Jonson hefði skrifað ef hann hef.ði lifað í dag“. Víst er um það að leikurinn er skemmti- legur, fullur af fyndni, fjörugum tilsvörum og skrýtnum atvikum. En hann er ekki vel byggður, vantar á hann heildarsvip. Aðal- persónan er hin ríka kona, The Millionairess, en við aðrar persón- ur er lögð minni rækt. Nú kom Katharine Hepburn, sem er sann- arleg leikkona þó hún starfi í Hollywood, til Englands i frumar leið, og lék aöalhlutverkið i þess- um leik. Hún leiddi leik sinn til sigurs, og stækkaði um leið leik- rit gamla Shaws. ÞAKKAR0RÐ Hjartanlega þakka ég öllurn nær og fjær, sem vottuðu mér og heimili mínu og tengdamóður minni, Guðrúnu G. Jónsdóttur á Hávallagötu 51, og tengdasystkinum mínum, samúð og vináttu við' fráfall míns ástkæra eiginmanns SIGURJÓNS PÉTURSSONAR. Sigríöur Loftsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.