Þjóðviljinn - 03.09.1953, Síða 6

Þjóðviljinn - 03.09.1953, Síða 6
(5) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 3. september 1933 þlÓÐVIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundssao. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. ' Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsáon, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 linur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Aðild Kína að sameinuðu jijóðunum ' Undanfariö hefur stað’iö yfir fundur utanríkisráðherra Moröurlanda, en af íslands hálfu sótti hann Magnús V. Magnússon, skrifstofustjóri í utanríkisráöuneytinu, þar sem Bjarni Benediktsson var svo önnum kafinn í bak- tjaldamakkinu um stjórnaijmyndun að hánn haföi ekkii tök á að hitta starfsbræður sína. AÖ loknum fundinum í íyrradag var birt yfirlýsing um störf hans og samþykktir, og var ein þeirra mjög athyglisverö. Þar sagöi aö það væri samróma álit stjórna Íslands, Danmerkur, Noregs og Svíþjóöar aö alþýöustjórn Kína beri aö fara meö um- boð landsins hjá same:inuðu þjóöunum, en undanfariö hefur fulltrúi sjóræningja á Formósu farið meö þetta um- boð svo sem alkunnugt er. Aöild Kína aö sameinuðu þjóðunufm hefur verið eitt mesta deiluefni heimsstjórnmálanna um langt skeiö. Á þaö hefur veriö bent aö þessi miklu samtök stæöu eng- an veginn undir nafni, meðan fjölmennasta þjóö heims, sem drjúgan þátt átti í sigri sameinuöu þjóöanna, fengi ekki aö leggja þar til mála. Á það hefur einnig veriö bent aö þaö væri mál Kínverja sjálfra hvert stjórnarfar þeir veldu sér og að þaö væri algert brot á anda og lögum samtakanna að láta Sjang Kaisék halda áfram að fara með umboö þjóðarinnar eftir aö hún er búin aö hafna hom^m á eftinuinnilegasta hátt og hann er tekinn til viö sjórán. Þrátt fyrir þessar og aðrar röksemdir hafa Bandaríkin gert þaö aö fullkomnu kappsmáli aö kínverska þjóðin fengi ekki að senda fulltrúa sína til sameinuöu þjóöanna og allt til þessa hafa fylgiríki þeirra veriö næsta leiöitöm. Þó hefur afstaöa beirra verið mismunandi. Ýms ríki Vest- urevrópu hafa viðurkennt alþýöustjórnina í Kína og má þar nefna Bretland og Noröurlöndin — nema ísland. Og nú um skeið hefur þeirri skoöun vaxiö fylgi viða um lönd aö þaö væri mjög drjúgt framlag til sátta og auk- ins friðar í heiminum aö veita Kínverjum rétt sinn, en ýmsir valdamenn Bandaríkjanna sem sízt af öllu vilja slíka þróun hafa jafnframt hert á hótunum sínum og sumir haft við orð aö Bandaríkin myndu segja sig úr samtökunum ef Kínverjar fengju þar réttmætan sess. Utanríkisráöherrar Noröurlandahafa þannig tekið mjög nærtækt stórmál til meöferöar, stórmál sem eflaust mót- ar aö verulegu leyti störfin á þingi sameinuöu þjóöanna i haust. Og þaö er ástæöa til aö fagna niöurstöðum þeirra. Einmitt Norðurlöndunulm ber sérstaklega aö beita sér fyrir friðsamlegri sambúö og sáttum. og aðild Kín- vérja aö sameinuöu þjóöunum væri mikilvægt spor í þá átt. Væntanlega mun ríkisstjórn íslands einnig draga sínar sérstöku ályktanir af samþykktinni og viöurkenna alþýöustjórnina í Kína. Hðulverk íslands Þaö er ekki aðeins á fundi utanríkisráöherra Norður- landa sem sjá má aö árangurinn af friöarbaráttunni verð- ur æ víötækari, umræöur um friðarmálin skipa nú meiri sess í blööum en nokkru sinni fyrr. Morgunblaðiö birtir í gær forustugrein um friöarmálin og áfellist Sovétríkin injög harkalega fyrir aö vilja ekki beygja sig skilyröislaust undir fyriumæli Vesturveldanna um þaö hvernig ræöa skuli málefni Austurríkis. Svar viö þeirri forustugrein má segja aö birzt hafi samdægurs í forustugrein Alþýöu- biaösins, en þar segir „áö nú sé nauðsynlegra en nokkru siimi fyrr að koma í veg fyrir kjarnorkustyrjöld. Og af þessum sökum vex þeirri skoöun nú ört fylgi í Vestur- Evrópu, að knýja veröi Bandaríkiin og Sovétríkin til ein- hvers konar samkomulags. Slíkt samkomulag tekst nátt- úrlega ekki, ef annar hvor áöilinn eða þeir báöir hugsa séi’ áö fá öllum tillögum sínum framgengt. Báöir veröa aö sláka til. Annars er voöiim vís.“ En einmitt smáríkin geta haft mjög mikilvægu Iilut- verk'ii áð gegna til aö koma á friðsajmlegri sambúð, og sú ein stefna er í samræmi við lífshagsmuni íslenzku þjóðar- innar. Meö því að afneita bandai’ísku hernámi og tala máli sátta á alþjóðavettvangi getur ísland lagt a£ mörk- um stóran skerf til að afstýra vísum voöa. Verkfallið mikla skapaði ný viðhorf í Frakklandi Atvinnurekendur knuSir fil oð greiSa kaup fyrir verkfallsvikurnar ¥ Tm miðja síðustu viku huxfu fjórar milljónir verka- manna í Frakklandi aftur til vinnu sinnar eftir allt að þriggja vikna verkfall. Þar með hneig í bili mesta verk- fallsalda, sem risið liefur í Frakklandi. Mönnum blandast ekki hugur um að hér er að- eins um að ræða logn á milli rokhviða, orsakir stómúðrisins, sem hristi þjóðfélagsbyggingu Frakklands niður í grunn, eru samar og áður. Átökin í verk- föllunum stóöu milli ríkis- stjórnar frönsku borgaraflokk anna og franskrar alþýðu. Hvorugur aðili getur hrósað ^ ■"" r Erlcnd j tíðin di | sigri og enginn sem til iþekk- ir efast um að fyrr en varir hefst næsta lota. Stórverkföll- in komu heldur ekki óvænt, þau voru aðeins hámar’c smærri vinnustöðvana, sem sí- fellt hafa ágerzt í Frakklandi undanfarin ár. Dýrtíð hefur aukizt þar jafnt og 'þétt en atvinnurekendur með rík:s- valdið að bakhjarli streitzt á móti öllum kjarabóta'kröfum. T oks sauð uppúr í verkföll- ■“ unum miklu. Þau hófust meðal opinberra starfsmanna en breiddust skjótt út til fjölda einkafyrirtækja. Verka- menn fengu kröfum sínum um almenna kauphækkun ekki fullnægt en verkföllici hafa samt orðið afdrifarik. Þau hafa skapað nýtt ástand í Frakklandi. Verkfallsnefnd- irnar, skipaðar verkamönnum með mismunandi stjómmála- skoðanir og frá öllum verka- lýðssamböndunum, sem stjórn uðu verkföllunum, starfa enu. Verkamennirnir eru reiðubún- ir að hefja baráttuna á ný. Þeir hófu vinnu staðráðnir í því að varðveita unna einingu og létta ekki fyrr en þeir hafa fengið 'kröfur sínar uppfyllt- ar; segir danski blaðamaður- icm Erley Olsen í Land og Folk. Baráttuviljinn kom strax í ljós dagana sem vinna liófst. Ríkisstjórnin reyndi að láta reka úr vinnu þá starfs- menn, sem haft höfðu for- ystu í verkföllunum eða höfðu virt að vettugi stefnu um að koma til vinnu. Hvarvetna þar sem þetta var reynt neit- uðu meem að vinna no’kkurt handtak fyrr en þeir sem átti að reka höfðu verið teknir í vinnu á ný. Járnbrautar- starfsmenn á brautarstöðinni Montparnasse tóku til dæm:s stjórn stöðvarinnar í sínar hendur fyrsta vinnudaginn og sáu svo um að þeir menn, sem ætlunin va.r að reka úr vinnu, mönnuðu fyrstu lestimar sem lögðu af stað. Stjóm ríkis- járnbrautanna varð að beygja sig fyrir einhug verkamanna. \ ferkfallsmenn kröfðust þess ” að fá full laun fyrir þá daga sem þeir voru í verk- falli. Þessari kröfu þverneit- aði ríkisstjórnin og stjórnir verkalýðssambanda sósíal- demókrata og kaþólska þótt- ust hafa unnið mi'kinn sigur þegar þær fengu loforð Lan- iels forsætisráðherra fyrir því að kaupskerðing vegna verk- fallsins skyldi ekki koma öll í einu heldur smátt og smátt. En þá tóku verkamcnn til sinna ráða. Þegar póstmönnun um í París var tilkynnt að kaup fyrir verkfallsvikurnar yrði dregið af þeim, yfirgáfu þeir slcrifstofur og póstpoka allir sem einn og komu ekki aftur fyrr en póststjórnin lét undan og lofaði þeim að þeir skyldu fá verkfallsvikurnar að fullu greiddar. Það að at- vinnurekendur skuli ekki sjr. sér annað fært en að greiða starfsfólkinu kaup fyrir- þann tíma, sem það er í verkfalli, sýnir að jafnvel þeir viður- kenna að frcnsk alþýða getur rétt aðeins dregið fram lífið á því ikaupi, sem fullvinnandi menn fá fyrir störf sín. IITeira að segja Laniel forsæt isráðherra, milljónarinn og vefnaðarverksmiðjueigand- inn frá Normandí, viður- lcenndi þetta í útvarpsræðum sínum í verkfallinu. Hann lofaði því að kalla launanefnd rikisins til starfa eftir að dauf heyrzt hefur verið við öllum kröfum um það í hálft annað ár. Nefndin hefur þann starfa með höndum að reikna út hvað talizt geti lífvænlegt lág markskaup í Fra'kklandi. Eng- inn vafj er á því að nefndin, þar sem verkalýðssamtökin eiga fulltrúa, verður sem heild að viðurkenna þá stað- reynd að almenn kauphækkun er óhjákvæmileg. Au'.c þessa var ríkisstjóruin hral<:n til undanhalds í hverju málinu af öðru. Hún hefur orðið að hverfa frá fyrirætlunum sín- um um að seinka eftirlauna- aldri opinberra starfsmanna og að hækka tryggingagjöld og húsaleigu. Þegar rík:s- stjóniin sendi þingið heim í sumar eftir að þingmenn borgaraflokkanna höfðu geí- ið henni he'mild til að stjóina til hausts með tils‘.:ipunum, þót.tist Laniel og félagar hans geta gert hvað sem þeim sýnd ist. Franskur verkalýður sýndi þe'm með verkföllunum, að þar skjátlaðist þeim hrapalega. Forsætisráðherrann lcveinaði í árangurslausum útvarpsa vörpum sínum til verlca- manna, að afkoma. ríkissjóðs og atvinnuvega Fralfklands leyfði með engu móti að kjör þeirra, sem hann viðurkenndi að væru léleg, væru bætt. Verkamenn svöniðu mcð því að benda á öll milljarðahundr- uðin, sem ausið er til hervæð- ingar og stríðskostnaðar í endalausri og blóðugri bar- áttu í Indó Kína. Gróði stór- atvianurekenda hefur aldrei, verið meiri en aú. Almennt er viðurkennt að auðstéttin franska kemst að mestu lijá því að greiða s’.catta af telcj- um sínum og eignum. Illa fór fyrir Laniel, þegar hann stað- hæfði að ef orðið væri við kröfiun verkamanna þýddi það að þeir fengju lann sín greidd í fölskum peaingum. Hvaðanæva drifu til hans bréf frá verkamönnum, þar sem þeir benda á að sömu þingmenn og styðja stjórn hans voru nýbúnir að hækka þingfararkaup til sjálfra sín sem svarar fullum árslaunum póstþjóns. Kváðu verkamenn sér ekki vaadara en hinum háu ráðherrum að taka laun í fölskum peningum. TPklcert verkfall í Frakklandi hefur átt almcnnari sam- úð millistétta og bænda en það sem nú er nýlokið. Verk- fallsmenn gátu þraukað svo lengi sem raun ber vitni vegna þess hversu dyggilega bænd- ur, smákaupmetin og iðnaðar- menn studdu þá með f járfram lögum og vörugjöfum. Þessu LANIEL forsætisráðherra Frakklands (til hægri) og BIDAULT utanríkisráðherra koma af ráðuneytisfundi, ein- um af mörgum, sem haldnir voru verkfallsvikurnar. fólki var ljóst að verkaraenn háðu baráttu fyrir það engu síður en sjálfa sig. „Mótbár- urnar gegn tilslrpunum stjórn arinnar urðu að allsherjar mótmælum gegn lífskjörum, sem knýja miiljónir Frakka, hvort heldur er í þjónustu hir.s - opinbera eða eiakafyrir- tækja, til að lifa við skilyrði sem nálgast örbirgð“, sagði Henry Giniger, fréttaritari New York Timc*s í París, í blaði sínu 27. ágúst. Framliald á 11, síðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.