Þjóðviljinn - 01.11.1953, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.11.1953, Blaðsíða 1
 Sunnudagur 1. nóvember 1953 — 19. árgangur 246. tölublað Iskyggileg yfirlýsing íslenzka ins i Grimshy um fyrirœtlanir Samkvæmt Reuterskeyti heíur Þórarinn Olgeirs- son, ræðismaður íslands í Grimsby, lýst yíir því að ríkisstjórn íslands sé reiðubúin til að taka upp samn- inga við brezka togaraeigendur um landhelgi íslands eí löndunarbanninu í Grimsby verði aflétt. Ekki er þess getið í skeytinu hver landhelgisréttindi íslend- inga stjórnin og ræðismaður hennar telji samnings- atriði. étfindi atriði við rœðismanns- stjórnarinnar Reutersskeyti þetta var sent frá Grimsby s. ]. fimmtudag og ritstjórn Þjóðvilians hefur séð það eins- og það birtist í blaði danskra kaupsýslumanna, Börsen, s. 1. föstudag.. Er þar skýrt frá tjllögu J-acks Vincents, forstjóra togaraeigenda, um að „aflétta banninu við löndun á íslenzkum fiski fyrst um sinn í mánuð. Á þessu tímabili verði tveimur ís- lenzkum togurum heimilað að landa á viku .. . Lagt er til að mánuður þessi verði notaður til þess að samið verði milli þessara tveggja landa um fiskveiðadeil- una, sem hófst fyrir tveimur ár- um, þegar fslendingar v'suðu brezku togurunum frá fiskveiða- svæðum sem nema mörgum þús- undum fermílna við strendur íslands ... Vincent forstjóri skýrir svo frá að vararæðismað- ur Jslands í Grimsby, Olge'rs- son, liafi lýst yfir því að stjórn hans sé reiðubúin. til ai hefja samninga, ef banninu í Gr'msby verði aflétt“. Þegar ríkisstjórn Islands læt- ur ræðismann sinn í Grimsby lýsa yfir því að hún sé reiðu- búin til þess að hefja samninga um landhelgi Islands er hún að sjálfsögðu jafnframt að gefa til kynna að í því máli sé um eitt- hvað að semia, þar komi til greina einhverjar tilslakanir af Stendur í stappi umTrieste Stjómir Júgóslaviu og Itaiíu eru báðar fúsar til að sitja fund með fulltrúum Vesturveldanua. til að reyna að finna lausn á Triestedeilunni, en setja báðar slík skilyrði að ólíklegt er að úr fundmum geti orðið. Italir kref j- ast þess, að annaðhvort fái þeir yfirstjóm A-svæðisins í hend- ur eða Júgóslavar hverfi burt af B-svæðinu, áður en fimm- veldafundur yrði haldinn, en Júgóslavar v'lja ekki si-tja fund- inn nema að öllu óbreyttu. Koná meiðist Um fimm-leytið í gær varð það slys innarlega á Laugavegi að fullorðin kona, Margrét Jóns- dóttir, Skipholti 20, varð fyrir strætisvagni. Lenti hún framan á öðru aurbretti vagnsins og féll í götuaa. Hlaut hún skurð á höfði og var flutt í Land spítalann til aðgerðar. fslands hálfu — að öðrum kosti væru samningar algerlega út í hött. Væri íróðlegt að fá að vita hver þau -atriði eru sem ís- lenzka r.'kisstjórnin telur samn- ingsatriði í sambandi við land- helgisréttindi fslendinga. Sé hins vegar eitthvað ranghermt í þessu Reutersskeyti ber ríkisstjóm- inni að leiðrétta það tafariaust og fá Reutersfréttastofuna til þess Wð senda út leiðréttingu eiirs og upphaflega skeytið. Eins og margsinnis hefur ver- ið rakið hér í blað'nu hafa Js- lendingar þegar unnið fullan sig- ur í landhelgisdeilunni. Þrátt fyrir mótmælj sín hafa Bretar v? y-irkennt nýju friðunarlínuna í verki; brezkir togarar hafa ver- ið teknir í landhelgi og greitt sekt'r sínar o. s. frv. Samning- ar um þetta mál geta ekki þýtt annað en það að ríkisstjórn /s- lands sé reiðubúin til að láta af hönduni einhver íslenzk lands- réttindi vegna annarlegra hags- muna ísienzkra gróðamanna í Bretlandt Eins og kunnugt er hefur Þórarinn Olgeirsson um langt skeið verið mil'iliður við sölu á íslenzkum f'ski í Bret- landi og er nú í samvinnu við Dawson, sem hirt hefur í milli- liðaá'agningu tvöfalt það verð sem Jslend'ngar fá fyrir togara- fisk. Kaupið miða! Happdrætti Þjóðviijans e* það mál sem nú og næstu vik- ur skipar sitt rúm í hugunt allra flokksmanna, mikils fjölda alþýðufólks og góíva ís- lendinga, allra se*i skiija hvers virði Þjóðviljinn hefir verið frá öndverðu í daglegrí 1,'ífsbaráttu þjóðarinnar. Aldrei hafa þó vinsæ.dir Þjóðviljans meðal alþýðu ver- ið slíkar sem nú, aldrei Jilut- verk hans svo mikilvægt sem nú, eftir að hann fór að koma út í 12 síðum. — Happdrætti Þjóðviljans er helgað þeim til- gangi að tryggja útkomu Þjóð- viljans áfram í 12 síðum, tryggja tilvem hans í nú- verandi stærð. Félagar, og áhugamenn, mun:ð að nota vel þessa helgi fyriv Þjóðviljahappdrættið. — Alþýðufólk og góðir Jslend- ingar, styrkið blað ykkav. Kaupið Þjóðviljahappdrættis* miða. VEGNA AFMÆ LISHOFS Sósíalistaflokksins var vinnu hætt snemma í gærkvöldi í Prentsmiðju Þjóðviljans, og var því ekki hægt að b-rta úr- slit kosninga í stúdentaráði. Ffiokksþingié ræddi í gær Þjóðviljann og verkalýðsmál Þingfundir hefjast í dag kl. 2. Fundir á flokks'þinginu í gær stóðu stutt, kl. 2—6. Voru aðal- málin Þjóðviljinn og verkalýðsmál. í gærkvöld sátu þingfull trúar og aðrir sósíalistar 15 ára afmælíshátíð fiokksins. Björn Svanbergsson hafði framsögu um Þjóðviljann og lagði áherzlu á hve stækkun blaðsins hefði treyst útgáfu þess og vin- sældir. í sama streng tóku aðrir þeir sem töluðu: Gunnar Jó- hannsson alþm., María Þorsteins- dóttir, Halldór Pétursson, Karl Guðjónsson alþm., Kristján frá Djúpalæk, Ásgeir Blöndal Magn- ússon, Ásmundur Sigurðsson, Ingi R. Helgason, Arnfinnur Jónsson. Pm verkalýðsmál hafði Hann’es Stephensen framsögu og hófusb umræður um þau mál, Umraeður um flokks-starfið á föstudagskvöld urðu ýtarlegar og s.tóð þingfundur til kl. hálf tvö um nóttina. Til máls tóku ísleif- ur Högnason, Skúli Guðjónsson,, Jóhannes úr Kötlum, Jón Rafns- son, Jóhann Kúld, Stefán Ög- mundsson, Ásgeir Böndal Magn- ússon og Einar Olgeirsson. Frá Esínnf feæjaráymm séð &JÓÐWILJINN 12 ®ím]M Marga sigra höfum vér. unn- ið: Laxness orðinn .öndvegishöf- undur heimsbókmenntanna (náttúrlega á eftir ægisnillingn- um Churchill), Torfi og I-fus'é- by gerðust Evrópumeistarar, Magga sigraði flugfreyjur margra þjóðlanda og Friðrik mátaði bræðraþjóðirnar á Norð ur’öndum. Einnig lánaðist oss’ að færa mr. Dawson frægan sigur og furður fjár. Já, vér erurrí allt-af að sigra og alltaf að vekja athygli. — En ég held vér höfum .aldrei unnið annan eins sigur og að koma Þjóð- viljanum upp í 12 síður, frá því hann var bara 8 síður — 4 síður, og ekki til. Þjóðviljinn er oss kærastur blaða, af því að: hann einn ís- lenzkra dagblaða er þjóðlegur: þ. e. a. s. hann er á móti her- riámi Kanans og hverskyns er- 1 lendri ásælni. Hann einn erí með alþýðu: hann tekur alltaí hennar málstað; hann vísar i veginn í verkföllum og kaup- j gjaldsbaráttu. Hann hamlar á| móti Ivgum hinna borgaralegu! dagbiaða, sem ganga erindai auðvaldsins, erlends o.g inn- lends. Væri Þjóðviljinn ekki, mætt- um vér una við lygavef borg- arapressunnar, værum eins og álfar' út úr-hól og vissum ekki neitt. Og þarfyrirutan er hann oft bráðskemmtilegur í þessu húmorfátæka landi-----og má þ.að kallast guðsþakkarvert, Með kærri þökk. Árni úr Eyjum. KENYA: Landið sem er baðað í blóði barna sinna, sem ekki hafa annað til saka unn- a ið en vilja yrkja þá jörð sem verið hefur feðra þeirra mann fram af manni, Kenya, landið þar sem lögreglusveitir brezku heimsvaldasinnanna hafa myrt 5000 manns á. einu ári, f’utt tugi þúsunda í fangabúðir, hrakið aðra tugi þúsunda frá heimilum sínmn og átt- högum, stíað sundur fjölskyldum, slátrað búsmala þcirra og lagt fátækleg hreysi þeirra í rúst. — Myndin: Þorp Kíkújúmanna jafnað við jörðu, íbúarnir hafa þegar verið fluttir í fangabúðirá

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.