Þjóðviljinn - 23.05.1953, Síða 5

Þjóðviljinn - 23.05.1953, Síða 5
Laugardagur 23 maí 19.53 — JÞJÓÐVXLJINN — (5, Skipulagður ólifnaður í öllum frönskum borgum Um 100 fulltniar frá 19 ’öndum sitja nú á ráöstefnu í Paiis og fjalla um saurlifnaö, sem yfirvöldin leyfa eöa þola, og hvernig megi binda endi á hann. Dr. André Cavaillon, fulltrúi franska heilbrigðismálaráðu- neytisins, skýrði fulltrúum frá iþvi nú í vikunni, að í hverri einustu borg Frakklands ætti Ein þekktasta herhljómsveit Breta flýgur til Varsjá á krýn- ingardag Elísabetar drottning- ar 2. júní n. k. til að halda þar hljómreika. Hljómsveitin mun leika við dansleik sem haldinn ver'ður í tilefni krýning arinnar, halda þrjá hljómleika fyrir almenning og leika fyrir pólska hermenn. Hljómsveitin er úr riddaraliði drottningar, en móðir hennar er heiðursforseti þess. skipulagður ólifnaður sér stað, enda þótt ólifnaðarhús hefðu verið bönnuð með lögum árið 1946. Það væri farið í kring- um lögin á ýmsan hátt og hann nefndi sem dæmi, að í Grenoble væru hanzkaverzlanir notaðar til að breiða yfir ósómann, en fatabúðir í Strasbourg. Hann vitnaði í opinbera skýrslu ráðu- neytisins, þar sem segir að „stúlkur úr öllum stéttum séu reiðubúnar að selja blíðu sína fyrir miðdegisverð, bíóferð eða sígarettupakka eða af einskæru lauslæti." Hann minnti á, að um leið og lögin um bann við ólifna'ðar- húsum voru samþykkt. gengu í gildi önnur lög, sem fyrirskip- uðu lögreglunni að semja skrár yfir þær stúlkur sem stunda skækjulifnað og sagði, að ólifn- aðarhúsum hefði stórum fjölg- að síðan þau voru bönnuð, og störfuðu með fullri vitund yfir- valdanna. siræim Ber til baka ,,fréttirnar“ um pyndingar — lofar aðbúnaðinn í fangelsinu, segir að handtakan og dómurinn hafi verið réttlætanleg. Blaöamenn í:é fréttastofum á Vesturlöndum höfðu hlvkknð til aö hitta bandaríska fréttaritarann William Oavis, sem dæmdur var fyrír tveim árum fyrir njósnir af dóvnstól í Prag. en látinn var laus fyrír nokkrum dögum, og hafa upp úr honum efni 1 níðsögur um tékkneska al- hýÖuríKið. Þei.' r.rðu fyrír vonbrigðum. Oatis ræddi við blaðamenn við komuna til Niirnberg á bandaríska 'hernámssvæðinu í Fyrir nokkru kom upp eldur í clnu nýjasta o ; glæsilegasta skipi Dana, KRONPBINS FRED- ERIK, í höfninni í Hanvick á Eng andi. S. .plo lagðist á liliðina og þá fyrst varð eldurinn slökktun Flugvélar gegn engispreffum Engisprettur herja nú á lönd- in fyrir botni Miðjarðarhafs. Til vandræða horfir í Jórdaníu og í suðurhéruðum Egypta- lands, Aswan og Kena. Skor- dýraeitri er stráð yfir engi- sprettuhópana úr flugvélum. Þýzkalandi. Hann neitaði með öllu að ræða réttarhöldin og njósnadóminn og vildi ekki einu sinni svara spurningu um hvort honum hefði fundizt dómurinn réttmætur. Hann bar til baka allar áróðursfréttir um. að hann hefði sætt pyndingum og misþyrmingu. Aðbúnaður hans í fangélsinu hafði verið þannig, að hann hafði yfir engu að kvarta. Hann sagðist hafa varið tím- anum til tónlistariðkana og tékkneslcunáms. Hann bar einn- ig til baka ,,fréttir“ um, að Framh. á 11. síðu. Grænlenzk byggð í eyði vegsia flugvallargerðar Bandaríkjamenn hrekja Grænlendinga frá heimkynnum þeirra í Thule. tbúnm nýleadunnar í Thule á Grænlandi er nú ekki lengur vært í heimkynnum sínum og búa þeir sig*undir aö flytja lengra norður á bóginn. Bandaríski herinn hefur und- anfarin ár unnið að lagningu flugvallar við Thule, sem nota á til loftárása á Sovétríkin, ef til styrjaidar kemur. Vélask-rolt ið og flugvéladynurinn, sem fylgir þessum framkvæmdum, hefur fælt burt veiðidýr Græn- lendinga, sem nú sjá ekki ann- að úrræði .en flýja frá heim- kynnum sínum lengra norður á bóginn og koma sér þar fyrir á nýjan leik, byggja ný hús, skóla, verzlunarhús og kirkju. Það var augljóst frá upphafi, að þannig mundi fara, en danska stjórnin lét samt undan kröfu Bandaríkjanna um her- stöð í Thule, við eina' meirihátt ar byggðarlagið á strandlengju, sem er þúsundir kílómetra. 1- búar landsins, sem á að heita danskt, og þeir danskir horg- arar, eru hraktir út á gaddinn til að hliðra til fyrir stríðsund- irbúningi Bandarikjamanna. Þetta er Martin gamli Carl- sen, faðir hins nafntogaða sldp- stjóra Kurts Carlscns og einn þeirra manna, sem Bandaríkja- stjórn óttast að muni steypa sér af stóli, ef þeir stíga þar á land. FullS friífrelsL kristindóms- fræðsla í ungverskum skólum leggur kirkjunum fil fé næstu 20 ár Einn þekkta-"ti kennimaður ungversku mótmælenda- kirkjunnar. Jancc Peler biskup, er nú staddur í Bretlandi og tiélt fund meö sextíu brezkum prestum á sunnudaginn var og svaraö’ þar ýmsum spurningum um kirkjulíf í heimaiandi sínu. i Hann var spurður um dóm- inn yfir Mindzenti kardinála, sem dæmdur var í fangelsi fyrir njósnir og skemmdarverk og svaraði því til, að það mál hefði ekki komið kirkjunni neitt við, — það hefði verið stjórn- málaátök. Fyrir stríðið 'hefði kaþólska kirlcjan verið ríkis- kirkja og, stærsti jarðeigandi landsins. Hér hefði orðið breyting á og henni hefðu fylgt ,,nokkrir erfiðleikar.“ Peter biskup sagði, að krist- indómsfræðsla ætti sér stað í skólunum og sæju prestar um hana e&a kennarar, sem kirkj- an legði til. Öllum kirkjum væri hér gert jafn hátt undir höfði. Aðspurður sagði Peter biskup, að engin tilraun væri gerð í skólunum til að halda „kommúnískum“ skoðunum að börnunum. Stjórnin hefði ekki einungis tryggt öllum trúai-flokkum fpllt jafnrétti, heldur jaf nframt tryggt þeim fjárhagsgrundvöll í 20 ár. Framlag ríkisins til kirknanna yrði minnkað um 25% á fimm ára fresti og væri ætlazt til, að kirkjurnar gætu sjálfar sta'ðið undir öllum kostnaði með frjálsum sam- skotum safnaðanna að 20 árum liðnum, þegar ríkisstyrkurinn hætti. Hið gífurlega tjón sem varð á kirkjubyggingum á stríðsáruiíum hefði að verulegu leyti verið bætt upp af ríkinu, sem hefði lagt stórfé til end- urreisnar kirkna og viðgerðar á skemmdum. Nýjar- kirkjur hefðu líka bætzt við, og Peter biskup nefndi sem dæmi að í biskupsdæmi hans hefðu fjórar nýjar kirkjur risið af grunni, síðan styrjöldinni lauk. Danskir kratar spilítu tyr- ir hjálparbeiðni færeyskra verkfallsmanna Fjárstyrkur barst aðeins frá Islandi Málgagn færeyskra skilnaöarmanna. 14. september, sem Er.endur Patursron er ritstióri aö’, hefur ráðizt liarkalega á stjórn danska alþýcusambandsins. Erlendur Patursson er einnig formaður færeyska sjómanna- félagsins og tilefni árásarinnar er framkoma dönsku alþýðusam bandsstjórnarinnar í sambandi við verkfall færeysku sjómann- anna, sam lauk fyrir skömmu Alliir ©r var- iitii Vi'ðhorf til áfengismála er með nokkuð sérstökum hætti hjá frændþjóð okkar Svíum eins og'þessi auglýsing frá einu útibúi sænsku áfengisverzlunar- innar ber með sér: „Afengisverzlunin verður lok- uð, meðan vormarkaðurinn stendur yfir* til að koma í veg fyrir misnotkun. Af þessari á- stæðu eru hei'ðraðir viðskipta- vinir vorir áminntir um að birgja sig upp í tæka tíð.“ eftir að hafa staðið frá áramót- um. Samtök sjómannanna fóru fram á fjárstyrk við verkalýðs- samböndin á öllum Nor'ðurjönd- um, en hjálp til verkfalls- manna barst aðeins frá Islandi. Erlendur Patursson he’dur því fram, að stjórn danska alþýðu- sambandsins hafi spillt fyrir styrkbeiðninni hjá samböndun- um í Noregi og Svíþjóð með því að gefa þeim „rangar og villandi upplýsingar." 1 þessu sambandi ræðst 14. september harðlega á færeyska sósíaldemókrata og þá einkum formann þeirra, Mohr Dam, sem er borið þáð á brýn að hafa .fórnað hagsmunum sjó- manna fyrir pólitíska sérhags- muni. Færeysku sósíaldemó- kratarnir hafa revnt öli brögð til að þvinga færeysku verka- lýðsfélögin inn í danska alþýðu sambandið. ,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.