Þjóðviljinn - 02.11.1952, Page 1
;;;í
. «;v.íÁ»4irý<
Snnnudagur 2. nóv. 1952 — 17. árgangur
248. tölublað
Það styttist nú óðum þar til handíða- og listmunabazar Sósíal-
istaflokksins verður haldinn, enda keppist nú fjöldi manna í
trístundum sínum við að gera ýmiskonar muni sem þeir — og
fá ekki síður þær — ætla að gefa á bazarinn. — Þjóðviljinn
fvétti nýlega af einum, Bárði Jóhannessyni, sem gert hefði
sl artgripaskrín til að gefa á bazarinn, og fékk að líta á smíð-
isgripinn. — Skrín þetta, sem þið sjáið hér á myndinni fyrir
oían, er kjörgripur hinn mesti, fóðrað utan með rauðu skinni,
en að innan er það klætt bleiku silki, og hefur kona Bárðar
lagt þar hönd að verki. Fætur skrínsins feru úr munstruðúm
kopar og horn loksins eru einnig greipt munstruðum kopar. —
Þjóðviljinn mun bráðlega IJta inn til íleiri sem eru önnum
kafnir að gera muni fyrir bazarinn.
Andúðaralda í garð Banda-
ríkjanna rís í V.-Evrópu
Yfiríréttaritari New York Times áhyggjufullur
Yfirfréttaritari bandaríska. stórblaösins New York Times
i Evrópu lýsir því yfir aö andúð í garö Bandaríkjanna rísi
nú fjöllunum hærra um gervalla Vestur-Evrópu.
Bretar setja I CtOO inaniia
þorp á Malakka í svelti
Templer, yfirhershöfðingi Breta á Malakkaskaga, hef-
ur skipa'ö að setja alla íbúa 1600 manna þorps á hungur-
skammt í mánuð.
Til þess að tryggja að þorps-,
búar geti ekki sjálfir aflað sér
viðurværis er þeim bannað að
fara út úr kofum sínum nema
stutta stund á degi hverjum.
I þorpi þessu, sem er í norð-
anverðu soldánsríkinu Johore,
voru þrír hermenn Breta
drepnir aðfaranótt síðasta
mánudags. Hefur Bretum ekki
tekizt að knýja þorpsbúa til
sagna um hverjir vegendurnir
sóu og kveðst Templer vera að
refsa þorpsbúum fyrir þag-
mælskuna.
Síðan Temler tók við her-
stjórn á Malakka hefur það
orðið æ tíðara að Bretar þar
hefni sín á íbúum heilla byggð-
arlaga, körlurn, konum og
bömum, ungum og gömlum,
fyrir ósigra sem þeir bíða í
viðureigninni við skæruher
landsbúa. Nokkur þorp hafa
verið brennd til ösku og íbú-
arnir fluttir í fangabúðir.
C. L. Sulzberger segir í frétta-
skeyti frá París í blaðinu sl.
sunnudag, að stofnun Vestur-
Evrópuhers, sem sé hornsteinn
stefnu Bandaríkjanna í álfunni,
sé stefnt í mikla tvísýnu. And-
úðina á Bandaríkjunum og
stefnu þeirra kennir hann
,,særðu stolti, gremju, sem
lengi hefur búið um sig og
starfsemi hópa, sem eru and-
vígir efnahagslegri og stjórn-
arfarslegri sameiningvi hins
frjálsa hluta meginlands
Evrópu“.
Fréttaritarinn segir að
meira að segja einlægustu vin-
ir Bandaríkjanna láti nú orð
falla, sem komi illa við Banda-
ríkjamenn. Minnir hann á
gagnrýni Herriot; forseta
franska þingsins, á stefnu
Bandaríkjastjórnar og um-
mæli Parísarblaðsins Combat
að „því fer svo fjarri að A-
bandalagið sé varnarbandalag
jafnrétthárra, fullvalda ríkja.
það verður í æ ríkari mæli
verkfæri í höndum Bandarikja-
stjórnar í kalda stríðinu við
Sovétrikin".
I Þýzkalaiuli segir Sulzberg-
er r|kja vaxandi gremju yfir
því að komið liefur á daginn
að bandaríska leyniþjónustan
hefur myndað og vopnað naz-
istískan skæruher.
Norðanmenn taka
Þríhyrning
Bandarískt herlið stutt flug-
vélum varð í gær að láta und-
an síga og hætta við tilraun
til að ná Þríhyrningi, fjalli á
miðvígstöðvunum í Kóreu, sem
norðanmenn tóku fyrir þrem
dögum. Barizt hefur verið um
Þríhyrning í þrjár vikur og
ýmsum veitt betur.
Stjórnmálasam-
bandi slitið
Brezki sendifulltrúinn í Te-
heran og starfsfólk sendiráðs-
Breta þar er farið alfarið og
stjórnmálasambandi Bretlands
og Iran þar með slitið. Síðasta
verk Middleton sendifulltrúa
var að neita að veita móttöku
orðsendingu frá utanrikisráð-
herra Irans, þar sem lýst er
yfir að stjórnmálasamband
milli ríkjanna sé óhugsandi
fyrr en Bretar hafi látið af
tilraunum til að kúga Iran í ol-
íumálinu og steypa stjórn
Mossadegh með undirróðri.
1 1
Siúdentaráðs-
kosRÍitgarnir
Úrslit stúdentaráðskosning-
anna uröu Jxau að atkvæði féllu
mjög svipað og í fyrra.
Félag róttækra stúdenta
hlaut 130 atkv. og 2 fulltrúa
kjörna (Hafði í fyrra 132 atkv.
og 2 fulltrúa).
Vaka hlaut 302 atkv. og 5
fulltrúa. (Hafði síðast 295 at-
kvæði og 5 fulltrúa)..
Félag frjálslyndra stúdenta
fékk 69 atkv. og 1 fulltrúa.
(Áður 61 atkv. og 1 fulltrúa).
Stúdentafélag lýðræðissinn-
aðra sósíalista fékk 55 atkv.
og 1 fulltrúa. (Síðast 57 atkv.
og 1 fulltrúa).
15 seðlar voru auðir og 5
ógildir.
Dihelius fer til
Moskva
Otto Dibelius, biskup þýzku
mótmælendakirkjunnar í Berlín
og Brandenburg, hefur ákveð-
ið að taka boði Alexíusar patrí-
arks í Moskva um að heimsækja
Sovétríkin. 1 för með Dibeliusi
verða tveir aðrir mótmælenda-
biskupar, annar frá Aústur- og
hinn frá Vestur-Þýzkalandi.
Dibelius hefur deilt mjög á
stjórnarvöldin í Austur-Þýzka-
landi en berst fyrir sameiningu
Þýzkalands.
Lie þýónar
3ieCarthfi
Tryggve Lie, aðalritari SÞ,
hefur nú opinberlega gerzt
verkfæri bandarískra skoðana-
'kúgara af sauðahúsi McCarthy
öldungadeildarmanns. Hefur
Lie vikið frá störfum þrem
bandariskum starfsmönnum SÞ,
sem neituðu að veita einni af
rannsóknarnefndum öldunga-
deildar Bandaríkjaþings upp-
lý'singar um stjórnmálaskoðan-
ir sínar.
NeyBarástand i afurSasölunni:
Bvgging clvalar-
Iieimilisins Iiafin
1 gær var stungin fyrsta rek-
an í grunni Dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna, eins og Þjóð-
viljinn greindi frá í gær. Gerði
það formaður byggingarnefnd-
ar hússins, Bjöm Ólafsson í
Mýrarhúsum.Síðan tóku til máls
Ólafur Thors siglingamálaráð-
herra, borgarstjóri og biskip.
Er nú þess að vænta að hægt
verði að halda byggingunni á-
fram unz lokið er. Þetta verður
mikið stórhýsi, en í byggingar-
sjóði munu vera nokkrar
milljónir króna.
'ÆFR v
Munið aðalfundinn
í Tjarnarkaffi ann-
að kvöid kl. 21:C0.
Það er alkunna að ekkert er
formælendum „frjálsrar verzl-
unar“, Sjálfstæðismönnunum
Bjarna Benediktssyni og Ólafi
Thórs, viðkvæmara en þegar
sett er fram krafa um frjálsa
verzlun á útflutningsvörum
landsmanna. Einstakir útgerð-
armenn og útgerðarfélög sem
farið hafa fram á leyfi að
mega selja framleiðslu sína
hafa jafnan fengið algera neit-
un við slíkum tilmælum. Engir
mega komast að sölu íslenzkra
fiskafurða aðrir en Bjarni
Benediktsson og Ólafur Thors
eða þeir menn einir sem alger-
lega þjóna undir þá. Hvað eft-
ir annað hafa þessir menn til-
kynnt að það varði við hin
ströngustu lagaákvæði ef nokk-
ur dirfist að bjóða út, leita
tilboía eða á annan hátt taka
þátt i að undirbúa sölu á ís-
lenzkum afurðum.
En hvernig gengur þá af-
urðasalan hjá einokunarklík-
unni ? Hér skulu tilfærð nokk-
ur dæmi, sem almenningur á
heimtingu á að þekkja til hlít-
ar.
Frosiim flskiir
Á þessu ári mun vera bú-
ið að framleiða af frosnum
fiski kringum 32-33 Jiúsund
tonn. Nú ,í nóvemberbyrjun
eru 23-24 þúsund tonn af
þessari framleiðslu óseld. Á
iniðju framleiðsluárinu voru
nær öll frystihús landsins
stöðvuð vegna rúmleysis.
Víða í útgerðarbæjum urðu
bátarnir að liætta veiðum af
þessum sökum.. Togarar sem
stunduðu veiðar fyrir frysti-
húsin urðu einnig að liætta.
Þá var gripið til þess ráðs
að senda til Ameríku nokkur
Jjúsund tonn af framleiðsl-
unni til geymslu Jiar. Þar
liggja nú mörg þúsund tonn
af óseldum fiski í geymslu.
Ennþá geta ýms frystihús í
Iandinu ekki tekið á móti
fiski vegna rúmleysis.
Saltflskur
Ársframleiðslan af salt-
fislti mun vera milli 40-50
þúsund tonn. EnnJjá mun
talsvert af því magni liggja
óselt. Um 15 Jjúsund tonn
af framleiðslunni hefur þurft
að selja með Jieitn óvenju-
lega hætti, að fiskurinn hef-
ur verið fluttur út I veiði-
skipunum sjálfum, og dansk-
ir fiskkaupmenn hafa svo
tekið að sér sölu á fiskin-
um inn á markaði okkar á
Italíu! Ku.nnugir telja að á
þennan liátt fái Islendingar
í kringum 1000 kr. minna á
hvert saltfisktonn í gjald-
eyri heldnr en þeir hefðu
fengið, ef fiskurinn hefði
verið lagður á land liér heima
og seldur á fullu verði
án danskra milliliða. Tap
Islendinga á Jtessum við-
skiptum myndi Jtá nema
um 15 milljónum króna í
gjaldeyri. Ástandið í stjórn
afurðasölunnar á ítalíu er
alkunnugt og hefur nýlega
verið rifjað upp. Á miðju
sumri tilkynnti saltfiskeinok-
nnin að bannað væri að
verka saltfisk til útflutn-
ings fíam yfir Jtað sem Jtá
var orðið og var sitluerfið-
leikum borið við. Mjiig mik-
ið saltfiskmagn varð því að
liggja í geymslum útgerð-
armanna í óverkuðu ástandi
yfir sumarmánuðina og stór-
rýrnaði auðvitað og spilltist
í~- geymslunni. Ýmsir fisk-
kaupmenn telja sig geta náð
mun hærra verði fyrir salt-
fisk en einokunin hefur
boðið, en Jieira hefur jafnan
verið neitað um leyfi.
~k
Þessar staðreyndir sanna svo
að ekki verður um villzt að nú-
verandi sölufyrirkomulag á að-
alútflutningsvörum okkar er1
gersamlega ótækt. Raunveru-
lega er um algera uppgjöf að
ræða í sölu á frystum fiski á
þessu ári. Framleiðslustörfin í
landinu eru stöðvuð og atvinnu
leysi skapað með þessum vinnu-
brögðum. Framleiðendur eru
settir í algera óvissu um það
hvort ráðlegt sé að halda á-
fram framleiðslu á hverjum
tíma. Er ekki eðlilegt að menn
spyrji með þessar staðreyndir
í huga: Hversvegna er fisk-
framleiðendum bannað að gera
sjálfir tilraunir til sölu á beirri
framleiðsln senv Ólafur Thors
og Bjarni Benediktsson eru ó-
færir um að selja ? Hvers^egna
má ekki minnast á það að ein-
hverjir aðrir en þessir einok-
usiarherrar fái leyfi <:I að leita
eftir sölu á íslenzkum afurð-
um, t.d. í Austurevrópu-lönd-
um, þegar sýnt er aö þessir
menn geta ekki komið sölum
fram eða vilja það ekki?