Þjóðviljinn - 12.06.1953, Blaðsíða 11
Föstudagur 12. júní 1953 — ÞJÓÐVILJINN — XU'
Niðnr graiarholtlð
Framhald af 7. síðu.
með heimsauðvaldinu er að
verða lýðum ljós á íslandi. Og
íslendingar eru andvígir þess-
ari aðferð, og munu ekki leyfa
öllu lengur slíka meðferð á
nafni sínu og heiðri ■ í heimin-
um. Af þeim sökum er Sjálf-
stáeðisflokkurinn að tapa. Af
þeim sökum er íslenzkt aftur-
hald á vonlausu undanhaldi.
iOg það er gott.
Við undirritaðir bönnum
strangiega
íslenzkir valdamenn hafa
vissulega treyst því að þeim
mundi takast að leika tveimur
skjöldum fyrir þjóðinni meðan
dagur entist þeim. En þeir
háfa misreiknað sig, og eru
mótmæli bændanna á Vatns-
leysuströndinni spánnýtt dæmi
um það. Ef til vill finnst okk-
ur stundum sem við lifum á
svipdaufum og örlöglausum
tímum. En mótmæli þessara 14
bænda settu þó, meðal annars,
að geta fært okkur heim sann-
inn um að svo er ekki. Því
þetta stutta ávarp á eftir að
verða eitt hinna stóru plagga
Islandssögunnar, eitt þeirra
sem varpa skærum bjarma yf-
ir líf íslendinga í, þessu landi.
Yfir þessu skjali ríkir einmitt
öll sú mannlega reisn sem við
sárast þurfum á. .að halda. Eða
Einíöld spurning
Nú sitjum við <uppi með her
í landinu,. vansiðað herlið er
sýkir þjóðlífið út frá sér í
ýmsar áttir. Meðal annars hafa
nokkrar ungar íslenzkaf stúlk-
ur hlotið .að fórna framtíð sinni
og heill í félagsskap hemáms-
liðsins —■, og kannski eru sum-
ar þeirra úr Heimdalli. Eða
því ekki það! En af því um
örlagamál er að ræða og af því
vinur minn Geir Hallgrímsson
var einu sinni andvígur her-
stöðvum á íslandi, að maður
tali ekki um her í landi, þá
vii ég spyria hann-persónulega
einnar spurningar. Hann minn-
ist þess ef til vill að flokks-
menn hans sögðu ðr A-banda-
lagið var á döfinni að þeir
myndu aldrei samþykkja her-
setu á íslandi á friðartímum.
Er herinn kom samt, og meira
að segja að toeiðni þeirra, af-
sökuðu þeir sig og .sögðu að
nú væru aldeilis ekki friðar-
tímar — það væri stríð í Kór-
eu. Aðrar „málsbætur" áttu
þeir ekki. Nú eru þeir . að
ljúka við að semja frið í Kór-
eu, og því vil ég spyrja: Á nú
amerískí herinn ekki að hverfa
af.tur heim, fyrst aftur eru
skollnir á friðartímar? Spurn-
ingin er ofur einföld. Eg vænti
þess að svarið verði það líka.
mundu það ekkí fágæt tíðindi
að 14 alþýðumenn standi þann- Nýiasta hugsjónin
Eg hafði í hyggju að minnast
,ig uppi í hárinu á heimsveldi
og herveldi og tali við það
eins og krakka sem ekki mega
tína ber á ákveðnum stað: Við
undirritaðir. bönnum hér með
stranglega .allar hernaðarað-
'gerðir í löndum okkar. Eg segi
ykkur að sjaldan hafa jafnfá
orð varpað jafnskærum bjarma
yfir lyndiseinkunn þjóðar. Og
í kröfu bændanna um þyngstu
refsingu yfip þá er rændu þá
löndunum er falið sjálft upp-
haf endalokanna: upphafið að
endalokum þess valds er und-
anfarin ár hefur hreykt sér í
hæstri svívirðing á landi hér
og leitazt við að snúa sögu ís-
lentíinga upp á andskotann,
eins og aðrir hafa stundum
snúið faðirvorinu. Eg segi ykk-
ur að þessi krafa, hún brennur
heitum loga á bökum þeirra í
stjórnarráðinu. Og það er líka
gott.
Baejarpósturinn
Framhald af 4. siðu.
menningarþjóða, nema þegar
■ um er að ræða forlagsrit eða
forla.gsbækur á afgreiðslum
þar sem ekkert annað er selt.
— Nú er sök sér að taka
jafnvel heilan glugga undir
ca. 100 eintök af splunkunýrrj
bók í einn dag. En áð halda
þeim aið yfirleitt og láta
margar ágætar bækur hverfa
í skuggann að ástæðulausu,
það er ekki æskileg verzlunar-
menning. — Það eiga helzt
aldrei að yera nema eitt eða
tvö eintök af sömu bókinni
samtímis í , sama verzlunar-
glugganum. Útstillingin á að
vera sem fjölbreytilegust og
almenningi að gefast kostur á
að sko'ða sem flestar bækur
verzlananna, án tillits til þess
tf hvort viðkomandi bókabúð eða
il útgefandinn, sem stendur á
að bak við hana, hagnast krón-
sæng upp reidda? Það er af
því að öll félagsþróun mann-
anna stefnir frá auðvaldí til
sósíalisma, frá sérhyggju til
samhygðar, frá einstaklings-
ráni til félagsnytja. Sjálfstæðis-
flokkurinn er í veru sinni sam-
tök um arðrán, eins og heims-
auðvaldið í dag er á sinn hátt
arftaki þrælaskipulags fornald-
ar og lénsskipulags miðalda.
Öll þessi skipulög byggjast á
þeirri hugmynd að maðurinn
skuli vera manni vargur. Mann
kynið sem heild hefur aldrei
litið glaðan dag; einstaklingar
hafa kynnzt hamingjunni í
svipulum andrám og draumi,
en í stórum dráttum hefur fjöld
inn alltaf lifað þræla- og hunda-
lífi. Nú hefur ný skipan kom-
izt á samfélagshætti mann-
anna vítt um heim, og við
horfum fram til þeirra tíma er
hamingjan verður ævinlegur
förunautur‘manneskjunnar, svo
vel sem hún er gerð. í dag er
það höfuðatriði toaráttu okkar
sem hér eigum heima, í ham-
ingjuviðleitni fslendinga, að
heimta ísland úr hers höndum,
stofna hér að nýiu sjálfstætt
itt
unni meir eðu' minna. — Finn-
ur“.
á olíuhneyksli, iandsbanka-
gróða, fisksölustuld og fáein
iatriði önnur er einkenna svo
yndislega valdaskeið núverandi.
ríkisstjörnar. Eg hafði einnig
í hyggju að víkia ofurlítið að
Heimdalli sérstaklega, ætlaði
til dæmis að rifja upp fróðlegt
atvik frá Austuryelli 30. marz
1049 er þeir Heimdellingar
voru gerðir út af örkinni með
kylfur til að berja á alþýðu
Reykjavíkur, — og lýsa þvl
hvernig orðið Heimdellingur
er að verða skammaryrði í ís-
lenzku máli. Mér vinnst ekki
timi til þess, en af því manni
dettur auðveldlega hermennska
og annar garpskapur í hug þeg-
ar félag þetta ber á igóma, þá
skal .aðeins minnt á hugmynd-
ina um íslenzkan her. Hún kom
fyrst fram í áramótagreinum
þeirra Hermanns og Bjarna —
af því þeir vita að þeir eru
að tapa, eru hræddir. Að vísu
slógu þeir undan í bili af því
kosningar voru fyrir dyrum og
það hófst mikil mótmælaalda.
En það er jafnvíst að gerð verð-
ur tilraun um.stofnun innlends
hers eftir kosning.arnar -— ef
stjórnarflokkamir fá ekki ræki-
legan skell á kiördegi. En þó
þeir hlaupist eins og skræfur
frá hugsjón sinni núna fyrir
kosningarnar, skulu þeir vita
að þeir hafa ekki bitið úr nál-
inni með þau orð. Og fái þeir
þrátt fyrir 'allt ekki þann skell
sem þeir þarfnast, og reyni því
að koma draumi sínum í verk,
þá er ekki útilokað að íslenzkt
fólk felli á þá enn þyngri
dóm en falizt igetur í nokkrum
kosningum. —
Frá sérhyggju til
samhygðar
-Af hverju er afturhaldið á
íslandi á undanhaldi? Af hverju
sér Sjálfstæðisflokkurinn .sína
og óháð friðarríki. Við höfumi
nýleg dæmi þess að sú bar-
átta getur verið sigursæl ef
hún er háð af nægri einbeitni,
ef menn standa sameinaðir og
láta ekki hrekjast af rétti sin-
um. Þau skulu vera síðustu orð
mín að þessu sinni að heita á
hvern góðan dreng, er orð mín
heyrir, til fylgis í þeirrj bar-
áttu. Eg heiti á ykkur í nafnl
þess lands er við byggjum, í
nafni þeirrar framtíðar er okk-
ur dreymir — í nafni sjálfs;
þess lífs er við lifum.
, ■'85 '
lætur þvo sængur- og koddaver vikulega.
Þetta þykir sjálfsagt, en hafið þér athugað
hvort í sængurfatnaði yðar sé hreint fiður
og dúnn ? Sennilega ekki. Innan í hinum
hreinu sængurverum getur falizt aragrúi
sýkla, ásamt ýmiskonar öðrum óþrifnaði.
Látið okkur því hreinsa fiðrið og dúninn
í sængurfötum yðar.
FLJÖT OG GÖÐ AFGREIÐSLA.
Hveragerði _ Selfoss — Eyrarbakki
r:
Frá Reykjavík:
Kl. 9.00 árd. Kaupfélag Árnesinga
— 10.30 árd. Steindór
— 2.30 e.h. Steindór
— 6.30 e.h. Kaupfélag Ámesinga
Frá Selfossi:
Kl. 10,30 árd. Kaupfél. Ámesinga
— 2 e. h. Steindór
— 3,30 Kaupfélag Áraesinga
— 5,30 Steindór.
Frá Stokkseyri:
Kl. 9.45 árd. Kaupfélag Ámesinga
— 1.15 e.h. Steindór
— 4.45 e.h. Steindór.
Frá Hveragerði:
Kl. 11 árd. Kaupfélag Árnesinga
— 2,30 e. h. Steindór
— 4 e. li. Kaupfélag Árnesinga
—■ 6 e. h. Steindór.
1
Kvöldferðir:
Að Selfossi alla laugardaga kl. 8 s.d. Steindór.
Að Selfossi alla sunnudaga kl. 7,30 s.d. • Steindór.
Frá Selfossi laugardaga kl. 10,30 s.d. Steindór.
Frá Selfossi sunnudaga kl. 9 s.d. Steindór.
Ennfremur: Alla sunnudaga frá Stokkseyri k 1. 9,15 s.d. frá Kaupfélagi Árnesinga.
Bifreiðastöð Steindórs
Kaupfélag Arnesinga