Þjóðviljinn - 26.07.1953, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 26. júlí 1853
'omstrcmda
Víða liggja „vemdaranna“ brautir.
Vart mun sagt un þá
að þeir íiafi óttazt mennskar þrautir
eða hvarflað frá,
þótt þeim enga auðnu muni Iiyggja
íslandströllin forn.
Mér er sagt þeir ætli að endurbyggja
Aðalvík og Horn.
Við sem eitt sinn áttum þarna lieima
imdrumst slíkaii dug.
Qkkur þykir þægilegt að gleyma
því sem skelfdi hug.
Gleyma ísi cg úímánaðasveltu,
angri, kotungsbrag.
Muna gróðuriim og sjávarseltu,
sól og júnídag.
Hungurvofur, lirjóstgrbyggðir kaldar
hegdeig flýðum við.
Vitið samt: Þær eru eftir taldar
ykkur, hetjuiið,
vegna þess, hann áfi okltar hióð þar
ofuriííinn bæ,
vegna þess, að vaggan okkar stóð þar
varin hungri og snæ.
Láttu, fóstra, napurt um þá næða
norðanélin þín,
fjörudrauga og fomar vofur Iiræða.
Feigum villtu sýn
þeim, sem vilja virkjum morðsins níða
vammlaust brjóstið þitt.
Sýni þeim hver öriög böðuls bíða
bernskuríkið mitt.
Byltist, fóstra, brim i geði þungu.
Bamio leitar þín.
Legg mér hvessta orðsins egg á tungu,
eld í kvæðin mín.
L,ífsins mátt og orðsins afl þar kenni
ármenn réttar þíns.
Níðings iljar alla daga brenni
eldur ljóðsins míns.
Jakobína Sigurðardóttir.
FramsoknaslkkkuHzm ætlar að kalda áfarm „á sama
©g
Tíminn gerir í fyrradag að
nmtalsefni sínu jafnvægið í
byggð landsins. Er þar rætt um
hver nauðsyn sé að dreifa
byggðinni og hagnýta gæði
landsins. Vitnáð er i hátíðlegar
samþykktir síðasta flokksþings
í þessu.efni, þar sem þetta er
orðað rnjög fagurlega.
í reyndinni er það þó svo,
að menn og flokkar verða ekki
dæmdir eftir orðum sínum,
fögrum loforðum og yfirlýsing-
um, heldur eftir verkum sinum.
Og hver eru þá verk Fram-
sóknarf-lokksins hvað þetta
snertir?
Verk flokksins eru þau, að
undir hans stjórn og stjórnar-
forustu hefur ekki einasta
magnast flótt.inn úr sveitunum
til bæjanna, heldur einnig frá
bæjum úti á landi til Reykja-
víkur og Suðurnesja.
Tíminn segir, að á tímabili
nýsköpunarstjómarinnar hafi
stefnan miðast við það, „að nóg
væri að byggja fá svæði á land-
inu og Stór hluti sveitanna og
mörg sveitarþorpanna gætu að
skaðlausu lagst i eyði“.
Þetta er hinn venjulegi Fram-
sóknarsöngur. Allir, sem vita
einhvern snefil af því, sem lief-
ur verið að gerast á undanförn-
um áruro vita, hinsvegar, að
þessu var þveröfugt farið. Á
iímabili nýsköpunarinnar var
stefnan einmitt miðúð við það,
að gera fólki sem viðast á land-
, inu kleift, að lifa mannsæmandi
lífi. í rauhinni má segja, að
það sé eina markvissa átakið,
sem gert Hefur verið í þessu
efni.
Hvað er .sem þarf að gera
til að undirbyggja atvinnulíf
bæja og þorpa úti á landi svo
að fólk get; haldizt þar við?
Og hvað ■ þarf að gera til þess
3ð lífvænlegt og arðvænlegt sé
að búa í sveitunum?
Undirstaðan undir ■ afkomu
fólks eru atvinnutækin. Þess
vegna þarf að koma upp sem
fullkomnustum atvinnutækjum
á hinum ýmsu stöðum, Það var
þess vegna, sem Sósíalistaflokk-
urinn beitti sér fyrir því í ný-
sköpunarstjórninni að bæjum
og stærri þorpum úti á landi
væri gert kleift að fá til sín .
tógarana, sem veri'ð var að
kaupa tíl landsins. Bleð stofnun
Stofnlánadeildar sjávarútvegs-
ins og þeim hagkvæmu kjör-
um, sem hún bauð, var þetta
gert kleift. Með smíði íuga
nýrra fiskibáta og byggingum
nýrra hraðfrystihúsa í stærri
og smærri þorpum var atvinnu-
líf þeirra eflt. Væri nú áreiðan-
lega dauflegt um að litast. úti
um land, ef hinir ýmsu 'staðir
byggju ekki að þvi, sem gert
var á nýsköpunarárunum.
Til þess að búskapúrjnn í
sveitunum geti verið arðvæn-
legur, þarf að ríkja velmegun
við sjávarsíðuna. Þar er.bcsti
og öruggasti markaðurinn fyrir
afurðir landbúnaðarins Á ný_
sköpunarárunum v.ar einmitt
verið að leggja og treysta þenn-
an grundvöll, auk þess sem
miklu fé var varið beint til
uppbyggingar landbúnaðarins.
En hver var afstaða Fram-
sóknar?
Þá var afstaða Framsóknar
sú, að hún beitti sér af alefli
gegn allri nýsköpun. Hún beitti
sér gegn kaupum togaranna og
einn helsti fjármálaspekingúí
flokksins hélt því fram, að
Framh. á 11. síðu.
SKÁK
Ritstjóri: GuSmundur Arnlaugsson.
ungnnga
4. limferS 1953
F. Schafarelli - Jonathan Penrose ar hafði svartur eigi tima til að
1 Bgl—f3 Bg8—f6 léika c7—c6. Dxb7 er tvieggjað-
2 c2—c,4 g7—g8 ur leikur, en hvítur hefui átt að
3 b2—b3 Bf8—g’í reyna hann. Eftir þann leik sem
4 Bcl—b2 0—0 hvítur velur nær svartur undir-
5 g2—g3 . d7—d6 tökunum á snjalian hátt.
6 d2—d4 Rb8—d7 16 Df3—f4 h5—Ii4!
7 Bfl—g2 e7—e5 Þetta er meira'en strandhögg, það
Þetía er engfin peðsfórn, svartur á er upphaf innrásar! Snotur er
Rg4 í handraðanum. drottningarveiðin 17 Dxh4 g5! Og
8 0—0 Hf8—e8 eftir 16 g4 nær svartur snarpri
9 e2—e3 e5—e4 sókn með mannfórn. 18 g4 Bxg4
10 Bf3—d2 P.d7—fS 17 hxg4 Rxglt 18 Khl Bh6 19
11 Bbl—c3 Bc8—f5 Df3 Hxe3 20 Dxb7 Hae8.
12 h2—h3 h7—h5 17 g3xh4 BfG—h5
13 Í2—f3 e4xf3 18 Df4—f2 Bg7—h6
14 Ddlxf3 Dd8—d7 19 Hal—el c7—c6
15 Kgt—h2 Rf8—li7 20 d4—d5 He8—e7
Það er ólga í taflinu þótt það 21 Df2—f3 Ha8—e8
sýnist slétt á yfirborðinu. Ridd- Hvitur er aðeins of seinn, dxc6,
arinn kemur í tæka tið til að bxo6, Dxc6 kostar skiptamun:
BfU og nú Khl, Rg3t eða Kgl
BxeSf. Hann verður þvi að valda
e3 og þá lokar svartur hornalín-i
unni.
22 Rc3—dl Bh6—f4t
23 Kh2—gl c6—c5
24 Bb2—c3 Bf4—g3
Nú er ctaðan orðin þröng hjá hvítl
25 Bdl—f2 Bg3xh4
26 e3—c" Bh7—g5
2,7 Df3—dl Bf5xh3
Sigurinn er unninn, svartur getur
valið um leiðir.
28 Hel—e3 Bh3xg2
2D KKlxg2 Bh4xf2
30 Hflxf2 Bg5xe4
31 Ed2xe4 He7xe4
32 He3—h3 Öd7—g4f
33 Ddlxg4 He4xg4f
34 Kg2—h2 f7—f5
og Schafarelli gafst upp.
Penrose hefur teflt ská.kina á-
gæta vel. Hann er efnilegastur af
ungum skákmönnum Breta, til-
þrifamikilí og skemmtilegur taf1-
maður. Á síðasta Hastingsmóti
varð hann efstur ásamt Golombek,
Yanofsky og Medina.
Skagarnenn bíða ósigur í knaítspyrnu.
— £g er óánægður
OG SVO einn góðan veður-
dag fer maður að horfa á
knattspyrnukappleik. Það eru
Skagamenn gegn Dönum. En
bá vantar Ríkarð og Þórð.
Nú er eftir að vita livað þeir
geta, þegar aðalkappana
vantar. Donni leikur mið-
framherja í stað Þórðar.
Hann er fimur í fótunum, þó
að hann sé dálítið letilegur
á stundum. Hver veit nema
•þetta gangi að óskum. Þarna
er múgur og margmenni sam-
ankominn til að horfa á. Alhr
eru að vona að þeir spjari
sig. Þeir eru að vísu dugleg-
ir og þarna er lítill naggur
alveg nýr á nálinm, fylginn
sér og mjög efnilegur, én
það dugar ekki. Þeír liafa
fengið tvö mörk á sig áður
en varir. Kunningi minn seg-
ir ‘við mig: Hvernig lizt þér
á Skagamenn núna? Allt í
?ági segi ég. Þeir spjara sig.
’J'ður vf>r'5ur að hafa trú a
þeim segi ég. En hann er
eitthvað daufur í dálkinn. Og
svo hefst síðari hálfleikur.
Ég er alltaf að bíða eftir að
þeir spjari sig, en það fer á
annan veg. Danirnir leika af
mikilli prýði og Skagamenn
fá fleiri mörk á sig. Samt
gefast Skagamenn ekki upp.
Þeir sparka heil ósköp og
virðast leggja sig alla fram,
en það kemur upp úr kafinu
að það er ekki sama hvernig
sparkað er. Það þarf ná-
kvæmni. Annars fer allt í
vitleysu. Danirnir liafa meiri
nákvæmni. Ég fer að verða
vondaufur. Skagamenn halda
áfram að fá mörk á sig. Ég
er hættur að geta talið. Þeg-
ar búið er að setja ég veit
ekki hvað mörg mörk skipta
þeir um markmann. Nú er
eftir að vita hvort hann get-
ur bjargað þessu við. Allir
vonast til þess. Hann ver eitt
þrumuskot. Síðan mistekst
honum herfilega, og boltinn
er í netinu. Eftir það getur
hann ekki neitt. Hann snýr
sér hingað þegar hann á að
snúa sér þangað og þangað
þégar hann á að snúa sér
hingað. Jæja þetta er kannski
of mikið sagt. En það er eins
og taugarnar séu komnar í
eiaa óúrgreiðanlega dræsu.
Hann getur ekkert varið.
Knötturinn liggur í markinu
æ ofan í æ. Það vantar Rík-
arð og Þórð. Svei mér þá.
En stundum ná Skagamenn
þó að gera góð upphlaup, og
það er þó alltaf skemmti-
legra 'að horfa á þá en Reyk-
víkinga sem alltaf sparka
beint af augUtn, og maður
heldur áfram að vona að þeir
geti að minnsta kosti sett
eitt mark. ÍEa því miður. Það
gengur ekki að óskum. Og
löks er leiknum lckið með ó-
sigri Skagamanna. Tíu mörk
gegn engu. Það voru ljótu
vonbrigðin. Mér finnst eðli-
legt að ég sé óánægður. Það
fylgir því ábyrgð að hafa gott
orð á sér. Þið verðið að at-
liuga það, strákar mínir, að
þegar menn hafa verið álitn-
ir beztu iknattspyrnumenn
landsins þá mega þeir ekki
láta setja tíu mörk hjá sér
og setja ekkert sjáiíir. Þáð
dugar ekki. Vörnin er veik,
bakverðirnir og markvörður-
inn. Þetta vitið þið. Þá er að
æfa þá sérsta'klega. Þjáífa þá
hvern um sig svo að þeir
bregðist ekki. Og ég skal
ekki hætta að hafa trú á ykk-
ur. Þið hafið þó • alltaf skilið
það að menn verða að lcika
saman í lcnattspyrnu ef hún
á að heíta knattspyrna. Ég
vona bara að þio vaamctið
ekki andstæðingana framveg-
is eins hrapalega eins og þið
hafið gert í þessum leik. £n
gaman verður að sjá þá af cur
á leikvelli Þórð og Ríkarð.