Þjóðviljinn - 09.05.1953, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 09.05.1953, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 9. maí 1953 Þegar asninn og björn- inn fóru að spila Geit, asni, glaðlyndur api og klunnalegur björn ákváðu að verða hljómlistarmenn. Þeir fundu sér nótur og hljóðfæri og settust síðan undir linditré í von um að töfra alla sem framhjá færu með samleik sínum. — Og brátt voru þeir allir farnir að sarga og blása og gerðu ógnar- legan hávaða mel fiðlum sínum, flautunni og horninu. — „Ilætt- um, bræður, hættum!“ kallaði apinn. „Þessi hávaði er hræði- legur. Þetta skánar ef til vill ef við skiptum um sæti. Björn, seztu hérna fyrir framan geitina. Eg ætla að sitja hjá asnanum.“ — Hljómlisíarmennirnir skiptu um sæti, en þeir spiluðu engu betur en áður. — „Bíðum andar- tak,“ rumdi asninn. „Eg er bú- inn að finna ráðið. Ef við sitjum í beinni röi getum við áreiðan- Iega leikið ófalskt.“ — Þeir fóru að ráðum asnans. Hljóðfæraleik- ararnir settust í röð og byrjuðu á ný.jan leik. En tónarnir voru engru fegurri og nú fóru þeir að jagast uin hvernig þeir ættu að sitja og hvað þeir ættu að gera. •— Næturgalinn heyrði þessar há- væru raddir og flaug til þeirra. Dýrin Ieituðu strax ráða hiá hon- Þessi mynd heitir Hinzta kveðjan, ingu hans í Listamannaskálanum. ma'rgar myndir selzt. Hún verður eftir Jón Engilberts, og er. á sýn- Hefur sýningin verið fjölsótt og opin enn um skeið. J t um. „Segðu okkur hvernig við eigum að bæta samleik okkar,“( grátbáðu þau. „Við höfum nótur og góð hljóðfæri. En við vitum ekki hvernig við eigum að koma okkur fyrir“. — Þá sagði nætur- galinn „Ef þið emð hvorki ' söngnir né hafið góðan smekk þá er sa.ma hvernig þil sitjið. Þið getið aldrei orðið hljóm- Iistannenn‘' loffs). (Dæmisögur Kri- ' i 1 dag er laugardagurinn 9. ” maí. — 129. dagur ársins — Háfióð eru í dag kl. 2.05 og 14.32. BÚKAKESTFARAK. . ÞEIR YKKAR, sem ætla að taka þátt í að æfa þjóðdansa, mæti í Þingholtsstræti 27 (MIR- salnum) kl. 2.30 á laugardaginn. Æskilegt er að sem flestir verði með. Suðurnesjamenn Söngfélag verklýðssamtakanna í Reykjavik endurtekur 1. maí-söng sinn í Sandgerði kl. 2 á morgun. Lúðrasveit verkaiýðsins aðstoðar. Stjórnandi Sigursveinn D. Krist- insson. — Suðurnesjamenn ættu að'fjölmenna á þessa söngskemmt- un. Fæknávarðstofan Austurbæjarskólanum. Sími 5030. Söínin Landsbókasafnið: kl. 10-12, 13-19, 20-22 alla virka daga nema laugar- daga kl. 10-12 og 13-19. Þjóðminjasafnið: kl. 13-16 á sunnu- dögum, k>. 13-15 á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum. Náttíirugripasafnið: kl. 13.30-15 á sunnudögum, kl. 14-15 á þriðjudög- um og fimmtudögum. Nýlega opinberuðu trúlofun sína á Akureyri ungfrú Jóhanna Edvalds- dóttir, Grundar- götu 4, og Geir Egilsson, háseti á Svalbak. Tíminn segir i gaer að það sé „auðvelt" að svara ádeilum Þjóðviljans á Frumsókna rf lokk- inn úf af mein- særum hans í sam- itandi við bernámið og fleira. — Samt hefur nú Tíntinn iátið það undir höfuð ieggjast enn sem kornið er, og mun þá skýringin vera sú að hann hirði aldrei um að elta ólar við siíka stnámuni. Þetta er alltof „auðvelt“ til að maður ómaki sig á að svara því! ÚTVARPIÐ flytur í kvöld leikrit eftir Agnar Þórðarson. Nefnist það Förin til Brazilíu, og mun vera fyrsta leikrit Agnars sem opinber- lega ér flutt. Áður munu sámningar hafa tekizt með höf- I undi og Þjóð- j leikhúsinu um J flutning leikrits er nefnist Þeir koma í haust, en 1. þáttur þess hefur birzt i Tímariti Máis og menningar. Síðar á þessu ári kemur út slcáldsaga eftir Agnar og verður þetta ár máski mikið sigurár hans sem rithöfundar. — Leikstjóri í kvöid er Lárus Páls- son. TINDURINN OG KVENFÓLKIÐ Tinduritin á Fúsíjama, hinu helga fjalli Japana, er að sjálfsögðu mikill áfangaslaður pílagríma þar í landi. Þó fjallið sé nær 4000 metra hátt gattga þúsundir manna árlega á tindiun. Sú var. tíðin' að leiðinni þangað upp var skipt í tiu áfanga, og þá urðú konur að gjöra svo vel að nema staðar í áttunda áfanga. Þær voru ekki nógu tignar verur til að mega troða fótum liinn helga tind. Nú mun það bann löngu vera úr sög- unni, en það var brezk kona s.em fyrst rauf bannið, áitð 1867. ÆFR Félagar! Munið að greiða félags gjöldin skilvíslega í byrjun hvers mánaðar. Léttið starfið og komið sjálf í skrifstofuna. Hún er opin ’daglega kl. 5-7. Wi’. Nei, það er ekkert sérstakt; ég var bara að borða morgunverð. GENGISSKRÁNTNG (Söíugengi): 1 bandarískur dollar kr. 16,41 1 kanadískur dollar kr. 16,79 l enskt pund kr. 45,70 100 danskar kr. kr. 236,30 100 norskar kr. kr. 228,50 100 sænskar kr. kr. 315,50 100 finsk mörk kr. 7,09 100 belgískir frankar kr. 32,67 10000 franskir frankar kr. 46,63 100 svissn. frankar kr. 373,70 100 tékkn. kcs. kr. 32,64 100 gyllini kr. 429,90 1000 lírur kr. 26,12 Hnífsdalssöfiuinin Frá Kristjönu K, Hjaltalín Brok- ey 100 kr. BHS 100. Jónina Pét- ursdóttir 50 og bækur. Smiðir i Langholtsskóla 150. Elin Þóra Guð- iaugsdóttir 100. Magnús Guðlaugs- son 100. Guðjón B. Guðlaugsson 150. Jensína Gunnlaugsdóttir 109. Indriði Gunnlaugsson 100. Hlíf Gunnlaugsdóttir 100. Ólafur Gunn- laugsson 100. Haraldur Sigvalda- son 100. NN 100. Skipverjar á Hvalfelli 1650 kr. — Gert er ráð fyrir að söfnuninni Ijúki nú um iiiðjan mánuðinn. MESSUR Á MORGUN Háteigsprestakall: Messa í Sjómanna- skólanum kl. 2. Al- mennur bænadag- ur. Séra Jón Þor- varðsson. Fríkirkjan: Messa kl. 5. Sr. Þor- steinn Björnsson. Bústaðaprestakall: Messa í Foss- vogskirkju kl. 2. Séra Gunnar Árnason. Uangholtsprestakall: Munið bæna- daginn. Messa kl. 5 í La.ugar- r.eskirkju. Samkoma að Háloga- landi kl. 10:30 f.h. Sr. Árelíus Nieisson. Laugarneskirkja: Messa kl. 2 e.h. Bænadagur.' Barnaguðsþjónusta kl. 10:15 f.h. Sr. Garðar Svavars- son. Dómkirkjan: Almennur bænadag- ur. Messa kl. 11. Herra biskup- inn prédikar. Sr. Jón Auðuns þjón- ar fyrir altari. Messa kl. 5. Sr. Óskar J. Þorláksson. Nesprestalíall: Messa í Kapellu Háskó|>ans kl. 11 árdegis. Hinn al- menni bænadágúr. Sr. Jón Thor- arensen. Fastir liðir eins ’ ,'C* \. -s venjulegá. Kl. Jt 12.50—13.35 Óska- 1 .-*\ \ lög sjúklinga (Ingi ’ björg Þorb). 19.30 Tónleikar: Samsöngur. 20.30 Tón- leilcar pl.: Tiibrigði í F-dúr eftir Beethoven (Arthur Schnabel leik- ur). 20.45 Leikrit: Förin til Braz- ilíú, eftir Agnar Þórðarson. — Leikstjóri: Lárus r Pálsson. — Kl. 21.35 Tónleikar pl.: Hnotu- brjóturinn, ballettsvíta eftir Tschai kowsky (Sinfóniuhljómsveitin í Philadelphiu leikur; Stokowsky stjórnar). 22.10 Danslög pl. — 24.00 Dagskrárlok. Samvinnan,’ apríl- hefti, flytur grein um Islendinga- sagnaútgáfuna. Þá er birtur Annáll landhelgismálsins. 1 Svipum samtíðarmanna er sagt frá Nkrumah og tilraun á Gull- ströndinni. Sagt er frá húsmæðra- fundum kaupfélaganna. Viðtal er um Samvinnustarfið í Danmörku. Þá er spurt: Hvenær verður mat- vælabúvi undirdjúpanna lokið upp? Birt er niðurlag greinar Kristjáns Jónssonar um verzlun- arsamtölc við Isafjarðardjúp. Ýms- ar fréttir frá kaupfélögunum eru i heftinu, einnig smágreinar ýms- ar — auk margra mynda. EIMSKIP: Brúarfoss fór frá Reykjavik í fyrradag áieiðis til New York. Dettifoss fór frá Cork 6. þm. áleiðis til Bremerhaven, Warne- múnde, Hamborgar og Hull. Goða- foss fór frá Vestmannaeyjum 3. þm. ál.eiðis til New York. Gull- foss fcr frá Kaupmannahöfn í dag áleiðis til Leith og Reykja- víkur. Lagarfoss er fyrir vestan land. Reykjafoss er á leið -til Ála- borgar og Kotka. Selfoss er á leið til Austfjarða frá Gautaborg. Tröllafoss er í Reykjavík. Straum- ey fór frá Borðeyri í gær til Reylcjavíkur.. Birte fór frá Rvík norður um land í gær. Laura Dan er í Reykjavík. Bii'gitteskou fór frá Gautaborg i gær áleiðis til Reykjavíkur. SKIPAÚTGERS RIKISINS: Hekla fer frá R.eykjavík ki. 14 í dag austur um land í hririgferð. Esja kom til Reykjavíkur í gær- kvöld að austan úr hririgférð. Herðubreið var væntanleg’ til R- víkur í morgun frá Áustfjörðum. Skjaldbreið fer frá Reykjávik kl. 16 í dag til Breiðafjarðar. Þyrill er á Vestfjörðum á norðurlei'ð. SKIPADEILD SIS: Hvassafell fór frá Pernambuco 25. apríi áleiðis tii Rvíkur. Arnar- fell fór frá Rvík í gærkvöidi á- leiðis til Finnlands. Jökulfell fór frá Rvík 6. þm. áleiðis til Austur- Þýzkalands. Kvenfélag Kópavogslirepps held- ur bazar á morgun, sunnudaginn 10. mai, kl. 3 e.h. í barnaskólan- um. Ágætt úrval af barnafatnaði og fleiri munum. Krossgáta nr. 74. Lárétt: 1 sjávardýr 7 gat 8 liggja 9 fornafn 11 líffæri 12 samteng- ing 14 einhver 15 rándýr 17 skst. 18 endir 20 mærin Lóðrétt: 1 jurt 2 dýr 3 skst. 4 skordýr 5 nóg 6 húsi 10 seiði 13 málmur 15 títt 16 stormur 17 skst. 19 fólag Lausn á krossgátu nr. 73. Lárétt: 1 ískur 4 ös 5 ææ 7 fló 9 kær 10 púi 11 æti 13 al ,15 og 16 stutt Lóðrétt: 1 ís 2 kol 3 rd 4 Öskra 6 æfing 7 fræ 8 ópi 12 tau 14 ls 15 ot rtieJttélwíKiÍhrt^Íelsen'. - . 1 f■ 36. dagur. Uglus-pegill og félagar heyrðu ógnvænlegan hávaða undan tjp!ddúknum, þar sem saman blönduðust hræðsluóp og kvein og ásakanir, þv) hið guðhrædda fólk sakaði hvert aonað um að hafa velt krukku hins helga vatns. Það varð því reiðara sem lengur leið, og fpr að berja^^tijr pti^tta^.. St*pd, með voðalegum atgangi. Jlárf’., J .. Í. „ r Ugiuspegill var mjög ánægður yfir þessum. atburðum, en þó varð hann hálfu glaðari er hann sá asnahn hlaupa brott með tjaldið, krukkuna og hælana í taumnum; en eig- andi tjaldsins, kona hans og dóttir þrifu i það t>g .reyndu .q&l halda (þiyí..f&s$ru. .I^Tj.asnjnn ;f£aK.,:firvp£gun:| beint upp í loftið og hrein með hryllilegum látum. Meðan asninn beið þess að hinn brennándi eldur undir tagli hans slokknaði, liéldu hinir guðhræddu áfram slags- málunum. Án þess að hirða hið minnsta um þá tóku múnkarnir að safna saman þeim peningum cr fallið höfðu til jarðar i þsltfjþpnum. Ugluflrpegjli: með frómum svip — eri hirli þó sinn hlut, eða vel það.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.