Þjóðviljinn - 08.02.1953, Page 7
Sunnudagur 8. febrúar 1953 — ÞJÓÐVILJINN ~ (7
• /
SJOIf
Sovéfvísindamaðufinn Fiiafoff læknar marga með
Iiornhimnuágræðslu sem áður voru taidir ólæknandi
Margir kannast við það ein-
kennilega fyrirbæri, að t. d. ald-
intré, sem komið er að falli, tekur
allt í einu upp á því að blómstra
að haustlagi. Það er líka hægt að
hringskera aldintré, sem ekki
fæst til að bera ávöxt með öðru
móti. Þá er skorinn burt barkar-
hringur af trjástofninum, og
næsta ár getur tréð verið að slig-
ast undan ávöxtum. Það er eins
og trén finni dauðann nálgast og
‘flýti sér að bera ávöxt. Það er
þetta fyrirbæri, sem liggur til
grundvallar þeirri nýju lækn-
ingaaðferð, sem hinn frægi augn-
læknir, V. Filatoff í Odessa hefur
tekið að nota. Hann hefur hlotið
Stalínverðlaun fyrir þann mikla
. árangur, sem hann hefur náð með
lækningaaðferð sinni, er hann
nefnir vefjalækningu.
★ Hættuleg skurðaðgerð gerð
auðveld
Filatoff prófessor er kunnur vís
indamaður utan sins eigin lands.
Hann varð frægur fyrir augna-
uppskurði, sem veittu blindum
sjón, með því að setja nýtt horn-
himnustykki í auga sjúklingsins.
Þessi skurðaðgerð var engin ný-
ung, því hún hefur verið kunn í
hálfa öld. Filatoff byrjaði sjálfur
slíkar aðgerðir árið 1913, en varð
að hætta af völdum heimstyrjald-
arinnar, og gat ekki hafið tilraun-
ir sínar aftur fyrr en 1922.
Þær aðferðir. sem til þessa
höfðu verið notaðar til að lækna
blindu með hornhimnuágræðslu
voru afar hættulegar og ekki á
færi annarra en snjöllustu skurð-
lækna. Það fyrsta, sem Filatoff
tók sér fyrir hendur, var því að
búa til ný tæld, sem gerðu að-
gerðina hættulausa, svo sérhver
skurð- og augnlæknir gæti fram-
kvæmt hana, og með hinum nýju
tækjum hans geta nú allir sovét-
. augnlæknar gert þessa skurðað-
gerð, sem getur veitt milljónum
blindra manna sjónina.
★ Filatoff stofnar hornhimnu-
banka
En það skorti hornhimnur til
. þess að hægt væri að framkvæma
slíkar aðgerðir í stórum stíl.
Hornhimnur úr dýrum eru ónot-
hæfar, og það varð að fá þær úr
möpnunv .sem augu voru tekin
úr vegna illkynjaðra sjúkdóma.
En það hrökk skammt, og Filatoff
greip því til þess úrræðis að taka
'hofhhimnur úr augum dauðra
manna.
Það kom í ljós, að hornhimnuna
mátti taka mörgum tímum eftir
lát mannsins, og að hægt var að
stofna hornhimnubanka, á sama
hátt og blóðbanka. Filatoff
geymdi hornhimnurnar við 3—4
stiga hita, og nú skorti hann ekki
lengur hornhimnur við aðgerðir
sínar.
í byrjun ársins 1952 hafði Fila-
toff og aðstoðarlæknar hans í
Odessa gert 2109 slíkar horn-
himnuaðgerðir, og aðrir sovét-
læknar 1930, sem er meira en all-
ar aðgerðir til samans annarsstað-
ar í veröldinni í þau 130 ár, sem
liðin eru frá því fj'rsta horn-
himnuaðgerðin fór fram. Og blind
ir fá sjón.
★ Sænskur verkamaöur fær
sjón
Það voru þessar skurðaðgerðir,
sem beindu athygli Filatoffs að
vefjalækningum. Þessi læknisað-
ferð bjargaði í ^yrjun árs 1951
sjón . sænsks verkamanns John
Nilsson, sem aðrir læknar höfðu
gefizt upp við. í ellefu ár hafði
hann verið undir læknishendi
vegna augnsjúkdóms, sem í fyrstu
þjáði hægi-a augað, og síðar einn-
'ig það Vmstra. Að síðustu urðu
læknarnir að tilkynna honum, að
þeir gætu ekki bjargað honum
frá að yerða blindur á báðum
augum. Þá kojn honum í hug, að
ef til viil gæti • Filatoff bjargað
honum með hornhimnuskurðað-
gerð.
í júlí 1950 var hann lagður á
spítala í Moskva, þar sem aðferð-
ir Filatoffs voru iðkaðar, og lækn-
isaðgerðir hófust þegar að lok-
inni nákvæmri rannsókn. Honum
til mestu undruhar var ekki gerð-
ur augnaskurður á honum, heldur
var hann sprautaður 32 daga í
röð í lærið með safa, sem Filatoff
hafði útbúið. Eftir eins mánaðar
hressingardvöl var hann sendur
heim til Svíþjóðar alheill. Sjón
hans var bjargað.
Það var vefjalækning Filatoffs,
sem þarna var notuð. í þúsundum
tiKella gerir hún hornhimnu-
ágræðslu óþarfa. En það, sem
meira er um vert, hún hefur
reynzt lækna marga sjúkdóma.
Enn eru lækningar með þessari
aðferð á býrjunarstigi og ýmsir
möguíeikar líít ra'nnsákaðir énn
sem komið er. Fyrstu tilraunirn-
ar gerði Fjlatoff árið 1933, og að-
ferðin hefur nú fyrst eftir seinni
heimsstyrjöldina verið notuð í
stórum stíi.
★ Fyrstu vefjaskurðaðgerðT
irnar.
Þegar Filatoff var að fást við
hornhimnuaðgerðir sínar, gerði
hann fyrstu athuganirnar, sem
leiddu til vefjalækninganna. Áð-
ur höfðu læknar, sem fram-
kvæmdu hornhimnuaðgerðir, tek-
ið eftir því, að hvítan í auganu
varð stundum Ijosari og skærari
umhverfis staðinn sem hornhimn-
an var grædd á. Þetta var skoðað
sem kynlegt fyrirbæri en engin
ályktun dregin af því.
Nú kom í ljós, að þegar Filatoff
notaði hornhimnur, sem teknar
voru úr ,bankanum‘, þar sem þær
höfðu verið geymdar nokkurn
tíma við 2—4 stiga hita, gerðist
þetta fyrirbæri tíðara og gleggra,
og sjálf aðgerðin heppnaðist mun
betur, en ef notaðar voru nýjar
hornhimnur.
Þetta kom Filatoff á þá skoðun,
að í vefjunum, sem þannig voru
geymdir, hlytu að myndast ein-
hver efnasambönd, sem ykju líís-
kraftinn. Filatoff byrjaði því að
græða vef í lækningaskyni inn
í hornhimnu augans. Hann notaði
það í þeim tilféílum, er horn-
himnuágræðsla hafði mistekizt og
ágrædda hornhimnan varð dökk
og ógegnsæ. Árangurinn varð
næstum alltaf■ sá, að nýja horn-
himnan varð heilbrigð. En hann
notaði einnig aðferðina til að
lækna ýmsa augnsjúkdóma.
★ Húðberklar læknaðir á átta
dögum.
Fyrstu tilraunina gerði hann
við sjúkling með hornhimnuígerð,
svo sjóninni hafði hrakað um 96
prósent. Slíká igerð tekur oft-
ast marga mánuði, og stundum ár
að lækna. Tveim vikum eftir að
Filatoff hafði grætt inn vef úr
hornhimnubankanum, var ígerðin
hætt með öllu og sjónin orðin
eðlileg.
Filatoff hélt nú áfrarn á þessari
braut og rannsakaði, hvort þessi
aðferð væri einnig nothæf gegn
Öðrum sjúkdómum en augnsjúk-
dómum. í byrjun græddi hann
inn vefi, sem reyndir höfðu verið
í sjö dægur í námunda við sýktá
stáðinn. Fyrsta tilraunin fór þeg-
ar fram úr öllum vonum hans.
Það var kyetjsjúklingur, sepi ár-
um saman hafði þjáðst af húð-
berklum, sem höfðu lýtt hana
hroðaléga i andliti, einkum nefið.
■ Filatoff- skar burt ofurlítið af
berklasýktum vef og setti í stað-
inn samsvarandi vef, sem hafði
verið geymdur sex daga í kæli.
Sjúklingurinn, sem árum saman
hafði verið beittur venjulegum
læknisaðferðum árangurslaust,
var þegar eftir tvo daga á góðum
batavegi. Og 8 dögum eftir að-
gerðina voru sárin með öllu horf-
in, og 28 dögum síðar var hún út-
skrifuð, alheilbrigð og eðlileg í
andliti.
Næsti sjúklingur hafði árum
sapaan leitað sér lækningar við
berklakýlum á höndunum, svo
hann var óvinnufær, því þær
voru samfelld sár. Filatolf græddi
inn vef í námunda við sárin, sem
hurfu á skömmum tíma. Þrem
mánuðum síðar var sjúklingur-
inn alfrískur og vinnufær og
hefur aldrei síðan fundið til þessa
sjúkdóms.
★ Sprautur geta nægt.
Filatoff prófessor hóf nú fyrir
alvöru rannsóknir í lækninga-
stofnun sinni, og það kom brátt í
ljós, að það var ekki nauðsynlegt
að nota vef sömu tegundar og sá,
er sjúkur var, og að árangurinn
varð jafngóður hvort heldur vef-
urinn var úr manni eða dýri, og
að ekki var nauðsynlegt að græða
vefinn inn í námunda við sýkta
staðinn, heldur mátti með jafn-
góðum árangri setja hann hvar
sém var í líkamann. Áhrifin urðu
miklum mun meiri, ef notaður
var geymdur vefur en nýr. Og
brátt kom í ljós, að ekki þurfti
að græða sjálfan vefinn í líkama
sjúklingsins, heldur nægði að
sprauta hann með safa úr vefn-
um.
Filatoff hugsaði sér, að lækn-
ingamáttur slíks vefjar stafaði áf
því, að í slíkum vef, sem hefur
vgrið numinn búrt 'jií manni éðá
dýri og geymdur við skilyrði, sem
ekki eru beinlínis drepandi, en
þó afar óhagstæð fyrir líf, mynd-
ist viss efni, sem hann nefnlr Kfc
hvata (biogenisk stimulator), er
'örvi lifsþróttinn. Af þessu mátti
ráða, að plöntuhlutar fengju einn-
ig slíkan lækningamátt, ef þeir
væru látnir lifa við óhágstæð skil-
yrði, ekki kulda eins og dýravefi,
heldur myrkur, þar eð sólarljósið
er grænum plöntum lífsnauðsyn.
Þessi skoðun reyndist rétt. í
plöntuvefjum, sem höfðu verið
geymdir í myrkri um vikutíma,
mynduðust þessir lífhvatar og
höfðu afar mikinn lækningamátt.
En það kynlega var, að þó Fila-
toff hefði í byrjun orðið að nota
ógerilsneydda vefi, sem gátu
valdið ígerð, þvi þeir hefðu drep-
izt við gerilsneyðingu, kom nú í
ljós, að hvatarnir voru ennþá á-
hrifameiri eftir klukkustundar
upphitun í 120 stig í gerilsneyð-
ingartæki.
Safasprautur af slíkum dýra-
eða plöntuvef reyndust brátt gefa
góðan árangur gegn fjölmörgum
sjúkdómum. í fjölmörgum til-
fellum má einnig taka safana inn
sem lyf. Þeir eru nú notaðir við
meir en 50 sjúkdómum, og af
þeim hafa nokkrir verið taldir
ólæknandi til þessa. Lungna-
barka- bein- og augnaberkla hef-
ur tekizt að lækna á fáum vik-
um eða mánuðum, þar sem aðrar
árlangar læknisaðgerðir hafa
reynzt árangurslausar. Margir
augnsjúkdómar, allt frá berklum
til nærsýni og rangeygðar o. s.
frv. hafa' læknazt með vefjaað-
ferð Filatoffs. Hún gefur einnig
undraverðan árangur árangur
gegn húðberklum, vissum tegund-
um af eksemi, og kýlum, venju-
legum sárum, sumum taugasjúk-
dómum, móðurlífsígerð, astma og
magasárum og flýtir fyrirgræðslu
beinbrota, læknar taugaveiki,
fransós, flogaveiki, marga barna-
sjúkdóma og ýmsa fleiri.
★ Þúsundir króniskra sjúklinga
læknaðir.
Ennþá er langt frá að mögu-
leikar þessarar aðferðar séu
tæmdir. Nýjar uppgötvanir eru
gerðar i hverjurn mánuði á þessu
sviði, af þeim þúsundum sovét-
lækna, sem tekið hafa upp aðferð
Filatoffs. Aðferðin hefur vitan-
lega, sínar takmarkanir, og Fila-
toff leggur áherzlu á, að hér sé
ekki um neitt undralyf að ræða,
sem lækni allt. Áhrifin taka ekki
beint til hins sýkta staðar eða
líffæris, heldur lífverunnar allr-
ar. ‘Þátr Örýá 'IffSSfá’ffSsémiriá1 óg
fá líkamann sjálfan til að annast
þá lækningu, sem læknisfræðinni
mistekst oft að koma til leiðar.
Stilhrein JárnbrautarstöcS
Hjji íagra járnbrautarstöðvarbygging i bnr^mni Dairen í Mansiúríu var ski-evtij
fánum um áramótin. TUefnið var að þá afhentu Sovétríkin Kínverjum til fullrt
eignar járnbrautina gegnum Mansjúríu. Fyrir herhiaup Japana. í Mansjúríu pg
ur síðan heimsstyrjólcUnnl síðart lauji.. átta Sovétríkln járnbrautina að hálfu.
Einn af sjúklingum Fíiatoffs fyrir og eftir aðgerðina