Þjóðviljinn - 08.02.1953, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 08.02.1953, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN----Sunnudagur 8. febrúar 1953 Leiðir mikilla skra Nú þegar gengið er til kosn- inga í Dagsbrún er rétt og skylt að hugleiða Iwer hefur vérið meginþátturinn í stefnu og starfi Dagsbrúnar undir stjórn sameiningarmanna á undanförnum árum til þess að undirbyggja og tryggja gildi baráttunnar fyrir lífskjörum okkar og atvinnu. Þeir sem fylgzt hafa með á göngu verkalýðssamtakanna á undanförnum árum, á þeim leiðum sem troðnar hafa verið og marka dýpri og skýrari spor en fyrr í skilning manna á gildi breiðra samtalia, sjá hvernig stefna sameiningar- manna hefur meir og meir beinzt að því að sameina allt vinnandi fólk til samstilltrar baráttu fyrir samræmdum kröfum og kjörum. Undir for- ustu Dagsbrúnar og fyrir at- beina Dagsbrúnarstjórnarinn- ar hefur hvað eftir annað tek- izt að sameina að einu miklu markmiði flest öll verkalýðs- félög í Reykjavík og víðsveg- ar um allt land, því mikla markmiði að bæta Iífskjör allra vinnandi manna í land- inu, sameiginlega og ótvístr- að. Engum dylst nú lengur að Tryggvi Emilsson, þessi stefna sameiningar- manna er rétt. Við höfum unnið stóra sigra og þeir lærdómar sem sam- staða verkalýðsfélaganna hefur fært okkur eru ekki síð- ur mikilsverðir. Við vitum nú, að atvinnurekendum mun ekki framar takast að ein- angra eitt og eitt félag í bar- áttunni. Við vitum að við getum með ári hverju stigið stærri og stærri spor til betri lífsaf- komu og fyllri menningar því lengra sem stefna sameining- armanna nær út í raðir verka- fólksins. - Mikil verkefni bíða úrlausn- ar svo ávinningur samtaka okkar verði meir og meir gild- andi í þjóðlífinu. Við verðum í krafti samtak- anna að vinna þann rétt hverj- um manni til handa að vinna án ótta við komu atvinnu- lausra daga. Okkur ber að vinna þann rétt, svo hann verði aldrei tekinn frá okkur framar. Dagsbrún, undir stjórn sameiningarmanna, mun aldrei missa sjónar á þeim samtaka árangri, sem unnizt hefur með samstöðu verkalýðsfélaganna sem rétt- Framhald á 11. síðu SKÁK Ritstjóri: Guðmundur Arnlaugsson Guðmundui: Pálmason sigrar á skákmóii stúdenta Fregnin um sigur Guðmundar Pálmasonar á skákmóti stúdenta í Uppsölum vakti talsverða athygli hér heima, enda er hvorttveggja að Guðmundur var einhver hinn efnilegasti í hópi ungra skák- manna og orðinn einn bezti skák- maður okkar þegar hann sigldi ut- an til frekara náms, og að lítið hefur af taflmennsku hans frétzt síðan. Að. sögn Guðmundar sjálfs var mótið eklci nema í meðallagi' öfl- ugteOg vfLC-sPjörn. Jiaggqvisb kunn- astur þátttakenda, en hann er fyrsti drengjaheimsmeistarinn. — Hann vann sigur á drengjamót- inu í Birmingham 1950, en þar hlaut Friðrik Ólafsson fjórðu verð- laun. Þeir Björn og Guðmundur tóku forustuna þegar i upphafi og fór svo fyrstu fimm umferðirnar, að báðir unntt hverja skák, en þá varð Björn að hætta. Eftir það var keppnin aldrei tvísýn, því að Guðmundur var alltaf 1-2 vinn. fyrir ofan næsta mann, Þetta var fyrsta skákmót sinn- ar tegundar í Svíþjóð. Uppsaia- stúdentar áttu frumkvæðið að því, enda munu þeir vera einna mestir áhugamenn um skák meðal sænskra stúdenta. Folke Rogard kom í heimsókn á lokahátíð móts- ins og afhenti verðlaun. Híýtur rétt til þátttöku í heims- meistarakeppni stúdenta en getur sennilega ekki neytt hans Mót þetta var eíns konar und- irbúningur undir annað meira: heimsmeistarakeppni stúdenta, er fram á að fara í Briissel dagana 5.-15. marz n.k. Rússinn Spasskij -óg Hollendingurinn Donner hafa *verið neýndir meðal væntaniegra þátttakenda. Frá Svíþjóð hefur Lungqvist tilkynnt þátttöku sína, en hann hlaut önnur verðlaun á mótinu í Uppsölum, tveimur vinn- ingum neðar en Guðmundur. Einn- ig er búizt við að Björn Hággqvist taki þátt. Hins vegar eru litlar hkur á að Guðmundur geti farið, bæði vegna þess að hann er all- bundinn við nám- sitt, en einnig sökum kostnaðar, því að Belgir bjóða að Vísu ókeypis dvöl með- an á mótinu stendur, en ferðirnar verða þátttakendur að kosta sjálf- ir. Skák og tafllok frá mótinu. Þótt Guðmundur láti ekki mikið af skákstyrkleik manna á þessu móti býst ég við að ýmsum leiki hugur á að sjá þaðan skák og hér kemur þá ein heil og lok ann- arrar. Skýringarnar eru að mestu eftir Guðmund sjálfan. Drötthiiigáfbfagð ........ J "G! P.1 — M.'' Piscatöu ■ 1 d2—d4 d7—d5 2 c2—c4 e7—e6 3 Rbl—c3 c7—c5 4 c4xd5 e6xd5 5 Rgl—f3 Rb8—^c6 6 g2—gS c5—-c4 Þetta er kalláð sænska afbrigð- ið í vörn Tarrascliar gegn drottn- ingarbragði, því að frægustu meist- aran- Svianna hafa beitt því á al- þjóðamótum, með allgóðum ár- angri á stundum. 7 Bfl—g2 Ef trúa má skákfræðinni er e2—e4 bezti leikur hvits hér, en staðan sem þá kemur upp er ekki við hvers manns hæfi. 7 ---- Bf8—b4 8 0—0 Rg8—e7 9 Rf3—e5 Rc6xe5 Betra var sennilega að hróka. 10 d4xe5 Bc8—e6? Nauðsynlegt var að leika Bxc3, 11 bxc3, þó að biskupapar hvíts verði sterkt og hann þrýsti óþægilega á d-peðið. 11 Ddl—a.4t Re7—c6 12 Rc3xd5! Dd8—a5 Ef Bxd5, þá Hdl osfi-v. 13 Da4xa5 Bb4xa5 14 Rd5—f4 Rc6xe5 15 Rf4xe6 f7xe6 16 Bg2xb7 Ha8—b8 17 Bb7—e4 0—0 18 Bcl—f4 Ba5—c7 19 Hal—bl Hf8—Í7 20 Be4—g2 h7—h6 21 Bg2—h3 Hf7—f6 22 Hfl-cl Svartur fær ekki varið öll sín tvístruðu peð. 22 ----- Hb8—f8 23 Bf4—e3! v Hótar f4 og Hxc4. 23 ----- g7—g5 24 Be3xa7 Hf8—a8 : v 25 Ba7—d4 Ha8xa2 26 Hclxc4 Re5xc4 27 Bd4xf6 Kg8—f7 28 Bf6—d4 e6—e5 29 Bd4—c3 Bc7—b6 39 Bh3—g2 Kf7—e6 31 Bg2—e4 Bb6—d4 32 Bb4—h7! Bd4xc3 Eða Kf7 33 Bxd4 exd4 34 Bd3 Rxb2? 35 Bc2 og hótar Bb3. 33 Bh7—g8t Ke6—d6 34 b2xc3 Kd6—c5 35 Bg8xc4 Kc5xc4 36 Hbl—b4t! Guðinund.ur velur snotrustu vinn- ingsleiðina, kóngur svarts og hrókur lokast úti og hann á sér enga von um björgun. 36 -—-v — Kc4xc3 37 Hb4—e4 Ha2—a5 38 h'2—h4 g5xh4 39 He4xh4 Kc3—d2 40 Hh4—e4 Ha5—c5 41 Kgl—g2 Hc5—a5 42 f2—f3 Ha5—c5 43 g3—g4 og svartyr gafst upp þegar hvítur var búinn að sækja h-peðið með kóngi sínum. Guðm. Pálmason. ABCDEFGH Ljungqvist. TAFLLOKIN eru frá skák Guð- mundar við Ljungqvist. Guðmund- ur teflír svörtu. Þótt hvítur eigi peði minna en svartur virðist hann eiga góða von um jafntefli, þvi að svarti kóngurinn þarf að hafa gætur á hvita frípeðinu. Hvítur á leik, hann á um 7 kónlgsleiki að velja, 4 leiða til jafnteflis en 3 til taps! Ljungqvist vaidi einn hinna síðari og fram- haldið varð svo: 1. Ka3? c3 2. Ka2 Kb5 3. Ka3 Kc4! 4. e6 c2 5. Kb2 Kd3 6. e7 a3f 7. Kb3 (Kcl, a2) clD 8. e8D Db2f 9. Iía4 a2 og vinnur. Æskulýðshöll — eða hvað? I GÆR og fyrradag mátti sjá fólk reka upp stór augu af nokkuð óvenjulegri ástæðu. Það var semsé orðið stað- reynd, að" Þjóðviljinn hafði stækkað upp í tólf síður. Reyndar vissu fjölmargir, að þetta stóð til, og að gert var mikið átak og markið sett hátt. Fáir hafa þó líklega bú- izt við því,' að árangur söfn- unarinnar yrði jafn giæsi- legur og hann varð — að upp- hæðin yrði 41 þús. krónum hærri en markið var uppbaf- lega. Svipuðu máli gegnir um það, að menn trúðu því varla, að Þjóðviljinn myndi auka síðufjölda sinn, -— fyrr en þeir fengu blaðið í hendurnar í sínum nýja búningi, og stað- reyndirnar töluðu sínu máli. Enda má með sanni segja, að hér hafi almenningur sýnt betur en oft áður, hvers sam- tök hans eru megnug, ef einn vilji og margar hendur lyfta steininum. ★ E. segir: „Ég var nýlega að lesa í einhverju blaði, að viss gatnamót í bænum væru hættuleg varðandi umferða- slys, einkum fyrir börn og unglinga að leik. Gott er til þess að vita, að hið opinbera skuli hafa vilja til að koma í veg fyrir slíkt og bæta úr þeim ágöllum skipulags og mannvirkja, sem beinlínis eru hættuleg. En víða er pottur brotinn, og vildi ég mega benda á, að einnig innanhúss geta verið hættulegir staoir fvrir óvita. Ég sá ljóta sjón um daginn. í húsi því við Austurstræti, sem m.a. er Verzlunin Ragnar H. Blöndal (númerið man ég ekki), liggur stiginn allt upp á efstu hæð þannig, að auð- sjáanlega hefúr verið svo ráð fyrir gert upphaflega að setja' lyftu í húsið. Þáð er opið gap ofan frá efsta stigapalli hiður á neðstu hæð. Nýlega átti ég erindi upp á skrifstofu, sem er á efstu hæð hússins. Og er ekki að orðlengja það,. að þegar ég kem upp úr efsta stiganum sé ég hvar tvær' litlar telpur eru að príla uppi á handriðinu, önnur liggjandi klofvega að renna sér niður. Hvað hefði þarna getað gerzt? • Hefði mikið þurft til þess að -stúlkan missti jafnvægið og félli niður á steingólfið fyrir neðan? Ég spyr: Hvar er komið ábyrgð þeirra manna, sem láta annað eins viðgang- ast á almannafæri ? Er til of mikils mælzt, að eigendur eða umsjónarmenn viðkomandi húss láti strengja vírnet með- fram stiganum til þess áð koma í veg fyrir hugsanlegt slys?“ Þannig fórust E. orð, og hef- ur vissulega lög að mæla. ★ PILTUR utan af landi, semi slælega fylgist með í skipu- lagsmálum Reykjavíkurbæjar staðnæmdist eitt kvöldið fyr- ir framan hús eitt í smíðum við Aðalstræti og mælti hug- fanginn: „Þetta hlýtur að vera æsku- lýðshöllin, sem nú kvað eiga. áð fara að reisa?“ „Því heldurðu það?“ spurðí einhver. „Nú, þetta er í þeim bæjar- hluta, sem æskan sækir mest.. Og svo er hér hin foma vagga. Reykjavíkur, þar sem Skúli fógeti grundvallaði höfuðborg- ina með stofnun innrétting- anna“. „Mikið rétt. En það vill nú svo til, að þetta er ekki æsku- lýðshöll, vinur minn, heldur væntanleg skrifstofubygging: Moggans", hljóðaði svarið. ★ MUNIÐ, að Bæjarpósturinn er véttvangur ýkkar: 'tiT þess að . láta gkoðanif‘J,í “Ijós' um um- ræðuefni dagsjns. Hafið sam- band við liann gegnum símann. eða sendið honum línu. Utaná- skriftin er: Skólavörðustíg 19, Rvík. Kstra-siégit oit... I rógsherferð sinni á Verka- mannafélagið Dagsbrún og stjórn þess hafa sem kunnugt er þeir AB-menn flaggáð með nöfnum nokkurra verkamanna ásamt ljósmynd. Er þetta s.iá- anlega til þess gert að óhróð- urinn líti sennilegar út, því það vita þeir AB-menn sjálfir að langt er síðan að blað þeirra hætti að verp góð og gild heim- ild í augum verkamanna. Það sem þetta ómerkilega blað hefur einkum viljað telja verkamönnum trú um og end- urtekið í sii'ellu fyrir munn Péturs og Páls er sú staðhæf- ing að Dagsbrúnarstjórn haldi á aukaskrá með takmörkuðum. réttindum fjölda verkamanna, sem að félagslögum eigi rétt á að vera fullgildir félagsmenn með kosningarétti og kjör- gengi. Manni verður á að spyrja: Hverju sætir það að verka- menn, sem beittir eru slíkum órétti ár eftir ár, hafa ekki gert kröfu til þessa réttar síns? Hvað kemur til að Alþýðu- blaðið, sem haft hefur uppi á verkamönnum, til að segja þessa raunasögu hver á eftir öðrum af fjölda manns, skuli ekki birta viðtal við verka- menn, er sjálfir hafa orðið fyrir barðinu á Dagsbrúnar- stjórninni á þennan hátt eða birta eftir þá gr'einar með mynd af höfundi? — Þetta virðist vera miklu beinni og áuðveldari leið til að ná sér niðri á Dagsbrúnarstjórninni í almenningsálitinu. En hvers vegna er þetta þá ekki gert? Vegna þess, að Dagsbrúnar- stjórnin befur aldrei synjað neinum manni um rétt þann er hann hefur átt að félagslög- um. Sagan um þetta er upp- spuni frá rótum til að blekkja verkamenn til fylgis við óvini sína og fá þá til að svíkja sjálfa sig. Alþýðublaðið fylgir nefnilega trúlega boðorði þeirra Hitlers og Göbbels: Bara að endurtaka sömu lyg- ina nógu oft svo menn fari að trúa henni!! Friður þeirra lærifeðra sé með því. XX.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.