Þjóðviljinn - 08.10.1953, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 08.10.1953, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 8. október 1953 eisuilisþáttuF »#######################»###»#################################^ HeilrœSi handa nýgiftum Þa'ð er enginn hægðarleikur að vera spánný húsmóðir og þær eru fegnar góðum ráðum — en einkum fyrst í stað. Smám saman verður unga konan hikandi, því að hún fær of mörg heilræði; vinkon- urnar segja eitt, t.engdamamma og mamma allt annáð, og hverju á veslings nýgifta kon- an áð trúa? Það er ógerningur að fara eftir ötlum heilræðun- um, því að þau eru sum í mót- sögn hvert við annáð. Á konan þá alls ekki að sinna heilræðunum og fara eingöngu eftir sínu eigin höfði? Það getur hún auðvitað ef hún veit nákvæmlega hvað hún vill og kann til verka, en það eru fæstar. Flestar hafa þörf fyrir ótal heilræði. Aðal- atriðið er að læra að flokka góðu ráðin frá hinum slæmu og það er hægara sagt er gert. 1 hvert skipti sem ungu hús- móðurinni er gefið heilræði, ætti hún að spyrja sjálfa sig: Kemur þetta mér áð gagni ? Ef svarið er nei, þá sinnir hún heilræðinu engu. Með tilliti til þeirra hluta sem kaupa þarf til heimilisins, er na.uðsy.nlegt að gjalda var- hug við ráðum frá eldri ln7h: slóðinni, því að margt af þvi sem eldra fólkinu finnst hent- ugt og fallegt, hentar ekki vel á nýtízku heimili. Algengt er að eldra fólkið telur nauðsyn- legt að eiga stærri stofn af búsáhöldum en nú t’ðkast. Áð- ur fyrr var t. d. miðað við 12 af öllu. En tímamir hafa breyzt og venjurnar lika og það verður að taka tillit til þess, þegar keypt er inn. Vin- konan, sem haft hefur heimili i nokkur ár getur oft gefið betri heilræði í þessum efnum. Rafmagnstakmörkun Kl. 10.45-12.30 Fimmtudagur 8. október hvnrfi Nágrenni Reykjavik- " IIVClll ur, umhverfi Eliiða- ánna vestur að markalinu frá Flugskálavegi við Viðeyjarsund, vestur að Hlíðai-fseti og þaðan til sjávar við Nauthólsvík í Fossvogi. Laugarnes, meðfram Kleppsvegi, Mosfellssveit og Kjalarnes, Árnes- og Rangárvallasýslur. Hún veit hvað til er í verzlun- um og hún veit, hvað nútima heimili þarfnast, og bað er ó- hætt að hlusta á hana í sam- bandi við almenn innkaup á búsáhöldum. Þegar um er að ræða matar- í iibúinng,. hreingerningu og ,al- mennt héimilisiiald geta ráð liinna eldri verið ómetanleg. Þáð borgar sig að lilusta á þau; ævilöng reyns’a er dýr- mæt. en þess ber að minnast að sjaldan gera tvö heimiii ná- kvæmlega sömu kröfur til hus- móðurinnar, og þótt ráð sé í sjálfu sér ágætt, er. ékki þar með sagt að það komi öllum að notum. Og e.nginn getur sagt að svona eigi að gera þetta e'ða hitt; hver og einn hefur leyfi til að haga verkunum eftir eig- in höfði. Allar konur ættu að minnast þess og fara ekki að gera sér erfiðara fvrir með þvi að fylgja ráðum eidri og reynd ari húsmæðra, ef þeim finnst sjálfum þær geta gert verkin á einfaldari hátt. Jafnvel reynd um húsmæ'ðrum getur rkjátl- azt og þær eiga margar hverj- ar erfitt með að skilja, að það sem hentar vel á þeirra eigin heimili er óheppilegt og miður þægilegt á nýstofnuðu heimili. Skótízka haustsins Haustskórnir virðast ætla að verða einfaldir og látlausir og í mörgum, fjörlegum litum. Framleiðendurnir lofa þvx að skómir séu þægilegri en nokkru sinni áður og segja að það sé gömul kerlingabók að það þurfi að ganga skóna til. Þær konur sem fylgja nýju tízkunni og klæðast stuttum kjólum, verða að leggja enn meiri áherzlu á skóna en áður og í ár geta þær valið á milli fleiri skótegunda en nokkru sinni fyrr. Tízkan mælir áð þessu sinni ekki fyrir um hæð- ina á hælunum. Það má velja á milli alls konar hæla, allt upp í 9 cm háa, en 65/2 cm hælar verða sennnilega algeng- astir á hælaháum skóm. Röskur sendisveinn óskast til innheimtu og sendistarfs. ÞIÖÐVILIANN. sími 7500 Þriggja til íimra herbergja íbúð óskast nú þegar eða sem fyrst. Fyrirframgreiösla. Ægir Ólafsson, Sími 1372 og 7373 Villigœsir eftir MARTHA OSTENSO 58. dagur kennslukonumxi. Kynblendingsstúlka frá Yellow Post hafði fyrirfarið barni sínu fyrir tveim eða þrem árum og hún hafði verið sett í fang- elsi. Fangelsi það var staður, þar sem fólk var innilokað í þröngum klefum og sá aldrei liimin- inn, fann aldrei vindblæ leika um andlit sér -- hræðilegur staður, ef t:l vill enn verri en þetta heimili. Caleb gæti sent hana þangað, ef hann fengi frekari ásæðu til óánægju í hennar garð. Hann hataði hana, hún vissi það — hafði alltaf vitað það. Það var vegna þess að. hún hataði allt það sem hann tilbað — kornið, skepnurnar, framleiðslu moldarinnar. Hún hugsaði um Sve'n. Hún vissi að hann færi burt með hana, strax og tækifæri gæfist. Hún vissi að hann beið nótt og dag eft:r þessu tækifæri og hann myndi ekki hika við að standa upp í hárinu á Caleb ef eitthvað ynnist við það. En Caleb hafði töglin og hagldirnar þessa stundina. Strax og þau færu, myndi hann senda lögi'egluna á eft:r þeim. I fyrsta skxpti á ævinni fann Júdit að hún hafði innTega þörf fyrir Svein, sem ekki byggðist á einni saman ástriðu. Hún sá ekki lengur fyrir sér vöðvastæltan háls- inn á honum né karlmannlegar lxerðamar. Nú sá hún angurværðina, sem stundum brá fyrir i augnaráði hatis, þegar hún var að hæðast að honum. Hún lá í myrkrinu við hlið Elínar og hún þráði ekkert annað heitar en að mega s:tja þögul í návist hans. Hún fór að gráta og byrgði andlitið undir koddanum, svo að Elin lieyrði ekki til hennar. 3. Eftir skólatíma daginn eft!r gekk Linda heim með Sandbo bömunum til þess að flytja Sveini skilaboðin frá Júdit. Blóm'n meðfram veginum hölluðu undir flatt. Allur gróður hafði dafnað með afbrigðum vel í Oeland þetta ár. Böm:n höfðu aldrei fyrr fundið eins margar og mismunandi tegundir af fuglum og fiðrildum. Trjálaufin voru falleg og óskemmd. Lindu fannst gróðurinn vera eins fullkom’nn og sam- bandið milli heimar og Mark Jordans, og hún ósikaði þess að þessi fullkommm næði einn'g til Garefjölskyldunnar. Hún varð döpur í bragði þegar hún hugsaði um Júdit. Linda hafði hitt Mark Jordan því nær á hverjum degi síðan Klovaczfjölskyldan kom heim. Hann hafði haft tíma til að ríða heim að skólahúsinu og þar höfðu þau spjallað saman eða gengið út í skóg'nn og sezt við litlu tjörn- ina, sem Linda hafði uppgötvað fyrir löngu. Þau voru farin að gera áætlanir um framtíð- ina, þegar þau færu saman á brott frá Oeland. Vetumir þar vom of kaldir til að hægt væri að halda uppi kennslu fyrir börn sem áttu langt í skólann. „Mér þætti gaman að vera hér að vetrarlagi," hafði Mark einu sinni sagt. „E'nkum á Gare- heimilinu. Það væri óviðjafnanlegt tækifæri til að rannsaka mannlegt eðli, „Það yrði eftir af mér,“ hafði Linda svarað. „Ástandið þar er nógu lamandi við góð veður- skilyrði." Sveinn var að brynna hrossunmn, þegar kennslukonan og bömin komu í hlað. Hann flýtti sér að koma til móts við hana.. „Ertu með skilaboð frá Júdit?“ spurði hann, þegar böi’nin voru komin inn. Linda tók undir handlegg hans og gekk með honum að dælunnl. „Hún er að byrja að gjcyma jiessu, Sveinn, og hún biður þig að hafa engar áhyggjur. IJann hleypir henni ekki út úr húsinu ennþá, en strax og hann gerir það, ætlar hún að reyna að hitta þ:g. Þú ættir að reyna að vera þolinmóður, þangað til búið er að sæta heyið. Þá setur hann hana eflaust á bindivélina og getur ómögulega haft gætur á henni allan tímann.“ Sveinn yggldi s’g. „Fari hann til fjandans. Mig langar mest til að snúa karlfýhma úr háls- liðnum,“ sagði hann. „En hann mjmdi áreiðan- lega lifa nógu lengi til að koma mér í fangelsi.“- „Það er meinið, Sveinn. Hann mjmdi setja. allt á annan endann, ef þið færuð á burt núna. Ef til vill yrði hann fljótari að jafna sig, þegar uppskerunni er lokið. En Júdit langar jafn- mikið til að hitta þig og þig hana.“ 1 sömu svifum kom frú Sandbo út úr hús- inu. Sveinn rak hrossin út í hagarrn. „Jæja, hvernig gengur heyskapurinn hjá Gare ?“ spurði hún. „Alveg prýðilega,“ sagði Linda brosandi. Hún hafði ekki sagt frú Sandbo af vandræðum Júd- itar. Linda hafði hinsvegar sagt frú Sandbo, að hún og Mark hefðu í hyggju að giftast þegar- skólaárið væri á enda. Frú Sandbo hafði ekki sýnt á sér neina undrun. Hún hafði lengi átt von á þessu. „Flanaðu eltki að neinu," hafði hún. sagt í aðvörunartón og minnt hana á ólár.s- hjónaband Dóru dóttur sinnar. En frú Sandbo var upp með sér af traustinu, sem Linda sýndf henni og nú var framkoma hennar ævinlega mjög móðurleg. Mark kom nokkru seinna, og frú Sandbo varð að fá að hita handa honum kaffi. Þegai þg.u voru sezt vlð borðið, var hún svo nærgætin að fara fram og skilja þau eftir ein. Kaffið var mjög gott og hafði hressandi áhrif á Lindu. Hún talaði um ástandið á Gareheim- ilinu við Mark, og hann áleit að afskipti ann- arra gætu ekki orðið til góðs. „Stelpan ætti að strjúka, strax og ..tækifæri býðst. Og þó gæti karl'nn sjálfsagt komið þcim í bobba, ef honum dytti það í hug“, sagði Mark. „Já, ég veit það,“ viðurkenndi Linda. „En. þótt þau kæmust ekki lengra en til Siding. væri það ef t'l vill ávinningur fyrir þau. Eg býst varla við að Caleb Gare leitaði til lög- reglunnar til að stöðva þau — og konan lians mundi standa með Júdit og s'kýra frá öllu sem hún hefur orðið að þola. Og þó —“ Litida mundi allt í einu eftir hviksögunum sem hún hafði heyrt um það tangarhald sem Caleb haíði á konu sinni. „Þetta er synd og skömm. Ef stúlkan kemst einhvern tíma til borgarinnar, skal ég sanncr- lega gera allt sem ég get til að hjálpa henni.“ sagði Mark. „En ef ég talaði við gamla mann- inn og rejmdi að telja honum hughvarf, myndi hann sjáifsagt kasta mér á dyr. Hann var hjá okkur í gær og falaði heyið sem Anton þarf næstum að selja undan Ijánum til að afía sér peninga. Eg í-áðlagði Antoni að bíða eftir betra tilboði, og karlinn ætlaði að fljúga á mig. Hann er áranum ágjarnari. En Anton ætlar að minnsta kosti að bíða þangað til hann kemur aftur. Hann þarf á penkigunum að halda til að gera „þessar umbætur" eins og hann seg:r, áður en eftirlitsmaður stjórnarinnar kemur " „Hvernig líður honum, Mark? Heldurðu —“ „Eg er hræddur um að hann lifi ekki af v/:t- urinn. Auðvitað er ekki hægt að spá neinu — OttJir OC CAMWM Mamma er að stoppa í sokka, þegar dyrabjall- an kveður allt í einu við. Bent litli hleypur til dvra eins ogr fætur toga, og það er þá frænka hans sem .stendur fyrir utan. Er marnnia heima? spyr frænka. Já, svarar Bent. komdu bara innfyrir. Hún er að sauma göt li burtu. Karen litta var í kirkju fyrsta slnn. Hvemlg tikaðl þér í kirkjunnl? var hún spurð þegar heim koni. Það var voða skrýtið, svaraði Karen. Mamiim sagði ekki eitt einasta orð altan túnann.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.