Þjóðviljinn - 23.04.1953, Page 5
Fimratudagur 23. apríl 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (5
swmurl
Sjóklæði og fatnaður h. f.
sumarl
Matstofa Austurbæjar
GleðUegt swnmr!
Samband ísl. samvinnufélaga
Gieðiiegt simmrl
Verksmiðjan Vera Simillon
sumarl
I
Gieðilegt smmmrl
Slippfélagið
Gieðilegt sumar!
G. Skúlason & Hlíðberg
Þóroddsstöðum
Gieðiiegt sumar!
Marteinn Einarsson & Co.
GleðUegt sumar!
Þvottahúsið Drífa
Gieðiiegt sumarl
Belgjagerðin h. f.
Skjólfa.tagerðin h. f.
Gieðilegt sumarl
Verzlunin Unnur Grettisgötu 64
Gieðiiegt sumarl
Efnalaugin Lindin
Brezka nýleadustjórnin í Ken-
ya hefur lagt dauðarefsingu við
því að hafa imdir höndum án
heimildar frá yfirvöldunum
sprengiefni, skotvopn eða
skotfæri. Hinga'ð til hefur leg-
ið ævilangt fangelsi við því ef
Afríkumcan hafa átt þessa
hluti án leyfis brezku yfirvald-
anna. Landnemar af evrópskum
ættum ganga allir vopnaðir í
Kenya.
I Uagverjalandi hefur verið
telcin upp leiguflugvélastarf-
semi hliðstæð leigubifreiða-
rekstri. Hvar sem er í Ung-
verjalandi er hægt að tryggja
sér einkaflugvél með því að
láta næsta flugvöll vita með
ákveðnum fyrirvara. Tveggja
hreyfla vél með sætum fyrir
þrjá farþega er þá til reiðu og
fiýgur hvert sem er í landinu.
Flugvélarleigan nemur rúmum
tveim krónum á flugkílómetra.
Auíiafundir
ekhi frœðaudl
Synir Rðsenberghjónanna, Michel og Robbie, á leið til að
heimsækja foreldra sína í klefum liinna (lauðadæmdu í Sing
Sing. Lögfræðingur hjcnanna fylgir þeim.
Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í síðustu viku aö
fresta því til 27. apríl, sem er á mánudaginn, aö kveöa
upp úrskurð um síöasta málskot Rosenberghjónanna.
Lögfræðingur hjónanna Eth-
el og Julius, sem dæmd voru
til lífláts í rafmagnsstólnum,
hefur beðið Hæstarétt að fyrir-
skipa endurupptöku málsins
vegna ýmissa galla á því,
hvemig það var rekið.
Hjónin voru ákærð fyrir
kjamorkunjósnir og sakfelld
eftir framburði sakborninga,
sem sluppu me'ð létta dóma fyr-
ir að vitna gegn hjónunum.
Kjarnorkufræðingar' og aðrir
dómibærir menn hafa lýst yfir
að vitnisburðurinn gegn hjón-
unum sé fullur af fjarstæðum.
Dauðadómufinn yfir hjónun-
um á sér ekkert fordæmi. Eng-
inn Bandaríkjamaður hefur
nokkru sinni vérið tekin af
lífi fyrir njósnir á friðartím
um og af þeim Bandarlkja
mönnum, sem dæmdir voru fyr-
ir landráð í heimsstyrjöldinni
síðari fékk ekki einn einasti
dauðadóm.
Náðunarbeiðnum Rósenberg-
hjcnanna hefur verið liafnað
en jafnframt hafa stjónarvöld-
in látið það síast út að lífi
þeirra verði þyrmt ef þau játi
sakargiftunum, sem á þau eru
bornar.
Öflug hreyfing til áð vinna
að endurupptöku málsins eða
náðun starfar í Bandaríkjun-
um og hefur breiðzt út um
allan heim. Hefur ekkert slíkt
átt sér stað síðan baráttan
var háð fyrir að bjarga lífi
Sacco og Vanzetti fyrir aldar-
fjórðungi, en á þeim frömdu
bandarísk yfirvöld eitt illræmd-
asta réttaiTnorð síðari tíma.
Hæstiréttur Austurríkis hef-
ur úrskurðað að það sé ekki
fræðslustarfsemi að leita sam-
bands við anda. Rétturinn stað
festi bann austurríska innan-
ríkisráðuneytising við starfsemi
félagsins Christoforus, samtaka
austurrískra spíritista. Ráðu-
neytið bannaði félagið á þeirri
forsendu að andafundir væru
heilsuspillandi bæði fyrir miðil-
inn og aðra fundarmenn.
Spíritistar töldu bannið
stjórnarskrárbrot, því að ekki
sé hægt að banna frjálsum
mönnum að spilla heilsu sinni
ef þeim sýnist svo. Dómstóllinn
staðfesti bannið á þeirri for-
sendu að félagið héldi ekki á-
kvæði sinna eigin laga, þar sem
segir áð það haldi fræðslu-
fundi. ,,Það er ekki fræðandi
að fást við anda og afturgöng-
ur“, segja dómararnir.
beint úr sjén-
í vinnslustöðvarnar
Nýstárleq löndunaraðíerð á Kamtsjatka-
skaga
Á strönd Kamtsjatkaskaga er fariö aö dæla fiski beint
upp úr sjónum í geymsluþrær fiskverksmiöja og söltun-
arstöðva. '
Skaginn Kamtsjatka gengur dælt í þriggja metra hæð. Þar
út úr Síberíu út í Kyrrahafið
norfanvert og þar koma upp að
ströndum á ári hverju einhverj
ar þær þéttustu fiskigöngur,
sem menn hafa spurnir af. Sjór
er morandi af fiski sem
mn
veður en gangan stendur ekki
að jafnaði nema hálfan mánuð.
Fiskiveiðar hafa verið stund-
áðar þarna með herpinót en nú
hefur verið tekin í notkun lönd-
unaraðferð, sem gerir það að
verkum að fiskurinn kemur
aldrei upp í fiskiskipin heldur
er dælt beint úr sjónum og
fluttur eftir leiðslum til vinnslu
stöðvanna.
Aðferðin er sú að nótin með
fiskinum í er dregin upp að
ströndinni. Þar er fiski og sjó
tekur við önnur dæla, sem knýr
fiskinn altt að kílómeters leið
til niðursuðuverícsmiðja, flokk-
unarstöðva og söltunarstöðva
og upp í tíu metra háar
geymsluþrær.
Við seinni dæluna er það
mikill sjór látinn renna burt
að á álcvörðunarstaðinn kemur
einn liluti af fiski á móti hverj-
um tveimur af sjó.. Þetta lönd-
unartæki fyllir þró, ,sem rúmar
fimm og hálft tonn af fiski, á
fimm mínútum.
Verkfræðingarnir, sem smíð-
uðu dælukerfið, segja að það
muni ekki vera nothæft nein-
staðar annarsstaðar, því að
fiskmergð sé meiri við Kamt-
sjatka en á nokkrum öðrum
miðum í heimi.